Morgunblaðið - 03.04.2008, Side 16

Morgunblaðið - 03.04.2008, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur lagt til við borg- arráð að gengið verði til samninga við ÍR um uppbyggingu íþrótta- aðstöðu í Suður-Mjódd. Um er að ræða byggingu fjölnota íþróttahúss á svæði ÍR. Í húsinu er fyrirhugað að öll íþróttastarfsemi ÍR vegna æfinga og keppni verði, m.a. handknattleikur og körfuknattleikur. Ölduselsskóli og aðrir skólar munu jafnframt nýta aðstöðuna. Úlfar Steindórsson, formaður ÍR, fagnar því að loks sé komið að upp- byggingu hjá ÍR en hann telur að ÍR-ingar hafi setið eftir í uppbygg- ingu á sínu svæði. „Ef menn horfa bara á sögu íþróttafélaga í Reykjavík hefur ÍR í rauninni setið á hakanum hvað varðar uppbyggingu á þeirra eigin svæði,“ segir Úlfar. Hann segir að frá því að félagsheimilið á svæð- inu var tekið í notkun árið 1996 hafi menn verið að „slást í þessum málum sem nú sér fyrir endann á. Þetta þýðir náttúrlega bara algjöra bylt- ingu fyrir íbúa í Breiðholtinu,“ segir hann af því að nú verði byggt upp íþróttahús og mannvirki sem verði með þeim hætti að ÍR sem íþrótta- félag geti miklu betur þjónustað íbúa hverfisins. „Þeir sem starfað hafa í ÍR hafa upplifað það dálítið sterkt und- anfarin ár er að það sem vantar til að félag geti verið félag er að sem flestir félagarnir hafi aðstöðu á einhverju einu skilgreindu svæði, en ekki út og suður.“ Hann nefnir sem dæmi að knattspyrnan hafi verið í Mjóddinni, á félagssvæðinu, handboltinn í Aust- urbergi, karfan í Seljaskóla „… svo er reyndar dansdeildin þarna niðri í félagsheimili, tae kwon do og júdó, en frjálsar niðri í Laugardal,“ segir Úlfar. Allar íþróttagreinar á einn stað Nú sjái menn fyrir sér að hægt verði að koma öllum íþróttagreinum sem stundaðar eru innan vébanda ÍR á einn stað. „Þetta mun ger- breyta félaginu að því leyti til að allir verða á sama staðnum.“ Úlfar segir að unnið hafi verið að málinu í mörg, mörg ár en síðastliðin tvö ár hafi verið unnið að þeim samn- ingi sem ÍTR hafi nú lagt fyrir borg- arráð. „Það er búið að vinna í deili- skipulagi á svæðinu og tvær þarfagreiningar frá hendi félagsins hafa verið gerðar. Síðan hafa póli- tískir fulltrúar komið að þessum við- ræðum við okkur. Við trúum því að þessu máli verði lokið með samþykkt borgarráðs á endanum,“ segir Úlfar. Um leið og borgarráð hefur stað- fest samninginn hefst samhliða vinna við hönnun sem byggð er á þarfagreiningunni. „Á sama tíma verður farið í að vinna fram- kvæmdaáætlun, en sú vinna er unnin í samstarfi framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar og Íþróttafélags Reykjavíkur [ÍR] og það er búið að tilnefna aðila, tvo frá ÍR, tvo frá Reykjavíkurborg og einn óvilhallan, til að vera í byggingarnefnd,“ segir Úlfar. Hann vonast til að framkvæmdir geti hafist á þessu ári. Í samkomulagi sem ÍR hefur gert við Reykjavíkurborg felst m.a. að reist verða hús fyrir aldraða norðan megin íþróttasvæðis ÍR, sem félagið gefur eftir. Í staðinn fær félagið svæði sunnan og vestan megin. „Við töldum að með því að gera þetta með þessum hætti væri líka auðveldara fyrir Reykjavíkurborg að koma fyrr og hraðar að þessu máli með okkur, vegna þess að þarna er í raun og veru verið að auka þjónustu við eldri borgara sem við viljum að sjálfsögðu stuðla að,“ segir Úlfar Steindórsson, formaður Íþróttafélags Reykjavíkur. Nýtt fjölnota