24 stundir - 26.06.2008, Page 26

24 stundir - 26.06.2008, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir Nýr lífrænn barnamatur frá Nestlé www.barnamatur.is Gott veganesti fyrir lífið Ósalta ð og ósykra ð FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a Bankarnir eru ekki viljandi að fella gengi krónunnar. Það er ekki gott fyrir bankana að krónan veikist. SALA JPY 0,7592 -2,54% EUR 127,83 -2,32% GVT 164,34 -2,27% SALA USD 82,07 -2,16% GBP 161,56 -2,28% DKK 17,139 -2,32% Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is „Bankarnir eru ekki viljandi að fella gengi krónunnar. Það er ekki gott fyrir bankana að krónan veikist,“ segir Lárus Welding, forstjóri Glitn- is. Eins og sagt var frá í 24 stundum í gær hafa stóru viðskiptabankarnir þrír á öðrum ársfjórðungi þessa árs grætt samtals rúmlega 80 milljarða á veikingu krónunnar, ef miðað er við gjaldeyrisstöðu þeirra í lok fyrsta ársfjórðungs. Aukin áhættufælni Frá mánaðamótum hefur gengi krónunnar lækkað um 11%. Lárus segir lækkun gengisins að undan- förnu stafa af aukinni áhættufælni fjárfesta á erlendum mörkuðum, sem dragi sig nú út úr hávaxta- myntum á borð við íslensku krón- una. „Íslenska krónan er líka minnsti gjaldmiðill í heiminum, þannig að á gengi hennar eru miklar sveiflur sem erfitt er að útskýra dag frá degi,“ segir Lárus. Eins og kom fram í 24 stundum í gær telja sumir að ástæða lækkunar gengis krónunnar nú sé sú að bank- arnir hafi stundað viðskipti með krónuna með það að markmiði að lækka gengi hennar og bæta þannig stöðu sína fyrir uppgjör annars árs- fjórðungs. Samskonar raddir heyrð- ust fyrir uppgjör fyrsta ársfjórð- ungs. Lárus segir að þá, líkt og nú, hafi lækkun gengisins líklega stafað af aukinni áhættufælni fjárfesta. Alvarleg ásökun „Það er mjög alvarleg ásökun að segja að bankarnir séu vísvitandi að reyna að fella gengi krónunnar, og ætla ég ekki að taka undir slíkar ásakanir,“ segir Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Ís- lands. „En það er sjálfsagt að skoða það ef grunur er um eitthvað slíkt. Í raun ætti það að vera mjög einfalt, því allar upplýsingar um gjaldeyr- isstöðu bankanna liggja fyrir hjá Seðlabanka og Fjármálaeftirliti.“ Aðspurður segir Lárus fleiri en ís- lensku bankana versla með íslensk- ar krónur. „400 milljarðar af krónu- bréfum eru ennþá í útgáfu, þannig að það er ennþá töluvert af fjárfest- um sem er að versla með krónuna. Að sama skapi er mjög mikið flutt inn og út úr landinu, þannig að það eru alls ekki bara íslensku bankarnir sem versla með íslensku krónuna.“ Ónýtur gjaldeyrismarkaður Gylfi segir hins vegar að nánast einungis íslensku viðskiptabank- arnir eigi í viðskiptum á gjaldeyr- ismarkaði með íslensku krónuna. Þar sem þeir séu nú sömum megin við borðið, enda í samskonar stöðu, sé ekki undarlegt að gengið lækki mikið. „Þetta sýnir glöggt fram á það, sem var kannski vitað fyrir, að gjaldeyrismarkaður með krónuna er nánast handónýtur.“ Gylfi segir að aukinn gjaldeyris- forði Seðlabanka Íslands muni lík- lega styrkja gengi krónunnar, en eins og fram hefur komið bíður Seðlabankinn eftir réttum aðstæð- um til að taka gjaldeyrislán sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Ekki að fella gengið viljandi  Forstjóri Glitnis segir veika krónu ekki hagsmunamál bankanna Græða á gengi Bank- arnir græddu mikið á veikingu krónunnar á öðrum ársfjórðungi. ➤ Krónan styrktist um 4% í gær,og var lokagildi gengisvísitöl- unnar 161 stig. ➤ Gengisvísitalan hefur verið ísögulegum hæðum í vikunni, en há vísitala þýðir lágt gengi. SÖGULEG LÆGÐ MARKAÐURINN Í GÆR              !" ##$                     !"   # $   %   &"  '()*+ '  , -. /0.  "1  2      345  "!  ! 61 ! (""  (7/  /81  +9 "0  1- -  :  -       ;" 1        -0   !  "                                                         :-  - <  = # ' >?5?4@3 33A4BB?C> CD?4@ABD4 D3B>>54D? D5DC5? ?AC5AA >>A?4D>454 BC33BDB3A 4CBB@>B3 >4@BC3C4 >C>4@44>A , 3A>34B? >43?3 3>?AAC5A 35@4?>5 A C?A?