Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í KJÖLFAR vin-
sælda Da Vinci
lykilsins eftir
Dan Brown og
samnefndrar
kvikmyndar með
Tom Hanks í að-
alhlutverki jókst
straumur ferða-
manna á sögu-
slóðir hennar
mjög. Ferðaþjónusta á ýmsum stöð-
um í Frakklandi og Skotlandi naut
góðs af og nú vonast Rómarbúar til
að kvikmynd eftir bókinni Englar og
djöflar hafi sömu áhrif þar, Dan
Brown-áhrifin svokölluðu.
Tökum er nýlokið á myndinni sem
gerist á mörgum af þekktustu ferða-
mannastöðum Rómar, t.d. í Panþeon
og á Navona-torginu. „Svona kvik-
mynd gæti hleypt nýju lífi í ferða-
mannastrauminn frá Bandaríkj-
unum,“ sagði Patrizia Prestipino,
ferðamálastjóri borgarinnar. Nú
þegar kaupa tuttugu manns á degi
hverjum miða í sérstaka skoðunar-
ferð um borgina þar sem heimsóttir
eru þeir staðir sem koma við sögu í
Englum og djöflum.
Brown-
áhrifin
Fleiri ferðamenn
til Rómar
Tom Hanks
FRANSKI hönn-
uðurinn Philippe
Starck hyggst
feta í fótspor fyr-
irsætunnar Tyru
Banks og kokks-
ins Gordons
Ramsays með því
að nota sérþekk-
ingu sína til þess
að búa til raun-
veruleikaþátt.
Þáttaröðin verður sýnd á BBC2
og þar munu 25 efnilegir hönnuðir
bítast um tækifæri til þess að kom-
ast í nám til Starcks og fá jafnvel
starf hjá hönnunarfyrirtæki hans.
Keppnin er öllum opin og hægt er
að sækja um þátttöku á heimasíðu
stöðvarinnar.
Keppt í
hönnun
Philippe Starck
Á FIMMTUDAGINN hefst
hádegistónleikaröð í Dóm-
kirkjunni sem haldin er í sam-
vinnu Félags íslenskra org-
anleikara og Alþjóðlegs
orgelsumars. Næstu sjö
fimmtudaga munu íslenskir
organistar ásamt einsöngv-
urum og einleikurum koma
fram í Dómkirkjunni kl. 12:15.
Það er formaður Félags ís-
lenskra organleikara, Guð-
mundur Sigurðsson sem ríður á vaðið ásamt Hjör-
leifi Valssyni fiðluleikara á fyrstu tónleikunum í
röðinni á fimmtudaginn næstkomandi. Á efnis-
skrá þeirra eru verk eftir Vivaldi, Rimsky-
Korsakov, Jón Leifs og Pál Ísólfsson.
Tónlist
Íslenskir organist-
ar í Dómkirkjunni
Guðmundur
Sigurðsson
ERLINGUR Sigurðarson,
fyrrverandi kennari við
Menntaskólann á Akureyri,
býður til ljóðveislu í Deiglunni
á fimmtudagskvöldið í tilefni af
sextugsafmæli sínu. Þar mun
hann aflétta leynd af ýmsu því
sem hann hefur sett saman síð-
ustu misserin.
Erlingur var forstöðumaður
skáldasafna á Akureyri og hef-
ur einnig fengist við ritstörf og
skriftir. Hann gaf t.d. út ljóðabókina Heilyndi árið
1997 og var útnefndur bæjarlistamaður á Ak-
ureyri árið 2005.
Ljóðveislan er öllum opin og hefst kl. 20.45 eða
strax að loknum leik Þjóðverja og Tyrkja.
Bókmenntir
Erlingur býður
til ljóðveislu
Deiglan
Í KVÖLD klukkan átta verður
haldið listamannaspjall í SÍM-
húsinu, Hafnarstræti 16. Þar
mun norski listamaðurinn
Bård Ask fjalla um eigin verk
en þessi ungi listamaður hefur
vakið mikla athygli í sínu
heimalandi að undanförnu frá
því að hann lauk námi frá Aka-
demíunni í Bergen 2005.
SÍM og KulturKontakt
Nord hafa nú tekið upp sam-
starf og var Bård í kjölfarið boðið að dvelja í einni
af gestavinnustofum félagsins. Þær eru eru m.a.
starfræktar til þess að efla tengsl við alþjóðlega
listamenn með það fyrir augum að gera landið að
fullgildum vettvangi fyrir heimslistina.
