Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 32
32 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is P áll Stefánsson, Kristján B. Jónasson og Halldór Lár- usson hleyptu fyrir einu og hálfu ári af stað ljós- myndaverkefninu Knatt- spyrnuálfan Afríka. Markmiðið er að draga fram nýja og jákvæða mynd af Afríku með því að sýna hve hlutverk knattspyrnu í daglegu lífi Afríkubúa er fyrirferðarmikið og að íþróttin geti verið táknmynd þess krafts sem býr í þjóðum álfunnar. Ætlunin er að ferðast til 15 Afríku- landa þar sem Páll tekur myndir af knattspyrnuiðkun heimamanna, en það er þriðjungur af löndum álfunnar. Kristján og Halldór aðstoða ljós- myndarann í ferðunum og vinna að því að búa verkefnið í hendur útgef- enda um allan heim. Gerð verður ljós- myndabók þar sem afrískir höfundar skrifa um hlutverk knattspyrnu í heimalöndum þeirra og álfunni allri og koma á út í tengslum við heimsmeistarakeppnina í fótbolta í Suður-Afríku árið 2010. Verkefnið er nú hálfnað því sjö lönd eru að baki. Fyrsta ferðin var farin í maí 2007 til Kamerún og síðan rak hver heimsóknin aðra með tilheyrandi myndaseríum, en áætlað er að verk- efninu ljúki vorið 2009. Markmið ferðanna er alltaf hið sama, að mynda fjölbreytileika og kraft afrískrar knattspyrnu. „Við vilj- um sýna þá mynd sem í raun blasir við í löndum Afríku,“ segir Páll. „Hungursneyð, borgarastyrjöld og önnur neyð eru ekki daglegt brauð langflestra Afríkumanna. Myndunum er ætlað að sýna þann jákvæða kraft sem maður skynjar í löndum Afríku. Flestir Afríkubúar tengja sig ekki við þá mynd sem er dregin upp af þeim í vestrænum fjölmiðlum.“ Myndir á sýningu hjá SÞ Hluti af myndunum var sýndur nú í júní á ljósmyndsýningu í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York á vegum fastanefndar Íslands. Sýn- ingin var fyrst og fremst ætluð fasta- fulltrúum og starfsfólki SÞ en þeir fé- lagar segja að hún hafi verið mjög mikilvæg fyrir verkefnið. Sérstaklega voru þeir forvitnir um viðbrögð Afr- íkumannanna. „Við fengum einfald- lega staðfestingu á því að tilraun okk- ar til að segja frá Afríku á forsendum íbúanna sjálfra hefur tekist. Um leið opnuðust okkur ýmsar dyr í þeim löndum sem ætlunin er að fara til á næstunni,“ segir Halldór Lárusson. „Fótbolti er alls staðar í Afríku, “ segir Kristján B. Jónasson. „Afr- íkubúar líta á heimsmeistarakeppnina árið 2010 sem stórsigur fyrir ímynd álfunnar því í nokkrar vikur beinast augu alls heimsins að Afríku og afr- ískri knattspyrnu. Nú leika yfir 6000 Afríkubúar með evrópskum fé- lagsliðum og stóru liðin sigta út næstu kynslóð afburðaleikmanna í helstu fótboltalöndum álfunnar. Framtíð fót- boltans er án efa óhugsandi án Afr- íku.“ Heiðursgestur fellur Félagarnir segja ferðirnar til Afr- íku hafa verið mikið ævintýri: „Við höfum komið í þorp sem enginn hvít- ur maður hefur stigið fæti svo elstu menn muna og við höfum komið í þorp þar sem krakkarnir benda og öskra: White Man!“ segir Páll. „En við brjótum ísinn með því að sýna fót- boltanum áhuga. Fólkið finnur að það á eitthvað sameiginlegt með okkur og leið skapast forsendur til að taka myndir og eiga góð samskipti. Eng- inn okkar er fanatískur knattspyrnu- áhugamaður, raunar langt í frá, en við erum allir heillaðir af því sem við sjáum á afrískum fótboltavöllum. Orkan er gríðarleg. Leikmennirnir virðast algerlega gleyma sér. Boltinn er kannski bara hnykill úr þurrk- uðum greinum. Enginn er í takkas- kóm, sumir eru í einum skó og hafa hann á skotfætinum. Mörkin eru net- laus og vellirnir eru holóttir eða úr gljúpum sandi. En fótboltinn er spil- aður af ótrúlegri ástríðu og leikgleði.“ Þeir hafa lent í alls kyns furðu- legum aðstæðum, meðal annars verið boðin apa- og skógarrottukássa í regnskógum Kamerún, sem þeir reyndar afþökkuðu og sjá ekki eftir því. Páli og Halldóri var líka boðið að vera heiðursgestir á mikilli þorpshá- tíð í hálöndum Kamerún. „Þegar við komum á staðinn sátu um 200 manns undir stóru tré og hlýddu á þrjá höfðingja halda tölu,“ segir Halldór. „Ég var leiddur upp á pall og til sætis á stól við hliðina á öld- ungunum. Um leið og ég settist féll stóllinn saman svo ég datt aftur fyrir mig og lá þarna afvelta eins og sann- ur heiðursgestur með fæturna upp í loft. Viðstaddir veltust um af hlátri en höfðingjarnir fipuðust merkilega lít- ið.