@A 4>3?4D@ , , , >4C>45AAA >?4??DA , 4EBC 3AE3A ?EA4 >4EAA >BE3A >5EDA @DBEAA C3E>5 DAE3A 3E4C >AEAA CEA5 DCE>A >E>5 @EA5 >D>EAA >54AEAA C?CEAA >BAEAA , , , 5C?AEAA >AEAA , 4EB? 3AE@5 ?E>A >4EA5 >BEB> >4EA5 @D@EAA C3E35 DAE@A 3E45 >AEAB CEA4 D3EAA >E>D @E>A >DBEAA >545EAA C?4EAA >BCEAA CCEAA , ?E5A 535AEAA , 5E5A /0  - 3 BC BA C5 @ > DB BA ? D CD , 3 C B ? , C >3 , , , >> > , F" - "- C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? CB4CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? C54CAA? CB4CAA? C54CAA? C54CAA? >34CAA? 4>CCAA@ 34CAA? C54CAA? CA4CAA? @3CAA? ● Mestu viðskipti í Kauphöllinni í gær voru með bréf í Kaupþingi Banka, fyrir 1,1 milljarð. Næst- mest voru viðskipti með bréf í Glitni, fyrir rúmar 900 millónir. ● Mest hækkuðu bréf Icelandair Group, um 1,90%. ● Mest lækkuðu bréf í Century Aluminium, um 5,93%. Bréf í Bakkavör lækkuðu um 5,61%. ● Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,45% í gær, og var lokagildi hennar 4.520 stig. Samnorræna OMX-vísitalan lækk- aði um 0,62% í gær. Þýska DAX- vísitalan styrktist um 1,2% og breska FTSE-vísitalan UM 0,6%. ● Íslenska krónan styrktist um 4% í gær, og stóð gengisvísitalan í 161 stigi í lok dags. Glitnir kynnti í gær Save&Save reikning sinn hér á landi og í Nor- egi. Á sama tíma var stofnsettur Glitnir Globe - Sustainable Future Fund sjóðurinn, en Glitnir greiðir árlega 0,1% ofan innistæðu á Save&Save reikningnum, og renn- ur upphæðin í sjóðinn. Sjóðnum er ætlað að efla rannsóknir á sviði sjávarútvegs og endurnýtanlegrar orku. Lárus Welding, forstjóri Glitnis, sagði er reikningurinn var kynntur að bankinn þurfi, eins og aðrir bankar um þessar mundir, að leggja aukna áherslu á innlán. Þá hafi bankinn lagt áherslu á fjárfestingu í sjávar- útvegi og endurnýjanlegri orku, og hinn nýi reikningur sameini því þessi áherslumál. „Við erum að minna á að Ísland er með mikla sér- stöðu í sjávarútvegi og endurnýjanlegri orku. Ég held að það sé ágætt að muna að þetta eru okkar stærstu útflutningsgreinar.“ hos Stofna umhverfissjóð Volvo, sem er í eigu bandaríska bílaframleiðandans Ford, hyggst segja upp 1.200 starfsmönnum í Svíþjóð. Uppsagnirnar eru liður í hagræðingu í rekstri en félagið ætlar að minnka kostnað um fjóra milljarða sænskra króna, 55 milljarða íslenskra króna. Á vef Dagens Nyheder kemur fram að uppsagnirnar bitni verst á starfsmönnum Volvo í Gauta- borg og Olofström en þegar hefur verið tilkynnt um hluta uppsagn- anna. Þá segir Volvo upp samn- ingum við um 500 ráðgjafa og 300 starfsmenn um allan heim. Fredrik Arp, forstjóri Volvo, segir uppsagnirnar lið í aðgerðum fyr- irtækisins við að bregðast við erf- iðum aðstæðum á markaði. Tap Volvo á fyrsta ársfjórðungi nam 151 milljón Bandaríkjadala, 12,5 milljörðum króna. mbl.is Volvo segir upp 1.200 manns „Búast má við að atvinnuleysi aukist með haustinu,“ segir Ólaf- ur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ. „Við höfum orðið vitni að uppsögnum að undanförnu auk þess sem samdráttur í landsfram- leiðslu og kaupmáttarskerðing munu stuðla að samdrætti.“ Hag- deild ASÍ gerir ráð fyrir versn- andi atvinnuástandi til 2010 þeg- ar atvinnuleysi verði 3,6% yfir árið að meðaltali en mismikið eftir atvinnugreinum. aak 3,6% án vinnu Spá greiningardeildar Glitnis um lækkun íbúðaverðs er óbreytt þrátt fyrir nýlega kynntar aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem ætlað er að hleypa lífi í fasteignamarkaðinn. Greiningardeildin spáir því að íbúðaverð lækki um 7% að nafnverði í ár. „Við teljum þó ekki að aðgerðir rík- isstjórnarinnar séu bitlausar, þvert á móti teljum við að þær muni varna frekari kólnun á íbúðamarkaði [...],“ sagði í Morgunkorni grein- ingardeildar bankans í gær. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar komi fyrst og fremst til móts við þann vanda sem stafar af lausafjárþurrð á íbúða- lánamarkaði, sem sé þó ekki það eina sem hrjái íbúðamarkaðinn. „Ekki má gleyma þeim áhrifum sem aukið atvinnuleysi, minnkandi kaupmáttur og aukin svartsýni neytenda hefur. Þá spilar mikið fram- boð íbúðahúsnæðis einnig stórt hlutverk í þeirri þróun sem fram- undan er og eykur þrýsting til verðlækkunar.“ hos Spá enn 7% lækkun íbúðaverðs Krónan styrktist um 4% í gær og var lokagildi gengisvísitölunnar 161 stig en það var 168 stig við opnun markaða. Gengi banda- ríkjadals er 80 krónur, gengi evru er 125 krónur og pundið er kom- ið niður í 158 krónur. mbl.is Styrktist um 4%

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.