Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 25 GRENSÁSDEILD er miðstöð frumend- urhæfingar á Íslandi, einkum er varðar fólk með mænuskaða, heila- skaða og fjöláverka. Að- eins þar er veitt sér- hæfð teymisþjónusta bæði á legu- og göngudeildargrunni. Í teyminu felst að saman vinna læknar, sjúkra- og iðjuþjálfar, hjúkrunar-, tal- meina- og sálfræðingar og fleiri við að byggja upp og reglulega yfirfara það meðferðarkerfi sem talið er munu skila mestum árangri fyrir hvern sjúkling. Reynslan hefur sannað að þar fer einstaklega hæfur hópur fólks. Grensásdeild er ekki í sam- keppni við sjálfstætt starfandi þjón- ustuaðila, t.d. sjúkraþjálfara, enda geta þeir ekki veitt svo umfangsmikla meðferð. Hvað er vandamálið? Síðan Grensásdeild tók til starfa 1973 hefur einungis þjálfunarlaug verið bætt við. Á þessu tímabili hefur þjóðinni fjölgað um meir en 40% og þeim, sem end- urhæfingu þurfa, hefur fjölgað hlutfallslega meira vegna hærri meðalaldurs og vegna þess að nú bjargast fleiri úr slysum en áður en um fjórðungur inn- lagna á Grensásdeild er vegna slysa. Það er því mjög knýjandi og vax- andi þörf fyrir úrbætur. Samkvæmt áætlunum í sambandi við nýtt landssjúkrahús við Hringbraut verður starfsemi deildarinnar ekki flutt þangað fyrr en eftir hátt á annan tug ára í fyrsta lagi, ef úr verður. Endurhæfing kemur fyrst og fremst að gagni ef henni er beitt tím- anlega. Dragist hún, hvað þá um nokkra mánuði, stórskerðir það möguleikana á að bæta færni til fyrra horfs og leiðir í mörgum tilfellum til varanlegs skaða og skerðingar á starfsþreki og möguleikum til að verða sjálfbjarga. Þjóðhagsleg arðbærni Starfsemi Grensásdeildar er þjóð- hagslega séð mjög arðbær. Að með- altali hverfa um 20% þeirra sjúklinga, sem útskrifast þaðan, til starfa á ný. Miðað við t.d. árið 2004 og meðaltöl Hagstofu Íslands og Ríkis- skattstjóra, námu atvinnutekjur þessara fyrrverandi sjúklinga á tveimur árum hærri upphæð en heildarkostnaði Grensásdeildar það árið; og skatttekjur ríkisins af þeim munu greiða upp þann kostnað á tæpum sjö árum. Hollvinir Grensásdeildar (HG) hófu viðræður í júní 2006 við Sjóvá um mögulega aðkomu félagsins til styrktar starfseminni á Grensásdeild en það er hagur tryggingafélaga að endurhæfing sé sem skilvirkust því það hefur áhrif á bótagreiðslur. Stjórnendur Sjóvár sýndu þeirri málaleitan mikinn skilning og í apríl 2007 lýsti félagið sig reiðubúið að fjármagna byggingu viðbótarálmu við Grensásdeild, er hýsa mundi sjúkra- og iðjuþjálfun alla þar ásamt göngudeild. Sjóvá mundi jafnframt leggja fram 10-15% af heildarkostn- aðinum, þ.e. tugi milljóna króna, sem styrk til Grensásdeildar og leigja bygginguna LSH á sanngjörnu verði þar til ríkið tæki hana yfir að til- teknum árum liðnum. Endanlegar kostnaðartölur liggja ekki fyrir en reikna má með að árlegur kostnaður hins opinbera af þessari nauðsynja framkvæmd yrði ekki nema brot af vöxtum þeirra 18 milljarða króna sem nota á af hagnaði ríkisins af sölu Landssímans til byggingar nýs sjúkrahúss við Hringbraut. 24. apríl 2007 greindi stjórn HG síðan heilbrigðisráðuneytinu frá þessu góða tilboði. Afstaða heilbrigð- isráðherra, Guðlaugs Þórs Þórð- arsonar, til málsins var mjög jákvæð eins og fram kom í umsögn hans í Morgunblaðinu þ. 1. júní 2007. Síðan þá hefur málið verið í vinnslu í ráðu- neytinu og reynst því flókið þar sem það er einn þáttur af mörgum í end- urskoðun á því hvernig aðkomu hins opinbera að heilbrigðisþjónustu al- mennt verði best hagað. Þá þarf að taka grundvallarákvörðun um hvar endurhæfingarstarfsemi LSH á að fara fram í framtíðinni, þ.e. hvort það yrði á Grensásdeild eða annars stað- ar. Einróma álit þeirra sem dvalist hafa á Grensásdeild er að þar sé besta staðsetningin. Það eitt að fara af spítaladeild í hið frjálsara and- rúmsloft Grensásdeildar felur í sér mikinn andlegan hvata og vekur þá tilfinningu hjá sjúklingnum að fyrsta skrefið á framfarabraut sé stigið. Slíkur hvati er grunnur þess að end- urhæfing takist. Í