“ Alls ólík stemning var þegar þeir komu til eyjarinnar Zanzibar í Tan- saníu. „Þarna er ein fallegasta strönd í heimi,“ segir Páll. „Það var tekið að rökkva þegar okkur bar að og við horfðum yfir snjóhvíta ströndina, baðaða í stórkostlegri kvöldbirtu og hugsuðum með okkur að nú vantaði ekkert nema fólk í fótbolta. Í sömu svipan komu tíu masai-stríðsmenn hlaupandi í fullum skrúða og byrjuðu að spila af miklum móð í flæðarmál- inu. Það hefði ekki verið hægt að svið- setja þetta. Þetta var einfaldlega of ótrúlegt.“ Ævintýri á bögglabera Páll er orðinn allkunnugur löndum Afríku, en hann vinnur einnig að því að taka myndir af stöðum í álfunni sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. „Ég hafði verið nokkuð lengi einn á ferð. Það er auðveldara að vera einn þegar maður tekur myndir af bygg- ingum því þær eru jú kyrrstæðar. Nú var komið að lokaáfanga sem var sá frægi staður Timbúktú í norðurhluta Malí. Þangað er langur vegur og ég ætlaði að fljúga frá Mopti í miðhluta landsins. Það hafði verið gríðarlega erfitt að fá miða í þetta flug. Mér var sagt að vélin væri algerlega yfirbók- uð. Síðan kemur að brottfarardegi og ég hafði hugsað mér að taka leigubíl út á flugvöllinn í Mopti. Eini starfandi leigubílstjóri bæjarins hafði hins veg- ar krækt í stóran túr daginn áður og var dottinn í það og því bauðst næt- urvörðurinn til að hjóla með mig sitj- andi á bögglaberanum á vind- og gíralausu hjóli, sjö kílómetra leið. Þetta byrjaði svo sem ágætlega en svo kom sólin upp, mér varð illt í bossanum og maðurinn byrjaði að svitna og ég að efast. Þarna var ég á vegum UNESCO en var nú orðinn að hræðilegum hvítum nýlenduherra. Þegar kílómetri var eftir af leiðinni var malbikið á þrotum. Ég ákvað að þyrma manni og rassi og gekk því síð- asta spölinn. Hins vegar var ekkert lífsmark í flugstöðinni og á mig runnu tvær grímur. Ég barði þar allt að ut- an uns loks kom skúringakall og hleypti mér inn í mannlausa bygg- inguna. Þremur mínútum fyrir brott- fararstund birtist svo hundrað manna þota á himninum, bara allt í einu, og húrraði niður eins og steinn. Land- gangur var töfraður fram eins og fyr- ir kraftaverk. Út á hann gekk flug- stjórinn og kallaði: Mr. Stefánsson, Mr. Stefánsson. Ég hljóp upp í vélina og í henni sat einn einasti farþegi. Við vorum tveir í yfirbókaðri vél til Tim- búktú.“ Páll og Kristján leggja brátt af stað til Búrkína Fasó og Malí. „Nú er regntími og miklir sumarhitar og þar sem þessi lönd eru í hópi fátækustu ríkja heims eru fæstir vegir malbik- aðir. Við búumst við drullu,“ segir Kristján. „Maður er samt titrandi af tilhlökkun,“ bætir Páll við. „Maður fær Afríkuveiki. Það er allt svo óþægilega rólegt í Evrópu. Ég hef ákveðið að flytja í þjónustuíbúð í Kaíró þegar ég hef aldur til. Það er alltaf eitthvað að gerast í 20 milljón manna borg.“ Ljósmynd/Páll Stefánsson Á ströndinni Fótbolti er alls staðar og er spilaður af ástríðu og leikmennirnir gleyma sér. Ljósmynd/Páll Stefánsson Að leik Hlutverk knattspyrnu í daglegu lífi Afríkubúa er fyrirferðarmikið. Ljósmynd/Páll Stefánsson Með boltann Knattspyrnumaður framtíðarinnar sýnir fimi sína. » „Myndunum er ætl-að að sýna þann já- kvæða kraft sem maður skynjar í löndum Afr- íku. Flestir Afríkubúar tengja sig ekki við þá mynd sem er dregin upp af þeim í vestrænum fjölmiðlum.“ Fótboltaástríða Afríkubúa fest á mynd Páll Stefánsson, Krist- ján B. Jónasson og Halldór Lárusson ferðast um Afríku og vinna að gerð ljós- myndabókar um knatt- spyrnu í álfunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristján, Páll og Halldór „Við erum allir heillaðir af því sem við sjáum á afrískum fótboltavöllum.“ Saman hafa þeir félagar stofn- að fyrirtækið PHK-Books sem er framleiðandi bókarinnar, selur hana tilbúna til útgefenda um allan heim og heldur utan um sýningarhald fyrir verkefnið. Löndin voru valin með tilltiti til þess hvar þau stóðu á styrk- leikalista FIFA, alþjóða- knattspyrnusambandsins, og að komið væri við í öllum hlutum álfunnar. Ljósmyndabókin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.