24 stundir - 26.06.2008, Síða 19

24 stundir - 26.06.2008, Síða 19
24stundir FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 19 Ýmsir bregðast hart við um-mælum Geirs H. Haardeúti í London um kosti þess að halda í íslensku krónuna. Evr- ópusinnar, verka- lýðsleiðtogar og fleiri pólitískir and- stæðingar ráðherrans telja Geir gamaldags og ganga erinda ann- arra en kjósenda. Guðmundur Gunnarsson, formaður rafiðn- aðarsambandsins greinir stöðuna þannig: „Forsætisráðherra er að lýsa því yfir að hann vilji viðhalda þeim stjórnarháttum að geta leiðrétt hagstjórnarmistök sín með því að fella laun í landinu og skella á at- vinnuleysi á almennum vinnu- markaði.“ María Kristjánsdóttir leikstjóri er á svipuðum nótum þegar hún spyr á bloggi Péturs Gunnarssonar hverjir njóti sveigjanleikans vegna sjálfstæðs gjaldmiðils. Hún telur forsætisráð- herra vera úti á þekju að tala um hagsmuni okkar og segja að við njótum sveigjanleika. „Þessir“ við hverra hagsmunir það eru sem ráða afstöðu for- sætisráðherrans. Kjósendur, þ.e.a.s. vinnuveitendur Geirs? Það held ég ekki –“ en María og fleiri pennavinir Péturs telja hagsmuni bankanna í fyrirrúmi. Hátt bensínverð kveikirguðlegan neista í brjóstiGunnars í Krossinum. „Auður heimsins safnast til þess landsvæðis sem aldingarð- urinn var í upphafi. Þetta held ég að sé guðleg ábending til allra um að gæta sín og gera sig klára,“ seg- ir Krossmaðurinn við DV um þróun bensínverðs- ins og bætir því við að Guð sé einn sem öllu ræður. Líklega er GeirH. Haardeekki sammála Gunnari. Ráðherrann vill að minnsta kosti ráða íslensku krónunni fyrir okk- ur, frekar en að fá stjórn að utan. Andvarp Gunnars í Krossinum gæti hins vegar gefið vísbendingu um að nú sé svo komið í efna- hagsmálum að engu skipti hvort Seðlabanki, ríkisstjórnin eða Evr- ópusambandið ráði för. Réttast sé að fela efnahagsstjórnina Guði al- máttugum og vona það besta. beva@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Þróun efnahagsmála hefur verið fólki hugleikin síðustu vikur og mánuði, enda er okkur tamt að mæla persónulega velsæld okkar á sama kvarða og segir til um efna- hagsástand þjóðarbúsins. Það þýð- ir þó ekki að okkur sé ókunnugt um að fleira þurfi í dansinn en fagra skóna. Almenningur þekkir vel það einstigi sem feta þarf þegar reka á heimili og sjá fyrir fjöl- skyldu. En hvað veldur því að sú ríkisstjórn sem nú situr hefur feng- ið á sig hvassa gagnrýni og ákúrur fyrir að standa sig ekki í stykkinu við stjórn efnahagsmála? Vakandi öllum stundum Eitt mikilvægasta verkefni hverr- ar ríkisstjórnar er að annast stjórn efnahagsmála. Til að valda því verkefni þarf margt að koma til. Ríkisstjórnin þarf að sýna með óyggjandi hætti að hún verðskuldi traust þjóðarinnar, því ef almenn- ingur treystir ekki að sameiginleg- um hagsmunum okkar á efnahags- sviðinu sé vel fyrir komið þarf ekki að spyrja að leikslokum. Til að afla þessa trausts hefur ríkisstjórnin ýmis tæki sem fólgin eru í umboð- inu sem hún hefur frá kjósendum þeirra flokka sem hana skipa. Fjár- lögin eru þeirra áhrifaríkust og með þeim annast hún stjórn rík- isfjármála. Fjárlagafrumvarp hvers árs setur framkvæmdavaldinu bæði skorður og veitir því svigrúm. Við þekkjum öll stefið um að sýna þurfi ábyrgð í ríkisfjármálum, en það er ekki allt fengið með því að skila fjárlagafrumvarpi sem virðist taka mið af efnahagsástandi á hverjum tíma, jafnvel ekki þó það geri ráð fyrir tekjuafgangi á