Myndlist
Bård Ask spjallar
um verk sín
Verk eftir
Bård Ask
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
HLJÓÐBÓKAÚTGÁFA á Íslandi er
lítill en ört stækkandi markaður. Stór
hluti hljóðbóka sem framleiddar eru
fer þó aldrei á almennan markað og
eru sumar aðeins fáanlegar til útláns
hjá Blindrabókasafninu eða í gegnum
Námsgagnastofnun fyrir nemendur
með lestrarörðugleika.
Hljóðbók.is varð til í kjölfar þess að
hljóðbókaklúbbur Blindrafélagsins
hætti störfum og nú hefur Hljóð-
bók.is keypt réttinn að útgáfu
Blindrafélagsins. „Nú er meiningin
að færa allar þessar bækur yfir á
geisladiska og gefa út, eftir því sem
samningar nást við höfunda,“ segir
Gísli Helgason hjá Hljóðbók.is. Þetta
voru aðallega skáldsögur og þá voru
Íslendingasögurnar stór hluti útgáf-
unnar og framhald verður á því.
Það er misjafnt hverja samið er
við. „Yfirleitt semjum við beint við
höfunda, stundum við útgáfurnar,
það fer eftir því hvernig útgáfurétt-
urinn er. Við höfum átt mjög gott
samstarf við flest forlög en stærri for-
lögin hafa þó verið frekar treg til.“
Gísli segir að hljóðbækur verði allt-
af hlutfallslega dýrari í framleiðslu
sökum smæðar markaðarins en þó að
titlar séu fáir séu notendur hljóðbóka
fjölbreyttur hópur. „Blindir og sjón-
skertir eru hverfandi lítill kaup-
endahópur, ég held það sé yfir 99,5
fullsjáandi fólk sem kaupir þær.“
Lesarar eru ýmist höfundar eða
leikarar, en oftast hafa þau samráð
við höfunda og þýðendur um hverjir
lesa. Það er þó lítið brot jóla-
bókaflóðsins sem ratar á hljóðbækur.
„Enn er hægt að telja þá titla sem
koma út hvert haust á fingrum
beggja handa,“ segir Gísli. „Við
stöndum í þessu sjálf og greiðum all-
an kostnað og höfum fengið frekar
litla styrki í þetta enn sem komið er.“
En hefur komið til greina að kaupa
efni sem Blindrabókasafnið hefur
unnið? „Blindrabókasafnið er fyrst og
fremst framleiðslufyrirtæki og á rík-
isfjárlögum sem slíkt og því væri slíkt
brot á samkeppnislögum. En gæði á
hljóðritunum blindrabókasafnsins
eru þannig að þær standast ekki al-
mennar markaðskröfur.“
Bannað að gefa út
Blindrabókasafnið framleiðir mikið
af hljóðbókum en aðeins til útláns.
„Við erum með samning við Rithöf-
undasambandið þess efnis að það
megi breyta bókum í annað form ef
það er fyrir þennan hóp, það eru for-
sendurnar fyrir því að safnið sé til,“
segir Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, for-
stöðumaður safnsins. En Blindra-
bókasafnið gaf þó út bækur áður fyrr.
„Hér var hljóðbókaútgáfa sem hét
Orð í eyra, þar voru búnar til bækur
og seldar á almennum markaði. En
keppinautur úti í bæ kærði safnið
með þeim rökum að það væri raun-
verulega verið að nýta ríkispeninga
inni á safninu til að framleiða eitthvað
fyrir almennan markað, okkur var
bara settur stóllinn fyrir dyrnar
þannig að við getum ekki nýtt þetta
sem tekjulind.“ Fyrir síðustu jól gaf
Forlagið út fimm hljóðbækur í sam-
vinnu við Blindrabókasafnið þar sem
Forlagið nýtti sér aðstöðu safnsins til
upplestrar. „Við gerðum samstarfs-
samning, þeir gáfu út bækurnar en
við deildum hagnaðinum.“ Óvíst er þó
um framhaldið, bæði vegna nýs úr-
skurðar samkeppniseftirlitsins og
eins vegna þess að salan stóðst ekki
þær væntingar sem Forlagið hafði.
