Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 13
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FÖSTUM starfsmönnum Icelandair fækkar
um 240 í haust fyrir utan um 1.500 starfsmenn
sem ráðnir voru tímabundið vegna aukinna um-
svifa í sumar. Í þessum hópi eru 64 flugmenn
og 138 flugfreyjur fyrir utan 24 sumarflug-
menn og 116 sumarfreyjur. Ennfremur starfs-
menn á tæknisviði og söluskrifstofum og flug-
umsjónarmenn, alls um 35 manns.
Uppsagnirnar taka gildi í október, nóvember
og desember. „Þetta er tímabundin ráðstöfun
til að efla og styrkja fyrirtækið til langs tíma,“
segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmda-
stjóri Icelandair.
Forráðamenn Icelandair greindu í gær frá
aðgerðum til að bregðast við breyttu rekstr-
arumhverfi vegna hækkandi eldsneytisverðs,
minni eftirspurnar eftir flugi og óvissu í efna-
hagsmálum. Aðgerðirnar fela í sér samdrátt í
flugi í komandi vetraráætlun, fækkun starfs-
fólks, skipulagsbreytingar og eldsneytisspar-
andi aðgerðir í flugi. Samdráttur milli vetr-
aráætlana nemur 14% en þó verður flug aukið
til New York.
Einni vél lagt
Skipulagsbreytingarnar miða að því að ein-
falda hlutina og draga úr kostnaði. Deildir hafa
verið lagðar niður og þær sameinaðar öðrum,
jafnt í höfuðstöðvunum hérlendis og á skrif-
stofum félagsins erlendis. Millistjórnendum
hefur verið fækkað, meðal annars for-
stöðumönnum Icelandair úr fimmtán í sjö, auk
annarra aðhaldsaðgerða. Birkir Hólm Guðna-
son segir að Icelandair hafi verið með ellefu
flugvélar í sumaráætlun en átta í vetraráætlun.
Næsta vetur verði fækkað um eina og því verði
þær sjö. Breytilegur kostnaður, olía og fleira,
sé nú 75% af fluginu og því sé í mörgum til-
fellum ódýrara að láta flugvélina standa en að
fljúga henni. Ekki sé gert ráð fyrir því að elds-
neytið lækki og reksturinn taki mið af núver-
andi stöðu. Reynt verði að bæta sætanýtinguna
og auka tekjurnar. Erfiðara sé að leigja út vél-
ar en áður en unnið sé að því að finna verkefni.
Uppsagnir flugmanna miðast við starfsaldur,
þ.e. starfsmönnum með minnstan starfsaldur
er fyrst sagt upp. Birkir Hólm segir að flug-
freyjum með allt að níu ára starfsaldur hafi ver-
ið sagt upp en starfsaldur flugmanna sem sagt
hafi verið upp sé lægri. Hins vegar sé vonast til
að það komi til endurráðninga næsta vor.
Ástandið í flugheiminum er mjög ótryggt um
þessar mundir. Birkir Hólm segir að þau flug-
félög sem bregðist hraðast við muni standa
best að vígi þegar fram líði stundir. Ástandið nú
sé allt annað en eftir árásirnar á Bandaríkin 11.
september 2001. Þá hafi flugfélög lagað sig að
minni eftirspurn en þau hafi enga stjórn á
auknum kostnaði eins og hækkandi eldsneyt-
isverði.
Haldið í vonina
Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA,
bendir á að tæplega þriðjungi flugmanna Ice-
landair hafi verið sagt upp og vísar til þess að
64 flugmenn hafi fengið uppsagnarbréf auk
þeirra 24 sem hafi verið ráðnir vegna flugsins í
sumar. Uppsagnirnar geri það jafnframt að
verkum að 45 flugstjórar færist niður í flug-
mannsstöður og þar af 10 sem hefðu flust upp í
stöðu flugstjóra í vor.
„Þetta er ömurleg staða,“ segir Jóhannes
Bjarni, en bætir við að aðgerðirnar séu skilj-
anlegar, því félagið þurfi að bregðast við erf-
iðum aðstæðum. Því komi uppsagnirnar ekki á
óvart en þær séu samt fleiri en FÍA hafi búist
við.
Flugmönnum hjá Icelandair hefur fjölgað
jafnt og þétt og fleiri missa nú vinnuna en áður.
Jóhannes Bjarni segir að FÍA hafi óskað eftir
því að viðkomandi gangi fyrir um störf hjá öðr-
um flugfélögum innan Icelandair Group, ekki
síst vegna þess að kjarasamningur þeirra sé við
Icelandair Group/Icelandair og hugsanlega ári
betur hjá hinum flugfélögunum innan sam-
steypunnar, svo sem BluBird Cargo, Latch-
arter í Lettlandi og Tavel Service í Tékklandi.
