Morgunblaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN „BARA orð, engar aðgerðir í Darfúr!“ segir Paul Reynolds sem skrifar um alþjóðmál á vef BBC. Hvernig stendur á því að að svona mikil neyð og slæmt ástand sem rík- ir í Darfúr-héraðinu í Vestur-Súdan er látið viðgangast ár eftir ár? Vissulega hafa mörg orð verið sögð. Tony Blair, þáverandi for- sætisráðherra Bret- lands, sagði í bréfi til allra leiðtoga Evrópu- sambandsins í sept- ember 2006: „Við erum öll sammála um að hið sorglega ástand í Darf- úr er óásættanlegt og alþjóðasamfélagið get- ur ekki snúið baki við milljónum manna í Darfúr sem hafa þurft að þjást í mörg ár.“ Kofi Annan, þáverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði við Washington Post í janúar 2006: „Víða í Darfúr er fólk áfram drepið, nauðgað og flæmt frá heimilum sínum í þúsundatali.“ Ban Ki-moon, fram- kvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, sagði við AFP- fréttaþjónustuna í janúar 2007: „Þjáningar fólksins í Darfúr eru ein- faldlega óásættanlegar.“ Í dag er ástandið enn skelfilegt, fólk er myrt, konum er nauðgað, þorp eru lögð í eyði og fólk leitar skjóls í flóttamannabúðum. 75% þeirra sem búa í flóttamannabúðum eru konur og börn. Það er búið að samþykkja að senda, frá og með janúar 2008, 26.000 friðargæsluliða á vegum Sameinuðu þjóðanna og Afríkusamtakanna til Darfúr, en enn eru þeir aðeins 8.600 og ráða ekki við aðstæður og mikið örygg- isleysi ríkir. 2,5 milljónir manna hafa neyðst til að flýja heimili sín og setjast að í flóttamannabúðum. Tala látinna skiptir hundruðum þúsunda. Samtök og hjálparstofnanir eru með mismunandi tölur um fallna, allt frá rúm- lega 200.000 til 400.000. Í ályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 1769 frá 2007 er talað um meira en 250.000. Nýleg skýrsla frá nefnd á vegum breska þingsins áætlar að um 300.000 hafi lát- ist. En yfirvöld í Súdan halda fram að rúmlega 9.000 manns hafi látist. ACT/Caritas- verkefnið í Darfúr sem Hjálparstarf kirkj- unnar styður hófst árið 2004 og er með stærstu neyðarverk- efnum sem fram- kvæmd eru í Darfúr. Að minnsta kosti 350.000 einstaklingar nýta sér daglega þá að- stoð sem boðið er upp á. Reynt er að gera líf- ið í flóttamannabúð- unum bærilegra, fjölskyldur sem eru nýkomnar fá húsaskjól og fá af- henta neyðarpakka með ýmsu af því allra nauðsynlegasta, skólastarf er í gangi fyrir börnin og reynt að tryggja aðgang að hreinu vatni. Fræðsla er um heilsu, hreinlæti og sjúkdóma, m.a. um alnæmi, og reynt að veita áfallahjálp og sálrænan stuðning vegna hinnar erfiðu lífs- reynslu sem nánast allir hafa þurft að fara í gegnum. Þar sem það er mögulegt er fólki hjálpað til að stunda jarðrækt, m.a. með því að út- vega plóga og verkfæri. Lokamark- miðið er að allir geti flutt aftur til fyrri heimkynna, en það virðist vegna ófriðarástandsins fjarlægur draumur. Lífið í dag snýst um að lifa daginn af. En kemur þetta ástand mér við? Já, segjum við hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og stöndum þess vegna fyrir söfnun fyrir fólkið í Darfúr. Gíróseðlar eru sendir inn á öll heim- ili og hvetjum við alla til að taka þátt. Einnig er hægt að leggja fram- lag inn á reikning 1150-26-886, kt. 450670-499, eða hringja í söfn- unarsíma 907 202. Láttu ástandið í Darfúr koma þér við og réttu fram hjálparhönd. Hrikalegt ástand í Darfúr – kemur það mér við? Réttum fram hjálparhönd í Darfúr, segir Bjarni Gíslason » Í dag er ástandið enn skelfilegt, fólk er myrt, konum er nauðgað, þorp eru lögð í eyði og fólk leit- ar skjóls í flótta- mannabúðum. Bjarni Gíslason Höfundur er fræðslu- og upplýsinga- fulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Frá flóttamannabúðum í Darfúr. Á ÍSLANDI, eins og hjá ná- grannaþjóðunum, er krabbamein í blöðruhálskirtli langalgengasta krabbameinið meðal karla. Þar á eft- ir koma