Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud- laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Í UNDIRBÚNINGI er að hefja smíði á járn- brautarlestarvagni á Íslandi. Þetta kann að hljóma undarlega, en þeim sem starfa í Málm- og véltæknideild Borgarholtsskóla er full alvara. Deildin tekur nú þátt í verkefninu „Train for Eur- ope“ á vegum Comeniusar-samstarfsins. Mark- mið þess er meðal annars að styrkja samstarf skóla í Evrópu. Verkefnið felst í hönnun og smíði járnbrautarlestar í verkmenntaskólum í Evrópu og taka 25 skólar þátt í því. Hannar hver skóli sinn vagn og smíðar en allir vagnarnir verða tengdir saman í Brussel að vori 2009. „Í lok apríl á næsta ári hittumst við í Brussel og þar verður allt sett saman og keyrðir einn eða tveir hringir,“ segir Aðalsteinn Ómarsson, renni- smiður og kennari, en hann er annar verkefn- isstjóra verkefnisins. Hann segir nemendur hafa hannað lestarvagninn á liðinni vorönn undir hand- leiðslu verkefnastjóranna. Í haust hefst undirbún- ingur og smíði vagnsins en við hana verða notuð tölvustýrð tæki sem skólanum áskotnuðust fyrir skömmu. Hann segist ekki viss hve margir muni koma að verkefninu en reiknar með að fleiri en 40 nemendur í framhaldsnámi málm- og vél- tæknideildarinnar taki þátt. Borgarholtsskóli mun ásamt fleiri skólum hanna hjólabúnað vagnanna og einn vagnanna sem draga mun alla lestina. Að auki er skólinn í forsvari fyrir hönnun lestarteina. Lestarsporið verður tæpir 19 metrar og samsett verður lestin yfir sex metra löng en hver vagn verður um 25 cm langur. Mikill fengur Í maí síðastliðnum barst málm- og vél- tæknideild Borgarholtsskóla vegleg gjöf. Kaup- þing, með stuðningi véladeildar Heklu og Félags vélstjóra og véltæknimanna, gaf deildinni Perk- ins-ljósavél sem bankinn hafði ekki lengur not fyr- ir. Auk þess gaf fyrirtækið Hafás deildinni stýri- búnað. Mun þessi fengur koma sér vel fyrir kennsluna og efla deildina. Járnbrautarlest smíðuð í Grafarvogi Í HNOTSKURN » Við málm- og vél-tæknideild Borgarholts- skóla er kennd rennismíði, blikksmíði, stálsmíði og vél- virkjun. » „Train for Europe“ erstærsta verkefni Comenius- ar-samstarfsins hingað til og veltir það um 35 milljónum króna. » Angela Merkel, kanslariÞýskalands, hefur sýnt verkefninu áhuga og standa vonir til að hún verði viðstödd þegar lestin verður sett saman. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Borgarholtsskóli Nemendur hafa hannað lest- arvagn sem tengdur verður öðrum í Brussel. „ÞETTA er íslensk fjölfætla með fálmara,“ segir Ólafur Guðmundsson, leikstjóri Götuleikhússins. Fjölfætlan liðaðist um götur Reykjavíkur í gær, vegfarendum til mikillar gleði. „Fólk var gríp- andi í fálmarana, að snerta hana og velta fyrir sér hvað þetta væri,“ sagði Ólafur um við- brögðin. „Svo heyrðust skrítin hljóð frá henni eins og hún væri að bulla endalaust.“ Hitt húsið rekur Götuleikhúsið í tvo mánuði í sumar. Tíu ungmenni á aldrinum 16-25 ára taka þátt í starfinu að þessu sinni, 9 stelpur og einn strákur. andresth@mbl.is Morgunblaðið/Ómar „Íslensk fjölfætla með fálmara“ í miðborginni Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is ALCOA skoðar nú hvort hægt sé að byggja stærra álver á Bakka við Húsavík en í upphafi var ætlað. Fyrstu drög að matsáætlun vegna álversins voru auglýst í júní síðast- liðnum og var þá miðað við að fram- leiðslugeta þess yrði 250.000 tonn á ári miðað við virkjanlega orku á svæðinu. Í gær hóf Alcoa svo kynn- ingu á endurskoðuðum drögum að tillögu um matsáætlun, þar sem gert er ráð fyrir að álverið geti verið mun stærra, með framleiðslugetu allt að 346.000 tonnum. Áhuginn alltaf til staðar Lengi hefur legið fyrir að hjá Al- coa sé áhugi á því að nýta meiri orku á Bakka ef hún finnst, umfram þau 400 megavött sem gert hefur verið ráð fyrir. Að sögn Kristjáns Þ. Hall- dórssonar, verkefnisstjóra sam- félagsmála hjá Alcoa á Norðurlandi, er ákveðið að stíga skrefið lengra nú í kjölfar innsendra athugasemda sem bárust við fyrstu drögin. „Það komu athugasemdir meðal annars frá sveitarfélögum í Þingeyjarsýslu þar sem í raun var óskað eftir því að við skoðum strax umhverfisáhrif af stærra álveri, þannig að menn viti þá strax hvað það þýðir ef álverið verð- ur á einhverjum tímapunkti þetta stórt.