Morgunblaðið - 07.05.2008, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
EIN FERÐ á flutningabíl slítur vegi
álíka mikið og níu þúsund ferðir á
fólksbíl. Sé flutningabíllinn með
tengivagn mætti aka fólksbifreið 12
þúsund sinnum og slíta vegi jafn-
mikið og í einni ferð trukksins.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
samgönguráðherra við fyrirspurn
Ármanns Kr. Ólafssonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokks.
Þennan mikla mun má sam-
kvæmt svarinu rekja til þess að við
ákveðin þyngdarmörk margfaldast
áhrifin á burðarþol vegarins. Þetta
getur þó verið mismunandi eftir
bæði vegum og búnaði ökutækja.
Trukkur slítur
vegum á við 9
þúsund bíla
Morgunblaðið/Júlíus
Slit Trukkarnir eru slítandi.
FARIÐ er að óskum fjármálafyr-
irtækja en gengið gegn óskum
verkalýðshreyfingarinnar með
frumvarpi um skattabreytingar,
segja þingmenn Vinstri grænna í
efnahags- og skattanefnd. Meiri-
hluti nefndarinnar leggur til að
frumvarpið verði samþykkt en það
felur m.a. í sér að söluhagnaður af
hlutabréfum verður skattfrjáls.
Með fjármála-
fyrirtækjum
ELLILÍFEYRISÞEGAR sem ekki
fá eftirlaun úr lífeyrissjóðum munu
fá sérstaka uppbót ef frumvarp sem
félagsmálaráðherra hefur lagt
fram verður að lögum. Uppbótin
getur numið allt að 25 þúsund krón-
um á mánuði en gert er ráð fyrir að
um fimm þúsund einstaklingar fái
uppbót á sín eftirlaun.
Eldri borg-
arar fá uppbót
EKKI kemur til greina að rík-
issjóður greiði kostnað við gerð
umhverfismats vegna mögulegrar
olíuhreinsunarstöðvar á Vest-
fjörðum. Þetta kom fram í svari
Össurar Skarphéðinssonar, iðn-
aðarráðherra, við fyrirspurn Álf-
heiðar Ingadóttur, þingmanns
Vinstri grænna, á Alþingi í gær.
Álfheiður fagnaði svarinu og
áréttaði einnig að það hlyti að vera
kominn tími til að framkvæma um-
hverfismat enda bærust endalaus
gylliboð um byggingu olíu-
hreinsunarstöðvar. „Hér er um
gríðarlega dýrt verkefni að ræða.
Það er líka eðli máls samkvæmt
mjög flókið og ég fagna því að ríkið
ætlar ekki að borga þetta fyrir
framkvæmdaaðilann, sem ekki einu
sinni er vitað hver er,“ sagði Álf-
heiður og minnti á að umhverf-
ismat fyrir Kárahnjúkavirkjun
hefði kostað a.m.k. 300 milljónir.
Össur sagði iðnaðarráðuneytið
hafa fimm milljónir króna til ráð-
stöfunar til að kanna staðarval fyr-
ir mögulega olíuhreinsunarstöð og
að auk þess hefði verið staðið við
áður gefin loforð um að greiða nið-
ur ferðakostnað fyrir menn sem
fóru að skoða slíka starfsemi. Sá
kostnaður hafi verið um 1,8 millj-
ónir.
Borga ekki umhverfismat
fyrir olíuhreinsunarstöð
Morgunblaðið/Golli
Í takt Álfheiður Ingadóttir og Össur Skarphéðinsson eru sammála um að
ríkið eigi ekki að greiða umhverfismat fyrir mögulega olíuhreinsunarstöð.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
FASTEIGNAMARKAÐURINN er
ekki eins helfrosinn og margir vilja
vera láta og útlán úr Íbúðalánasjóði
hafa verið mjög sambærileg fyrstu
mánuði þessa árs og síðasta árs.
Þetta kom fram í svari Jóhönnu Sig-
urðardóttur, félagsmálaráðherra,
við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar,
þingmanns Framsóknarflokksins, á
Alþingi í gær. Birkir sagði algera
stöðnun vera á fasteignamarkaði og
fasteignasala vera nær verkefna-
lausa. „Við skulum ekki gleyma því
að hér er verið að tala um grundvall-
armannréttindi fólks að fá þak yfir
höfuðið,“ sagði Birkir og kallaði eftir
aðgerðum stjórnvalda.
Bankarnir ollu þenslunni
Jóhanna hafði efasemdir um að
stjórnvöld ættu að örva fasteigna-
markaðinn núna þar sem það gæti
leitt til þenslu og verðbólgu en sagði
að gripið yrði til aðgerða eins fljótt
og auðið væri. Hún sagðist þó hafa
miklar áhyggjur af því ef spá Seðla-
bankans um 30% lækkun á fast-
eignaverði gengi eftir. „Ég held að
það hafi verið mjög óskynsamlegt af
Seðlbankanum að tala niður fast-
eignaverð með þeim hætti sem hann
gerði,“ sagði Jóhanna og áréttaði
einnig þá skoðun sína að það hefði
fyrst og fremst verið innkoma bank-
anna á fasteignamarkaðinn sem olli
þenslu á honum. Margir teldu þó líka
að farið hefði verið offari með því að
bjóða í kjölfarið upp á 90% lán hjá
Íbúðalánasjóði.
Fasteignamarkaðurinn
er ekki helfrosinn
Óskynsamlegt af Seðlabankanum að tala verðið niður
Beðið eftir
frumvörpum
Þingfundi lauk kl. 16:30 í gær sem
kom talsvert á óvart enda styttist óð-
um í þinglok og venjulega er gert ráð
fyrir möguleika á kvöldfundi á þriðju-
dögum.
