Morgunblaðið - 03.04.2008, Síða 33
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.30, jóga kl. 9,
boccia kl. 10, útskurður og myndlist kl. 13-16.30,
Grandabíó kl. 13-15.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, opin smíðastofa og
handavinnustofa kl. 9-16.30, boccia kl. 9.30, helgi-
stund kl. 10.30, leikfimi kl. 11 og myndlist kl. 13.30.
Uppl. í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Samverustund með sr. Hans
Markúsi kl. 13.30. Hárgreiðsla, böðun, lífsorku-
leikfimi, almenn handavinna, myndlist, morg-
unkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, bók-
band, kaffi. Föstud. 4. apríl kl. 13.30 dansað með
Jean.
Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið kl. 13-16,
leiðb. Hafdís. Lýður og harmonikkan kl. 14, guðs-
þjónusta kl. 15.10. Sr. Bjarni Karlsson, annan hvern
fimmtudag.
Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ-kórinn æfir í
KHÍ kl. 17. Nýjar raddir velkomnar.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður í
handavinnustofu, almenn leikfimi og málm- og silf-
ursmíði fyrir hádegi, róleg leikfimi og bókband kl.
13, bingó kl. 13.45, myndlistarhópur kl. 16.30 og
dönskukennsla kl. 16-18.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl. 9,
ganga kl. 10, hádegisverður, brids og handavinna kl.
13, jóga kl. 18.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Bókband kl.
10, gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 12.40, handa-
vinnuhorn námskeið í bútasaumi og karlaleikfimi kl.
13 og boccia kl. 14. Miðar í bæjarferð nk. mánudag
seldir í Jónshúsi í dag kl. 10-16 og á morgun kl. 13-
16, verð kr. 1.500.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30. Frá
hádegi eru vinnustofur opnar, m.a. myndlist og
perlusaumur. Á morgun kl. 10 er prjónakaffi, umsj.
Ágústa Hjálmtýsd. og Bragakaffi, létt ganga um El-
liðaárdalinn kl. 10.30. Uppl. í síma 575-7720 og á
gerduberg.is.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Jóhönnu kl. 9-
16, boccia kl. 10, böðun fyrir hádegi. Hádegisverður.
Félagsvist kl. 13.30, 1. og 2. verðlaun, kaffiveitingar í
hléi.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega.
Listasmiðjan opin, félagsvist, skapandi skrif, Bör
Börsson, Müllersæfingar, brids, þegar amma var
ung, leikfimi, sönghópur Hjördísar Geirs, Stef-
ánsganga o.fl. Bókmenntaferð til Akureyrar 14.-16.
Uppl. í síma 568-3132
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag, er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og
Listamiðjan á Korpúlfsstöðum er opin kl. 13-16.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-16, vinnu-
stofa í handmennt opin leiðb. Halldóra kl. 9-16, leir-
listarnámskeið leiðb. Hafdís kl. 9-12, boccia kl. 10.
Nýtt símanúmer á skrifstofu er 411-2760.
Sjálfsbjörg | Skák kl. 19 í félagheimili Sjálfsbjargar
á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9,
boccia kl. 9.15-14, aðstoð v/böðun kl. 9.15-15.30,
handavinna kl. 10-12, spænska framh. kl. 11.45, há-
degisverður, kóræfing kl. 13, leikfimi kl. 14.30, kaffi-
veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bókband, gler-
vinnsla, morgunstund, boccia, handavinnustofan
opin, hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofan opin allan
daginn, upplestur kl. 12.30, spilað kl. 13.. Uppl. í
síma 411-9450.
Kirkjustarf
Áskirkja | Opið hús kl. 14-16, söngstund með org-
anista, samkirkjuleg bænastund kl. 16.30, á ensku
þar sem stuðst er við ritið „True life in God“, klúbb-
ur 8 og 9 ára barna kl. 17 og TTT-samvera kl. 18,
efni beggja fundanna er „Pictionary-keppni“.
Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12, leikfimi
ÍAK kl. 11, bænastund kl. 12, 6-9 ára starf kl. 16-17.
Meme junior kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is.
Dómkirkjan | Opið hús í safnaðarheimilinu Lækj-
argötu 14a kl. 14-16, kaffi og spjall. Kvöldkirkjan er
opin kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30 og 21.30.
