Morgunblaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 18
Áfangastöðum flugfélaga fráÍslandi í Austur-Evrópufjölgar stöðugt, og er þaðvel, því þar er margt að sjá og njóta. Einn þessara staða er Varsjá sem Iceland Express hefur beint flug til í maí. Kannski er það vegna þess að maður er með staðlaða mynd í hausnum af Austur-Evrópu eða af því að maður veit ekkert við hverju má búast: Varsjá kemur í öllu falli skemmtilega á óvart enda er hún full af lífi, grænum svæðum, söfnum, leikhúsum, matsölustöðum og síðast en ekki síst góðu fólki því borgar- búar eru einstaklega gestrisnir, hlý- ir og persónulegir. Varsjá er allt önnur en áður enda hefur borgin breyst ótrúlega mikið undanfarin ár. Fyrir áratug var hún ekki mjög aðgengileg fyrir erlenda ferðamenn því flestar götur voru eingöngu merktar á pólsku og fáir töluðu ensku. Nú eru allar götur og staðir merktir á ensku, menntun al- menn og flestir enskumælandi, sér- staklega unga fólkið. Borgin er vaxandi þar sem upp- bygging hefur verið mikil frá falli kommúnismans árið 1989 og ekkert lát er á þeirri uppbyggingu. Varsjá er líka borg mikilla andstæðna, sem gerir hana einmitt sjarmerandi og fjölbreytta. Í miðbænum eru himin- háir skýjakljúfar í vestrænum stíl sem minna á Manhattan, en skammt frá þeim leynast gamlar niðurníddar Rússablokkir sem minna á fortíð kommúnismans. Þetta er því suðupottur þar sem austur og vestur mætast á margan hátt. Hæsta bygging Varsjár, Höll vísinda og lista, gnæfir dökk yfir í miðbænum og stingur skemmtilega í stúf við glerhýsin allt í kring. Bygg- ingin er risavaxið minnismerki sem Stalín lét reisa um kommúnismann, og hún ber óneitanlega gamla tím- anum vitni enda byggð í sovéskum stíl. Yngri kynslóðir Varsjárbúa telja þessa byggingu fagra en þeir sem eldri eru hata hana margir, því hún minnir á vonda tíma, sem þeir sjálfir upplifðu. Hvað sem heima- mönnum finnst, mega þeir sem heimsækja Varsjá ekki sleppa því að gera sér ferð upp í þessa 42 hæða byggingu og horfa yfir borgina. Í þessari höll eru hvorki meira né minna en 3.000 herbergi, tvö leikhús, bíó, skrifstofur og ótal margt annað tileinkað vísindum og listum. Besta kaffið í gamla bænum Þeir sem koma til Varsjár mega heldur ekki missa af gamla bænum (Stare Miasto), sem er einstakt svæði. Þar eru gamlar hlýlegar byggingar, torg með iðandi mannlífi, götumarkaðir og allskonar veitinga- staðir, litlar búðir og gallerí svo fátt eitt sé nefnt. Besta kaffið í Varsjá ku einmitt vera í gamla bænum á stað sem heitir Pozegnanie 2 Afryka. Fyrir þá sem lítið eru fyrir kaffi en kjósa heldur te, er óhætt að mæla með tehúsi í gamla bænum sem heit- ir Same Fusy. Þar fyrirfinnst einnig veitingastaðurinn Pierrogeria, fyrir þá sem vilja smakka á hinum klass- íska pólska rétti pierogi. Þarna er þetta pastakennda góðgæti nefni- lega ofnbakað, sem mörgum finnst mun kræsilegra en þegar það er soð- ið. Þessir réttir fást með nokkrum ólíkum fyllingum og bragði, en sá rússneski er sérlega góður. Uppreisn og uppbygging Varsjá er seigluborg, eða öllu heldur eru Varsjárbúar seiglufólk. Almennir borgarar fylktu liði og tókst hið ómögulega árið 1944 þegar neðanjarðarhreyfingin og heimaher- inn reis upp gegn nasistum og hafði betur. Full ástæða er til að mæla með heimsókn í stórbrotið sögusafn- ið sem heitir einfaldlega 1944. Þetta safn er á þremur hæðum og frábær- lega útfært. Það er mögnuð upplifun og öllum hollt að fara þangað. Varsjárbúar reistu líka borgina úr rjúkandi rústum eftir að hún hafði nánast verið jöfnuð við jörðu í heim- styrjöldinni síðari. Varsjá var París Austur-Evrópu áður en nasistarnir Morgunblaðið/Kristín Heiða Lírukassi Kynlega kvisti má finna í gamla bænum eins og þessi tvö sem voru við hafmeyjuna, tákn Varsjár. Konungshöllin Í Łazienki-garðinum lét listrænn konungur forðum reisa byggingar sem eru augnayndi þeirra sem þangað koma. Stysta gatan Hún nær ekki hundrað metrum en er engu að síður fögur. Vor í Varsjá Höfuðborg Póllands, kemur á óvart, í já- kvæðum skilningi eins og Kristín Heiða Kristinsdóttir komst að þegar hún heimsótti Varsjá á dögunum. |fimmtudagur|3. 