Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 41
Sýnd í álfabakka
ÞAÐ ÞARF ALVÖRU KARLMANN
TIL AÐ VERA BRÚÐARMEYJA
eee
,,Hugljúf
og skemmtileg"
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
IRON MAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
SUPERHERO MOVIE kl. 8 LEYFÐ
P2 kl. 10 B.i. 16 ára
IRON MAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
FORGETTING SARAH M. kl. 8 B.i. 12 ára
21 kl. 10:30 B.i. 16 ára
SKEMMTILEGASTA RÓMANTÍSKA
GAMANMYND ÁRSINS
Sýnd í álfabakka
Sýnd í kringlunni og keflavík Sýnd í keflavík Sýnd á akureyri Sýnd á SelfoSSi
UNDRAHUNDURINN
ER BESTI VINUR
MANNSINS
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Sýnd í álfabakkaSýnd í álfabakka
og akureyri
Sýnd í kringlunni
og SelfoSSi
Sýnd í álfabakka
frábær öðruvíSi Spennumynd
í leikStjórn paul HaggiS, (CRASH)
eeee
BBC
eeee
Ebert
eeee
S.V. - MBL
IRON MAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
OVER HER DEAD BODY kl. 8 B.i. 7 ára
THE RUINS kl. 10 B.i. 16 ára
Sýnd í álfabakka
eeee
“Ein besta
gamanmynd
ársins”
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
-S.V., MBL
eeee
- 24 stundir
Í kringum 1980 kom fram á sjón-arsviðið í Bretlandi kynslóð rit-höfunda sem átti eftir að koll-
varpa hugmyndum umheimsins um
breska skáldsagnagerð. Þessir höf-
undar fleyttu breskum skáldskap
inn í samtímann með þeim hætti að
tekið var eftir. Fljótlega stóðu fjórir
eftir sem ókrýndir konungar breskr-
ar samtímaskáldsagnagerðar; þeir
Julian Barnes (f. 1946), Ian McEwan
(f. 1948), Salman Rushdie (f. 1947)
og Graham Swift (f. 1949). Ein-
hverjir kynnu að vilja raða Martin
Amis (f. 1949) í þennan hóp, en sól
hans hneig svo snöggt til viðar á síð-
asta áratug tuttugustu aldar að lítið
hefur kveðið að honum síðan. Fyrir
þessum mönnum í skapandi för
þeirra inn á nýjar slóðir í skáld-
sagnagerð fór Angela Carter –
nærri áratug eldri – með ferskum
andblæ, aðferðum og hug-
myndafræði. Einn fyrrgreindra fjór-
menninga var reyndar nemandi
hennar í skapandi skrifum, þ.e.a.s.
McEwan, og annar nemandi hennar
Kazuo Ishiguro (f. 1954) sem er
nokkru yngri en hinir þrír skapaði
sér einnig nafn um áþekkt leyti og
þeir.
Flaubert’s Parrot, eftir Barnes,The Child in Time, eftir McEw-
an, Midnight’s Children eftir Rus-
hdie og Waterland Grahams Swifts
eru án efa þær bækur sem lögðu
grunninn að velgengni þessara höf-
unda og vöktu á þeim athygli um
heim allan. Allar voru þessar bækur
þýddar á tugi tungumála og höfund-
arnir urðu heimsfrægir á svip-
stundu. Þeir voru góðir kunningjar
og Barnes, McEwan og Rushdie
reyndar nánir vinir. Síðan þetta var
hefur gengið á ýmsu í ferli þeirra
allra. Rushdie náði athygli heimsins
alls er lífi hans var ógnað fyrir að
hafa skrifað The Satanic Verses
(Söngvar satans) – hann þurfti að
fara í felur og reglulega birtust
fréttir af útlegð hans, allt þar til
hann taldi óhætt að gera tilraun til
sæmilega eðlilegs lífs árum seinna.
Hinir gátu lifað sínu lífi og haldið
sínum skrifum áfram með reglu-
bundnum hætti. Allir nema Barnes
hafa þeir unnið til Bookerverðlauna.