Hljóðbókamarkaðurinn
Morgunblaðið/RAX
Hljóðbók.is Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdóttir með nokkrar af þeim
hljóðbókum sem fyrirtæki þeirra, Hljóðbók.is, hefur gefið út.
Hægt er að heyra upplestur á
greininni á mbl.is, undir innlent
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„Djassaður blús eða blúsaður djass,“ segir Sig-
urður Flosason saxófónleikari mér þegar hann
er beðinn um að skilgreina tónlist kvartettsins
Bláu skugganna. „Innan djassins er þetta
ákveðinn stíll sem eru einhver fordæmi fyrir,
sérstaklega voru í kringum 1960 sveitir með
Hammond-orgel í forgrunni nokkuð vinsælar.
Það kemur alltaf upp mismikil blúsblöndun í
djassinum öðru hverju, það er það sem við erum
svolítið að rannsaka í þessu bandi,“ bætir hann
við en hinir skuggarnir þrír eru þeir Þórir Bald-
ursson sem spilar á Hammond orgel, gítarleik-
arinn Jón Páll Bjarnason og trommuleikarinn
Pétur Östlund.
„Þetta átti sér langan aðdraganda, ég hef
þekkt alla þessa menn lengi og spilað með þeim
sitt í hvoru lagi, svo datt mér í hug að þetta gæti
verið skemmtileg samsetning, gerði litla tilraun
með þetta og fann strax að þetta var eitthvað
sem gat kviknað í,“ segir Sigurður um þre-
menningana sem eru allir af næstu kynslóð fyrir
ofan hann, um tuttugu árum eldri, og meðal
þeirra sem hann leit upp til þegar hann var að
byrja í djassinum – „og geri enn.“
Sveitin hefur þegar gefið út tvær geislaplöt-
ur, Blátt ljós og Bláa skugga, og er nú á leiðinni
í tæplega tveggja vikna tónleikaför hringinn um
landið sem hefst á Akranesi og í kjölfarið spila
þeir á Kirkjubæjarklaustri, Neskaupstað, Mý-
vatni, Húsavík, Akureyri, Blönduósi og Reykja-
vík. Þeir ætla aðallega spila efni af plötunum
tveimur, „en það er alveg til meira efni og því
getur vel verið að við frumflytjum eitt og eitt lag
á leiðinni,“ bætir Sigurður við en segir þó ekk-
ert ákveðið um frekari útgáfu.
Þessi för á sér langan aðdraganda. „Þetta er
bara eitt af því sem manni dettur í hug í sinni
persónulegu geðveiki að gæti verið gaman að
gera. Svo fer maður bara að kanna mögu-
leikana, hvar sé hægt að spila, ég hef verið að
vinna að þessu frá því fyrir jól,“ segir Sigurður.
Skuggaleg hringferð
Skuggalegir Pétur Östlund, Sigurður Flosason, Jón Páll Bjarnason og Þórir Baldursson eru á
leiðinni út á land og hefja leik í Tónbergi á Akranesi kl. 20 í kvöld.
Blúsdjasssveitin Bláir skuggar heldur í tónleikaför
Hverjir gefa út hljóðbækur?
Hljóðbók.is er langstærsti aðilinn á
markaðnum og sá eini sem sérhæfir
sig algerlega í hljóðbókum, en For-
lagið og Dimma hafa einnig gefið út
hljóðbækur sem og Náms-
gagnastofnun. Þá hefur RÚV gefið út
sum útvarpsleikrita sinna á hljóðbók.
En hvað með Blindrabókasafnið?
Blindrabókasafnið framleiðir fjölda
hljóðbóka en þær eru aðeins til út-
láns fyrir viðskiptavini safnsins.
Samkvæmt lögum geta einungis
blindir, sjónskertir og aðrir sem geta
ekki fært sér prentað letur í nyt not-
ið þjónustu safnsins.
Eru íslenskar hljóðbækur að-
gengilegar á netinu?
Ekki ennþá en flestir viðmælenda
eru sammála um að það sé framtíðin
og er Hljóðbók.is t.d. að vinna að því
að setja sínar bækur á netið.
S&S
VIÐ vinnslu fréttar af bókastefn-
unni í Frankfurt sem birtist í Morg-
unblaðinu síðastliðinn mánudag
urðu þau mistök að nafn Kristínar
Marju Baldursdóttur var vitlaust
beygt.
Kristín Marja er beðin velvirð-
ingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
Röng beyging