Morgunblaðið - 07.05.2008, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Skúli RagnarJóhannsson
fæddist í Sand-
gerði 18.nóvember
1952. Hann lést á
heimili sínu í Sand-
gerði 28. apríl síð-
astliðinn.
Foreldrar hans
eru Fanney Ingi-
björg Sæbjörns-
dóttir f. 23.2. 1923
og Jóhann Óskar
Þorkelsson f.13.11.
1915, d. 25.6. 1999.
Systkini Skúla eru
Edda Sigurveig f. 1946, Sig-
urður Þorkell f. 1948, Ásta Sæ-
björg f. 1948, Ingibjörn Guðjón
f. 1949, Sesselja Sigríður f.
1950, Hulda Ósk f.
1951, Óskar Fann-
berg f. 1955, Svan-
hvít Sigríður f.
1959. Skúli kvænt-
ist 7.10. 1978 Sól-
rúnu Maríu Hen-
riksdóttir f. 13.7.
1958. Börn þeirra
eru Vilhjálmur f.
10.8. 1979, Svava
Kristín f. 2.1. 1982,
Hrafnhildur f.
11.12. 1986, unn-
usti hennar er
Almar Viktor Þór-
ólfsson f. 20.1. 1988.
Útför Skúla verður gerð í dag
frá Safnaðarheimilinu í Sand-
gerði og heft athöfnin kl. 14.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Kveðja frá eiginkonu og börnum.
Skúli Ragnar
Jóhannsson
✝ Jóhannes SölviSigurðsson var
fæddur á Brekku í
Sveinsstaðarhreppi
þann 11. júní 1921.
Hann lést á Lands-
spítalanum að kvöldi
30. apríl sl.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Sigurður Jóhann-
esson f. 20.5. 1895, d.
1960 og Kristín J.
Jónsdóttir f. 29.8.
1891, d.1984.
Bræður hans eru:
Björn f. 4.6. 1918, d. 1959, Ingi-
mar f. 3.8. 1924, d. 2005, Sigurður
Hilmar f. 4.3. 1927 og Þórketill f.
25.7. 1930, d.1995.
Jóhannes Sölvi kvæntist 23.5.
1959 Halldóru Ólafsdóttur f. 5.6.
1928 frá Eyri við Seyðisfjörð. For-
eldrar hennar voru Ólafur Hálf-
dánarson f. 4.8. 1891, d. 1973 og
María Rögnvaldsdóttir f. 13.1.
1891, d. 1989.
Börn Jóhannesar Sölva og Hall-
dóru eru:
Guðmundur Sigurður f. 7.9.
1958.
Björn f. 2.8. 1960, sambýliskona
Eva Hjaltadóttir f. 26.2. 1958,
börn þeirra: a) Bjarkey f. 26.4.
1980, börn hennar Efemía Rún og
Þóra Berglind, b) Logi f. 13.6.
1985 sambýliskona Heiðdís
Traustadóttir f. 1983, c) Perla
Dögg f. 26.8. 1988, d) Hjalti f. 8.7.
1994.
Lind f. 2.11. 1952. Sambýlismaður
Jón Stefánsson. Börn Jóhönnu
Lindar frá fyrra hjónabandi eru:
a) Salóme Halldóra f. 11.11.
1969, maður hennar Úlfar Ægir
Þórðarson f. 6.1. 1963, börn
þeirra: Orri Levi, Gunnar Hlynur
og Lára Sólveig. b) Jón Birgir
Gunnarsson f. 23.10. 1971, hans
kona Edda Svanhildur Holmberg
f. 27.6. 1962, börn þeirra: Heiðar
Hólmberg og María Lind. c) Bald-
ur Smári f. 14.12. 1976, kona hans
Dagbjört Hildur Torfadóttir f. 9.3.
1979, börn þeirra: Máney Dís og
Sóldís Eva.
Á yngri árum starfaði Jóhannes
Sölvi aðallega sem bifreiðastjóri á
stórum fólksflutningabílum og
einnig um árabil hjá Vélasjóði rík-
isins við skurðgröft víða um land.