lungnakrabbamein og krabbamein í ristli og endaþarmi. Þótt krabbamein í eistum séu ekki meðal algengustu meinanna, þá eru þau sérstök að því leyti að þau koma fyrst og fremst fyrir hjá ungum karlmönnum. Er afar ánægjulegt að segja frá því að á síðustu áratugum hefur árangur læknismeðferðar við þeim sjúkdómi gjörbreyst til batn- aðar og flestallir þeir sem greinast læknast. Blöðruhálskirtilskrabbamein eru tæpur þriðjungur allra krabbameina hjá körlum. Árlega greinast nú um 190 karlar, en nýgengið hefur fimm- faldast frá árinu 1955, sem var fyrsta ár krabbameinsskráningar á Íslandi. Dánartíðnin hefur hins veg- ar aðeins tvöfaldast á sama tímabili og horfur sjúklinga því batnað mik- ið. Fimm ára lífshorfur þeirra sem greinast eru í heildina góðar, eða yf- ir 80% af því sem búast má við meðal jafnaldra. Horfurnar eru bestar hjá þeim sjúklingum sem greinast með meinið á fyrstu stigum, þ.e. áður en meinið hefur náð að dreifa sér, eins og gildir almennt um krabbamein. Meðalaldur við greiningu er um 72 ár og nú eru á lífi um 1500 karlar sem hafa greinst með þetta mein. Blöðruhálskirtilskrabbamein eru oftast einkennalaus þangað til æxlið er orðið það stórt að það hefur dreift sér út fyrir blöðruhálskirtilshýðið. Einkennin eru þá svipuð og við góð- kynja blöðruhálskirtilsstækkun, sem er mun algengara fyrirbæri en blöðruhálskirtilskrabbamein. Dæmi- gerð einkenni eru tíð þvaglát, erf- iðleikar við að byrja þvaglát, kraft- lítil þvagbuna og erfiðleikar við að tæma þvagblöðruna. Ef þess háttar erfiðleikar koma fram nokkuð snögglega gæti það bent til að orsök- in sé krabbameinsmyndun fremur en góðkynja blöðruhálskirt- ilsstækkun. Þótt nýgengi lungnakrabbameins sé talsvert lægra en nýgengi krabbameins í blöðruhálskirtli, er dánartíðnin hærri því horfurnar eru mun verri. Lungnakrabbamein eru í hópi örfárra krabbameina þar sem meginorsök er þekkt en 80-90% þeirra orsakast af tóbaksreykingum. Lungnakrabbamein eru algengasta dánarorsök af völdum krabbameina meðal iðnvæddra vestrænna þjóða. Sjúkdómurinn var áður tvöfalt al- gengari hjá körlum en konum en nú greinast nánast jafn margir ein- staklingar af hvoru kyni. Nýgengið jókst mjög hratt þar til á áttunda áratug síðustu aldar þegar áhrif tób- aksvarna fóru að sjást og hefur ný- gengið lækkað lítillega á síðustu ár- um. Meðalaldur við greiningu sjúkdómsins hér á landi er um 67 ár. Lungnakrabbamein á frumstigi gef- ur sjaldan einkenni. Flestir reyk- ingamenn eru með hósta vegna ert- ingar frá tóbaksreyknum en stöðugan hósta ber þó að taka alvar- lega og rannsaka, t.d. með röntgen- myndatöku. Stundum getur lungna- krabbamein leitt til þess að reykingahósti breytist. Fyrstu ein- kenni geta líkst astma, en lungna- bólga getur einnig verið fyrsta merki um lungna- krabbamein. Það að hósta upp blóði er al- varlegt einkenni sem getur bent til þess að æxli hafi vaxið í gegn- um slímhúð lungnapíp- anna. Krabbamein í ristli og endaþarmi eru rúm 10% illkynja æxla á Ís- landi. Þau eru meðal tíðustu krabbameina sem greinast hjá vest- rænum þjóðum og eru algeng orsök dauðs- falla. Þessi krabba- mein eru heldur algengari hjá körl- um en konum en árlega greinast 74 karlar hér á landi og meðalaldur við greiningu er 70 ár. Þrátt fyrir um- talsverða aukningu sjúkdómstilfella síðustu áratugina hefur dánartíðni af völdum sjúkdómsins ekki hækkað að sama skapi og jafnvel lækkað. Nú eru á lífi hátt í 500 karlar sem hafa greinst með þessi mein. Þau ein- kenni sem helst þarf að vera á varð- bergi fyrir í sambandi við krabba- mein í ristli og endaþarmi eru breytingar á hægðamynstri, t.d. ný- tilkomið harðlífi eða niðurgangur. Blóð í hægðum er einnig oft fyrsta einkenni um sjúkdóminn. Einnig einkenni eins og kviðverkir, upp- þemba, minnkuð matarlyst, þreyta, slappleiki og óútskýrt þyngdartap. Ánægjulegt er til þess að vita að heilbrigðisráðuneytið