íþrótta- hús ÍR mikil bylting Morgunblaðið/RAX Gervigras Úlfar Steindórsson, formaður ÍR, segir tilkomu gervigrasvallarins, sem tekinn var formlega í notkun um það leyti sem ÍR varð 100 ára á sl. ári, hafa breytt ótrúlega miklu fyrir starfsemi félagsins. Samþykkt Úlfar Steindórsson, formaður ÍR, og Bolli Thoroddsen, formað- ur ÍTR, handsala samþykkt ÍTR og ÍR um nýja íþróttahúsið. Í HNOTSKURN »ÍTR leggur til að samið verðivið ÍR um framlag Reykja- víkurborgar næstu fimm árin til uppbyggingar íþróttaaðstöðu í Suður-Mjódd. » Í húsinu er fyrirhugað að öllíþróttastarfsemi á vegum ÍR verði, en starfsemin hefur fram að þessu verið víða í borginni. »Ölduselsskóli og aðrir skólarmunu einnig nýta aðstöðuna. »Vonir standa til að fram-kvæmdir hefjist á þessu ári.smáauglýsingar mbl.is Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. Borgartúni 22 • 105 Reykjavík • Fax 5 900 808 fasteign@fasteign.is • www.fasteign.is 5 900 800 Glæsileg og mjög rúmgóð íbúð á tveimur efstu hæðunum, 133 fm ásamt 27 fm bíl- skúr. Íbúðin var öll endurnýjuð á smekklegan hátt fyrir nokkrum árum. Vönduð gólfefni og innréttingar. Suðursvalir og glæsilegt útsýni. Möguleiki að innrétta bílskúr sem íbúðarrými eða vinnustofu. Verð 38,9 millj. ATH. SKIPTI Á ÓDÝRARI EIGN. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 17-18 LEIFSGATA 27 – EFSTA HÆÐ + RIS Falleg kjallaraíbúð, 53 m2 í hjarta miðborgar Rvk. Saml. inngangur, hol, geymsla, upp- gert eldhús og baðherbergi, rúmgóð stofa og svefnherbergi. Skjólgóður bakgarður er vísar í suður. Verð 15,5 millj. OPIÐ HÚS Í KVÖLD KL. 19-21 MÁNAGATA 22 Vorum að fá í sölu 177 fm 6 herb. endaíbúð á 3. og 4. hæð ásamt bílskúr. Vandaðar inn- réttingar, skáli með miklu útsýni yfir borgina og víðar. Suðurvalir. Neðri hæðin er 113 fm og efri 57 fm. Stórkostleg nýting. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Verð 43,1 millj. ATH. SKIPTI Á ÓDÝRARI EIGN. RAUÐHAMRAR – GRAFARVOGI Nýkomin í sölu 3ja herb. 82 fm íbúð á 1. hæð í enda með sérinngangi. Björt og vel skipulögð íbúð með sérgarðskika og nýleg- um sólpalli með skjólgirðingu. Endurn. þak- járn. Frábær staðsetning. Verð 24,5 millj. HÆÐARGARÐUR Nýkomin í sölu 3ja herb. 99 fm íbúð við Tröllakór í Kópavogi. Íbúðin er á 2. hæð í lyftuhúsi með útsýni til suðurs. Skiptist í 2 svefnherb., eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, baðherb. og þvottahús. Rúmgóð geymsla, hjóla-og vagnageymsla er á 1. hæð. Stutt í skóla og íþróttasvæði. Verð 25,9 millj. TRÖLLAKÓR Nýkomin í sölu glæsileg 97 fm 2ja herbergja íbúð í velviðhöldnu fjölbýlishúsi á 2. hæð. Komið inn í hol með fataskáp. Eldhús, bað- herbergi m/tengi fyrir þvottavél, rúmgott svefnherbergi, tvær stórar, bjartar stofur. Nýstandsettar físalagðar vestursvalir. Falleg- ur bakgarður. Þvottahús og tvær sérgeymsl- ur í kjallara, (önnur sem herbergi 8 fm). Verð 28,9 millj. DUNHAGI Vorum að fá í sölu sérlega skemmtilega, vel skipulagða og bjarta 4ra herb. 86 fm íbúð m/glugga á 3 vegu og yndislegt ústýni til vesturs yfir Skerjafjörðinn, yfir Fossvogsdal- inn og víðar. Gott skipulag, nýl.stands. bað- herb. Hús og sameign yfirfarin. FRÁBÆR STAÐSETNING NEÐST Í FOSSVOGSDALNUM INNST Í BOTLANGA MEÐ ÚTSÝNI. FURUGRUND - NEÐST Í DALNUM SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ FASTEIGN.IS OPI Ð HÚS OPI Ð HÚS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.