Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ég á erfitt með að koma í orð þeim söknuði sem fyllir hjörtu okkar nú þegar baráttu þinni er lokið en á erfiðum tímum er rétt að hafa lífs- gleði þína og kjark að leiðarljósi og minnast frekar allra þeirra yndis- legu stunda sem við áttum saman. Ég gleymi aldrei þegar við sátum saman fjölskyldan á jóladagskvöld fyrir nokkrum árum og spiluðum saman fram á rauða nótt. Við vorum í sitt hvoru liðinu í spurningakeppni og sem fyrr var kappið í tengdasyn- inum meira en forsjáin og þegar ég lamdi af öllu afli á bjölluna áttaði ég mig ekki á því að þú varst sneggri en ég svo að farið eftir bjölluna var grafið í lófa þinn það sem eftir lifði nætur. Þessu tókstu öllu með þinni einstöku kímni og gerðir grín að mér fyrir ærslaganginn lengi á eftir. Það var alltaf stutt í húmorinn og gaman að fylgjast með þeirri lífs- gleði sem umlék þig hvort sem það var í karókíkeppnum vestur í Keldu- dal um hverja verslunarmannahelgi eða þegar þú settist niður með ömmudrengnum þínum til að lesa Ástarsögu úr fjöllunum. Ég hugsa til þess hvað sonur minn var heppin að fá þessi rúmu 3 ár með ömmu sinni sem hann elskar svo heitt. Ég minnist þess þegar við fórum öll saman til Tenerife seinasta sum- ar, ef stubburinn var ekki sáttur við morgunmatinn sem foreldrarnir lögðu á borð fyrir hann tók hann sig upp og rölti yfir í næstu íbúð, þá rétt rúmlega 2 ára, þar sem amma tók á móti honum með kostum og kynjum. Vissulega höfðum við Ýr laumað jógúrtinu yfir svalirnar á meðan ferðalaginu stóð þannig að það var sama jógúrtdollan sem litli gaurinn borðaði en einhvern veginn bragð- aðist allt miklu betur ef það var amma sem lagði kræsingarnar á borð. Þegar svo við Ýr giftum okkur nokkrum vikum seinna varst þú auðvitað ein af örfáum veislugestum sem vissu hvað til stóð. Ég hugsa að mamma sé ekki enn búin að fyr- irgefa mér að hún hafi mætt í galla- buxum og strigaskóm í brúðkaupið hjá frumburðinum, enda átti þetta bara að vera grillveisla í Heiðmörk á fallegum sumardegi. Nú fer í hönd erfiður tími hjá fjöl- skyldunni þar sem mikið tóm hefur myndast með fráfalli Jónínu en við getum haldið á lofti minningu henn- ar með því að hafa lífsgleði hennar og manngæsku að leiðarljósi. Minning þín er ljósið í lífi okkar. Arnar, Ýr og Hnikarr Örn. Horfin er til æðri starfa Jónína Björg, elskuleg æskuvinkona mín, baráttukonan ljúfa og káta sem barðist í starfi sínu fyrir betri til- veru fyrir skjólstæðinga sína en síð- asta slaginn tók hún við sjúkdóm sem að lokum hafði betur. Faðir hennar tók á móti henni í flugvél á leiðinni til Reykjavíkur árið 1961. Þetta ár var fólk ekki mjög frjósamt heima í Dýrafirði, við vorum bara fjögur í árganginum okkar, tvennt af hvoru kyni. Kannski var það þess Jónína Björg Guðmundsdóttir ✝ Jónína BjörgGuðmundsdóttir fæddist hinn 11. sept- ember 1961. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 13. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar eru Guðmundur Sören Magnússon og Krist- ín Gunnarsdóttir. Jónína var þriðja yngst af 11 systk- inum. Eiginmaður Jónínu er Hnikarr Ant- onsson. Börn þeirra eru Ýr, f. 30.12. 1979, Arnór, f. 9.8. 1985 og Rebekka, f. 28.10. 1993. Útför Jónínu fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. vegna sem við Jóna tengdumst órjúfan- legum böndum sem ekki brustu þó við færum hvor sína leið í lífinu. Ég man ekkert eftir mér áður en Jóna kom inn í líf mitt með gleði sína og dillandi hlátur og flestar mínar kær- ustu og bestu æsku- minningar eru tengdar henni og leikjum okkar. Eins og allar stelpur í þá daga áttum við venjuleg drullubú en við áttum líka alveg stórmerkileg skeljabú upp um allan árdalinn heima á Kjaransstöð- um. Þangað fram eftir bárum við skeljar úr fjörunni og bjuggum