Prestur á staðnum. Hægt er að kveikja á bæn-
arkerti og eiga kyrrláta stund.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl.10-12, kaffi,
djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10-12 ára kl. 15-
16 í Víkurskóla.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa með Þorvaldi
Halldórssyni kl. 18-19. Bænin, orð guðs og alt-
arisganga eru uppistaða messunnar. Hversdags-
messan einkennist af kyrrð og einfaldleika.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, orgelleikur,
íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir
stundina.
KFUM og KFUK á Íslandi | Fundur í AD KFUM kl.
20. Fallnir stofnar – Ólafur Ólafsson. Efni: Egill
Helgason dagskrárgerðarmaður. Hugleiðing sr.
Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju,
kaffi eftir samkomu.
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur í umsjá Rann-
veigar Ólafsdóttur hefst kl. 16.15 með kaffi. Allar
konur velkomnar.
Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, orgeltónlist í
kirkjuskipi kl. 12-12.10, að bænastund lokinni kl.
12.30, er léttur málsverður í boði í safnaðarheim-
ilinu. Helgistund í félagsaðstöðunni á Dalbraut 18-
20, kl. 15, umsjón hefur sóknarprestur.
Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12. Vinir Zip-
py’s, lífsleikni fyrir ung börn. Guðrún Guðmunds-
dóttir hjúkrunarfræðingur sér um efnið.
70ára afmæli. Í dag, 3.apríl, er sjötugur Jón
Hjálmarsson vélfræðingur,
Ásfelli II, Hvalfjarðarsveit.
Hann er að heiman.
60ára afmæli. Á morgun,föstudaginn 4. apríl,
verður sextug Jónína Hjalta-
dóttir frá Ytra-Garðshorni í
Svarfaðardal, til heimilis að
Norðurgötu 16, Akureyri. Að
því tilefni tekur hún á móti
gestum á afmælisdaginn, á
Kaffi Marínu (áður Oddvitinn)
frá kl. 20. Vonast Jónína til að
ættingjar og vinir sjái sér fært
að mæta og eyða með henni
kvöldstund í tilefni dagsins.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 3. apríl, 94. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska. (I. Kor. 4, 16.)
Hugvísindaþing 2008 verðurhaldið á föstudag og laug-ardag undir yfirskriftinni„… fræðimenn búa til gát-
ur“.
Margrét Guðmundsdóttir, verkefn-
isstjóri hjá Hugvísindastofnun, er að-
alskipuleggjandi þingsins sem hún
segir óhætt að kalla lykilviðburð í ís-
lensku hugvísindasamfélagi: „Á Hug-
vísindaþingi er á hverju ári borið fram
það nýjasta í fræðunum, bæði innan
hugvísindadeildar og guðfræðideild-
ar,“ segir Margrét um þennan viðburð
sem fyrst var haldinn 1996 en hefur
verið árviss frá 1999. „Þingið end-
urspeglar mikla fjölbreytni, allt frá ís-
lenskum og erlendum bókmenntum og
málfræði til heimspeki, sögu og guð-
fræði.“
„Alls verða fluttir á áttunda tug fyr-
irlestra á þinginu, ýmist í samstæðum
málstofum eða stofum þar sem stökum
erindum er raðað saman eftir efni,“
segir Margrét. „Stærsta málstofan í ár
spannar báða daga þingsins, og ber þá
skemmtilegu yfirskrift „Íslenskan
öll?“ Þar er á ferð eins konar uppske-
ruhátíð verkefnisins Tilbrigði í setn-
ingagerð sem hlaut öndvegisstyrk frá
Rannís. Rannsóknin er með þeim um-
fangsmestu á íslensku nútímamáli og
þar er setningagerð könnuð á annan
hátt en áður hefur verið gert.“
Önnur stór málstofa ber yfirskrift-
ina „Staðir og staðleysur“ og fjallar
um íslenskar nútímabókmenntir, frá
barnabókum til glæpasagna. Eins eru
bókmenntir fyrirferðarmiklar í mál-
stofunni „Við landamærin“ á vegum
fræðimanna á sviði ensku, frönsku og
spænsku og fjallað er um kennslu ann-
ars máls í tveimur málstofum,“ út-
skýrir Margrét.