Enginn þeirra þarf m.ö.o. aðkvarta yfir því að athygli um-
heimsins hafi ekki verið næg, þeir
hafa notið meiri umbunar en flestir
rithöfundar gera sér vonir um yf-
irleitt. Óhjákvæmilega vekur þó at-
hygli þegar einn úr svona hópi skýst
fram úr hinum á ógnarhraða, enda
ekki mjög algengt að alvarlegir rit-
höfundar nái þeim stjörnustatus að
almenningur um heim allan þekki til
verka þeirra. Slíkur heiður hefur yf-
irleitt fallið reyfarahöfundum í
skaut nú þótt ekki megi gleyma hlut-
deild J.K. Rowling, höfundar Harry
Potter-barna- og unglingabókanna í
heimsfrægðinni. En eftir að Atone-
ment eftir McEwan kom út tók ferill
hans þann kipp er dugði honum til
að öðlast slíka heimsfrægð; honum
stendur nú allt til boða og hefur lítið
gert annað undanfarið en ferðast
um heiminn til að halda fyrirlestra
og lesa úr verkum sínum. Samnefnd
kvikmynd sem gerð var eftir bókinni
og vakti mikla athygli í slagnum um
Óskarsverðlaunin í vetur bætti enn
stöðu hans. Þær bækur sem fylgdu í
kjölfar Atonement, Saturday og On
Chesil Beach, ýttu enn frekar undir
þá skoðun lestrarhesta heimsbyggð-
arinnar að kominn væri fram
ókrýndur meistari fagurbókmennta
sem erfitt verður að skáka á næst-
unni. Svo á bara eftir að reyna á
hvort einhver sem notið hefur við-
líka vinsælda og Ian McEwan er
ekki með þeim vinsældum búinn að
skrifa sig frá öllum möguleikum á að
hreppa mestu heiðursverðlaun bók-
menntanna, sjálfan Nóbelinn.
Fremstur meðal jafningja
AF LISTUM
Fríða Björk Ingvarsdóttir
» Óhjákvæmilega vekur þó athygli þegar einn úrsvona hópi skýst fram úr hinum á ógnarhraða,
enda ekki mjög algengt að alvarlegir rithöfundar
nái þeim stjörnustatus að almenningur um heim
allan þekki til verka þeirra.
Morgunblaðið/Kristinn
Vinsæll Breski rithöfundurinn Ian McEwan var gestur á Bókmenntahátíð í Reykjavík fyrir nokkrum árum.
fbi@mbl.is
TVÆR gjörólíkar kvikmyndir
verða frumsýndar í íslenskum
kvikmyndahúsum í kvöld.
Redacted
Leikstjórinn Brian De Palma er
þekktastur fyrir spennumyndir á
borð við Scarface, The Untouch-
ables og Mission: Impossible, en
rær á ný mið í nýjustu mynd sinni
Redacted. Þar segir frá hryllileg-
um glæpum bandarískra her-
manna nálægt bænum Al-
Mahmudiyah í Írak í mars árið
2006. Hópur hermanna nauðgaði
fjórtán ára gamalli stúlku og
myrti hana, foreldra hennar og
litlu systur. Viðbrögðin við mynd-
inni hafa verið misjöfn, De Palma
hefur verið sakaður um föð-
urlandssvik fyrir það að sýna
bandaríska herinn í neikvæðu ljósi
og myndin hlaut dræma aðsókn í
bandarískum kvikmyndahúsum.
De Palma fékk verðlaunin fyrir
bestu leikstjórn á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum, en gagnrýn-
endur hafa ýmist lofað myndina í
hástert eða sagt hana lélega með
afbrigðum.
Empire: bbnnn
Metacritic: 52/100
What Happens in Vegas
Í þessari gamanmynd segir frá
samkvæmisljóninu Jack Fuller og
kaupsýslukonunni Joy McNally
sem eru jafn ólík og svart og hvítt
er slysast til að gifta sig þegar þau
eru úti að skemmta sér í Las Veg-
as. Til þess að flækja málin enn
frekar vinna þau þrjár milljónir
dollara í fjárhættuspili á brúð-
kaupsnóttina, svo að þau þurfa að
gera upp deilumál sín eftir þessa
afdrifaríku nótt fyrir dómstólum.
Leikstjóri er Tom Vaughan og
með aðalhlutverk fara þau Came-
ron Diaz og Ashton Kutcher.
Engin gagnrýni hefur enn verið
birt um myndina, enda verður hún
heimsfrumsýnd hér á landi í
kvöld.
Frumsýningar»
Hernaður Í kvikmyndinni Redacted
er fjallað um voðaverk bandarískra
hermanna í Írak.
Glæpir
og gaman