ríkis- sjóði og niðurgreiðslu erlendra lána. Það eitt og sér nægir ekki til að tryggja ríkisstjórninni traust þjóðarinnar, hún þarf að sýna að hún geri sér grein fyrir flóknu sam- spili ríkisfjármála og annarra þátta er hafa áhrif á efnahagslífið. Og ekki nægir að sýna einhverja til- burði í þá átt, þegar blikur eru á lofti í efnahagsmálum og útlit er fyrir samdrátt. Ef vel á að vera þarf ríkisstjórnin að sýna hvern einasta dag að hún hafi tök á efnahags- málum, hún þarf að sýna aðhald og ráðdeild í góðæri, og kunna að beita ríkissjóði af skynsemi þegar harðnar á dalnum. Sver sig í ætt fyrri ríkisstjórnar Það hefur komið í hlut þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr að bregðast við samdrætti í efnahags- lífinu og hún ber sig klaufalega að. Fyrst um sinn virtist hún sofandi, nánast eins og hún væri að vona að sveiflan leiðrétti sig af sjálfsdáðum. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar koma seint og virðast tilviljanakenndar, auk þess sem sárlega skortir að þær byggi á skýrri framtíðarsýn. Þetta ráðleysi sver sig í ætt við aðgerðir fyrri ríkisstjórnar, sem fór með völd á þeim tímum sem menn kenndu við góðæri. Sú ríkisstjórn var svo himinlifandi yfir uppsveifl- unni, sem hún sjálf átti þátt í að skapa m.a. með einkavæðingu bankanna og annarra ríkisfyrir- tækja, að hún hallaði sér bara út af og fylgdist spennt með því hversu langt í góðærisátt efnahagspendúll- inn gæti mögulega sveiflast. Þessi aðferðafræði var gagnrýnd þá og hún verðskuldar gagnrýni nú, enda ber hún vott um skilningsleysi á hinu vandasama verkefni sem stjórn efnahagsmála er. Stöðugt á varðbergi Ábyrg ríkisstjórn leitast við að halda efnahagspendúlnum stöðug- um öllum stundum, þannig að hann slái hvorki of langt í góðæri né á samdráttarskeiði. Almenning- ur, sem er ábyrgur fyrir rekstri heimilanna og velsæld fjölskyldn- anna, þarf að finna að ríkisstjórnin sé stöðugt á varðbergi, að hún beiti afli sínu af meðvitund og skyn- semi. Þjóðin vill miklu heldur ríkis- stjórn sem öllum stundum svitnar við stjórn efnahagsmála, en ríkis- stjórn sem strýkur kviðinn í góðæri og stingur svo hausnum í sandinn þegar samdráttarskeið gengur í garð. Höfundur er alþingismaður. Stjórn efnahagsmála krefst meðvitundar VIÐHORF aKolbrún Halldórsdóttir. En hvað veld- ur því að sú ríkisstjórn sem nú situr hefur fengið á sig hvassa gagnrýni og ákúrur fyrir að standa sig ekki í stykkinu við stjórn efnahagsmála? ÞÝSKAR ÁLKERRUR til allra starfa Vandaðar kerrur á góðu verði, léttar og fallegar. Margar stærðir og gerðir. Sturtubúnaður , álbrautir o.fl. Söluumboð: N1 Laugatanga 1 Mosfellsbæ - sími 566 8188. Fjarðanet hf. Grænagarði Ísafirði - sími 470 0836. KB búrekstrard. Egilsholti 1 Borgarnesi - sími 430 5500. Háholt 18 Mosfellsbæ sími 894 5111 Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu · · · Opið laugardaga í Galleríi Fold, Rauðarárstíg kl. 11–14, lokað á sunnudögum í sumar Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Listmunauppboð Fyrir viðskiptavini leitum við sífellt að góðum verkum gömlu meistaranna. Af gefnu tilefni tökum við fram að við vitum ekki til þess að sölulaun séu lægri annars staðar. Jóhannes S. Kjarval Dramasmiðjan heldur námskeiðið í Borgarfirðinum fyrir börn sem vilja æfa snilligáfu sína í gegnum leik og listsköpun. Markmiðið er m.a. að örva skapandi hugsun, rökhugsun og félagsfærni.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.