Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „STAÐAN núna er sú að miðað við sama tíma í fyrra erum við að sjá um fjörutíu prósent hækk- un á afurðaverði hjá okkur. Það segir þó ekki alla söguna. Grunnhráefnin hjá okkur hafa mörg hver hækkað meira,“ segir Einar Þorsteinsson, for- stjóri Elkem Ísland á Grundartanga, um áhrif gífurlegra sveiflna á hráefnismörkuðum á rekst- ur járnblendiverksmiðjunnar undanfarna mán- uði. „Járn er stór hluti af því sem er í okkar vöru. Það hefur hækkað um tæp hundrað prósent. Síðan eru kol stór hluti líka og þau hafa hækkað gríðarlega. Ég hugsa að ég geti sagt um kolin að þau slaga í hátt í hundrað prósent hækkun.“ Einar kveðst ekki vilja gefa upp veltutölur en svarar því til að enn sem komið er hafi hækkandi afurðaverð vegið á móti hækkunum á hráefnisvör- um. Gengi krónunnar hafi hins vegar óveruleg áhrif. Hráefni séu keypt í erlendri mynt sem og orkan sem er notuð við framleiðsluna. Aðspurður um áhrif verðhækkana á járngrýti í vikunni segir Einar „blikur á lofti um að járnverð muni hækka áfram“. Að teknu tilliti til allra þátta séu heildaráhrifin jákvæð enn sem komið er. „Við sjáum að heildin er á uppleið. Við sáum hækkanir í fyrra en þær voru hlutfallslega miklu minni. Árið 2006 til 2007 horfðum við upp á 15 til 18 prósent hækkun á afurðaverðinu á milli ára. Hráefnin voru þá ekki komin á jafnmikið skrið.“ Vegur hvað upp á móti öðru Afkoman af rekstrinum hafi ekki breyst mikið. „Heildarþýðingin hjá okkur núna er sú að við sjáum því miður ekkert endilega fram á miklu betri afkomu. Þetta vegur hvað upp á móti öðru eins og staðan er nákvæmlega núna. Í heildina er þetta okkur frekar til hagsbóta.“ Inntur eftir áhrifum hækkandi eldsneytisverðs á rekstrarafkomuna reiknar Einar með að það muni „endurspeglast í hærra hráefnisverði“ þeg- ar fram líða stundir. Útlitið í rekstrinum sé „mjög gott“, enda eftirspurnin mikil. Þrátt fyrir það sé „ekki uppi á borðinu“ að stækka verksmiðjuna. 40 prósent hækkun á afurðaverði Afurðir hækkað umfram hráefnisverðið hjá Elkem Ísland á Grundartanga Einar Þorsteinsson EF FRAM heldur sem horfir mun verð á járni hækka enn frekar á næstu mánuðum. Má þar nefna að Baosteel, helsti stálframleiðandi Kína, sam- þykkti í vikunni 96,5 prósent hækkun á járngrýtisverði í langtímasamningum við námarisann Rio Tinto, hækkun sem mun hafa áhrif á járn- verðið. Í járnblendiverksmiðj- unni er framleitt kísiljárn, sem inniheldur um 76 prósent kísil og 22 prósent járn. Járnið á uppleið FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is BOÐUÐ verkföll flugumferðarstjóra hefjast að öllu óbreyttu á föstudaginn. Fyrsta verk- fallið af tuttugu hefst á föstudagsmorguninn klukkan sjö og stendur til klukkan ellefu. Næsta verkfall verður klukkan sjö til ellefu næsta mánudagsmorgun og svo koll af kolli að morgni dags til 20. júlí, takist ekki samn- ingar. Ljóst er að verkföllin kunna að hafa röskun í för með sér fyrir tugþúsundir flug- farþega til og frá landinu og í innanlands- flugi. Á þessum tíma árs eru brottfarir í milli- landaflugi frá Keflavíkurflugvelli og Reykja- víkurflugvelli á tímabilinu frá 07:00 til 11:00 um tuttugu talsins. Miðað við að aðeins átta flugvélum verður heimilt flugtak á þessu tímabili er augljóst að mikil röskun verður á áætlun flugvéla frá landinu. Þessi röskun mun magnast þegar verkföllin skella á dag eftir dag. Allt innanlandsflug leggst niður á verkfallstímanum. Óviðráðanlegar ástæður „Við treystum því að deiluaðilar leysi ágreining sinn og að ekki komi til boðaðs verkfalls. Icelandair er ekki aðili að þessari deilu, við getum ekki haft nein áhrif á gang viðræðna og því ekki tekið neina ábyrgð á gerðum þeirra sem eiga í deilunni heldur,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmda- stjóri Icelandair. Hann segir það auðvitað óviðunandi fyrir almenning, viðskiptavini, starfsmenn og fyr- irtækið sjálft, sem ekki eiga neinn þátt í mál- inu, að svona skuli komið. „Við erum að byrja að fá fyrirspurnir frá viðskiptavinum um hvað gerist, en