Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 13
NÝTT ungmenna-
hús í Kópavogi
hefur hlotið nafn-
ið Molinn en það
var opnað á setn-
ingardegi Kópa-
vogsdaga, menn-
ingarhátíðar í
Kópavogi, síðast-
liðinn laugardag
við hátíðlega at-
höfn. Molinn er
menningar- og
tómstundamið-
stöð ungs fólks á
aldrinum 16–24
ára og gjöf bæjar-
stjórnar handa ungu fólki í bænum
á 50 ára afmæli bæjarfélagsins
2005.
Fjöldi manns var viðstaddur opn-
unina þar sem ýmsir ungir lista-
menn komu fram og Ómar Stefáns-
son, formaður bæjarráðs, flutti
ávarp og tilkynnti nafnið á miðstöð-
inni. Efnt hafði verið til nafnasam-
keppni og verðlaunum heitið. Sá
sem sendi tillöguna kaus að láta
nafns síns ekki getið og ákvað lista-
og menningarráð Kópavogs því að
gefa verðlaunaféð, 100 þúsund
krónur, BUGL – Barna- og ung-
lingageðdeild Landspítalans.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
og Ómar Stefánsson klipptu á borð-
ann eftir að séra Ægir Sigurgeirs-
son blessaði húsið. Sólrún Sigvalda-
dóttir hélt ávarp fyrir hönd ung-
menna en hún er nýkjörinn
formaður Nemendafélags Mennta-
skólans í Kópavogi. Sigurrós Þor-
grímsdóttir, formaður lista- og
menningarráðs, kynnti nýjan for-
stöðumann Molans, Andra Þór
Lefever.
Fyrir unga fólkið Ungmennahúsið Molinn við rætur
Borgarholtsins, gegnt Salnum og Gerðarsafni.
Molinn fyrir unglingana
í hjarta Kópavogs
FYRSTA þjónustuíbúðin í Mörk-
inni, Suðurlandsbraut 58 til 64, var
afhent á föstudag. Við íbúðinni tók
Sigrún Sturludóttir, en hún er einn
af frumkvöðlum að byggingu þjón-
ustuíbúða ásamt hjúkrunarheimili
og þjónustukringlu í Mörkinni.
Á svæðinu er markmiðið að
byggja upp öfluga þjónustu við
eldri borgara þar sem þeir geta
fengið nánast alla þá þjónustu sem
þeir óska eftir. Um er að ræða 78
íbúðir sem verið er að ljúka við í
fyrsta áfanga. Í næsta áfanga verða
45 þjónustuíbúðir ásamt þjónustu-
miðstöð þar sem m.a. er gert ráð
fyrir heilsulind ásamt sundlaug.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis-
ins hefur lýst því skriflega yfir við
stjórn Markarinnar að hverjum
íbúa verði tryggð heimahjúkrun sé
hennar þörf. Á vegum félagsmála-
ráðuneytisins eru að hefjast fram-
kvæmdir við byggingu hjúkrunar-
heimilis fyrir 110 vistmenn. Nánar
á vefnum www.thjonustuibudir.is
Í Mörkinni Sigrún Sturludóttir
ásamt dóttur sinni og tengdasyni
Sóley Þórhallsdóttur og Kristjáni
Pálssyni, fyrrverandi alþingismanni.
Fyrsta þjón-
ustuíbúðin af-
hent í Mörkinni
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr þróunarsjóði grunnskóla
fyrir skólaárið 2008-2009. Menntamálaráðherra hefur
ákveðið, að tillögu ráðgjafarnefndar, að veita styrki að
upphæð alls 18,5 millj. kr. til 30 verkefna en samtals
voru 63 umsóknir. Snælandsskóli fær hæsta styrkinn að
þessu sinni 1,1 millj. kr. í verkefnið „Að læra að læra“.
Lundarskóli á Akureyri fær 1 millj. kr. í verkefnið „Svíf-
um seglum þöndum“ og Álftanesskóli fær 1 millj. kr. til
verkefnisins „Frá gráma til gleði – skólalóðin okkar“.
