Morgunblaðið - 25.06.2008, Page 15

Morgunblaðið - 25.06.2008, Page 15
Útflutningsráð skipuleggur m.a. eftirfarandi viðskiptasendinefndir næsta haust. Vegna sumarleyfa (hér og erlendis í ágúst) er áríðandi að þátttökutilkynningar berist Útflutningsráði sem allra fyrst. P IP A R • S ÍA • 81 30 9 Viðskiptatækifæri að hausti –Kasakstan, Þýskaland og Jórdanía Borgartún 35 / 105 Reykjavík / sími 511 4000 / fax 511 4040 / utflutningsrad@utflutningsrad.is Þátttaka er ekki einskorðuð við ákveðnar greinar heldur verður reynt að skipuleggja viðskiptafundi eftir þörfum hvers þátttakanda. Áhugasamir hafi samband við Þorleif Þór Jónsson, thorleifur@utflutningsrad.is, eða Elsu Einarsdóttur, elsa@utflutningsrad.is, eða í síma 511 4000 fyrir 1. júlí nk. Kasakstan 22. til 25. september: Farið til borganna Astana og Almaty. Miklir möguleikar í uppbyggingu orkuöflunar og dreifingar, byggingariðnaði, menntun o.fl. Þýskaland 29. til 30. október: Viðskiptasendinefnd í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands til Þýskalands. Jórdanía 10. til 13. nóvember: Tækifæri í Mið-Austurlöndum. Viðskiptamöguleikar opnast til annarra landa frá Jórdaníu þar sem aldagömul hefð er fyrir viðskiptum og samstarfi yfir landamæri. www.utflutningsrad.is MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                               !     " #             !      EINS og fram kom í Morgunblaðinu í gær reiknaðist kaupmáttur landsmanna í maí 3,9% minni en hann var í maí árið 2007. Niðurstaðan byggir á því að vísitala launa hefur hækkað um 7,9% en vísitala neysluverðs um 12,3%. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar og þróun launavísitölunnar má ætla að meðaltekjur íslensks heimilis séu um 440 þúsund krónur. Miðað við rýrnun- ina má hugsa sér að 3,9% eða rúmar 17 þúsund krónur séu horfnar úr veskinu. Fyrir þær má til dæmis fylla 2-3 sinnum á bensíntankinn eða kaupa 4ra gígabæta iPod Nano í fríhöfninni. Þá kostaði páskamatarkarfan sem Morgunblaðið gerði verðkönnun á í mars síðast- liðnum rétt undir 16 þúsundum. Neyslumynstur landsmanna hefur breyst nokkkuð síðustu ár í takt við vaxandi kaupmátt. Mælingar Hag- stofunnar gefa til kynna að hlutfall matar og drykkjar- vara af neysluútgjöldum hafi dregist saman á árunum 2002 til 2006. Húsnæðisliðurinn jókst mest, þ.á.m. við- hald og viðgerðir á húsnæði. Kaup öku- og raftækja jukust um meira en 60% og útgjöld til tómstunda og stærri tækja, s.s. tjaldvagna, meira en tvöfölduðust. Á árunum 2004-2006 voru heildarútgjöld þeirra heimila sem voru undir meðaltekjum 73 þúsund krónur umfram ráðstöfunartekjur. Ef þær tekjur eru skertar um 3,9% eru útgjöldin 95 þúsund krónum, þ.e. 18%, meiri en tekjurnar. halldorath@mbl.is 17 þúsund á meðalheimili  Þriðjungur matarútgjalda á mánuði eða einn iPod Nano  Hlutfall matvæla í útgjöldum hefur dregist saman  .  /        0 1                !"# $          2  $      $! $! 3 4   $ % #    $ % ! &'(  )  * +,- !  +. 5 67 76   $%&' (&)* +, ''-.& (&)* +, #/0% +, (10%0& 2'0 +, 3, #04'0*,516 71 8910& (&)* +, :)*06 ' +, ;2'0 71 +, &1 +, "<= "%&)4)&>)&?&@ A@&,2 +, !B40 +, C)& +, 895 :3   +, $1,9 +, $%1%09 $0&B $%1%09 <%&1)4 <D #0' '0 E&B ' F+&A0 +, !&B660640?%.?0 +, G01)%.?0 +,  $; :< = H%)&B $1)40)4 H 3 (&0 +, 34*0?A +, >  4 7                                                               G0?'0*%0 60 !012? I 1' 6 :)* "1                              >          > > >   > > K  K  K  K  K  K K K K   K K   K  K   > > >  > K  K K  K  K   K  K K  K K K  K K     K K > K   K > K  A.10 -0?'0*%   > >   > > >  > > 6%06 -0?'-&?                                                                       ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands lækkaði um 0,29% í Kaup- höll Íslands í gær og var lokagildi hennar 4.499,76 stig þegar mark- aðir lokuðu. Icelandair hækkaði um 1,61% og Kaupþing um 0,38%. Century Aluminium lækk- aði um 4,32%, Föroya Banki um 4,11% og þá lækkaði Glitnir um 1,54%. Krónan styrktist um 0,16% í gær og var lokagildi gengisvísi- tölu 167,8 stig. Velta á markaði nam tæpum 40 milljörðum króna. bjarni@mbl.is Lækkun í kauphöll KAUPÞING banki hefur gengið frá sambankaláni fyrir 275 millj- ónir evra sem jafngildir um 35,8 milljörðum íslenskra króna á nú- virði. Lánið er til tveggja ára og ber 1,5% álag á EURIBOR-milli- bankavexti, sem eru mun betri kjör en skuldatryggingarálag bankans hefur gefið til kynna, en í gær var tryggingarálagið um 7,00%. Guðni Níels Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri fjárstýringar Kaup- þings, segir að þegar þóknun til lánveitenda er tekin með í reikn- inginn séu kjör lánsins um 2% yfir millibankavöxtum, sem hafa verið í kringum 5,5% undanfarið. „Hafa ber í huga að skuldatrygg- ingarálagið mælir ekki kjör á lán- töku heldur ræður spákaup- mennska ferðinni að vissu marki á eftirmarkaði. Lánið sem við tökum nú eins og þau sem við höfum verið að taka undanfarið er hins vegar tekið hjá bönkum sem þekkja rekstur Kaupþings mjög vel og mun betur en þeir sem horfa að- eins á tryggingarálagið við ákvarð- anir um lánveitingu.