24 stundir - 26.06.2008, Síða 32

24 stundir - 26.06.2008, Síða 32
Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Íslendingar flykkjast út á þjóðveg- ina á þessum árstíma enda margir sem nota sumarfríið til að ferðast um landið sitt ásamt fjölskyldu eða vinum. Slík ferðalög eru ekki alltaf tekin út með sældinni einni því að þeim fylgir gjarnan mikil kyrrseta í loftlitlum og þröngum bílum. Gígja Gunnarsdóttir, verkefnis- stjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, segir að langvarandi kyrrseta í bíl geri fólki yfirleitt ekki gott og geti valdið syfju og stirðleika. Meiri hreyfiþörf barna Til að ferðalagið verði ánægju- legra mælir Gígja með því að ferða- menn taki hlé frá akstrinum öðru hverju á leiðinni og nýti það til að koma blóðinu á hreyfingu og teygja úr sér. „Það er sérstaklega mikil- vægt að ökumaðurinn taki sér hlé til að hreyfa sig til að hann eigi auðveldara með að einbeita sér að akstrinum,“ segir Gígja. Það er einnig mikilvægt að þeir sem ferðast með börn í bílnum geri ráð fyrir nokkrum stoppum á leið- inni. Börn hafa meiri hreyfiþörf en fullorðnir og finna fljótt til eirð- arleysis og þreytu í aftursætinu. „Börnin stytta sér oft stundir með spilum eða tölvuleikjum en fólk ætti ekki aðeins að miða afþrey- inguna við tímann sem er varið inni í bílnum. Það getur líka verið gott að taka með bolta, frisbídiska eða önnur leikföng sem er hægt að nota nánast hvar sem er,“ segir Gígja og bendir á að þá sé upplagt fyrir fjölskylduna að fara í leiki saman. Sundlaug í hverjum bæ Gígja bendir enn fremur á að í flestum sveitarfélögum sé að finna sundlaugar þar sem þreyttir ferða- langar geti þvegið af sér ferðarykið um leið og þeir hreyfa stirða liðina. „Fólk ætti líka að nýta sér þá möguleika til hreyfingar sem um- hverfið býður upp á. Ef það er fjara á leiðinni er hægt að stoppa þar, ganga um og fleyta kerlingar eða farið í stuttar gönguferðir um áhugaverða staði,“ segir Gígja að lokum. Bolti í farangrinum Gott getur verið að hafa sippuband, bolta, fris- bídisk eða önnur leikföng með í far- angrinum á ferðalagi. Regluleg hreyfing er mikilvæg á löngum ferðalögum Hress og fersk á áfangastað Langvarandi kyrrseta í bíl getur leitt til stirðleika og þreytu ferðalanga. Með því að taka hlé frá akstri öðru hverju til að hreyfa sig og anda að sér fersku lofti hressist maður við og nýtur ferðalagsins betur. Það á ekki síst við um börn sem hafa meiri hreyfiþörf en fullorðnir. ➤ Mikilvægt er að gefa sér tímatil að nærast vel á leiðinni. Upplagt er að taka hlé til að matast og hreyfa sig. ➤ Ferðalangar ættu að drekkamikið af vökva en takmarka sætindaát enda getur það ýtt undir eirðarleysi hjá börnum. ➤ Í stað þess að borða ruslfæði ívegasjoppum má smyrja hollt og gott nesti. Það er líka ódýrara. ➤ Gott er að hafa föt til útiverutil taks í bílnum. Munið að allra veðra er von á Íslandi. RÁÐ FYRIR FERÐALAGIÐ 32 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir Gönguferðir eru góður og ódýr kostur til heilsueflingar á meðan maður er á ferðalagi. Þær eru einnig upplögð leið til að kynnast nýjum og framandi slóðum. Náttúra Íslands býður upp á óþrjótandi möguleika til göngu- ferða, hvort sem fólk kýs að ganga í hægðum sínum á strönd- inni eða klífa hæstu fjöll. Góður útbúnaður Ef menn stefna á gönguferðir í fríinu er betra að búa sig vel. Góðir gönguskór eru að sjálf- sögðu ómissandi og það borgar sig að vanda valið á þeim. Annar útbúnaður er ekki síður mik- ilvægur svo sem hlífðarföt og létt- ur bakpoki til að geyma þau í ásamt nesti. Þá má ekki gleyma að fylgjast vel með veðurspá og láta aðra vita af ferðum sínum og áætluðum komutíma. Fyrir alla fjölskylduna Það besta við gönguferðir er að þær bjóða upp á skemmtilega samveru með vinum eða fjöl- skyldu. Það verður aðeins að gæta þess að leiðin reynist minnstu fótunum ekki of erfið. Gengið í ferðalaginu Ef menn hafa gaman af því að hjóla sér til heilsubótar getur ver- ið góður kostur að taka reiðhjólið með sér í sumarfríið. Með því að kaupa sérstakar hjólafestingar á bílinn getur maður flutt hjólhest- inn með sér hvert á land sem er. Þegar maður er búinn að tjalda eða koma sér fyrir á hótelher- bergi er síðan hægt að leggja bíln- um og hjóla um nágrennið. Hægt er að fá festingar fyrir tvö eða fleiri hjól og kosta þær ódýrustu undir 10.000 krónum. Reiðhjólið tekið með í ferðalagið LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is heilsa AFTER SUN frá Aubrey Organics er rakagefandi, mýkjandi og græðandi krem. Án allra aukefna og 100% náttúrulegt. – Hentar allri fjölskyldunni. ÚTSALA 30-70% afsláttur Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum Fákafeni) www.gala.is • S:588 9925 Opið 11-18 og 11-16 lau. F i r ð i . H a f n a r f i r ð i . 2 . hæð . s ím i 5 5 4 . 1 2 0 0 ÚTSALAN ER HAFIN KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUP Skólavörðustíg 21a Njálsgötumegin S. 551 4050 Fyrir brúðhjónin Úrval af vönduðum sængurfatnaði Nesbyggð ehf óskar að ráða pípulagnameistara. Starfssvið meistarauppáskrift, verkstjórn og almenn pípulagnavinna. Hjá Nesbyggð starfa 4 til 6 píparar og eru næg verkefni framundan. UPPLÝSINGAR GEFUR PÁLL Í SÍMA 840 6100 Auglýsingasíminn er 510 3744 stundir

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.