við getum ekki veitt svör við því. Frá sjónarhóli flug- félags er hér um að ræða hugsanlegar trufl- anir á áætlun og seinkanir, utanaðkomandi óviðráðanlegar aðstæður, sem við tökum á þegar og ef til þess kemur. En við getum því miður ekki ráðlagt fólki eitt eða neitt í þessu sambandi – við sjálf hjá Icelandair trúum ekki öðru en að úr leysist,“ segir Birkir. Hafa nóttina til að jafna seinkanir Að sögn Matthíasar Imsland, forstjóra Ice- land Express, munu verkföllin, ef til þeirra kemur, óhjákvæmilega hafa í för með sér seinkun á áætlunarferðum félagsins. Hins vegar komi ekki til þess að ferðir verði felld- ar niður eða flug flutt milli daga. Iceland Ex- press hafi nóttina til þess að jafna seinkanir. Matthías segir að farþegum, sem bókað eigi flug, verði send sms-skilaboð og tölvu- póstsskeyti um þær breytingar sem kunna að verða á flugi. Eins verði nýjar upplýs- ingar settar jafnharðan á heimasíðu félags- ins, icelandexpress.is. Matthías kvaðst ekki trúa öðru en lausn fyndist á málinu áður en til aðgerða kæmi. Þessar aðgerðir væru fáránlegar og óábyrg- ar á háannatíma í fluþjónustunni og gætu stórskaðað ímynd Íslands. Verkföll geta truflað ferðir tugþúsunda Morgunblaðið/Kristinn Úr skorðum Ljóst er að áætlanir flugfélaganna munu allar fara úr skorðum komi til verkfalla og viðbúið að innanlandsflug leggist alveg niður meðan á verkfalli stendur. NÆSTI samningafundur í deilu Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra og Samtaka at- vinnulífsins fyrir hönd Flugstoða verður hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið klukkan 10. Haldnir hafa verið átta samningafundir síð- an deilunni var vísað til ríkissáttasemjara hinn 8. maí síðastliðinn. Síðasti fundur deiluaðila var haldinn fyrir hálfum mánuði. Að sögn Ás- mundar Stefánssonar ríkissáttasemjara er þetta mjög erfið deila. Fram hefur komið hjá talsmönnum flug- umferðarstjóra, að með aðgerðunum séu þeir m.a. að þrýsta á stjórnvöld og Flugstoðir um að hrinda í framkvæmd tillögum svokallaðrar réttarstöðunefndar. Var hún sett á laggirnar af hálfu ríkisstjórnarinnar og skilaði hún áliti 30. júní 1997. Niðurstaða hennar var einróma og telja flugumferðarstjórar að þessi 11 ára gamla skýrsla sé ígildi kjarasamnings. Þeir vilja fá það staðfest í yfirstandandi viðræðum. Næsti samninga- fundur á morgun ENGINN er verri þótt hann vökni, segir orðatiltækið. Eflaust hefur þess- um piltum ekki þótt verra að kæla sig í Nauthólsvíkinni í gær enda fremur heitt í veðri. Ekki er ólíklegt að þeir hafi viljað hvíla sig frá róðrinum, enda erfiðisvinna, en hvort ætlunin var að gera það í köldum sjónum er annað mál. Í bátnum voru fjórir ungir piltar. Svo virðist sem þeir hafi ekki gætt fyllstu varúðar en þegar þrír þeirra stóðu samtímis á fætur tók báturinn að vagga með þeim afleiðingum að þeir féllu útbyrðis. Sá fjórði hefur eflaust talið sig nokkuð öruggan en ekki leið á löngu þar til hann fylgdi vinum sín- um í sæinn. Hann gætti þess þó að halda árinni traustu taki. | ylfa@mbl.is Fátt jafnast á við siglingu á kanó á fallegum sumardegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Lögðu ekki árar í bát þrátt fyrir smáóhapp SAMTÖK fyrirtækja í heilbrigð- isþjónustu og stéttarfélögin Efling, SFR – stéttarfélag í almannaþjón- ustu og Sjúkraliðafélag Íslands undirrituðu kjarasamninga á mánu- daginn var. Samkomulagið er hlið- stætt því sem BSRB gerði við ríkið 25. maí s.l. og eru kjarabætur aft- urvirkar frá 1. maí s.l. Hjá Eflingu hófst atkvæða- greiðsla um samningana á mánudag og lýkur henni um hádegi í dag. SFR er að undirbúa kynningu sam- komulagsins meðal félagsmanna á vinnustöðum. Sjúkraliðafélagið ætl- ar að efna til rafrænnar atkvæða- greiðslu um samkomulagið á heima- síðu félagsins. Fyrirtækin sem eiga aðild að samkomulaginu eru Hrafnistuheim- ilin, Grund, Víðines, Vífilsstaðir, Ás í Hveragerði, Öldungur, Skógar- bær, Sunnuhlíð, Sjálfsbjargarheim- ilið, HNLFÍ og SÁÁ. Samið í heilbrigð- isþjónustu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.