Tilgangur sjóðsins er að efla nýjungar tilraunir og ný-
breytni í grunnskólum. Fimm manna ráðgjafarnefnd
metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráð-
herra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla Ís-
lands, Háskólanum á Akureyri, samtökum kennara og skólastjóra og
menntamálaráðuneyti. Símenntun, Rannsóknir, Ráðgjöf, Kennaraháskóla
Íslands annast umsýslu sjóðsins skv. samningi við menntamálaráðuneytið.
Þróunarsjóður grunnskóla
Föndrað í
Snælandsskóla.
VINSÆLDIR bláu pappírstunn-
unnar vaxa jafnt og þétt. 1.668
tunnur eru nú í notkun í borginni
og eru um 50 til viðbótar pantaðar
vikulega hjá Sorphirðu Reykjavík-
ur.
Tæplega 60 tonn af dagblöðum
söfnuðust í marsmánuði í bláu tunn-
urnar. Miðað við að Reykvíkingar
séu nú um 119 þúsund þýðir það að
um hálft kg af dagblöðum hafi safn-
ast fyrir hvern Reykvíking í mars-
mánuði eða um eitt kg á hverja
íbúð. Það er um þriðjungur þess
sem safnast í grenndargámana.
Magn dagblaða sem safnast í
grenndargámana hefur þó ekki
minnkað að ráði þrátt fyrir bláu
tunnurnar.
Auknar vinsældir
bláu tunnanna
FIMMTUDAGINN 15. maí verða
haldnir tónleikar til styrktar Jóni
Gunnari Einarssyni, sem slasaðist á
mótorkrosshjóli 12. apríl. Hann er á
batavegi og fer fljótlega í endur-
hæfingu á Grensási, en verður lengi
frá vinnu, að því er segir í tilkynn-
ingu frá aðstandendum. Tónleik-
arnir verða haldnir í Hólaneskirkju
á Skagaströnd. Fram koma ýmsir
tónlistarmenn sem allir gefa vinnu
sína. Þeim sem vilja styrkja mál-
efnið er bent á söfnunarreikninginn
0160-26-61400, kt.: 290483-3799.
Styrktartónleikar
á Skagaströnd
Ljósmynd/Sigurður Jökull
Á flugi Keppt í mótorkrossi.
STUTT ÚR VERINU
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„VERKEFNIN breytast ekki,“ segir
Gunnar Ásgeirsson, stjórnarformað-
ur Skinneyjar-Þinganess hf. á Horna-
firði. Félagið hefur fengið nýtt og öfl-
ugt uppsjávarskip, Ásgrím Halldórs-
son SF 250, og lætur í staðinn frá sér
Jónu Eðvalds SF.
Nýja skipið er átta ára gamalt,
smíðað í Noregi en hefur verið gert út
frá Skotlandi til tog- og nótarveiða.
Það hét Lunar Bow og var í eigu Lun-
ar Fishing. Ásgrímur Halldórsson er
liðlega 61 metri að lengd og um 13 á
breidd og getur borið liðlega 1.500
tonn í kælitönkum.
Skipið fékk nafn Ásgríms Halldórs-
sonar, eins af stofnendum Skinneyj-
ar.
Ásgrímur er gangmeira og burð-
armeira skip en Jóna Eðvalds. „Við
erum að hugsa um að koma hráefninu
í betra ásigkomulagi til vinnslunnar
hérna. Með þessu skipi höfum við
möguleika á stöðugra og betra hrá-
efni en verið hefur,“ segir Gunnar.
Krossey verður áfram gerð út.
Lítur út eins og nýtt
„Þetta er glæsilegt skip. Þótt það
sé átta ára gamalt lítur það út eins og
nýtt,“ segir Sigurður Ægir Birgisson
sem er skipstjóri á Ásgrími Halldórs-
syni SF ásamt Ásgrími Ingólfssyni.
Sigurður segir að skipið hafi reynst
vel í siglingunni frá Skotlandi. Það
hafi til dæmis varla haggast þegar
það lenti í slæmu veðri á milli Fær-
eyja og Íslands.
Stefnt er að því að Ásgrímur Hall-
dórsson fari til veiða á síld úr norsk-
íslenska stofninum undir lok mánað-
arins ásamt Krosseynni. Skip félags-
ins hafa verið saman að veiðum
undanfarin tvö ár, með svokallað par-
troll, með góðum árangri.