“ Lántaka Kaupþings nú kemur í kjölfar 80 milljarða láns, sem pólskt símafélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar fékk hjá kín- verskum banka. bjarni@mbl.is Mun betri lánskjör en trygg- ingarálag gefur til kynna Morgunblaðið/Árni Sæberg Ánægður Talsmaður Kaupþings er ánægður með kjör lánsins. ● BAUGUR Group hefur selt allan hlut sinn í matvælaheildsölukeðj- unni Booker Group. Alls er um 34,1% af heildarhlutafé keðjunnar að ræða. Kaupþing hefur einnig selt 6,2% hlut í Booker. Ekki fæst uppgefið hvað Baugur hagnaðist á hlutnum í Booker né hvort félagið hyggist nýta það sem fékkst fyrir hann til kaupa í öðrum fé- lögum. Hlutabréf Booker lækkuðu um 4,4% í kauphöllinni í Lundúnum í gær. bjarni@mbl.is Baugur alfarið úr hluthafahópi Booker FRÉTTASKÝRING Eftir Björgvin Guðmundsson og Snorra Jakobsson NOKKUR óvissa hefur verið í kring- um breytingar á Íbúðalánasjóði sem ríkisstjórnin kynnti á fimmtudaginn. Þeir sem Morgunblaðið talaði við í gær sögðu að svo virtist sem það ætti eftir að ganga frá lausum endum er sneru að markaðsaðilum. Í fyrsta lagi er ekki vitað hvernig staðið verður að útgáfu tveggja nýrra lánaflokka hjá Íbúðalánasjóði né hvert umfang þeirra lánaflokka verð- ur. Þetta skiptir máli fyrir þróun á ávöxtunarkröfum annarra lána- flokka. Í öðru lagi vita stjórnendur fjár- málafyrirtækja ekki hvernig fyrir- komulagi fjármögnunar núverandi íbúðalána verður háttað. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður félags- málaráðherra, segir skilmálana ekki enn tilbúna. Málið er á forræði ráðu- neytisins og því veit starfsfólk Íbúða- lánasjóðs minna. Breytir samningsstöðu SPRON Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er stærsti hlutinn af íbúða- lánum stóru viðskiptabankanna þeg- ar fjármagnaður. Samkvæmt yfirliti frá Seðlabanka Íslands námu fast- eignaveðlán bankanna til heimilanna 513 milljörðum króna um síðustu ára- mót. Fyrrnefnd tala er aðeins brot af heildarútlánum bankanna þriggja eins og meðfylgjandi tafla sýnir. Viðskiptabankarnir þrír munu því að litlu leyti endurfjármagna íbúðar- lán sín í gegnum Íbúðalánasjóð. Hins vegar skiptir þessi leið spari- sjóðina miklu máli. Þeir hafa ekki lánshæfiseinkunn og eiga erfiðara með að fjármagna útlán sín við nú- verandi aðstæður á lánsfjármörkuð- um. Viðmælendur Morgunblaðsins sögðu þessar aðstæður breyta stöðu SPRON mikið. Hægt væri að kalla breytinguna á Íbúðalánasjóði björg- unaraðgerð fyrir sparisjóðinn. Það gerði samningsstöðu SPRON enn betri í viðræðunum við Kaupþing. Bentu þeir á að hægt væri að líta á ergelsi Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra Kaupþings, í tölvupósti síð- astliðinn föstudag í því samhengi. Sparisjóðirnir hafa stóra hlutdeild í viðskiptabankaþjónustu hér á landi en þeirra helstu viðskiptavinir eru fyrst og fremst einstaklingar og smærri fyrirtæki. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins námu fast- eignaveðlán SPRON 97 milljörðum en heildarútlán sjóðsins til viðskipta- manna námu tæplega 162 milljörðum í lok árs 2007. Fasteignaveðlán SPRON eru því tæplega 60% af heildarútlánasafni bankans. SPRON stendur því frammi fyrir að þurfa að fjármagna sig að mestu á innlendum markaði þar sem kjörin eru mjög óhagstæð og nafnvextir um 20% fyrir óverðtryggð bréf og um 10% fyrir verðtryggð bréf. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar koma því á góðum tíma fyrir stjórnendur sparisjóðsins. Hins vegar er óvissan í kringum framkvæmdina óþægileg fyrir þá og vísbending um að tillögurnar hafi verið kynntar í flýti. Óvissa um breytingu á ÍLS  Heildaríbúðarlán fjármálafyrirtækja eru 513 milljarðar króna. Endurfjármögn- un í gegnum Íbúðalánasjóð gagnast sparisjóðunum  Óvissa um framkvæmdina  :)*06 ;2'0 (10%0& "<= <9 : :: ?@ %> 06> -?1@ 4'& 301&> %1@ %01 -0?'0*%> 4 4'& 31)%,11 I2?> 1@ -A 'A 'A ,       -(' B(C B(B C,()

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.