Inni í nefndum eru stór og viðamikil
mál og þar að auki hafa ekki öll boð-
uð frumvörp verið lögð fram. Þar má
nefna frumvarp heilbrigðisráðherra
um Sjúkratryggingastofnun en emb-
ætti forstjóra hennar hefur þegar ver-
ið auglýst. Árni M. Mathiesen sagði
jafnframt í gær að hann hefði gjarnan
viljað leggja fram frumvarp um hús-
næðissparnaðarreikninga á þessu
þingi.
Áhyggjur af Frökkum
Steingrímur J.
Sigfússon, VG,
hefur áhyggjur af
því að kostnaður
við æfingar og
loftrýmisgæslu er-
lendra herja hér á
landi fari fram úr
áætlun, m.a. þar
sem franska
sveitin verður hér
í sex vikur í stað
2-3 vikna. Steingrímur vildi svör frá
utanríkisráðherra á þingi í gær um
hver réttarstaða frönsku sveitarinnar
væriutan íslenskrar lofthelgi, sem er
aðeins 12 mílur, ætlaði hún sér að
stöðva óæskilega flugumferð við
landið. Þá vildi Steingrímur vita hvort
settar hefðu verið reglur um vopna-
burð frönsku flugvélanna.
Eins og Bandaríkin
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir sagði
ekki gert ráð fyrir
að kostnaður yrði
meiri en 200 millj-
ónir og benti á að
Steingrímur ætti
frekar að beina
spurningu sinni
um reglur um
vopnaburð til
dómsmálaráð-
herra. „Ég geri ekki ráð fyrir því að ein-
hverjar aðrar reglur gildi um Frakka en
Bandaríkjamenn sem hafa verið hér í
áratugi og sinnt þessu eftirliti,“ sagði
Ingibjörg.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst á hádegi í dag og á
dagskrá eru fimmtán fyrirspurnir auk
utandagskrárumræðu um almanna-
tryggingabætur.
ÞETTA HELST...
Steingrímur J.
Sigfússon
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
MEÐALLESTUR á fríblaðinu 24
stundum er nú kominn yfir 50% sam-
kvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun
Capacent Gallup. Reyndist lestur 24
stunda vera 50,4% á síðasta könnun-
artímabilili, frá 1. febrúar til 30. apríl
2008. Hafði meðallesturinn á 24
stundum aukist um 4,6 prósentustig
frá síðustu könnun sem stóð frá nóv-
ember 2007 og út janúar 2008. Með-
allestur fríblaðsins Fréttablaðsins
mældist vera 64,9% nú en var 61,8% í
síðustu könnun þar á undan. Meðal-
lestur áskriftarblaðsins Morgun-
blaðsins var 41,6% nú eða því sem
næst sá sami og í síðustu könnun
þegar hann var 41,7%.
Þá leiddi könnunin í ljós að 90%
svarenda höfðu lesið eitthvað í
Fréttablaðinu í vikunni, 74,8% höfðu
eitthvað lesið 24 stundir og 67,1%
höfðu eitthvað lesið Morgunblaðið.
mbl.is styrkir stöðu sína
Könnun á notkun netmiðla sýndi
að 76,6% þátttakenda höfðu heimsótt
netmiðilinn mbl.is í hverri viku með-
an könnunin var gerð. Á sama tíma
höfðu 56,1% heimsótt visir.is. Þá
heimsóttu 54,7% þáttakenda netmið-
ilinn mbl.is daglega og hafði dagleg-
um heimsóknum þangað fjölgað um
2,8 prósentustig frá síðustu könnun.
Á sama tímabili heimsóttu 33,0% net-
miðilinn visir.is á hverjum degi en
það gerðu 28,5% í síðustu könnun.
Samfellda dagblaða- og netmiðla-
mælingin sem hér er greint frá stóð
frá 1. febrúar til 30. apríl 2008. Í úr-
takinu voru 4.300 Íslendingar á aldr-
inum 12-80 ára og voru þeir valdir
með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá.
Endanlegt úrtak var 4.127 manns og
fjöldi svara 2.542. Nettó svarhlutfall
var því 61,6%.
! "
#
$
!
"
#
$
%
&
&
''
() $
)*
*
+),
)*
*
+), #
+ -.
)/
Meðallestur 24 stunda
yfir 50% markið
Meðallestur Morgunblaðsins stendur í staðÓLAFUR F. Magnússon borgar-stjóri hefur boðað verulegar útlits-
breytingar á horni Austurstrætis og
Lækjargötu og Laugavegi 4-6 eftir
næsta vetur að undangengnum
framkvæmdum við þessa staði og
raunar víðar. Umræður um mið-
borgarmál í borgarstjórn stóðu enn
yfir þegar klukkan nálgaðist mið-
nætti í gær.
Borgarstjóri sagði að umræddir
staðir hefðu sérstaka táknræna þýð-
ingu fyrir átak í uppbyggingu í mið-
borginni. Framkvæmdir við staðina
yrðu komnir það langt á næsta ári að
útlit þeirra og nærliggjandi svæða
yrði verulega breytt frá því sem nú
er. „Það er ekkert nýtt að fólki finn-
ist að ástand miðborgarinnar gæti
verið betra,“ sagði Ólafur. Hann
sagði að áhugi Íslendinga á miðborg-
inni endurspeglaðist í því að komnar
væru fram 230 ábendingar á vefnum
1,2 og Reykjavík um hvað mætti bet-
ur fara. „Langflestar ábendingarnar
snúa að því að bæta megi hreinsun
og hverskonar umhirðu í bænum.
Borgaryfirvöld hafa brugðist við
þessum ábendingum með því að taka
til hendinni í miðborginni.“
Boðar veru-
legar útlits-
breytingar