Það verður að sögn Sigurðar Ægis
í sömu verkefnum og Jóna Eðvalds,
veiðum á síld og loðnu fyrir vinnsluna
á Hornafirði. Þó segir hann að stærra
og öflugra skip skapi möguleika til að
sækja lengra, ef á þurfi að halda.
Þannig segir hann til athugunar að
fara einn túr á kolmunna núna í mán-
uðinum til að láta reyna á tækin.
Tvö ný skip í haust
Skinney-Þinganes fær í haust tvö
ný skip sem verið er að smíða í Taív-
an. Þau verða notuð til humarveiða en
jafnframt útbúin til annarra verkefna.
„Við erum að yngja upp skipakostinn
og skapa möguleika til að koma með
betra hráefni að landi,“ segir Gunnar.
Fyrirtækið gerir út átta skip og
reiknar Gunnar ekki með að breyting
verði á því. Hins vegar sé ekki ákveð-
ið hvaða skipum verði lagt þegar nýju
skipin koma.
„Þetta er stöðug barátta, eins og
alltaf hefur verið,“ segir Gunnar um
stöðuna. Hann segir að engin breyt-
ing hafi orðið á verkefnum fyrirtæk-
isins. Það er í bolfiski, humri og upp-
sjávarfiski. Hann segir að taka verði á
því í stjórnuninni, þegar hann er
spurður um viðbrögð við kvótasam-
drættinum sl. haust.
Nýr Ásgrímur Halldórsson SF leysir Jónu Eðvalds af hólmi
Gangmeira og
burðarmeira skip
Morgunblaðið/Sigfús Már Þorsteinsson
Heimahöfn Ásgrímur Halldórsson SF kominn til heimahafnar í Hornafirði.
Skinney-Þinganes bauð
Hornfirðingum að skoða
Ásgrím Halldórsson SF,
hið nýja skip félagsins,
um helgina. Skipstjór-
arnir tveir voru um borð
með sonum sínum. Annar
skipstjórinn, Sigurður
Ægir Birgisson, er sonur
Birgis Sigurðssonar,
skipstjóra og útgerðar-
manns, eins stofnanda
Skinneyjar. Hinn skip-
stjórinn, Ásgrímur Ing-
ólfsson, er sonur Ingólfs
Ásgrímssonar, skipstjóra
og útgerðarmanns, sem einnig var meðal stofnenda fyrirtækisins. Skipið
ber svo nafn þriðja stofnandans, Ásgríms Halldórssonar, föður Ingólfs.
Með skipstjórunum voru synir þeirra, Birgir og Freyr Sigurðssynir og
Ingólfur Ásgrímsson. Tveir þeirra bera nöfn stofnenda fyrirtækisins og ef
hefðin helst í fjölskyldunum má sjá þarna tilvonandi skipstjóra og útgerð-
armenn af þriðju og fjórðu kynslóð.
Í fótspor feðranna
0)-
-, )&*)"
%
& ' $
$ ()*+
",
-$
#$%&'(
) *#%+#$
.
$$%*,'
) '%$-,
.(+$
$%$(+
) &-,
.((
(%(*,
) ,%&.+
/ (
$$.%,.+
) *,%$#,
0
$(%'((
) $,%'&(
1$
(*%*--
) ,(%&&(
2
,%''.
) $%.#.
. (
$%(-(
) $%,'$
3
&*%$#.
) ,#%#,+
.(4
,%('*
) $%$*+
/5(()
,%$.+
) $%*$&
67$ 8(9
-%+*&
) #%*..
/ (
*..%(*.
) $,-%-+#
SKIP frá þremur erlendum ríkjum
voru við veiðum innan íslensku lög-
sögunnar í marsmánuði, samkvæmt
upplýsingum Fiskistofu.
Mest var um færeysk skip en sex
færeysk línuskip voru hér að veiðum.
Alls lönduðu þau rúmlega 530 tonn-
um. Norska línuskipið Keltic var
einnig hér að veiðum og var það eina
norska skipið sem stundaði veiðar í
íslenskri landhelgi í mánuðinum.
Ennfremur var grænlenska skipið
Erika við loðnuveiðar.
Átta erlend skip
að veiðum