Morgunblaðið - 07.05.2008, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
UM þessar mundir eru 40 ár síðan hjónin Þór-
arinn Jónasson og Ragnheiður Gíslason fluttu
í Laxnes í Mosfellssveit og hófu rekstur sem
tengdist útivist með hestaleigu sem þunga-
miðju. „Margir sögðu að ég væri snar-
klikkaður að flytja svona langt frá bænum og
bjóða upp á ýmsa þjónustu eins og golf, mini-
golf, sund og hestaleigu, en þrátt fyrir margar
hindranir hefur þetta gengið ágætlega og við
fáum um 10.000 gesti á ári,“ segir Þórarinn
eða Póri eins og hann er gjarnan kallaður.
Lok, lok og læs
Það hefur aldrei verið nein lognmolla í
kringum Póra. Hann byrjaði til dæmis að selja
hesta til Bandaríkjanna og Finnlands og
reyndi fyrir sér með hrossaútflutning til slátr-
unar í Belgíu. „Það er alltaf músík í kringum
mig,“ segir hann, „ og ég vil framkvæma hluti,
en það var erfitt á árum áður. Þetta var svona
lok, lok og læs þjóðfélag, þar sem ekkert mátti
og hömlur á öllu.“ Í því sambandi rifjar hann
meðal annars upp næturklúbbatímabilið, sem
hann tók þátt í áður en slík starfsemi var
leyfð, en Póri og Hreiðar Svavarsson ráku
Playboy-klúbbinn í Borgartúni. „Þá var samt
banki á hverju horni í Austurstræti, Banka-
stræti og við Laugaveg – Búnaðarbankinn,
Landsbankinn, Útvegsbankinn, Verzl-
unarbankinn, Samvinnubankinn, Alþýðubank-
inn fyrir utan útibú þessara banka. Ég var
með hestasýningar í Hollywood og kynntist þá
vel forstjóra Warnerbrothers, en í veislu hjá
honum einhverju sinni var ég spurður hvað Ís-
lendingar væru margar milljónir eftir að ég
hafði greint frá lífinu og talið upp bankana í
miðbænum. En maður mátti ekkert. Einu
sinni fékk ég 400 hesta pöntun frá Belgíu.
Belgarnir vildu fá hestana á fæti til slátrunar
og mér gekk ágætlega að safna. Þegar ég var
kominn upp í 81 hest var hringt í mig og mér
sagt að Sambandið væri með einkaleyfi á út-
flutningi á hrossum og ekki mætti flytja út
hross eldri en átta vetra, en þeir Sam-
bandsmenn ættu nóg af frosnu hrossakjöti
handa mér.“
Áhugi á dýrum og einkum hestum varð til
þess að Póri ákvað að stofna hestaleigu. Hann
sá fyrir sér útivistarparadís í Laxnesi og fékk
meðal annars Pétur Björnsson í Kók til að
leggja með sér í níu holu golfvöll. En draum-
arnir gengu ekki alveg upp, golfmótin urðu
aðeins þrjú og lengi vel urðu hjónin að vinna
með starfseminni í Laxnesi. Hins vegar gekk
sveitaklúbburinn sem slíkur vel og gestum
fjölgaði jafnt og þétt.
„Þó að þetta hafi verið erfitt á köflum hefur
þetta verið mjög skemmtilegt líf, ég hef
kynnst mjög góðu fólki og aldrei hefur verið
dauður tími í vinnunni,“ segir Póri. „Eftir á að
hyggja var ég sennilega 20 árum á undan í
golfinu, en ég tók þátt í að ryðja brautina.
