Morgunblaðið - 07.05.2008, Page 8

Morgunblaðið - 07.05.2008, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÍTARLEGA er fjallað um markmið og áherslur Landhelgisgæslunnar í landhelgisgæsluáætlun fyrir árin 2008-2010 sem kynnt var á blaða- mannafundi í flugskýli Gæslunnar í Nauthólsvík í gær. Verði allt að veruleika sem áætlunin boðar er ljóst að starfsemi Gæslunnar mun stóraukast og eftirlitsgeta hennar og geta til björgunarstarfa verður meiri en nokkru sinni fyrr. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelg- isgæslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri ofmælt að tala um að bylting yrði á starf- semi Gæslunnar. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra tók þó skýrt fram á blaða- mannafundinum að áætlunin væri ekki fjárhagslega skuldbindandi og fjárveitingavaldið ætti eftir að leggja blessun sína yfir hana. Áætl- unin væri hins vegar mikilvægur grunnur fyrir Landhelgisgæsluna til að byggja á og hún sýndi hvað Gæsl- an gæti gert með þeim nýja tækja- búnaði sem hún mun fá til afnota á næstu árum. Auknar siglingar stórskipa Meðal þess sem kemur fram í áætluninni er að gert er ráð fyrir að flutningur á eldsneyti frá Norð- vestur-Rússlandi og Norður-Noregi aukist mjög á næstu árum. Árið 2015 er t.a.m. gert ráð fyrir að 500 olíu- skip, yfir 100.000 tonn hvert, fari um íslensku efnahagslögsöguna. Jafn- framt er búist við að siglingar stórra skemmtiferðaskipa aukist frá því sem nú er en árið 2006 komu 77 slík skip við á Íslandi. Það eru einmitt þessar auknu sigl- ingar olíu- og gasflutningaskipa auk umferðar skemmtiferðaskipa sem Björn Bjarnason sagði að væru meg- inástæða þess að efla þyrfti Land- helgisgæsluna. Hlýnun loftslags hefði gert það að verkum að farið væri að nota siglingaleiðir umhverfis Ísland sem hefðu lítt eða ekki verið notaðar hingað til. Þessi nýja heims- mynd kallaði á breytta örygg- isgæslu. Á þessu væri tekið í land- helgisgæsluáætluninni. „Ég er líka þeirrar skoðunar að borgaralegt eft- irlit borgaralegra löggæslustofnana skipti meira máli varðandi þessi ör- yggismál heldur en hernaðarleg uppbygging,“ sagði hann. Björn vildi ekki ræða um það hvaða kostnaður hlytist af áætluninni, yrðu öll atriði hennar að veruleika, það væri seinni tíma mál. Allir verði varir við Gæsluna Meðal helstu markmiða sem Gæslan setur sér í áætluninni er að auka öryggis- og löggæslu á hafinu þannig að öll skip sem sigla um lög- söguna verði vör við gæslueiningar, þ.e. skip, flugvélar eða þyrlur, með einum eða öðrum hætti. Þetta er ekkert smávegis verkefni í ljósi þess að efnahagslögsagan er gríðarstór, hátt í 800.000 ferkílómetrar og á hverjum degi eru að jafnaði um 300 íslensk skip í lögsögunni, stundum aðeins 50 en stundum allt upp í 800. Þessu markmiði á að ná með auknu úthaldi varðskipa og með eftirlits- flugi á þyrlum og flugvél Gæslunnar. Eftirlitið lýtur jafnt að fisk- veiðistjórn, mengunarvörnum og vörnum gegn hryðjuverkavá, svo helstu atriði séu nefnd. Einnig á að auka eftirlitið með því að bæta við ratsjám í landi sem geta fylgst með skipaumferð, auka kaup á gervitunglamyndum og efla sam- starf við erlendar stofnanir. Ein slík ratsjá er nú þegar í Vestmanna- eyjum og er ætlunin að bæta annarri við á Reykjanesi innan skamms. Stytta viðbragðstíma Fyrir utan öryggis- og löggæslu á hafinu umhverfis Ísland fer Land- helgisgæslan með yfirstjórn leitar- og björgunar innan íslenskrar efn- hagslögsögu og á nærliggjandi al- þjóðlegum hafsvæðum. Leitar- og björgunarsvæðið er raunar ríflega tvöfalt stærra en efnahagslögsagan og spannar um 1,8 milljóna ferkíló- metra svæði. Varla þarf að fjölyrða um að lífslíkur sjófarenda sem þurfa að yfirgefa skip sitt byggjast á því að björgunartæki séu sem skemmst undan og í áætluninni er ítarlega fjallað um hvernig stytta megi við- bragðstíma Gæslunnar – skipa, flug- véla og þyrlna. Í áætluninni er miðað við að á næsta ári verði ávallt tvö varðskip á sjó og frá árinu 2010, þegar nýtt varðskip bætist í flotann, verði að jafnaði þrjú skip á sjó. Þetta myndi stytta verulega viðbragðstíma varð- skipanna. Ef aðeins eitt skip er sjó- fært er hámarksviðbragðstími innan efnahagslögsögunnar 46 klukku- stundir, með tveimur er hann 23 klukkustundir og með þremur skip- um yrði hann 18 klukkustundir. Eft- ir því sem fleiri varðskip eru á sjó lengist einnig flugþol og öryggi þyrlnanna því þær verða með búnaði til að taka eldsneyti af skipunum. Aukið úthald krefst fleiri skipverja og þyrfti að fjölga í áhöfnum um 33% frá því sem nú er. Gæslan stefnir einnig að því að stytta viðbragðstíma þyrluáhafna úr um 30 mínútum í 15 mínútur. Þetta verður gert með því að áhafnirnar verða á vakt á flugvelli frá og með 2009. Jafnframt verður sett bakvakt á flugvél Gæslunnar árið 2010. Eftirlit og geta til björgunarstarfa verði meiri en nokkru sinni fyrr Morgunblaðið/G. Rúnar Splunkuný Sænska strandgæslan fékk sína Dash 8Q-300 vél afhenta frá kanadísku Bombadier-verksmiðjunni 2. maí og sýndi gripinn í tengslum við blaðamannafundinn í gær. Gæslan fær alveg eins vél næsta sumar. Morgunblaðið/G. Rúnar Gæslan Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Georg Kr. Lárusson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, kynna landhelgisgæsluáætlun 2008-2010. Í HNOTSKURN »Nýtt varðskip kostar 34 millj-ónir evra, um fjóra milljarða króna. Afhent í árslok 2009. » Ný flugvél af gerðinni Dash8-Q300 verður afhent næsta sumar. Vélin er m.a. búin full- kominni eftirlits- og leitarratsjá, hitamyndavél og hliðarratsjá sem nýtist sérstaklega vel við mengunareftirlit. Verðið er 36,6 milljónir bandaríkjadala, 2,8 milljarðar króna. » Miðað er við að þrjár nýjarbjörgunarþyrlur verði af- hentar á árunum 2011-2014. Efla á starfsemi Gæsl- unnar á öllum sviðum, hvort sem um ræðir gæslu landhelginnar og löggæslu á hafinu, björgun og meng- unarvarnir. BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra hefur skipað Söndru Baldvins- dóttur í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness frá og með 15. maí næstkomandi. Sandra hefur verið settur héraðs- dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur að undanförnu. Aðrir umsækjendur um embætti héraðsdómara voru: Anna Mjöll Ketilsdóttir lögfræð- ingur, Guðmundur Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, Halla Bach- mann Ólafsdóttir, lögfræðingur hjá Tryggingastofnun ríkisins, Halldór Björnsson, aðstoðarmaður hæsta- réttardómara, Jón G. Briem, hæsta- réttarlögmaður og Unnur Gunnars- dóttir, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu. Nýr dómari við Hér- aðsdóm Reykjaness Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is HÁTT á fjórða hundrað kvenna hefur skráð sig á ráðstefnuna Tengslanet IV – Völd til kvenna sem haldin verð- ur í lok mánaðarins. Dr. Herdís Þor- geirsdóttir, prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst, stendur fyrir ráðstefnunni en hún var haldin fyrst árið 2004 og mættu þá 160 konur. Að sögn Herdísar hefur ekki liðið einn dagur frá því opnað var fyrir skrán- ingar í mars að ekki hafi kona skráð sig til þátttöku. „Það stefnir í algera metaðsókn.“ Þema ráðstefnunnar er „Konur og réttlæti“ og munu fjölmargar þekktar íslenskar konur halda fyrirlestra. T.d. munu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra, Hanna Birna Krist- jánsdóttir, forseti borgarstjórnar, Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi ráðherra, og Hjördís Hákonardóttir hæstaréttardómari stjórna um- ræðum. Þá munu m.a. Vigdís Gríms- dóttir rithöfundur og Svanhildur Hólm Valsdóttir sjónvarpskona flytja erindi um efni á borð við pólitíska rétthugsun og kvenorkuna í at- vinnulífinu. Tveir fyrirles- aranna koma er- lendis frá. Maud de Boer Buquic- chio er annar framkvæmda- stjóri Evrópu- ráðsins og er hún fyrsta konan til að gegna því starfi. „Innan lögsögu Evr- ópuráðsins eru 46 aðildarríki og þar búa 800 milljónir. Hún hefur farið um flest þessara ríkja og flutt fyrirlestra og er með fingurinn á púlsinum hvernig mannréttinda- og jafnréttis- málum er háttað víða,“ segir Herdís. Þá er aðalfyrirlesari ráðstefnunnar Judith Resnik, prófessor við lagadeild Yale-háskólans í Bandaríkjunum. „Ég hef reynt að fá hana af og til í gegnum árin af því hún þykir svo skemmtilegur fyrirlesari,“ segir Her- dís og bendir á að fyrir skömmu valdi Lögmannafélag Bandaríkjanna Res- nik sem athyglisverðasta fræðimann- inn á sviði lögfræðinnar en fáum kon- um hefur hlotnast sá heiður. „Þema ráðstefnunnar, konur og réttlæti, er að nokkru leyti tileinkað henni en hún hefur fjallað mikið um konur og rétt- arríkið. Hún vill ekki tala um það sjálf en þær sem hafa fengið þessa útnefn- ingu áður hafa farið í Hæstarétt [Bandaríkjanna]. Þetta er stórmerki- leg fræðikona.“ Ólíkar konur úr öllum geirum „Það eru alltaf sömu hlutirnir sem við erum að fást við,“ segir Herdís. „Hvernig aukum við áhrif kvenna í samfélaginu? Hvernig samræmum við fjölskylduábyrgðina og atvinnulíf- ið? Hvernig náum við þessum mark- miðum? Öllum þessum vinklum er velt upp.“ Herdís segir það skemmti- lega við tengslanetið vera þennan fjölda ólíkra kvenna sem ræðir þessi málefni. „Þarna eru konur á öllum aldri og úr öllum geirum. Konur í vel- flestum lögum samfélagsins. Þar kemur þessi dýnamík. Hún væri ekki væri hópurinn einsleitur.“ Stefnir í metaðsókn á kvennaráðstefnu Fjórða árið sem Tengslanet IV – Völd til kvenna fer fram Herdís Þorgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.