Vel hafi verið tekið í þá bón án þess að ein-
hverju hefði verið lofað, en staðan myndi von-
andi skýrast á næstu vikum og mánuðum.
Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Jóhann-
esi Bjarna að atvinnuhorfur flugmanna í haust
og vetur væru mjög slæmar. Hann segir að
staðan hafi verið áréttuð á fundinum í gær en
jafnframt sagt að um leið og birti til hjá Ice-
landair yrðu uppsagnir afturkallaðar. Það hefði
gerst á nýliðnum árum og vonandi kæmi stór
hluti uppsagnanna ekki til framkvæmda.
Þungt högg
Ástríður Ingólfsdóttir, varaformaður Flug-
freyjufélags Íslands, segir uppsagnirnar skelfi-
legar fyrir alla sem í þeim lenda. Þetta sé mjög
þungt högg og mikil óvissa sé um framhaldið.
Á fundum með yfirmönnum Icelandair hafa
talsmenn FFÍ komið fram með ýmsar hug-
myndir. Ástríður segir að í fyrrahaust hafi fyr-
irtækið boðið fólki hlutastörf en talsmenn þess
segi að það sé ekki í stakk búið til að fara þá leið
núna þar sem margir séu þegar í hlutastörfum.
Hins vegar hafi verið tekið jákvætt í að bjóða
fólki launalaust leyfi og Icelandair ætli að fá
starfsmiðlun til að aðstoða þá sem vilja til að út-
búa ferilskrá og finna önnur störf. Ástandið sé
hins vegar ekki bjart.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óvissa Flugfreyjur Icelandair bíða eftir fundi með stjórnendum félagsins í gær. Þær hafa ekki fengið uppsagnarbréf í hendur og vita því ekki um framtíð sína hjá félaginu.
!" # $$
%&'()*+
%&)(,*+
--&
& Beðið eftir mjúkri
lendingu í fluginu
Met í uppsögnum hjá Icelandair en 240 starfsmönnum var sagt upp í einu
Framkvæmdastjórinn segir ráðstöfunina tímabundna til að efla fyrirtækið
GUÐMUNDUR Gíslason, flugmaður hjá Ice-
landair sl. þrjú ár, er einn þeirra 64 flug-
manna sem sagt hefur verið upp vinnu frá og
með haustinu. Spurður um hvort staða hans
innan fyrirtækisins sé trygg segir hann: „Við
erum með starfsaldurslista og það er farið
eftir honum. Það var hringt í mig í gær
[fyrradag],“ segir Guðmundur.
Aðspurður segir hann nú taka við atvinnu-
leit erlendis. Atvinnuástandið þar hafi verið
slæmt en sé nú að lagast. Hvað möguleika á
endurráðningu varðar segir Guðmundur
uppsagnarfjöldann sem gefinn hafi verið upp
miðast við svörtustu spár og stöðuna í dag.
„Yfirleitt hafa 30-40% uppsagna verið teknar
til baka en í dag er þetta öðruvísi. Það er of-
boðslega mikil efnahagskreppa og olíuverð
er á fullri ferð upp á við þannig að það er erf-
itt að spá um það.“
Guðmundur segir að búist hafi verið við
uppsögnum en jafnmörgum og raun ber vitni
áttu fáir von á. „Þetta eru rosalega erfiðar
aðstæður. Ég er þó persónulega mjög ánægð-
ur með að það sé verulega verið að taka á
málum hjá fyrirtækinu.“
Ætlar utan í
atvinnuleit
„ÉG held að það sé alveg ljóst að ég mun fá
uppsagnarbréf,“ segir flugfreyja hjá Ice-
landair sem starfað hefur hjá fyrirtækinu í
fjögur ár. Þar sem farið verður eftir starfs-
aldri telur hún ljóst að enginn þeirra, sem
fékk fastráðningu á sama tíma og hún, sleppi.
Hún segist ekki búast við því að fólki bjóð-
ist að minnka starfshlutfallið sitt. „Eins og
staðan er í dag held ég að þetta sé óhjá-
kvæmilegt í fyrirtækinu. Þetta er eitthvað
sem allir bjuggust við þannig að þetta kemur
manni ekki í opna skjöldu.“
Hún segir töluvert óöryggi hafa verið í
fólki síðan fréttir af uppsögnunum birtust í
fjölmiðlunum á sunnudaginn. „Fólk vissi ekki
nákvæmar tölur en við fengum þær í dag [í
gær]. Þetta er mjög nærri því sem gefið var
út í fréttunum og ég held það hafi komið fólki
mest á óvart hvað mörgum verður sagt upp.“
Hún segir uppsagnarbréfin hafa borist
fólki í gær og muni restin verða send út í dag.
Fjöldi uppsagna
kom á óvart
Ókyrrð í lofti