Sumarið 1957 var örlagaríkt í lífi
Jóhannesar Sölva því þá vann
hann á skurðgröfunni vestur í Ísa-
fjarðadjúpi og kynntist þar Hall-
dóru konuefni sínu. Árið 1959
gengu þau í hjónaband. Þá lá leið
þeirra að Gilsstöðum í Vatnsdal
þar sem Jóhannes Sölvi gerðist
ráðsmaður hjá systkinunum Magn-
úsi og Emilíu í eitt ár. Árið 1960
hófu þau búskap á Hellu á Árs-
skógsströnd þar sem þau bjuggu
til ársins 1967 en þá festu þau
kaup á jörðinni Skálá í Sléttuhlíð,
Skagafirði. Árið 1980 brugðu þau
búskap og fluttu búferlum í Kópa-
vog. Eftir það starfaði Jóhannes
Sölvi við akstur og fl. Samhliða
búskapnum sem og öðrum störfum
sinnti Jóhannes Sölvi hesta-
mennsku, sem var alla ævi hans
aðal-áhugamál.
Útför Jóhannesar Sölva fer
fram frá Kópavogskirkju í dag,
miðvikudaginn 7. maí og hefst kl.
13.
Rannveig María f.
10.6. 1961, hennar
maður Árni Guðni
Einarsson f. 12.3.
1955, börn þeirra
eru: a) Jóhannes Ingi
f. 21.5. 1982, b) Ein-
ar Ágúst f. 1.8. 1984,
sambýliskona hans
Sigurleif Ólafsdóttir
f. 7.2. 1984, barn
þeirra er Ísak Smári,
c) Guðrún Dóra f.
15.3. 1992.
Guðbjörg Sólveig
f. 27.8. 1963, synir
hennar: a) Pétur Friðrik f. 15.3.
1989, b) Sölvi Þór f. 31.1.1993.
Ólafur Ágúst f. 7.2. 1967, hans
kona Kirsten Winum Hansen f.
15.7. 1967, synir þeirra: a) Sigurd
Olaf f. 31.1. 1999, b) Peter August
f. 10.6. 2000, c) Tomas Björn f.
4.12. 2004.
Ingimar Þór f. 3.9. 1969, hans
kona Tinnu Manswell Stef-
ánsdóttur f. 13.3. 1973, börn
þeirra: a) Stefán Ólafur f. 14.1.
1997, b) Dagur f. 24.1. 2002, c)
Freyr f. 23.3. 2005, dóttir Ingi-
mars Rebecka Dóra f. 13.8. 1992
og uppeldisdóttir Hrafnhildur Ása
f. 30.10. 1991.
Fyrir átti Jóhannes Sölvi Krist-
ínu f. 19.5. 1955, maður hennar
Sigurjón Snær Friðriksson f.
17.3.1953, sonur þeirra Arnar
Snær f. 18.1. 1985.
Uppeldisdóttir Jóhannesar
Sölva, dóttir Halldóru er Jóhanna
Þann 30. apríl lést pabbi, Jó-
hannes Sölvi. Kallið er komið,
pabbi er dáinn. Hann fæddist 1921
og hefði því orðið 87 ára í júní.
Hann var sonur Guðmundar Sig-
urðar Jóhannessonar og Kristínar
Jónsdóttur. Bræður hans voru
Björn, Ingimar, Þórketill og Sig-
urður Hilmar sem lifir bræður
sína.
Pabbi giftist 1959 Halldóru
Ólafsdóttur sem lifir mann sinn.
Ég er elst barna pabba og á hann
mig fyrir hjónaband þeirra Hall-
dóru. Þau eignast saman tvær
dætur og fjóra syni, en fyrir átti
Halldóra eina dóttur.
Maður er aldrei búinn undir
andlát nákominna ættingja og því
er þetta erfið stund nú, ég sakna
pabba sárt og sértaklega þess að
geta ekki talað við hann og séð
hann, en fallegar og góðar minn-
ingar lifa í hjarta mínu.
Pabbi byrjaði ungur að vinna
eins og tíðkaðist í hans ungdæmi.
Hann varð svo síðar bóndi á Skála
í Sléttuhlíð í Skagafirði og síðar
bifreiðarstjóri eftir að hann flutti
suður, en mörg önnur störf vann
hann áður en hann varð bóndi.
Veikindi settu mark sitt á hann
seinustu ár og hefur hann orðið
hvíldinni feginn. Ég er heppin að
eiga mörg systkini og nú getum
við rifjað upp svo margt um
pabba. Elsku pabbi, takk fyrir allt.
Sigurjón og Arnar þakka fyrir
allar stundir með þér.
Minning þín lifir,
megir þú hvíla í friði, pabbi
minn.
Þín dóttir
Kristín.
Mig langar með örfáum orðum
að kveðja uppeldisföður minn sem
borinn er til grafar í dag, miðviku-
daginn 7. maí.
Þegar kemur að þessari óum-
flýjanlegu kveðjustund okkar
mannanna taka minningarnar að
streyma fram. Ein af fyrstu minn-
ingum mínum um þig er frá því
Siggi bróðir fæddist, en þá var ég
að verða sex ára.
