Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Skammastu þín bara, gamli Gráni, að herma svona eftir ísbjarnarsporum, ég hefði kannski getað verið búin að freta á þig og setja þig inn í fína kasann. VEÐUR Margt fróðlegt kom fram í frá-sögn Kristjáns Jónssonar blaðamanns hér í Morgunblaðinu í gær, þar sem hann ræddi við Þor- geir Pálsson, forstjóra Flugstoða, um fund CANSO, alþjóðasamtaka flugumferðarstjórnaraðila, sem ný- verið var haldinn á Madeira og hann sótti fyrir hönd Flugstoða.     Sýnu for-vitnilegust og jafnframt spaugilegust var eftirfarandi klausa:     Þorgeir Pálsson segir að því hafiverið komið á framfæri við Rússa að þeir gætu fengið þjónustu Flugstoða þegar þeir senda sprengjuflugvélar í áttina að Íslandi. Þá þyrfti ef til vill ekki að hafa sér- stakan viðbúnað hér vegna flugs Bjarnanna við landið.“     Svo mörg voru þau orð!     En bíðum við: Hver voru svör Rúss-anna við þessu makalausa tilboði Flugstoða? Svöruðu Rússar þessu í einhverju?     Í hverju ætti þjónusta Flugstoða viðsprengjuvélarnar að vera fólgin?     Hefði NATO kannski eitthvað viðslíka þjónustu Flugstoða að at- huga?     Gætu Flugstoðir bara, eins og ekk-ert væri, leyst af hólmi eftirlits- flugvélar frá Frökkum og fleiri þjóð- um, sem hafa verið að athafna sig í íslenzkri lofthelgi frá því að varn- arlið Bandaríkjanna hvarf héðan og m.a. verið að stugga við rússneskum sprengjuflugvélum?     Það vakna margar spurningar viðlestur þessarar klausu, ekki satt?! STAKSTEINAR Flugstoðir og Birnirnir SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -     " #    " #    " #     12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  ( ! $         " #   " #  :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? $%$ %$   %$ %$  %$$      & & & & %$ '$                                  *$BC                      !    ""# $   "   % !   &   '(  )  !   *! $$ B *! (") *   )      #+  <2 <! <2 <! <2 (*  ,  -./  0  CD2E                 /     B  *   "    !  "$    %      !     % !   ""# &        <7  *          "#   &   '+   )  !   <   *       ,            -")   "$  "#    %   . !    % !   !   "# /0   12 "33  # "4   #,  - Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR VERÐ á bens- íni og dísilolíu hækkaði í gær um þrjár krón- ur á flestum bensínstöðvum landsins. Al- gengt verð í sjálfsafgreiðslu er nú 176,40 krónur fyrir bensínlítrann og 192,80 fyrir lítrann af dísilolíu. Að sögn Magnúsar Ásgeirssonar, inn- kaupastjóra hjá N1, kemur verð- hækkunin til af lækkun gengis krón- unar og hækkaðs heimsmarkaðs- verðs á hráolíu. Sé miðað við sparneytinn bensín- fjölskyldubíl í blönduðum akstri kostar skreppitúr að Gullfossi nú um 3300 krónur báðar leiðir. Að því gefnu að keyrt sé á 75 km/klst að meðaltali kostar mínútan 16,5 krón- ur. Sama ferð á dísilbíl af sömu gerð er um 1000 krónum ódýrari þar sem slíkir bílar eru sparneytnari. Á svipuðum tíma í fyrra var sami bíltúr um fjórðungi ódýrari á bens- ínbílnum og kostaði þá rúmlega 2400 krónur. Á dísilbíl kostaði hann um 1600 krónur og er þannig tæpum þriðjungi dýrari nú. skulias@mbl.is Enn hækk- ar verð á eldsneyti Dísilolían fikrar sig nær öðru hundraðinu Akureyri | Slóvenskir kartöfluunnendur sem berjast gegn bandarískum skyndibitamatarsiðum heimsóttu Akureyri í gær. Hópurinn er á ferð hér á landi til að kynna sér íslenska matarsiði og er hluti af 1.200 manna samfélagi sem berst fyrir við- urkenningu á sérstökum kartöflurétti sem þjóð- arrétti Slóvena. Rétturinn felur í sér að snöggsjóða, léttsteikja og krydda kartöflur og blanda svolitlu kjöti saman við. „Okkur hefur orðið vel ágengt síðustu ár,“ segir Drago Bulc, forsprakki hópsins. „Við byrj- uðum sem 30 manna vinahópur en höfum stækkað mikið á þeim 8 árum sem við höfum verið til. Und- anfarið hafa steiktar kartöflur unnið á og franskar og McDonalds eru á undanhaldi.“ Drago er ánægður með ferðina og segir gott að blanda íslensku hvalkjöti saman við slóvenska kartöfluréttinn. Íslendingarnir Valgarður Egilsson og Katrín Fjeldsted eru á meðal félagsmanna og voru í hópi fyrstu útlendinganna sem fengu aðild að félaginu: „Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi ferð geti styrkt tengslin á milli Íslands og Slóveníu,“ segir Valgarður. „Það vildu fleiri koma í þessa ferð en gátu en þeir koma í staðinn á næstu árum.“ hsb@mbl.is Þjóðlegar kartöflur gegn McDonalds Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Matgæðingar Drago, Valgarður og Sigríður gæddu sér á kartöflurétti á Friðriki V í gær. Eftir Ólaf Bernódusson Skagaströnd | Merkt gönguleið um Spákonufellshöfða, eða Höfð- ann eins og hann er daglega kall- aður, var formlega opnuð með fall- byssuskoti og borðaklippingu nýverið. Höfðinn er fólkvangur við Skagaströnd en að undanförnu hefur verið unnið að því að merkja gönguleið um þessa náttúruperlu. Við gönguleiðina hefur verið kom- ið fyrir upplýsingaskiltum um fugla- og plöntulíf á Höfðanum á smekklegan og aðgengilegan hátt. Þegar leiðin var formlega opnuð var skotið úr fallbyssu, sem nýlega var keypt til staðarins, því á öld- um áður var einmitt svipuð byssa á Höfðanum sem skotið var úr til að tilkynna kaupskipakomur þeirra tíma. Eftir skotið var síðan klippt á borða sem lokaði göngu- leiðinni og hún formlega lýst opin fyrir almenning. Af þessu tilefni var síðan hald- inn ratleikur um Höfðann ásamt því að hafin var ljósmynda- samkeppni en hún mun standa fram að mánaðamótum. Fjöldi manns var við opnunina og tók þátt í skemmtilegum ratleik að henni lokinni. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Bang! Skothvellurinn glumdi í Höfðanum og heyrðist langar leiðir. Gönguleið um Höfðann vígð með fallbyssuskoti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.