Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 36

Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 36
UNDIRBÚNINGUR stendur nú sem hæst í Laugardalnum vegna náttúrutónleikanna sem þar eru fyr- irhugaðir næstkomandi laugardag. Tónleikarnir verða í svonefndri Þvottalaugabrekku og áætlað að um 24-30.000 manns komist þar fyrir. Tónleikasvæðið verður opnað kl. 17:00 og þá mun Radium, samstarfs- verkefni þeirra Finnboga Péturs- sonar og Ghostigital (Einar Örn Benediktsson og Curver Thorodd- sen) hefja tónlistarflutning og spila til kl. 19:00 þegar Sigur Rós stígur á svið. Ólöf Arnalds leysir Sigur Rós af og á eftir henni kemur svo Björk Guðmundsdóttir. Ýmislegt fleira verður á boð- stólum í Laugardalnum á þessum tíma; Húsdýragarðurinn verður þannig opinn til miðnættis og að- gangur ókeypis og eins verður ókeypis aðgangur að Laugardals- laug og hún líka opin til miðnættis. Útsending um heim allan Einar Örn Benediktsson, sem borið hefur hitann og þungann af skipulagningu tónleikanna, segir að talsvert af fólki sé væntanlegt að ut- an og eins komi nokkuð af erlendum blaðamönnum hingað til lands til sækja tónleikana, til að mynda blaðamenn frá El País, Times, Gu- ardian, Onion og CNBC. Tónleikarnir verða sendir beint út á netinu um allan heim, mbl.is sér um útsendingu hér heima en Nation- al Geographic ytra. Einnig geta áskrifendur Nova horft á tónleikana í farsímum sínum í gegnum þriðju kynslóðar símkerfi Nova sér að kostnaðarlausu. Í ljósi þess að tónleikarnir verða hljóðritaðir og kvikmyndaðir vegna útendingarinnar er Einar Örn spurður hvort til standi að gefa þá út. „Það er ómögulegt að segja, mað- ur veit aldrei hvernig tónleika- upptökur koma út fyrr en þeim er lokið. Ef þetta heppnast vel væri langbest að gefa fljótlega út „boot- leg“ af tónleikunum,“ segir Einar Örn og bætir við að ljósabúnaður á tónleikunum miðist við árstíma, en ekkert sé til sparað í hljóðkerfi. arnim@mbl.is Náttúran í Laugardalnum Morgunblaðið/Golli Stórtónleikar Talið er að 24-30.000 manns komist fyrir í Þvottalauga- brekkunni, en tónleikasvæðið er 14.000 fermetrar. Undirbúningur stendur sem hæst fyrir tónleika á laugardag  Aldarfjórð- ungsgömul stutt- mynd eftir lista- hópinn Oxsmá í leikstjórn Óskars Jónassonar er meðal efnis á nýju tölublaði DVD-sjónritsins Raf- skinnu sem kemur út í byrjun næsta mánaðar. Óskar og Hrafnkell Sig- urðsson, myndlistamaður og aðal- leikari myndarinnar tala yfir eina útgáfu stuttmyndarinnar (e. com- mentary) en þar kemur fram að hugmyndin hafi kviknað eftir að þeir félagar sáu kvikmyndina Leit- ina að eldinum. „Við [...] vorum að tala um hvað það væri auðvelt að gera svona mynd,“ segir Óskar um tilurð þessarar framtíðarmyndar um frumstæðu plánetuna Oxsmá. „Við þyrftum bara að fara með nokkra apabúninga upp í Heiðmörk og málið væri dautt.“ Með birtingu myndarinnar í Rafskinnu gefst nú loks kostur á því að berja þennan týnda gullmola íslenskrar kvik- myndasögu augum. Oxsmá Óskars Jón- assonar í Rafskinnu  Hægt er að nálgast stiklu (e. trailer) úr kvikmyndinni Journey to the Center of the Earth á You- Tube og ekki verður annað sagt en að myndin líti nokkuð vel út. Af stiklunni að dæma má gera ráð fyrir að Anita okkar Briem komi töluvert við sögu og fylli þó nokkra ramma en hvað sjálfan leik hennar varðar virðist sem hann verði að einhverju leyti ein- skorðaður við mismunandi andlits- svipi, öskur og loftfimleika ýmiss konar, þegar í iður jarðar er loks- ins komið. Sérstök frumsýning á myndinni verður haldin á sunnu- dag í LA en hér á landi vænt- anlega fyrir næsta haust. Stikla á YouTube Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is EITT af þeim afrekum sem unnin voru innan íslenskrar dægurtónlistar í fyrra var frum- burður Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Þar fer fullkomin samsuða popps og kammermúsíkur, örugglega ein allra besta plata ársins. Svefn- galsinn sem talað er um í titlinum er þá orðinn sumarlegur; en í dag gaf Hjaltalín út spánnýtt lag í líki stafrænnar smáskífu, lagið „Þú komst við hjartað í mér“, sem fyrst kom út á sóló- plötu Páls Óskars frá því fyrra, Allt fyrir ást- ina. Lagið er fáanlegt á öllum betri stafrænum miðlum og verslunum af því tagi. Í fyrradag barst svo til landsins vínylútgáfa af Sleepdrunk Seasons og því allt að gerast hjá sveitinni, en nóg er auk þess að gera við spilamennsku. „Hugmyndin var sú að taka svona „house“- teknólag, fara með það að sama punkti og upp- runalega útgáfan gerir en með öðrum leiðum,“ segir Högni Egilsson, söngvari og gítarleikari sveitarinnar. „Við erum semsagt að spila það í akústískri útgáfu, með blæstri og slíku, en reynum að dýrka upp svipaða stemningu með allt öðrum hætti.“ Hjaltalín flutti lagið 17. júní síðastliðinn á Arnarhóli en laginu var síðan rúllað inn á band í gær í Hljóðrita, Hafnarfirði. Laginu var svo skotið út á landann í dag. Allt gerist þetta því með tiltölulega miklum hraði. „Svona er best að gera þetta í dag,“ segir Högni. „Þetta er stafræn smáskífa og fer sem slík inn á útvarpsstöðvar og alla þessa helstu miðla. Við erum dálítið að nikka til gamalla tíma, en á sjöunda áratugnum tíðkaðist að ábreiður yfir lög kæmu út nokkrum mánuðum eftir að fyrsta útgáfan leit dagsins ljós.“ Sex lög í breyttri útgáfu Högni og co. eru ekki bara með báða fætur í heimi popps og klassíkur, heldur og í hinum nýgilda, stafræna heimi og svo hinum gamla (sígilda?) heimi hliðrænnar tækni, þ.e. seg- ulbanda og vínyls. „Við fengum plötuna okkar í vínylútgáfu í fyrradag,“ segir Högni hróðugur. „Öll um- slagsvinna sýnir sig betur en auk þess eru sex lög í breyttri útgáfu, það er meira að gerast í þeim, fleiri rásir í gangi. Við og Benni Hemm Hemm erum að spá í að halda sérstaka tón- leika vegna þessa en nýja platan hans er líka að koma út á vínyl.“ Með sumar í hjarta Morgunblaðið/Golli Hjaltalín „[Á] sjöunda áratugnum tíðkaðist að ábreiður yfir lög kæmu út nokkrum mánuðum eftir að fyrsta útgáfan leit dagsins ljós.“ Þá skylmdumst við niður Bankastræti og alla leið út á Austurvöll … 39 » reykjavíkreykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.