sumar má loksins búast við ákvörðun um staðsetninguna og hvernig aðstöðuþörfum Grensás- deildar verður best sinnt. Þetta mun skipta sköpum í lífi þess stóra hóps í biðstöðu, sem sér í úrbótum á Grens- ásdeild möguleika á því að ná starfs- færni á ný eða verða sjálfstæð og sjálfbjarga. Í stað þess að verða var- anlegir öryrkjar geta þessir ein- staklingar aftur orðið að virkum þátt- takendum í atvinnulífinu og skattgreiðendur – eða þurft á minni aðstoð og bótum frá hinu opinbera að halda. Þessir einstaklingar, sem flest- ir hafa lagt drjúgt til þjóðarbúsins, eiga það vissulega skilið auk þess sem það er þjóðfélaginu arðbært. Er afgreiðslu ráðuneytisins á þessu þjóðþrifamáli því beðið með mikilli eftirvæntingu. Vandi Grensásdeildar – vandi þjóðarinnar Gunnar Finnsson reifar vaxandi aðstöðuleysi Grensásdeildar Landspítala Háskólasjúkrahúss. Gunnar Finnsson » Lausn á vaxandi að- stöðuleysi Grensás- deildar Landspítala Há- skólasjúkrahúss er þjóðhagslega arðbær og mundi bæta lífsgæði mikils fjölda. Höfundur er rekstrarhagfræðingur og formaður stjórnar Hollvina Grensásdeildar. EF PRÓFESSOR í bókmenntum lýsir Njálssögu án þess að nefna Bergþórshvol og Hlíðarenda og fólk- ið þar þá vita flestir Íslendingar að sagan er önnur en prófess- orinn segir. Það kall- aði séra Árni að ljúga með þögninni. Í viðtali í Speglinum í RÚV 13. júní sl. var prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands spurður: „Erum við að gjalda að einhverju leyti fyrir fyrri hags- tjórnarmistök“? Og prófessorinn svarar: „Já, ég held að það sé óhætt að segja það, það er nú þekkt hver þau voru, það var farið mjög hratt í opinberar eða verk- legar framkvæmdir fyrir austan og það var gengið nokkuð hratt fram í því þegar Íbúðalánasjóður hækk- aði veðheimildir sínar.“ Svo flutti prófessorinn skrýtið utangáttatal um göfugt verkefni að draga úr atvinnuleysi í Póllandi. Prófessorinn tiltók að þekktu hagstjórnarmistökin hafi verið „verklegar framkvæmdir fyrir austan“, og „Íbúðalánasjóður hækkaði veðheimildir sínar“. Prófessorinn nefndi ekki að fjár- streymi inn í hag- kerfið vegna fram- kvæmda á Austfjörðum er al- mennt talið um 40 milljarðar og því vel viðráðanlegt . Hann nefndi ekki að Íbúðalánasjóður hafði 16 milljóna þak á lánum sínum og að veðheimildir miðuðu við brunabótamat en ekki sölusamninga. Íbúðalánasjóður hafði bæði axlabönd og belti til að koma í veg fyrir þenslu á íbúðamarkaði. Valminni Prófessorinn nefndi ekki að bankarnir fluttu inn á húsnæðismarkaðinn rúma 400 milljarða eða tífalda þá upphæð, sem kom inn í hagkerfið vegna ál- versframkvæmda austanlands. Hann nefndi ekki að bankarnir undirbuðu vexti Íbúðalánasjós. Hann nefndi ekki að bankarnir höfðu ekkert þak á lánum og buðu 100% veðheimild miðað við kaup- verð. Hann nefndi ekki að bank- arnir otuðu að íbúðareigendum svokallaðri endurfjármögnun, sem leiddi til kaupa á þúsundum af fellihýsum, hjólhýsum og húsbílum að ótöldum jeppum og pallbílum. Hann nefndi ekki að Seðlabankinn afnam bindiskyldu bankanna og sleppti þar með milljörðum króna út í hagkerfið. Hann nefndi ekki skattalækkanir. Hann nefndi ekki krónubréfin. Hann nefndi ekki að fjöldi fyrirtækja hefur tekið millj- arða að láni erlendis til að dæla inn í neysluna á Íslandi. Hann nefndi bara Íbúðalánasjóð og virkjanir. Í siðfræði eru svona efn- istök kölluð valminni. Ekki boðlegt Það er ekki boðleg umræða að prófessor í hagfræði sleppi of- antöldum atriðum þegar hann skýrir „þekktar“ ástæður fyrir fyrri mistökum í hagstjórn. Það hét hjá séra Árna að ljúga með þögninni. Menn mega auðvitað hafa löngun til að gera Kárahnjúka og Íbúðalánasjóð ábyrga fyrir þús- unda milljarða mistökum í hag- stjórn. Þeir verða þó að halda sig innan þeirra marka að móðga ekki skynsemi almennings. Að ljúga með þögninni Birgir Dýrfjörð skrifar um hagfræði Birgir Dýrfjörð » „Ekki boðleg um- ræða að prófessor í hagfræði sleppi of- antöldum atriðum.“ Höfundur er í flokksstjórn Samfylkingarinnar. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is FYRIR nokkrum áratugum gerðist sá einstaki atburður í Hollandi að þarlendir ráku einn morguninn augu í furðuskepnu sem lá í flæðarmáli. Ein- hver, sem hafði lært dýrafræðina bet- ur en aðrir í barnaskóla, gat skorið úr um að þetta furðudýr með tvær skög- ultennur væri selur úr norðurhöfum og nefndist rostungur. Auðvitað voru heimamenn ráðalausir hvað gera skyldi, sumir héldu jafnvel að skepn- an gæti gengið á land og gert fólki og fénaði skráveifur. Fréttin spurðist víða, en þá voru í burðarliðnum dýra- og náttúruverndarsamtök sem síðar hafa látið æ meir til sín taka. Þessi samtök skáru upp herör; skepnunni yrði að bjarga og koma til heimkynna sinna norður í íshaf. Ein moldrík hefðarkona beit á agn- ið og lagði fram fúlgur fjár til aðgerð- anna. Búr var smíðað eftir fyrirsögn færustu dýrafræðinga og leitað var að einhverjum sem flutt gæti þann skögultennta spölinn norður. Hann fannst fljótlega, íslenska flugfélagið Loftleiðir tóku að sér þetta góðverk fyrir ekkert gjald. Rostungurinn var fangaður, settur í búrið og ekið með hann til Lúx- emborgar þar sem hann var settur á farþegaskrá, fluttur um borð og flog- ið með hann til Íslands. Þangað kom- ið tók víst Flugfélag Íslands við kapp- anum og kom honum til Grænlands. Þarlendir ráku upp stór augu, sögð- ust hafa nóg af slíkum skepnum og spurðu furðulostnir hvers vegna Hol- lendingar hefðu ekki einfaldlega slátrað dýrinu þegar það lá svo vel við höggi, ruglað og áttavillt í fjöru. En hvar átti að sleppa Rosta? Það vissu Grænlendingar, skammt þar frá var vænn hópur rostunga og þangað var farið með ferðalanginn með von um að hann mundi verða tekinn í samfélag bræðra sinna og systra. Hollenska hefðarkonan og hennar fylgdarlið kvaddi nú Grænlendinga með miklum þökkum fyrir hve vel þeir tóku á móti þeirra kæra rost- ungi. Rétt þegar stigið var upp í flugvél- ina til brottfarar varð einum gest- anna á að spyrja heimamenn hvers vegna þeir hefðu verið búnir að kanna það svo rækilega hvar rostungahóp- urinn væri. Það stóð ekki á svarinu; heimamenn ætluðu á veiðar daginn eftir og skjóta þó nokkurn slatta af rostungum. SIGURÐUR GRÉTAR GUÐ- MUNDSSON, Lýsubergi 6, Þorlákshöfn. Sagan af rostungnum Frá Sigurði Grétari Guðmundssyni GRENIMELUR EFRI SÉRHÆÐ OG RIS AUK BÍLSKÚRS Glæsileg 225 fm efri sérhæð og ris auk 26,8 fm bílskúrs á þessum eftirsótta stað í vest- urbænum. Eignin hefur nánast öll verið endurnýjuð á sl. 3 árum m.a. nýlegt gler og glugg- ar, nýlegar raflagnir og tafla, gólfefni og bæði baðherbergi og eldhús. Stórar samliggjandi stofur, vandað eldhús og 6 herbergi. Fallegur bogadreginn veggur með miklum gluggum í stofum og útgangur á flísalagðar svalir til suðvesturs. Bílskúr allur endurnýjaður Verð 85,0 millj. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505 • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17 Netfang: fastmark@fastmark.is • Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali • Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Sunnuflöt – Garðabæ Allar nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggvason sölustjóri í 896 5221. Í einkasölu glæsilegt 366,6 fm einbýlishús með tvöföldum bílskúr á frábærum stað. Húsið er á 2 hæðum og allt nýmálað að utan. Stórt nýstandsett bílaplan. Efri hæðin er 244 fm og neðri hæðin og bílskúr 123 fm. Á efri hæð eru glæsilegar stórar stofur með fallegu útsýni, eldhús, þvottahús, stór skáli/hol, 3 stór svefnherbergi, þar af hjónaherb. með fataherbergi og sérbaði, baðherbergi, eldhús og þvottahús og búr. Útgengi á stóra aflokaða verönd með heitum potti og suðursvalir. Fallegt útsýni yfir hraunið og víðar. Á neðri hæðinni eru forstofa, gestasnyrting, 28 fm herbergi, 2 geymslur og bílskúr. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum, m.a. gler, baðherbergi, skápar og fl. Parket. Vönduð eign á einstökum stað í lokuðum botnlanga. Óskað er eftir tilboði í eignina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.