Sama er að segja um sundlaugina og heitu
pottana, en ég hef ekki látið renna í laugina
lengi.“
Þegar hestaleigan var opnuð voru þau með
12 hesta en nú eru þeir yfir 100. „Þetta var í
raun mjög stór áfangi í ferðamennsku á Ís-
landi,“ rifjar Póri upp. „Þetta er fyrsta fyr-
irtækið á Íslandi með skipulagðar hestaferðir
fyrir Íslendinga og útlendinga. Ég sótti fólk í
bæinn tvisvar á dag og geri enn, en er ekki
lengur með vikuferðirnar. Ég gat ekki gert
allt í einu og hef einbeitt mér að vinsælustu
ferðunum, stuttu reiðtúrunum fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki.“
Mörg afleidd störf
Póri segir að ýmis starfsemi hafi þróast út
frá hestaleigunni í Laxnesi. Hann nefnir með-
al annars jeppaferðir með Arngrími Her-
mannssyni. „Hann var að keyra túrista hingað
upp eftir og sat fastur á afleggjaranum en
hafði sig hingað heim. Fólkið hafði gaman af
þessu og jeppaferðirnar byrjuðu upp úr því.“
Hann nefnir líka ferðir á vélsleðum og báta-
siglingar á vötnum og ám og segir að menn
hafi unnið saman en samt hver í sínu lagi.
„Mér hefur alltaf fundist þjónustan best með
því að búa ekki til einhverja samsteypu heldur
að hver sé út af fyrir sig í því sem hann kann
best, en að menn vinni samt saman. Við vorum
til dæmis með sameiginlega bæklinga og sam-
einuðum ferðirnar.“
Í tilefni tímamótanna bauð forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, Póra í kaffiboð á
Bessastaði. „Ég var mjög „impóneraður“, sat
hjá honum í um tvo tíma og rifjaði upp liðnar
stundir. Þetta er fyrsta viðurkenningin sem
ég fæ á Íslandi og mér þykir mjög vænt um
hana.“
Aldrei dauður tími með hrossum
Ljósmynd/Bjarni Grímsson
Á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, bauð Þórarni Jónassyni, hestabónda
í Laxnesi í Mosfellssveit, í heimsókn í tilefni tímamóta hestaleigunnar.
Í HNOTSKURN
» Undanfarin ár hafa Þórarinn Jónassonog Icelandair skipulagt þolreið á víða-
vangi á íslenskum hestum hérlendis, á
Norðurlöndum og í Þýskalandi.
» Þolreið verður 23. maí og verður riðiðfrá Reiðhöllinni í Víðidal að Laxnesi.
» Póri segir að þol og þrek íslenskahestsins fái að njóta sín í svona þolreið.
Keppnin sé gífurlega vinsæl erlendis og Ís-
lendingar séu að taka við sér. „Fólk tekur
seint við sér hér, samanber að ekki er langt
síðan við byrjuðum að borða kjúklinga.“
Þórarinn og Ragnheið-
ur hafa rekið hestaleig-
una í Laxnesi í 40 ár
HLYNUR Hallsson, fulltrúi Vinstri
grænna í skólanefnd Akureyrarbæj-
ar, segir stefna í að leikskólinn
Hólmasól verði Akureyrarbæ enn
kostnaðarsamari en áður var talið og
segir einkarekstrarstefnu Sjálfstæð-
isflokksins þar með enn og aftur hafa
beðið skipbrot.
„Samningur bæjaryfirvalda við
„Hjallastefnuna ehf.“ er vísitölu-
bundinn meðan aðrir leikskólar á
Akureyri fá fasta upphæð árið 2008,
þrátt fyrir um 12% verðbólgu. Hvert
pláss á Hólmasól er nú þegar dýrara
fyrir Akureyrarbæ og foreldra en
pláss á öðrum leikskólum og ef fram
heldur sem horfir mun Akureyrar-
bær greiða hlutfallslega mun hærri
upphæð fyrir Hólmasól en aðra leik-
skóla í bænum,“ segir í bókun Hlyns
á fundi skólanefndar í fyrradag.
„Það er því ljóst að einkarekstar-
stefna Sjálfstæðisflokks hefur enn
og aftur beðið skipbrot og nú bitnar
það á foreldrum barna á Akureyri og
Akureyrarbæ. Þessa mismunun þarf
að leiðrétta,“ segir hann.