“ Álíka stórt og Fjarðaál Álverið á Bakka verður þá sömu stærðar og álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði en Kristján segir ekki hægt að fullyrða hversu mikið um- svifin myndu aukast með stækk- uninni. Ljóst er þó að þörf verður fyrir fleira starfsfólk, upphaflega var gert ráð fyrir um 300 störfum á Bakka, en á Reyðarfirði starfa hins- vegar 450 manns. Þá nefnir Kristján sem dæmi að fyrir 250 þúsund tonna álver þurfi um 850 metra kerskála, en fyrir 346 þúsund tonn eins og í Fjarðaáli séu kerskálarnar um 1.100 metrar. Aðspurður hvort Alcoa horfi til Skjálfandafljóts og Jökulsár austari og vestari eftir orku, eins og Nátt- úruverndarsamtök Íslands vara við, segir Kristján það tómar getgátur. „Það hefur ekki farið fram nein um- ræða af okkar hálfu um slíkar virkj- anir. Við höfum sagt að það sé áhugi á því að nýta hugsanlega meiri orku ef háhitasvæðin hér reynast nógu öflug, eða þá orku af landsnetinu.“ Ekki séu uppi neinar vangaveltur um að álverið stækki enn frekar. Almenningur er hvattur til að koma ábendingum og athugasemd- um á framfæri eigi síðar en 6. ágúst næstkomandi á netfangið arn- or.sigfusson@hrv.is. Stærra álver á Bakka Alcoa hefur nú lagt fyrir drög að nýrri tillögu vegna álvers á Bakka þar sem gert er ráð fyrir allt að 346.000 tonna framleiðslugetu sem er sambærilegt við Fjarðaál Náttúruverndarsamtök Íslands brugðust við tilkynningu Alcoa um stækkun álversins á Bakka með því að benda á að álver sem væri sömu stærðar og Fjarðaál krefðist líka virkjunar sömu stærðar og Kárahnjúkavirkjun. Til þess að þessi áform geti orð- ið að veruleika segja Náttúru- verndarsamtökin að virkja þyrfti Skjálfandafljót og hugsanlega einnig Jökulsár austari og vestari í Skagafirði, miðað við núverandi orkukosti á Norðurlandi. Samtökin krefjast þess að stjórnvöld setji fram skýra nátt- úruverndarstefnu fyrir stóriðjufyr- irtæki að vinna eftir. Sú stefna eigi að byggja á ýtrustu kröfum um náttúruvernd og vera í samræmi við nauðsynlegan samdrátt í út- streymi gróðurhúsalofttegunda. Ný Kárahnjúkavirkjun fyrir norðan LJÓÐASAMKEPPNI fanga á Litla- Hrauni lauk með verðlaunaafhend- ingu í dag. Sigurvegari keppninnar var Ásgeir Hrafn Ólafsson með ljóðið Ástand. Markmið keppninnar var að færa ljóð- listina nær föng- unum og hafa í því skyni ljóða- bækur legið frammi og ljóð verið hengd upp á veggi, borð og jafnvel límd á klósettdyr. Einar Már Guðmundsson las sig- urljóðið og fluttu nokkrir vistmenn tónlistaratriði. Þá var boðið upp á veitingar sem fangar sáu um. Hugmyndin að keppninni kvikn- aði í tengslum við 50 ára ártíð Steins Steinars og fór keppnin því fram undir yfirskriftinni „Steinn í steininum.“ andresth@mbl.is Ljóðrænir fangar verð- launaðir SVO óheppilega vildi til um fimm- leytið í gærdag að tveir bílar rákust saman á hringtorginu á mótum Miðvangs og Hjallabrautar í Hafn- arfirði, til móts við Samkaup. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins slasaðist enginn og er málið til rannsóknar hjá lögreglu. andresth@mbl.is Komust ekki yfir torgið Óhapp Enginn slasaðist í slysinu. HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða dæmdi í gær karlmann um tvítugt í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa hótað tveimur lög- reglumönnum á Ísafirði lífláti. Var honum gefið að sök að hafa hrópað að þeir væru báðir dauðir og yrðu báðir drepnir. Játaði ákærði brotið fyrir dómi. Kristinn Halldórsson héraðsdómari kvað upp dóminn. andresth@mbl.is Í fangelsi fyrir líflátshótanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.