4. 2008| mbl.is daglegtlíf Helstu fréttirnar úr mínu bæjarlífi þessa vikuna eru hiti, hálsbólga og beinverkir; inflúensa. Það er heldur einhæft að mega varla fást við annað en draga að sér andann og anda svo frá sér aft- ur. Og lagfæra sængina.    Ekki má reyndar gleyma atvinnubílstjórunum sem lúsuðust um götur bæjarins í fyrradag og aftur í gær og lágu á flautunni, til þess að mót- mæla háu verði á eldsneyti. Ég stalst út í fyrra- dag til að taka af þeim mynd – en heyrði flautið í svefnrofunum síðdegis í gær og lét það duga. Hafði ekki einu sinni heilsu til að kaupa útsölu- bensín á N1.    Ég komst að því fyrir nokkrum árum að maður var líklega aldarfjórðungi of snemma í MA. Alls ekki skal úr því dregið að mjög gaman var þar í den, og ferð 6. bekkjar máladeildar með Gísla heitnum Jónssyni að Hólum í Hjaltadal var eft- irminnileg. En nú í bítið eru krakkarnir á ferða- málakjörsviði í 4. bekk á leið í óvissuferð út í heim.    Enginn úr hópnum fær/fékk að vita hvert ferð- inni er heitið fyrr en núna klukkan 5 í Leifsstöð. Þá verður/var opnaður kassi með upplýsingum um það hvert er flogið, hverjir lenda saman í hópi og hvaða borgir á að kanna.    Ávef MA sagði í gær: Að undanförnu hafa nem- endur undirbúið þessa ferð. Hver um sig fékk eina borg í þýsku- eða frönskumælandi landi til að kynna sér og skrifa um góða og gagnlega rit- gerð með hagnýtum upplýsingum fyrir ferða- menn. Borgirnar eru í Þýskalandi, Frakklandi, Sviss og Austurríki. [Í dag] kemur í ljós hverjar þessara borga verða kannaðar og í hverri verða fjögurra manna hópar að kynna sér aðstæður, taka kvikmyndir og ljósmyndir, tala við heima- menn og svo framvegis. Hóparnir koma heim til Íslands á mánudag og fram á vorið er verkefni hópanna að vinna úr því efni sem aflað er, gera kynningarmyndbönd og fara með kynning- arfyrirlestra í grunnskóla í bænum og nágrenn- inu.    Sannarlega spennandi. Þetta er í þriðja sinn sem nemendur á ferðamálabraut fara í sam- bærilega ferð til útlanda en þetta er stærsti hópurinn, sem farið hefur, álíka fjölmennur og báðir fyrri hóparnir lagðir saman.    Sigurður J. Grétarsson, prófessor í sálfræði við HÍ, heldur fyrirlestur dagsins á vikulegri sam- komu áhugamanna um heimspeki á Amts- bókasafninu. Sigurður byrjar kl. 17 að ræða um möguleika sálfræðinnar á að setja fram eina hugmynd um manninn.    Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á Græna hattinum næstu daga. Hörður Torfason verður þar á kertaljósatónleikum í kvöld, Andr- ea Gylfadóttir og Blúsmenn hennar leika annað kvöld og á laugardagskvöldið hópurinn sem fer um landið og rokkar í nafni Rásar 2. Það eru Dr. Spock, Bennys Cresbos Gang og Sign.    Næring fyrir sál og líkama verður í boði í Ket- ilhúsinu í hádeginu á morgun. Þetta eru kall- aðar Hádegisfreistingar; Helga Bryndís Magn- úsdóttir og Aladár Rácz leika fjórhent á píanó rhapsodiur í ýmsum litbrigðum og Einar lands- liðskokkur á Karólínu reiðir fram veitingar í takt við tónlistina. Spenna MA-hópurinn sem er á leið úr landi. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson úr bæjarlílfinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.