til úr þeim fólk og alls konar kvikfénað. Þar réð hugmyndaflugið ríkjum og í holum börðum við árbakkann sváfu stórbændur með húsfreyjum sínum á mosaþembum. Þarna frammi í ár- dalnum undum við okkur dögum saman. Tíminn leið í endalausu sumri og sólskini æskunnar. Þegar við vorum tíu ára kom Solla og við vorum þrjár stelpurnar alltaf saman. Ég held að barbíleikir hafi hvorki fyrr eða síðar verið stundaðir af þvílíkri ástríðu né orðið að þvílíkri list og iðnframleiðslu sem þeir urðu hjá okkur. En að yfirgefa bernskuna varð ekki umflúið og það gerðum við líka. We had joy, we had fun, we had sesons in the sun þetta lag söng Terry Jakcs með svo miklum trega beint inn í hjörtu okkar árið 1974. Mér finnst lagið eiga vel við í dag en það minnir líka á hamingjuríkari tíma. Mæja systir hennar Jónu kom með þessa smá- skífu í farteskinu heim til Þingeyrar ásamt fleiri plötum og líf okkar breyttist. Þarna í litla herberginu þeirra systra á Fjarðargötunni á Þingeyri urðum við táningar án þess að fá nokkru ráðið. Þvílíkir töfrar, ég er ekki viss um að í tónlistarflóði nútímans, með sínu niðurhali, iPod og MP3-spilurum og hvað það heitir, felist helmingurinn af þeim dásam- legu fyrirheitum sem litli plötuspil- arinn og þessar gljáandi svörtu vín- ilplötur kölluðu fram hjá okkur stöllunum. Við sungum hástöfum með og lifðum okkur inn í drauma- veröld ástar og sorgar. Svo kom að því að leiðir okkar skildu, Solla flutti og Jóna fór líka burtu til að fara í skóla og kom æ sjaldnar heim, þannig fækkaði smám saman sam- verustundum okkar. Jóna var sú eina okkar sem hafði metnað og dugnað til að mennta sig á þessum árum og reyndar hélt hún áfram námi eftir að hún veiktist og náði að ljúka því. Ég verð forsjóninni ávallt innilega þakklát fyrir að hafa skákað okkur þessum tveimur stelpuskottunum saman í upphafi. Nú er hún farin þangað sem við förum öll að lokum, Guð blessi hana. Um leið og ég kveð mína kæru vinu með þökk fyrir allt og allt votta ég Hnikari, börnunum hennar, tengdabörnum og barna- barni, foreldrum og systkinum öll- um og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Ósk Elísdóttir. Elsku Jóna, mikið hefur það reynst mér erfitt að setjast niður og skrifa kveðju til þín, því ég er ekki alveg að meðtaka stöðuna hvað þá skilja eða sætta mig við hana. Andspænis þessum atburði verða öll orð fátækleg en samt verður að segja þau. Við höfum verið í góðu sambandi síðan þú greindist með krabbamein í byrjun árs 2006 og það hefur verið ótrúlegt og lærdómsríkt að fylgjast með baráttu þinni. Eftir að þú greindist aftur sl. haust hefur verið mjög á brattann að sækja og hvert áfallið rekið annað og algjörlega aðdáunarvert að sjá hvernig þú, Hnikarr þinn og fjölskyldan tókust á við það. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri en ég bið að Guð vaki yfir þér og umvefji þig ljósi sínu og kær- leika. Hnikari þínum sem stóð sem stólpi við hlið þér allt til enda, börn- unum sem þú varst svo stolt af og ekki af ástæðulausu en þau bera með sér glöggt vitni góðra foreldra, uppeldis og ástríkis, tengdabörnum, litla ömmustráknum þínum sem missir af miklu að fá ekki meiri tíma með þér, foreldrum þínum sem þurfa nú í annað sinn að sjá á eftir dóttur í blóma lífsins sem hlýtur að vera ótrúleg raun, systkinum og fjölskyldum þeirra og öllum ástvin- um sendi ég innilegar samúðar- kveðjur og bið um styrk, kjark, von og trú þeim til handa. Og um leið og ég þakka þér allt frá liðnum árum þá kveð ég eins og við kvöddumst gjarnan: Heyrumst og sjáumst. Þín vinkona, Valgerður. Kveðja frá starfsfólki Gigtarfélags Íslands Jónína var vinnufélagi okkar í rúmlega tvö og hálft ár og eftir það var hún viðloðandi fræðslu á nám- skeiðum og á Gigtarlínu í hjáverk- um svo lengi sem heilsan leyfði. Það