Einnig verður málstofa um Njálu,
mál og samfélag, sögu heimspekinnar,
trú og samfélag, náttúru og austræna
heimspeki, sagnfræði og skáldskap í
fornsögum, Ísland og umheiminn: „Þá
efna sagnfræðingar til hlaðborðs til
heiðurs Gísla Gunnarssyni prófessor
þar sem rætt verður um sagnfræði frá
ýmsum tímum og sjónarhornum. Loks
er ónefnd málstofa Ritsins, tímarits
Hugvísindastofnunar, um hlýnun og
umhverfi með þátttöku fræðimanna af
raunvísindasviði.“
Þýðingarsetur HÍ heldur svo í
tengslum við ráðstefnuna málstofu um
þýðingar á vettvangi Evrópusam-
bandsins þar sem rýnt verður í stöðu
lítilla og stórra mála innan ESB.
Hugvísindaþing er öllum opið og
dagskrá að finna á heimasíðu Hugvís-
indastofnunar.
Fræði | Á annan tug fyrirlestra á Hugvísindaþingi 2008 HÍ á fös. og lau.
Fræðimenn búa til gátur
Margrét Guð-
mundsdóttir fædd-
ist 1963 og ólst upp
í Árnessýslu. Hún
lauk BA-prófi í ís-
lensku frá Háskóla
Íslands 1989 og
MA-prófi í mál-
fræði frá sama
skóla 2000. Mar-
grét hefur starfað við bókaútgáfu en
frá 2006 verið verkefnisstjóri hjá
Hugvísindastofnun HÍ. Eiginmaður
hennar er Friðrik Magnússon mál-
fræðingur og eiga þau þrjú börn.
Tónlist
Gamla Bókasafnið í Hafnarfirði |
Tónleikar kl. 20, húsið opnað kl.
19.30, frítt inn. Fram koma hljóm-
sveitirnar Coral, Napoleon og
Papa de Boss. Bókasafnið er í
Mjósundi 10 við miðbæ Hafn-
arfjarðar.
Tjarnarbíó | Borko fagnar plötu
sinni, Celebrating Life, með tón-
leikum kl. 21 en húsið verður opn-
að kl. 20. Seabear verða gestir.
Miðasala á www.midi.is og verðið
er 1.200 kr.
Fyrirlestrar og fundir
Háskóli Íslands | Hugvísindaþing
verður haldið í Aðalbyggingu HÍ
4.-5. apríl. Að því standa Hugvís-
indastofnun og Guðfræðistofnun.
Fyrirlestrar verða hátt í 80, um
bókmenntir og menningu, mál-
fræði, kennslu annars máls, sagn-
fræði, guðfræði og heimspeki.
Dagskrá: www.hugvis.hi.is.
Félagsheimili KR | Framhalds-
aðalfundur KR kvenna verður 10.
apríl kl. 19. Venjuleg aðalfund-
arstörf og kosning gjaldkera.
Samtök áhugafólks um skólaþró-
un | Ráðstefna um starfendarann-
sóknir verður 4. apríl kl. 13-17 í
Borgarholtsskóla. Flutt verða sex
erindi um starfendarannsóknir.
Meðal fyrirlesara er Jean McNiff,
prófessor við St. Mary’s Univers-
ity College í London. Skráning fer
fram á http://www.skolathroun.is.
Háskóla Íslands | John Lindow
flytur erindið Skáru á skíði: Völu-
spá 20 og örlaganornirnar, á veg-
um Félags þjóðfræðinga á Íslandi.
Lindow mun fjalla um 20. erindi í
Völuspá og rýna í athæfi örlaga-
nornanna. Fyrirlesturinn hefst kl.
17.15 í stofu 201 í Árnagarði og fer
fram á ensku. Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimill.
ÞESSIR þrír sviplíku félagar eru meðal
íbúa í ástralska Taronga-dýragarðinum í
Sydney. Það var í gær opnuð sýning á dýr-
um sem synda og fljúga um Suðurhöf og
eiga þar heimkynni, þar á meðal á selum,
sæljónum, mörgæsum og pelikönum.