Ég spurði mömmu hvort ég
mætti ekki kalla hann Jóhannes
pabba, því ef ég kallaði hann Jó-
hannes þá myndi litli bróðir gera
það líka en hann væri nú alvöru
pabbi hans. Mamma játti því en
sagði að ég skyldi spyrja hann
sjálfan líka sem ég og gerði. Svar
þitt var afdráttarlaust. „Jú, auð-
vitað ég er líka pabbi þinn“ og við
það stóðst þú alla tíð. Einhvern
tíma þegar ég var orðin eldri man
ég að kona sem ekki þekkti fjöl-
skylduna vel talaði um hvað
krakkarnir þínir væru öll lík þér,
og þá sérstaklega elsta stelpan,
hún væri nú bara alveg eins og þú.
Sú stelpa var ég og mikið hlógum
við að þessu. Sennilega var þetta
ekki eins fyndið og fráleitt og við
héldum, heldur bara sannleikur.
Já, pabbi minn, kannski var það af
því að við vorum svo lík að við átt-
um ekki alltaf skap saman. Leiðir
okkar hafa stundum skilið en allt-
af legið saman aftur sem betur
fer. Ég hef þá trú að við eigum
enn á ný eftir að hittast og ræða
málin og rifja upp góðar minn-
ingar þegar ég kem þangað sem
þú ert nú.
Að lokum bið ég Guð að gefa
þinni duglegu konu, henni mömmu
minni, styrk á þessum erfiðu tíma-
mótum og votta henni og systk-
inum mínum alla mína samúð.
Jóhanna Lind.
Jóhannes Sölvi
Sigurðsson
Elsku afi.
Þú og ég náðum aldrei að tala
mikið saman. En þau fáu skipti
sem ég kom til Íslands eða þú til
Svíþjóðar og ég hitti þig lærði
ég mjög mikið um hvernig allt
var og hvernig allt er.
Ég óska þess að ég og þú
hefðum hist oftar og talað sam-
an.
Ég elska þig afi og sakna þín
mjög mikið.
Sölvi Þór.
HINSTA KVEÐJA
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa, bróður og
mágs,
EINARS ÞORGEIRSSONAR,
Heimalind 28,
Kópavogi.
Sigrún Edvardsdóttir,
Runólfur Einarsson, Þórunn Halla Unnsteinsdóttir,
Laufey Karítas Einarsdóttir, Jónas Haukur Einarsson,
Magnús Ingvar Þorgeirsson, Sigríður Gunnarsdóttir,
Ingigerður G. Þorgeirsdóttir, Ingólfur Guðnason
Anna Þorgeirsdóttir,
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför konu minnar, móður okkar og
tengdamóður,
ÖNNU MARGRÉTAR ÞORKELSDÓTTUR.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
Hjálmar Vilhjálmsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Páll Vilhjálmsson, Kristín Gissurardóttir,
Sigfús Vilhjálmsson, Jóhanna Lárusdóttir,
Stefán Vilhjálmsson, Helga Frímannsdóttir,
Anna Vilhjálmsdóttir, Garðar Eiríksson.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
LEÓ GUÐBRANDSSON
fyrrv. sparisjóðsstjóri í Ólafsvík,
Núpalind 2,
Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 2. maí.
Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn
9. maí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabba-
meinsfélag Íslands.
Helga Kristín Lárusdóttir,
Ásta Lára Leósdóttir, Þorvarður Sæmundsson,
Guðbrandur R. Leósson, Gunnhildur Tryggvadóttir,
Erla Leósdóttir, Hjörtur Þorgilsson,
Ágúst H. Leósson, Sigrún Ellertsdóttir,
Þröstur Leósson, Steinunn Tómasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, systir,
mágkona og frænka,
VILBORG ÓSK ÁRSÆLSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
Vesturhólum 21,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagsins
29. apríl, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 8. maí kl. 13.00.
Finnbogi G. Kristinsson,
Kristinn Finnbogason,
Pálína K. Pálsdóttir,
Guðrún H. Ársælsdóttir,
Páll H. Ársælsson,
Sigurður Ársælsson, Anna Dóra Guðmundsdóttir
og systkinabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
PÁLÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Birkimel 10,
Reykjavík.
Kristín Björk Friðbertsdóttir,
Friðbert Friðbertsson, Soffía Huld Friðbjarnardóttir,
Njáll Trausti Friðbertsson, Guðrún Gyða Hauksdóttir,
Jóhann Grímur Friðbertsson, Kristine Feldthus
og ömmubörn.