Morgunblaðið - 07.05.2008, Síða 11
Stórtónleikar Björgvins Halldórssonar í Kaupmannahöfn 24. arpíl 2008
Hótelbókanir í Kaupmannahöfn færa Björgvini Halldórssyni og hljóm-
sveit hans, gestasöngvurum og strengjasveit frá Det Kongelige Kapel
innilegar þakkir fyrir frábæra tónleika í Cirkus á Sumardaginn fyrsta
s.l. Einnig færum við Ragnari Bjarnasyni sérstakar þakkir fyrir framlag
hans til tónleikanna.
Við þökkum þeim 850 gestum sem sóttu tónleikana fyrir frábærar
viðtökur, starfsfólki Icelandair í Reykjavík og í Kaupmannahöfn færum
við bestu þakkir fyrir frábært samstarf og sérstakar þakkir fá einnig
Þórir Baldursson og Björn G. Björnsson.
Myndir frá kvöldinu má sjá á heimasíðu okkar – www.koben.is
Sjáumst á ný í Kaupmannahöfn í apríl 2009!
Bókið hótelgistinguna hjá okkur - hagstæðustu
verðin á bestu hótelunum.
www.koben.is – www.stockholm.is – www.london.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 11
FRÉTTIR
ingnum – og hann væri lögfræðingur!
– auk þess sem kaupleigusamningur
lægi ekki fyrir. Hann væri í vinnslu
og búið væri að taka út ákvæðið sem
heimilaði lokun Hallargarðsins.
Hestagerðið var mikið til umræðu
þegar líða tók á kvöld. Dofri Her-
mannsson og Óskar Bergsson fóru
fram á að borgarstjóri svaraði því til,
hvers vegna hestagerðið, sem er um
100 ára, væri í kaupsamningnum,
þegar hann hefði getað komið í veg
fyrir það. Borgarstjóri sagðist ekki
hafa komið að því máli.
Var í því sambandi nefnt að bílar
væru valdir fram yfir börn og borg-
arminjar, en því var Gísli Marteinn
Baldursson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, ekki sammála. Sagði
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FORMLEGU söluferli húsnæðisins
við Fríkirkjuveg 11 til Novators lauk
í borgarstjórn rétt fyrir kl. 22 í gær-
kvöldi. Með því lauk fimmtán mán-
aða ferli innan borgarkerfisins og
fjögurra klukkustunda umræðu um
málið innan borgarstjórnar í gær.
Borgarfulltrúar voru flestir um það
sammála að samningurinn sem sam-
þykktur var í gær hefði verið betri en
á tímabili stefndi í, en fulltrúar
minnihlutans fóru þó fram á að enn
yrðu gerðar breytingar.
Ólafur F. Magnússon, borgar-
stjóri, hóf umræðuna. Fór yfir sögu
húsnæðisins og kom m.a. inn á
breytta afstöðu sína í málinu. Sagði
borgarstjóri að þegar hann hefði
komið að málinu hefði tilboðið verið
bindandi og honum ekki í lófa lagið
að draga það til baka. Taldi Ólafur að
málinu hefði nú verið siglt í þann far-
veg að aðgangur almennings hefði
verið tryggður að garðinum og því
gæti hann mælt með sölunni. „Í þeim
kaupsamningi sem nú liggur fyrir er
almenningi [...] tryggt óskert að-
gengi að Hallargarðinum og allri lóð-
inni í kringum Fríkirkjuveg 11,“
sagði borgarstjóri og las svo upp úr
7. gr. kaupsamningsins. „Engar
breytingar verða gerðar á almenn-
ingsgarðinum, nema á lóðarmörkum
sunnan hússins, þar sem gert verður
aðkomutorg til að bæta aðgengi al-
mennings að húsinu.“
Í breyttum kaupsamningi er ekki
kveðið á um viðhafnaraðkomu vegna
tignra gesta nýs eiganda. Hins vegar
selst hestagerðið með fyrir fimmtíu
milljónir króna. Heildarverð fyrir
húsnæðið og gerðið er 650 milljónir
kr.
Þorleifur Gunnlaugsson, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna, steig næstur
í pontu. Hann gagnrýndi að breyt-
ingartillaga borgarstjóra hefði ekki
verið með þeim gögnum sem send
voru fyrir fundinn. Hann hefði fyrst
séð hana á fundinum sjálfum. Hann
benti á að misræmi væri í samningn-
um þar sem annars vegar væri kveð-
ið á um að einungis væri gert ráð fyr-
ir aðkomutorgi, en hins vegar kæmi
fram að teikning Landslags ehf. af
tillögu Novators að breytingum á
lóðinni væri orðin hluti af samningn-
um. Taldi hann að þetta misræmi
gæti leitt til misskilnings og vildi
fresta málinu og vísa aftur til borg-
arráðs. Talaði hann um réttar-
farslega óvissu og óvandaða af-
greiðslu.
Bílar fram yfir börn
Einnig benti Þorleifur á að ekki
fylgdi samningnum tillaga að lóðar-
leigusamningi en það taldi hann
óeðlilegt. Vitnaði hann í uppkast af
samningnum frá september sl., þar
sem kemur fram að nýir eigendur
geti lokað garðinum fyrir almenningi
þegar tigna gesti beri að garði.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagðist
ekki sjá neina vankanta á kaupsamn-
hann að þrátt fyrir að gerðið fylgdi í
sölunni þyrfti að sækja um leyfi til að
rjúfa gerðið og það þyrfti að fara í
gegnum borgarkerfið. Talaði hann
um örlítið rof sem myndi nýtast til að
snúa við bílum á svæðinu. Gerðið
myndi hins vegar áfram njóta sín,
börn gætu leikið þar áfram, og allir
sem færu þar um sæju að þar hefðu
hestar verið geymdir. Slíkt væri
tryggt í kaupsamningnum.
Að endingu var tillögu VG um að
fresta málinu hafnað. Þá var tillögu
Gísla Marteins um að vísa bæri til-
lögu Samfylkingar um að tryggja
börnum áfram leiksvæði í hestagerð-
inu samþykkt. Breytingartillaga
borgarstjóra var því næst samþykkt
og svo kaupsamningurinn sjálfur.
Óskert aðgengi tryggt
að Hallargarðinum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Úr salnum Sjálfstæðismennirnir Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magn-
ússon og Gísli Marteinn Baldursson sátu fund borgarstjórnar í gær.
Í HNOTSKURN
»Borgarstjóri hefur faliðgarðyrkjustjóra að kanna
hvort stytta sem stóð á gos-
brunni í Hallargarðinum leynist
enn í geymslum borgarinnar. Til
stendur að endurgera gosbrunn-
inn.
»Novator sendi frá sér frétta-tilkynningu í gærkvöldi þar
sem fagnað er því að málið sé til
lykta leitt.
»Einnig segir að aldrei hafistaðið til að hefta aðgang al-
mennings að Hallargarðinum,
hestagerðinu né lóðinni um-
hverfis húsið.