Sviplíkir í Suðurhöfum
MORGUNBLAÐIÐ birtir
til kynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í síma
569-1100, senda tilkynn-
ingu og mynd á netfangið
ritstjorn@mbl.is, eða
senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja liðinn
„Senda inn efni“. Einnig er
hægt að senda vélritaða
tilkynningu og mynd í
pósti. Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 30.3. var spilaður
tvímenningur á 11 borðum. Best-
um árangri náðu í N/S:
Sveinn Sveinsson – Gunnar Guðmss. 237
Kristín Óskarsd. – Freysteinn Björgv. 235
Sigfús Skúlas. – Óli Gíslason 233
Austur/vestur
Jóna Magnúsd. – Jóhanna Sigurjónsd. 270
Þorgeir Ingólfss. – Garðar V. Jónss. 267
Karólína Sveinsd. – Sigurjóna Björgvd.
240
Næsta sunnudag, 6.4., hefst
fjögurra kvölda tvímennings-
keppni.
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 31.03.
Spilað var á 11 borðum. Með-
alskor 216 stig. Árangur N-S
Magnús Oddss. - Oliver Kristóferss. 268
Björn E. Pétursson - Gísli Hafliðas. 255
Viggó Nordqvist - Gunnar Andréss. 248
Árangur A-V
Guðbjörn Axelsson - Gunnar Jónsson 263
Ragnar Björnss. - Jón Lárusson 248
Soffía Theodórsd. - Elín Guðmannsd. 244
Gullsmárinn
Úrslit 31/3. Spilað á 13 borðum.
N/S
Elís Kristjánss. - Páll Ólason 268
Dóra Friðleifsd. - Heiður Gestsd. 256
Karl Gunnarss. - Gunnar Sigurbjss. 254
Hrafnhildur Skúlad. - Þórður Jörundss.
248
A/V
Stefán Ólafsson - Ernst Backman 260
Díana Kristjánsd. - Ari Þórðars. 243
Sigurður Björnss. - Ólafur Gunnarss. 242
Dagný Gunnarsd. - Steindór Árnas. 240
Meðalskor 220
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Spilað var á 9 borðum mánudag-
inn 31. mars. Úrslitin urðu þessi í
N/S:
Sigríður Einarsd. - Ásmundur Guðmss.
237
Sigríður Gunnarsd. - Björn Björnss. 222
Gréta Guðlaugsd. - Rafn Benediktss. 221
A/V
Örn Sigurðss. - Kristinn Sigurjónss. 248
Kári Jónss. - Marteinn Marteinsson 246
Kristján Albertss. - Guðjón Garðarss. 245
Birna Lárusd.- Sturlaugur Eyjólfss. 245
Spilamennsku verður framhaldið
næsta mánudag. Alltaf má bæta
nýjum spilurum við í Hátúnið.
Bridsfélögin á Suðurnesjum
Mánudaginn 31. mars hélt að-
alsveitarkeppni hjá Bridsfélaginu
Muninn í Sandgerði og Bridgs-
félagi Suðurnesja áfram og spiluðu
16 pör. Spilaðir eru þrír 9 spila
leikir á hverju kvöldi og er keppn-
in mjög jöfn um efstu sætin.
Staða 5 efstu eftir 3 kvöldið af 5
er sem hér segir:
Garðar Garðarsson og Karl G Karlsson/
Þorgeir Ver Halldórsson 182
Lilja Guðjónsd. og Guðjón Óskarss. 156
Jóhannes Sig/Óli Þór Kjartansson og
Svavar Jensen 156
Þórir Hrafnkelss og Guðni Sigurðss. 152
Vignir Sigursvss. og Úlfar Kristinss. 152
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Garðar Garðarsson og Þorgeir Ver 57
Arnar Arngr.s. og Garðar Þ. Garðarss. 52
Lilja Guðjónsd. og Guðjón Óskarss. 50
Karl Einarss. og Birkir Jónsson 49
Mánudaginn 7. apríl er fjórða og
næstsíðasta spilakvöld í þessari
keppni. Tvö efstu pörin í þessari
keppni verða okkar fulltrúar á
Kjördæmamótinu ásamt völdum
pörum. Spilarar sem komast ekki
verða að útvega sér varamann.
Spilað er alla mánudaga í Fé-
lagsheimilinu að Mánagrund og
hefst spilamennska á slaginu
19:15.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið