Morgunblaðið - 07.05.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.05.2008, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HÖRMUNGAR Í BÚRMA Hörmungarnar í Búrma vegnafellibyls, sem gekk yfir land-ið, eru óskaplegar. Nú er tal- ið hugsanlegt, að 60-70 þúsund manns hafi týnt lífi og að um milljón manns hafi misst heimili sín. Þessar tölur geta vel átt eftir að hækka. Herforingjastjórnin, sem hefur haldið Búrma í einangrun áratugum saman, hafði tæpast fyrir því að vara þegna sína við fellibylnum, þótt hún hafi augljóslega haft upplýsingar um það, sem var að gerast. Viðvörun hefði getað bjargað mannslífum. Seint og um síðir kvaðst herfor- ingjastjórnin mundu þiggja erlenda aðstoð en á sama tíma hefur hún þvælst fyrir því að hjálparsveitir kæmust til landsins. Fólkið í Búrma þarf á aðstoð að halda, ekki bara nú næstu daga held- ur í marga mánuði og misseri, vegna þess að uppbyggingarstarfið tekur langan tíma. Hér getum við Íslend- ingar lagt hönd á plóginn. Sú spurning hefur að sjálfsögðu vaknað, hvort þessir atburðir geti haft áhrif á stöðu herforingjastjórn- arinnar. Líkurnar á því eru taldar litlar af þeim, sem bezt til þekkja. Herforingjarnir byggja völd sín á hervaldi, sem enginn innan Búrma ræður við. Ekki er ósennilegt að þeir njóti pólitísks stuðnings Peking- stjórnarinnar að einhverju leyti. Kín- verjar hafa áreiðanlega meiri áhrif á það, sem kann að gerast í Búrma heldur en Bandaríkjamenn eða Bret- ar. Hins vegar er þetta ástand óþol- andi. Það er ekki hægt að una því nú á dögum, að fólk sé ekki varað við felli- byl. Að hjálp sé ekki þegin þegar í stað og greitt fyrir því, að hjálpar- sveitir komist til landsins. Bandaríska forsetafrúin Laura Bush hefur hvað eftir annað gengið fram fyrir skjöldu og gagnrýnt stjórnvöld í Búrma. Sennilega hefur forsetafrúin einhver persónuleg tengsl við landið eða einstaklinga, sem þar búa eða hafa búið. Stuðning- ur hennar er mikilvægur fyrir íbúa Búrma. Það er áleitin spurning hvað al- þjóðasamfélagið getur gert, þegar heil þjóð er lokuð inni í landi sínu eins og gerzt hefur í Búrma og sú innilok- un staðið áratugum saman. U Thant, fyrrum framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sem var frá Búrma, sagði eitt sinn: „Mér var kennt að vera umburðarlyndur gagn- vart öllu nema óbilgirni.“ Óbilgirni herforingjastjórnarinnar í Búrma er slík að hún verður varla þoluð öllu lengur. Fyrr eða síðar mun fólkið í Búrma rísa upp, á hvern veg sem það gerist. Þá verða þjóðir heims að vera til- búnar til að koma til hjálpar. Þá mega stórveldahagsmunir ekki ráða ferð- inni eins og gerðist, þegar Ungverjar báðu um hjálp í Búdapest 1956 en það hjálparkall var virt að vettugi. Hörmungarnar í Búrma kunna að flýta því að kallið um hjálp berist og þá þarf að bregðast við. FRELSI EINS TIL ATHAFNA Á EKKI AÐ SKERÐA FRELSI ANNARS Rekstraraðilar Hótels Borgar viðAusturvöll segja frá því í Morg- unblaðinu í gær að hávaði vegna rekstrar skemmtistaðar í Apóteki í Austurstræti raski ró hótelgesta og erfitt eða ómögulegt sé að leigja út 5-6 herbergi um helgar vegna þessa. Tekjutap vegna hávaðans er umtals- vert fyrir hótelið. Vandinn „var ekki til staðar þegar Apótek var veitinga- staður, sem seldi mat, enda var „hann ekki opinn til klukkan sjö á morgn- ana“,“ er haft eftir hótelstjóranum, Ólafi Þorgeirssyni. Í blaðinu í dag kemur síðan fram að með þessum tveimur rekstraraðilum hafi tekist samkomulag sem vonandi verður til að leysa vandann, varðandi þetta til- tekna dæmi. Það breytir þó ekki því að það ástand sem hefur skapast í miðborg- inni á undanförnum árum afhjúpast í hnotskurn í þessu máli. Til þess bær yfirvöld, borgaryfirvöldin, hafa ekki haft döngun í sér til að stemma stigu við gríðarlegri útbreiðslu skemmti- staða á litlum bletti í miðborginni þrátt fyrir að afleiðingarnar séu mjög alvarlegar fyrir aðra rekstraraðila, fyrirtæki og íbúa. Það er rétt eins og þau átti sig ekki á að fleiri en veitinga- húsaeigendur hafa fjárfest í uppbygg- ingu í miðborginni og eiga allt sitt undir að þær skili tilætluðum arði. Hótel Borg er eitt virðulegasta fyr- irtæki borgarsögunnar og vinsælt vegna frábærrar staðsetningar. Þrátt fyrir það er ekki hægt að tryggja gest- um þess svefnfrið, án þess að komi til árekstra. Afleiðingarnar af því að setja upp næturklúbb í næsta húsi við hótel hefðu átt að vera öllum ljósar. Það er spurning hvort slíkur nætur- klúbbur hefði fengið rekstrarleyfi ef hann hefði verið settur í grenndar- kynningu? Og jafnframt hvort grenndarkynning ætti ekki að vera skilyrði fyrir veitingaleyfum allra næturklúbba? Hótelstjóri Hótels Borgar á ekki að þurfa að standa í samningaviðræðum við nágranna sína um næturfrið fyrir gesti sína; hótelið skapar ekki vandann. Í raun réttri ættu borgaryfirvöldum að bera skylda til þess að skapa honum viðeigandi rekstrarumhverfi rétt eins og veit- ingahúsaeigendum – hótelreksturinn hefur þegar allt kemur til alls verið þarna í áratugi. Því miður er þetta mál þó ekkert einsdæmi í miðborg Reykjavíkur, á einhverju mesta niðurlægingarskeiði þessa verðmæta svæðis í manna minn- um. Þéttleiki næturklúbba í óviðun- andi húsnæði hvað hljóðmengun varð- ar er með svo miklum ólíkindum að ætla mætti að borgaryfirvöld hefðu engan áhuga á annarri atvinnustarf- semi á svæðinu. Um þessar mundir stendur húsnæði 10–15 fyrirtækja í dagrekstri autt við Laugaveginn. Skyldi vera samhengi þarna á milli? Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ EFTIRFARANDI yfirlýsing frá Halldóri J. Kristjánssyni, formanni Samtaka fjármálafyrirtækja, hefur borist Morgunblaðinu: „Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) gera alvarlegar athugasemdir við yfir- lýsingar fyrrverandi hagfræðiprófessors, Roberts Z. Alibers, á fundi í Háskóla Ís- lands í vikunni. Full- yrðingar hans um ís- lenskt fjármálakerfi báru þess vitni að vera illa ígrundaðar og byggja á huglægu mati fremur en hlut- lægri rannsókn. Í fyrsta lagi er eng- inn grundvöllur fyrir þeirri staðhæfingu að sennilega sé hafið „hljóðlátt“ áhlaup á ís- lenska banka þar sem enginn eigandi jöklabréfa og banka- skuldabréfa sem nálgast gjalddaga muni endurnýja þau á næstunni. Þær athugasemdir eru úr lausu lofti gripnar, enda féllu 100 ma.kr. af jöklabréfum á gjalddaga á fyrsta ársfjórðungi og 98,2 ma.kr. af jökla- bréfum voru gefin út á sama fjórð- ungi. Með áhlaupi á banka er átt við að innstæðueigendur mæti og taki út innlán sín. Það að jöklabréf verði ekki endurnýjuð getur ekki falið í sér eða verið hluti af áhlaupi á banka því jöklabréf eru viðskipti milli aðila utan bankanna þó þau séu mögulega gerð með milligöngu banka, innlendra eða erlendra. Ali- ber hefur uppi getsakir um að stór- fyrirtæki hér á landi séu farin að flytja fé sitt úr íslenskum bönkum. Staðreyndin er sú að í mars jukust innlán innlendra fyrirtækja í ís- lenskum bönkum um 69 ma.kr. og frá áramótum nemur aukningin 73 Landsbanki Heritable í Bret Í þriðja lagi fullyrðir Alib lensku bankarnir séu ekki heldur reknir eins og sjóði endurskipulagning þeirra s kvæmileg. Hann segir þá þ renna saman og skipta ei upp í einingar, þ.e. viðskipt og fjárfestingarbanka, og r einungis að ábyrgjast vi bankahlutann. Það er ek rekstri íslensku viðskiptaba sem kallar á slíkar afdrifar gerðir. Þeir standa á tr grunni með há eiginfjárhlu lausafjárstöðu sem stenst al an samanburð. Eiginfjárhlutföll þeirra s strangt álagspróf Fjármálae ins og eru bankarnir að s þessar mundir viðunandi a erfiðu árferði. Bankarnir ha ið úr gengismun sem hlu tekjum, hlutfall útlána af eig hátt í alþjóðlegum samanb mö.kr. Engar vísbendingar eru um að sú þróun hafi snúið til baka. Hann lítur einnig fram hjá því að það eru skýr merki þess að áhættu- fælni á erlendum mörkuðum fari lækkandi og hefur skuldatryggingarálag íslenskra banka fallið yfir 60% frá hæsta gildi 31. mars síðast- liðinn. Einnig hafa ís- lensku bankarnir sýnt fram á aðgengi að er- lendu fjármagni í lok- uðum skuldabréfaút- gáfum á undanförnum mánuðum á viðunandi kjörum, þrátt fyrir erfitt tíðarfar. Í öðru lagi fullyrðir Aliber að íslenskir bankar hafi greitt of hátt verð fyrir dóttur- félög sín erlendis og segir að ef bankarnir gætu selt þessi dótturfélög sín í dag mundu þeir gera það. Honum finnst eðlilegt að dótturfélögin verði seld áður en hið opinbera tekur stórt lán til þess að koma bönkunum til að- stoðar. Aliber horfir fram hjá því að margar af stærstu yfirtökum ís- lensku bankanna gengu afar vel fyr- ir sig og skiluðu umtalsverðum sam- legðaráhrifum, stóraukinni áhættudreifingu og juku arðsemi bankanna. Má þar nefna yfirtöku Kaupþings á Singer & Friedlander og kaup Glitnis á Bnbank. Vöxtur Landsbankans hefur að mestum hluta verið innri vöxtur án þess að farið hafi verið í stórar yfirtökur. Þá horfir hann fram hjá því að dóttur- fyrirtæki sem bankarnir hafa keypt erlendis eru að mestu leyti fyrirtæki sem hafa að meginstarfsviði útlán og fjármögnun þeirra, svo sem FIH sem Kaupþing á í Danmörku, dótt- urfyrirtæki Glitnis í Noregi og Vegna forsíðuf Morgunblaðsin Halldór J. Kristjánsson   6+ ( & 78!9 8:; <= > -9 ! 59 ?- 4 8-49 @?9 78" "A89 ! B -4 8 . 09 C ;2 @"8 D: + & 2 E 5-9 C-2 -49 F- 0G H C :   0- %  0 2 %  8G H 8- ; 9 +5 1 & C    %%  C  MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi yfirlýsing frá Gylfa Zoëga, formanni hagfræði- skorar, viðskipta- og hagfræði- deildar Háskóla Ís- lands: „Hagfræðiskor viðskipta- og hag- fræðideildar stend- ur um þessar mundir fyrir fyrir- lestraröð um stöðu efnahagsmála. Fyrsti fyrirlesari okkar var fyrrum prófessor við Chi- cago-háskóla, Ro- bert Z. Aliber, en hann er nú á eft- irlaunum eftir að hafa starfað við skólann í ein 40 ár. Fyrirlestur Ro- berts var áhugaverður fyrir þær sakir að hann lýsti því hvernig mikið framboð fjármagns í heim- inum hefur haft áhrif á fram- vindu efnahagsmála hér á landi síðustu árin. Í fyrirlestrinum lýsti hann því hvernig innflæði fjármagns, það er að segja miklar lántökur innlendra aðila á alþjóð- legum fjármagnsmarkaði, hafi valdið gríðarlegri hækkun hluta- bréfavísitölu, sem meira en átt- faldaðist á fáeinum árum, og einnig umtalsverðri hækkun á fasteignaverði. Robert hélt því fram að Íslendingar hefðu lifað um efni fram og færi þar saman bankanna og umsvif í út Hann vék sérstaklega a verki bankanna í uppsve ustu ára og sagði að þe leikið veigamikið hlutve því að auka útlán sín og þ eftirspurn eftir eignum lands svo og einkaneyslu. Í lok fyrirlesturs síns bert falla ummæli um rek afkomu viðskiptabankan ég get ekki skilið á annan að hann hafi sagt þau í hi ins án þess að kanna sér staðreyndir máls. Það er óheppilegt að forsíðufy Morgunblaðsins hafi grip af þessum setningum á l sem segir í viðtalinu að: mjög sennilegt að h áhlaup sé þegar hafið. M ar að enginn eigandi jö eða bankaskuldabréfa se ast gjalddaga muni en þau á næstunni og ég gis flestir yfirmenn fjárs stórfyrirtækja séu farnir fé sitt til banka utan Í Hér virðist vera um gru og getgátur að ræða en e urstöður að athuguðu má fjöllun um málefni banka kvæm og mikilvægt að h við staðreyndir. Ekki hafa viti til, komið fram stað sem styðja þessar getgátu Virðingarfyllst, Gylfi Zoëga, formaður hagfræðiskor skipta- og hagfræðideilda mikill viðskiptahalli, hátt verð hlutabréfa, hátt fasteignaverð og mikil einkaneysla. Hafi þeir hér farið að dæmi Breta, Bandaríkja- manna, Íra og fleiri þjóða sem einnig hafa notið ódýrs lánsfjár undanfarin ár – við séum hluti af heims- hagkerfinu og það or- saki bæði uppsveiflur og niðursveiflur hjá okkur. En þjóðin geti ekki lifað um efni fram til lengdar eins og hafi komið fram síðustu mánuði. Þegar hið alþjóðlega fjár- magn dragi sig til baka þá lækki öll eignaverðin og við- skiptahallinn hverfi smám saman. Slík að- lögun geti verið erfið vegna þess að skuldugir einstaklingar og fyr- irtæki sjái þá verðmæti eigna sinna lækka en skuldirnar standi eftir. Af þessum sökum verði næstu tvö árin erfið hjá okkur. Robert lagði fram tvær tillögur. Í fyrsta lagi að gengi krónunnar yrði leyft að lækka vegna þess að slík aðlögun væri nauðsynleg til þess að viðskiptahallinn hyrfi. Þess vegna ætti ekki að halda stýrivöxtum Seðlabankans háum. Hins vegar lagði hann til að ríkið ábyrgðist þá starfsemi bankanna sem lyti að innlánum og útlánum innan lands en ekki fjárfestingar Misvísandi fyrirsögn í Morgunblaðinu þriðjudaginn 6. maí Gylfi Zoëga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.