Morgunblaðið - 06.03.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 43
Drauma eldhu´s
...á drauma verði
Innrettingar
Dalvegi 10-14 • 200 Kópavogur
Sími 577 1170 • Fax 533 1127 • www.innx.is
376.138,-
m/vsk.
Innifalið: Höldur, álsökklar, hillusam-
stæða 90 x 217cm, hillur og plata undir efri
skápum, hnífaparabakki, mjúklokun á
skúffum og skápum.
Ekki innifalið: Borðplötur, uppsetning,
blöndunartæki, vaskur, eldhúsborð,
rafmagnstæki, ljós og stólar.
Mia innrétting
I´talskt gaeðaeldhu´s
XEINN IX 08 01 007
Allar innréttingar hjá Inn X eru smíðaðar úr fyrsta flokks hráefni.
Lamir eru með mjúklokun í öllum uppsettum skápum
og skúffur og skúffuskápar með fullum útdrætti og mjúklokun.
Hafðu samband og fáðu okkur í heimsókn til þín gegn vægu gjaldi
og við hönnum með þér draumaeldhúsið þitt, eða komdu í heimsókn
í sýningarsal okkar að Dalvegi 10-14 og skoðaðu úrvalið.
Við tökum vel á móti þér – barnahornið er á sínum stað.
Opnunartími er 9-18 virka daga og 11-16 laugardaga.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
LEIKVERKIÐ No Dice sem leik-
hópurinn Nature Theatre of Okla-
homa sýnir á leiklistarhátíðinni
Lókal er heldur óvenjulegt, ef
marka má lýsingu af því á vef hátíð-
arinnar. Í því eru túlkuð hljóðrituð
símtöl leikstjóra verksins, Pavol
Liska, við vini og vandamenn. Leik-
arar hlusta á upptökurnar úr I-pod-
spilurum og flytja og túlka samtölin
með margvíslegum hætti á meðan á
sýningu stendur. Engar tvær sýn-
ingar eru eins því það er ekki farið
eftir handriti, aðeins fyrir fram sett-
um reglum leikstjóra.
Liska segir titilinn vísa í ákveðna
tegund neitunar í ensku máli. Spyrji
maður einhvern hvort hann geti gert
fyrir mann eitthvað ákveðið getur sá
svarað ,,no dice“, sem þýðir ,,alls
ekki“ eða ,,engan veginn“. ,,Dice“
þýðir teningar en í verki sínu Poet-
ics: a ballet brut notaði leikhópurinn
einmitt teninga til að ákveða hreyf-
ingar og atriði. Í No Dice voru hins
vegar notuð spil.
Eins konar söguljóð
Liska segir sýninguna ekki bein-
línis tilraunakennda því leikararnir
fylgi ströngum reglum og þurfi að
hreyfa sig með ákveðnum hætti.
Tungumálið og röð atriða eru aftur á
móti fyrir fram ákveðnir þættir í
verkinu. Í lýsingu á vefsíðu Lókal
segir að hér sé eins konar söguljóð á
ferð, ,,ort til heiðurs hvunndags-
hetjum hins kapítalíska heims“. Í
upphafi voru til um 100 klst. af sím-
tölum og voru þau grisjuð niður í
fjögurra klukkustunda sýningu.
Liska vill ekki ljóstra of miklu upp
um efni símtalanna, í þeim sé rætt
um daginn og veginn. Hann gefur þó
upp að í þeim samtölum sem notuð
eru í sýningunni sé ákveðnum hlut-
um gefið vægi sem venjulega séu
taldir heldur ómerkilegir, ekki þess
virði að um þá sé samið leikverk.
Hvað fyrrnefndar reglur varðar seg-
ir Liska ákveðnar leikrænar hreyf-
ingar og myndrænar lýsingar verða
að koma fram í hverri sýningu. Þess-
ar hreyfingar og myndir eru 13 tals-
ins. ,,Leikararnir eru að opna ákveð-
in svæði á sviðinu hver fyrir annan,
þeir þvinga hver annan á ákveðna
staði og þetta er því ekki svo frjáls-
legt að þú megir vera hvar sem er á
sviðinu,“ útskýrir hann. Sýningin er
heilir fjórir klukkutímar að lengd og
því heldur betur mikið lagt á leik-
arana. Ólíkt hefðbundnum leikritum
er enginn texti lærður utan bókar
heldur áherslan lögð á hreyfiþjálfun
og myndræna túlkun.
Nature Theatre of Oklahoma
starfar sjálfstætt í New York. Liska
segir hópinn ekki vilja setja upp sí-
gild verk, þau segi hreinlega ,,no
dice“ við öllum slíkum boðum.
Kassastykki á Broadway heilla ekki.
Liska segir nokkuð erfitt fjárhags-
lega að reka sjálfstæðan leikhóp í
stórborginni, starfsemin krefjist
mikilla fórna og skuldindinga af leik-
hópnum. ,,Þetta er ekki áfangi á leið-
inni að einhverju öðru, þetta er það
sem við viljum gera,“ segir Liska.
No Dice verður sýnt annað kvöld kl.
20 í Sætúni 8, þar sem Heimilistæki
voru áður til húsa. Liska segir sýn-
ingarstaðina mikilvæga, þeir verði
að vera óvenjulegir. Verkið verði að
sýna í rými sem er ekki leikhús og
ekki ætlað til listrænnar starfsemi.
Engan veginn
Morgunblaðið/Frikki
Lókal fólk Þau Pavol Liska og Kelly Copper standa að baki No Dice. www.lokal.is
POPPSÖNGKONAN Rihanna hef-
ur bannað fólki að mæta með regn-
hlífar á tónleika á yfirstandandi
tónleikaferðalagi hennar um Bret-
landseyjar. Hún óttast að aðdá-
endur hennar fari að herma eftir
dansatriðinu úr myndbandinu við
sumarsmellinn „Umbrella“ eða
„Regnhlíf“ á hinu ástkæra ylhýra.
Snöggar hreyfingar með hvassa
regnhlífartinda gætu valdið stór-
slysum í áhorfendaþvögunni.
Öryggisvörðurinn Andy McDo-
nald var við störf á nýafstöðnum
tónleikum í sýningarhöllinni í
Aberdeen í Skotlandi þar sem regn-
hlífar voru gerðar upptækar til
þess að forðast slys. „Við vildum
ekki að fólk færi að dansa með þær
og stinga augað úr næsta manni í
leiðinni.“
Ónefndur aðdáandi söngkon-
unnar var hinsvegar ekki par hrif-
inn. „Ég hlakkaði mikið til að vippa
fram regnhlífinni þegar hún myndi
syngja lagið. Ég er búin að æfa
sporin í margar vikur og nú er það
allt til einskis.“
Reuters
Ábyrg Rihanna vill ekki að áhorf-
endur slasi sig á tónleikum hennar.
Bannað að
mæta með
regnhlíf