var alltaf gott að leita til hennar, hún tók skjólstæðinga sína að sér og fylgdi eftir því sem þurfti. Jónína var traust manneskja. Glaðværð hennar og lífsgleði smitaði út frá sér og sérlega gaman var að hafa hana með í ferðum eða uppákomum. Hnyttin og skemmti- leg tilsvör hennar og jákvæðni nutu sín þar vel. Þegar hún gekk inn með sitt bjarta bros og kröftuga fas birti yf- ir. Það var sárt að fylgjast með hennar erfiðu baráttu. Hún vildi sigra en tókst ekki. Við vottum fjölskyldu hennar innilega samúð og Guð varðveiti hana á nýjum slóðum. Magndís Grímsdóttir. Við fráfall vinkonu minnar Jónínu á bjartasta og fegursta tíma ársins, er mér efst í huga þakklæti fyrir þær fjölmörgu ánægjulegu og inni- haldsríku stundir sem við áttum saman. Það er í mínum huga heiður af því að hafa kynnst Jónínu og átt hana sem vinkonu. Jónína veiktist af illvígum sjúkdómi fyrir tveimur og hálfu ári síðan og varð að lokum að lúta í lægra haldi fyrir þeim vágesti, þrátt fyrir að hart væri barist og öll- um nútímalæknavísindum væri beitt. Jónína var glæsileg kona, með leiftrandi augu full af mannskilningi og greind. Hún hafði til að bera mjög sterkan persónuleika, var með mikla útgeislun, glaðvær og hörku- dugleg. Hún var mikil fjölskyldu- kona, enda komin úr stórum systk- inahópi. Umhyggja hennar fyrir fjölskyldu sinni var mikil og ræddi hún oft um börn sín, barnabarn og eiginmann, sem hún hafði kynnst ung. Kynni okkar Jónínu hófust er hún kom til starfa á taugalækningadeild Landspítalans í Fossvogi eftir sam- einingu spítalanna. Með tilkomu Jónínu í okkar fámenna félagsráð- gjafahóp bættist við öflugur liðs- auki. Hún var félagsráðgjafi af lífi og sál. Það sem einkenndi hana öðru fremur í starfi var hversu mikla ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, bróðir og mágur, TÓMAS VILHELM ÓSKARSSON, áður til heimilis á Ránargötu 45, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, sunnudaginn 22. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. júní kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Ísleifur Tómasson, Guðrún Ásta Kristjánsdóttir, Karitas Jóna Tómasdóttir, Tómas Haukur Tómasson, Hrafnhildur Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Vilhelmína Svava Guðnadóttir, Stefán Hólm Jónsson. ✝ Elskuleg bróðurdóttir mín og vinkona okkar, ÁSHILDUR HARÐARDÓTTIR, Barðavogi 19, Reykjavík, lést sunnudaginn 22. júní. Útförin verður auglýst síðar. Snæbjörn Ásgeirsson og aðstandendur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR, áður Meistaravöllum 33, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 21. júní. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 30. júní kl. 15.00. Ingólfur Kristjánsson, Ólafía Einarsdóttir, Jón Egill Kristjánsson, Rita Moi, Sigurður Kristjánsson, Ingibjörg Birna Ólafsdóttir, Baldur Jónsson, Guðrún Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Konan mín, mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, ELÍN JÓHANNA GUÐLAUGSDÓTTIR HANNAM, sem lést að morgni þriðjudagsins 17. júní, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 27. júní kl. 13.00. Ralph Th. Hannam, Vilhjálmur Leifur Tómasson, Sólveig Hannam, Árni Ól. Lárusson, Júlía Hannam, Ragnar Þ. Ragnarsson, Elísabet Hannam, Örn Helgason og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGFÚS KRISTMANN GUÐMUNDSSON, lést mánudaginn 16. júní á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 28. júní kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Orgelsjóð Blönduósskirkju í Kaupþingi, Blönduósi. Jóhanna Björnsdóttir, Sigþrúður G. Sigfúsdóttir, Birna Sigfúsdóttir, Valgeir M. Valgeirsson, Guðmundur Sigfússon, Vigdís E. Guðbrandsdóttir, Sigurbjörg Sigfúsdóttir, Jóhann H. Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.