Hlynur segir fjölbreytt skólastarf
mikilvægt og Vinstrihreyfingin
grænt framboð styðji heils hugar
frumkvæði foreldra og fjölbreytni í
skólastarfi á öllum stigum. „Nú þeg-
ar er kynskipting eða svokölluð
Hjallastefna rekin með góðum ár-
angri í leikskólum hjá Reykjavíkur-
borg og víðar á mun hagkvæmari
hátt en „Hjallastefnan ehf.“ treystir
sér til að gera. Akureyrabær mætti
gjarnan beita sér fyrir enn fjöl-
breyttari stefnu í starfi leikskóla, t.d.
í samvinnu við foreldra með stefnur
eins og Waldorfstefnuna, Rudolf
Steiner eða Reggio Emilio svo nokk-
ur dæmi séu nefnd. Leikskólar á Ak-
ureyri eru afar fjölbreyttir og leggja
áherslu á mismunandi þætti eins og
heimspeki, fjölmenningu og hreyf-
ingu svo dæmi séu tekin. Leikskólar
Akureyrar eru afar vel reknir og
mannaðir hæfu og menntuðu starfs-
fólki og til fyrirmyndar. Metnaðar-
full símenntunaráætlun þeirra ligg-
ur fyrir en því miður hefur skóla-
nefnd Akureyrarbæjar ekki yfirlit
yfir símenntunaráætlun fyrir
Hólmasól og Hlíðarból sem rekin er
af Hvítasunnukirkjunni með samn-
ingi við Akureyrarbæ.“
Skipbrot einka-
rekstrarstefnu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman Nemendur eins leikskólans
á Akureyri úti í góða veðrinu.
Í HNOTSKURN
»Hólmasól var tekin í notkun ímaí 2006. Hlynur Hallsson
segir bókun sína í skólanefnd
ekki lagða fram sem gagnrýni á
Hjallastefnuna eða leikskólann
Hólmasól heldur til að benda á
þann aukna kostnað sem einka-
væðing hefur í för með sér.
MYND segir meira en þúsund orð og lifandi mynd lík-
lega meira en milljón orð. Fátt er skemmtilegra en að
fletta albúmi frá því börnin voru lítil og nú safna sífellt
fleiri upptökum af barni sínu. Þessi stolti faðir var með
upptökuvélina sína þegar nemendur Tónræktarinnar
luku starfsvetrinum á Græna hattinum á dögunum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ódauðlegt augnablik
JÓHANNA María Agnarsdóttir
skólastjóri Grunnskólans í Hrísey,
hefur verið ráðin skólastjóri Brekku-
skóla á Akureyri.
Jóhanna María útskrifaðist með
B.Ed.-próf frá Kennaraháskóla Ís-
lands 1991 og Dipl.Ed.-próf í uppeld-
is- og menntunarfræðum með
áherslu á stjórnun menntastofnana
frá sama skóla árið 2006. Jóhanna
hefur því 17 ára starfsreynslu og þar
af sex ár sem skólastjóri. „Skólastarf
í Hrísey hefur gengið mjög vel undir
hennar stjórn og
þar hefur verið
unnið að marg-
þættu þróunar-
starfi á þessum
árum í góðu sam-
starfi við foreldra
og samfélagið,“
segir í fréttatil-
kynningu frá Ak-
ureyrbæ í gær.
Jóhanna María tekur við starfinu í
sumar.
Jóhanna María
stýrir Brekkuskóla
Jóhanna María
Agnarsdóttir
AKUREYRI
Norðurlandsdeild Samtaka foreldra
og aðstandenda samkynhneigðra,
FASN, hefur starfað á Akureyri um
nokkurra ára skeið. Félagið er
fræðslu- og styrkingarhópur að-
standenda homma, lesbía, tvíkyn-
hneigðra og transgender ein-
staklinga. Það er á stefnuskrá
FASN að efna um það bil einu sinni
á ári til fundar með hommum, lesbí-
um, tvíkynhneigðum og transgend-
er fólki á Norðurlandi og slíkur
samfundur verður í kvöld kl. 20.00 í
Oddeyrarskóla (gengið inn að norð-
an). Fjallað verður um stöðu sam-
kynhneigðra á Norðurlandi á þeim
tímamótum þegar Samtökin 78
halda upp á þrítugsafmæli sitt.
Fundur í FASN