er nú að und- irbúa skipulega leit að krabbameini í ristli og endaþarmi. Vonast er til að sú leit geti hafist árið 2009. Mjög faglega hefur verið staðið að und- irbúningi þessa verkefnis hér á landi. Ef vel tekst til getur dán- artíðni af völdum þessa krabba- meins lækkað verulega. Krabba- meinsskrá Krabbameinsfélags Íslands er unnin í umboði og á ábyrgð landlæknis en rekin af Krabbameinsfélagi Íslands. Á þeim vettvangi verður unnt að fylgjast með hver verður árangur leitar að ristil- og endaþarmskrabbameini. Krabbamein hjá körlum á Íslandi Laufey Tryggvadóttir og Jón Gunnlaugur Jónasson skrifa um algengustu krabbamein meðal karla » Ánægjulegt er til þess að vita að heil- brigðisráðuneytið er nú að undirbúa skipulega leit að krabbameini í ristli og endaþarmi. Jón Gunnlaugur Jónasson Laufey er framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameins- félags Íslands og Jón Gunnlaugur er yfirlæknir Krabbameinsskrárinnar og prófessor við læknadeild HÍ. Laufey Tryggvadóttir ÞAÐ verða ákveðin tímamót í haust þegar Heilsugæsla Árbæjar og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Graf- arholts flytjast undir sama þak í nýju og sér- hönnuðu húsnæði. Skrifað var undir leigusamninga þess efnis þann 14. mars síðastliðinn. Samhliða flutningi þessara tveggja þjón- ustuþátta í sama hús- næði skapast tækifæri til þess að auka samstarf þeirra á milli. Það tækifæri látum við ekki renna okkur úr greipum og því var jafnframt skrifað undir sérstakan samstarfs- samning um leið og skrifað var undir leigusamningana. Farsælt samstarf Til þess að samstarfið verði svo farsælt sem frekast er kostur var ákveðið að skipa fjögurra manna samráðsnefnd með fulltrúum beggja aðila til að móta nánara og formfast- ara samstarf. Fulltrúar í samstarfs- nefndinni verða þau Margrét Gunn- arsdóttir hjúkrunarstjóri Heilsugæslu Árbæjar, Haraldur Ó. Tómasson, læknir, Sólveig Reyn- isdóttir framkv.stj. Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarvogs og Þorgeir Magnússon deildarstjóri/ sálfræðingur. Hvort tveggja, heilsugæsla og velferð- arþjónusta, eru mik- ilvægar nærþjónustur við íbúa hvers svæðis. Margir einstaklingar eru í senn skjólstæð- ingar Heilsugæslunnar og Velferðarþjónust- unnar. Aukin samvinna býður upp á marga möguleika, s.s. sameiginleg námskeið fyrir skjól- stæðinga og starfsmenn, aukna sam- vinnu starfsmanna, aukið upplýs- ingaflæði og aukin þægindi jafnt fyrir skjólstæðingana sjálfa sem og aðstandendur þeirra, svo fátt eitt sé talið. Markmið Tilvalið er að nýta það tækifæri sem hér gefst til að koma á nánara samstarfi þessara stofnana, bæði hvað varðar skipulag á þjónustu við sameiginlega skjólstæðinga og þjón- ustuframboð almennt. Markmið aukins samstarfs eru meðal annars að:  auka skilvirkni þjónustuþáttanna  auka gæði þjónustunnar  kanna mögulega samþættingu þjónustunnar  kanna lögformlegan og hag- rænan grundvöll fyrir ennþá frekara samstarfi heilsugæslu og Velferðarsviðs  kanna möguleikann á sameig- inlegri móttöku skjólstæðinga auk annarrar samnýtingar hús- næðis. Fróðlegt verður að fylgjast með vinnu samráðsnefndarinnar og sjá hverjar niðurstöður hennar verða. Það er ótvíræður vilji bæði heil- brigðisráðuneytis og borgaryf- irvalda að auka þetta samstarf sem frekast er kostur. Tímamótasamstarf heilbrigðis- og velferðarþjónustu í Árbæ Jórunn Frímannsdóttir segir frá samstarfi heilsugæslu- og þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts » Samhliða flutningi þessara tveggja þjónustuþátta í sama húsnæði skapast tæki- færi til þess að auka samstarf þeirra á milli. Jórunn Frímannsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og for- maður velferðarráðs og formaður framkvæmda- og eignaráðs. 23456789:86 ;<= > ?7;69@<A=B8 CD E3FG HDD IJKJ > LLLM7G456789:86MG@        

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.