Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er laugardagur 19. júlí, 201. dag- ur ársins 2008 Orð dagsins: Verið því óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar. (Mt. 10,31.) Víkverja finnst stundum eins oghann sé staddur í kvikmyndinni The Fast and the Furious. Sú mynd segir af ungu fólki sem hugsar ekki um neitt nema bíla og eigið útlit og þeysist um götur stórborgar á trylli- tækjum sínum af miklu kæruleysi. Þannig virðist Miklabrautin í augum margra ungra ökuþóra (og -freyja) vera löng og kræsileg kappaksturs- braut sem þeir geta keyrt eins hratt eftir og þeim sýnist á útlitsbreyttu bíldruslunum sínum, sem oftar en ekki eru búnar óþarfa, dýrkeyptu drasli eins og álfelgum og vindkljúf- um. Fátt er nú fyndnara en að sjá slíkar druslur með sportröndum og tilheyrandi gúmmígæjadóti, jafnvel merktar Daytona-kappakstrinum (!) eða einhverju álíka ,,svölu“. x x x Víkverji þarf eina viku í mánuði aðvinna á kvöldin og keyrir þá um miðnæturbil heim til sín, frá Rauða- vatni niður í miðbæ Reykjavíkur. Oft kemur hann við á bensínstöð N1 við Miklubraut, skammt frá BSÍ, vanti mjólk eða annað lífsnauðsynlegt í ís- skápinn. N1 virðist vera hálfgerð fé- lagsmiðstöð á kvöldin, miðstöð fólks sem nýkomið er með bílpróf. Ungir graðfolar reykspóla á vindkljúfandi gervisportbílum sínum á bílastæðinu, 2-3 metra frá bensíndælum, og ung- meyjar skríkja innanhúss með munn- inn fullan af skyndibita, kóki og sæl- gæti. Skiptir þá engu hver er árstíðin, ungviðið leikur sér á öllum árstímum sem er auðvitað gott og gaman. Svo lengi sem það veldur ekki skaða. x x x Þó svo að þetta ungviði sé líklega ímeirihluta til fyrirmyndar virð- ast hinir svörtu sauðir oft á tíðum ófærir um að aka bifreið. Víkverji býr við götu þar sem mörg eru börnin og hámarkshraði 30 km/klst. Oft sér hann unga graðhesta bruna eftir göt- unni á 50-60 km hraða, sem er auðvit- að hrein og klár bilun og verið að leika sér að hættunni. Rússnesk rúlletta. Ef barn hleypur út á götu, t.d. á eftir bolta, þegar slíkur vitleysingur á leið hjá, er ekki að spyrja að leikslokum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 nístingskuldi, 4 tunna, 7 drukknu, 8 fjaldskapur, 9 blóm, 11 magurt,13 hafði upp á, 14 ofhermi, 15 í fjósi, 17 heimskingja, 20 augn- hár, 22 krá, 23 ljúka, 24 sparsöm, 25 hamingja. Lóðrétt | 1 viðarbörkur, 2 rimill, 3 stingur, 4 dolla, 5 spjald, 6 mál- gefin, 10 stórsjór,12 guð, 13 burt, 15 sólgin, 16 vogandi að gera, 18 læst, 19 búa til, 20 forboð,21 haka. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 mikilvirk, 8 grjón, 9 sýpur, 10 auk, 11 sonar, 13 arnar, 15 þvarg, 18 skúti,21 alt, 22 lítil, 23 aldan, 24 mannvitið. Lóðrétt: 2 iðjan, 3 iðnar, 4 vaska, 5 ræpan, 6 uggs, 7 grár, 12 aur, 14 rík,15 þola, 16 aftra, 17 galin, 18 stapi, 19 úldni, 20 iðna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. f4 d5 2. Rf3 e6 3. e3 Bd6 4. b3 Rd7 5. Bb2 Rgf6 6. Be2 c6 7. O–O Dc7 8. c4 O–O 9. De1 b6 10. Rc3 e5 11. cxd5 exf4 12. Hc1 c5 13. e4 Db8 14. Bb5 Re5 15. Bc6 Rd3 16. De2 Rxc1 17. Hxc1 Bb7 18. e5 Bxc6 19. dxc6 He8 20. Rb5 Bc7 21. Dd3 Rg4. Staðan kom upp á sænska meistara- mótinu sem lauk fyrir skömmu í Växjö. Stórmeistarinn Lars Karlsson (2475) hafði hvítt gegn Hans Tikkanen (2437). 22. Rg5! hvítur hótar nú bæði Dd3–xh7 og Dd3–Dd7. Við báðar þessar hótanir verður ekki ráðið. Framhaldið varð: 22…Bxe5 23. Dxh7+ Kf8 24. c7! Db7 25. Rd6! Bxb2 26. Rxb7 Bxc1 27. Dh8+ Ke7 28. Dxg7 hvítur hefur nú gjörunnið tafl. 28…Hf8 29. Rd8 Bxd2 30. Rge6 Be3+ 31. Kf1 Rxh2+ 32. Ke2 Hh8 33. Dxh8 fxe6 34. Rc6+ Kd7 35. Dxa8 Kxc7 36. Re5 Bd4 37. Dc6+ Kb8 38. Rd7 mát. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ófyrirleitni. Norður ♠Á8764 ♥G4 ♦K75 ♣1053 Vestur Austur ♠D109 ♠G3 ♥D8732 ♥K965 ♦1082 ♦DG9 ♣D6 ♣K984 Suður ♠K52 ♥Á10 ♦Á643 ♣ÁG72 Suður spilar 3G. Franski spilarinn Henri Svarc er mættur aftur til leiks, en hann var líka í aðalhlutverki í gær. Svarc opnaði á 1G í suður og makker hans lyfti beint í 3G. Svolítið skrítið að nefna ekki spaðann á nafn, en franskir spilarar eru ein- staklega hændir að þremur gröndum. Útspilið er ♥3. Er einhver von? Ekki á opnu borði, en það má reyna að tæla vörnina til samstarfs. Svarc stakk upp ♥G, drap kóng austurs og spilaði hjartatíu í öðrum slag. Þótt vestur væri margreyndur spilari kom þessi ófyrirleitna spilamennska honum í opna skjöldu. Eftir nokkrar vanga- veltur komst hann að þeirri (röngu) niðurstöðu að Svarc hlyti að eiga ♥9 að baki tíunni. Og dúkkaði ♥10 til að halda sambandi við makker sinn í litn- um. Svarc fríaði spaðann og það dugði í níu slagi – með ♥10! (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ekki örvænta þótt þú hafir enn ekki fundið hinn fullkomna áheyranda sem er upprifinn af hverju orði sem þú mælir. Það verður auðveldar að finna hann í næstu viku. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þótt þú fáir ný ábyrgðarhlutverk, eru þau lítil í samanburði við það sem þú hefur haft á herðum þér undanfarið. Allt verður auðveldara héðan í frá. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það sést hversu mikið sjálfs- öryggi þú hefur. Þú ættir að krefjast meira af fólki, og það mun taka því betur en þú heldur. Láttu vaða, engin takmörk! (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Af hverju virðist sannleikurinn ekki heiðarlegur? Skoðaðu málið í víðu samhengi. Hver sem efi þinn er, er alltaf betra að fá álit sem flestra. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert svo heppinn. Gnægð er til af því sem þú þarfnast. Mundu að gleðjast fyrir því áður en þú pælir í hvað þú þarfn- ast næst. Biddu um hæfilega mikið. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú mætir til lífsins og þú þarf ekki að gera mikið meira en það. Að vera þar sem þú ert er nógu mikið verk í sjálfu sér. Komdu þér bara vel fyrir. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er eins og stjörnurnar hafa út- búð handa þér krem sem slær á stöðugan kláða. Vandamál í sambandi leysast og hinn aðilinn breytist til batnaðar. Skapið verður betra. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú skiptir miklu máli og held- ur áfram að gera það eftir þinn tíma. Þú gefur frá þér svo sterka ást að hún getur teygt sig út yfir alheiminn og eilífðina. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Lífið virðist áskorun eftir að þú kemur heim úr einum af þínum stóru ævintýrum. Gamla rútínan hentar þér ekki lengur. Sýndu þolinmæði. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú getur höndlað hvað sem er. Þú þarft bara réttu tólin. Viðkvæmar til- finningar þarfnast silkihanska. Haltu stillingu þinni á meðan þú finnur lausn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Reyndu að bæta samskipta- munstur þitt og koma frá þér eins ná- kvæmum og réttum skilaboðum og þú getur. Þú ert að skilgreina persónu þína. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Um leið og þú sérð hvað þarf að gerast, breytist þú úr nöldrara í fram- kvæmdaaðila. Þú nærð miklum árangri og niðurstöðurnar verða öðrum leiðar- ljós. Stjörnuspá Holiday Mathis 19. júlí 1970 Þingeyskir bændur fóru í mót- mælaferð í bílalest frá Húsavík til Akureyrar. Þeir voru að lýsa andstöðu við fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir í Laxá. 19. júlí 1974 Varðskipið Þór stóð breska togarann C. S. Forester að ólöglegum veiðum og varð að elta hann um 120 mílur á haf út. Skotið var átta skotum að togaranum og kom leki að hon- um. Skipstjórinn, Dick Taylor, hlaut fangelsisdóm fyrir brotið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist þá… Fjóla Guð- mundsdóttir frá Böðmóðsstöð- um í Laugardal er áttræð í dag, 19. júlí, og tví- burasystir hennar Lilja Guðmunds- dóttir. 80 ára Gunnar Páls- son fv. stór- kaupmaður, Hraunbæ 103, Reykjavík, er átt- ræður í dag, laugardaginn 19. júlí. Gunnar dvel- ur hjá dóttur sinni í Þýska- landi á afmælisdaginn. 80 ára Þrúður Krist- jánsdóttir, fv. skólastjóri í Búð- ardal og á Laug- um verður sjötug mánudaginn 21. júlí. Í tilefni af því tekur hún á móti vinum og vandamönnum sunnudaginn 20. júlí í Dalabúð, Búðardal, milli kl. 16 og 19. 70 ára „ÉG ÆTLA með fjölskyldunni út að borða á Humarhúsið,“ segir fjölmiðlamaðurinn Sindri Sindrason, spurður hvernig hann ætli að halda upp á þrítugsafmælið. Hann segir að ekki standi til að halda veglega veislu um helgina en það sé hins vegar aldrei að vita nema hann haldi veislu þegar líða fer á haustið. Erfitt sé að halda stórveislur að sumri til þegar margir eru í fríi auk þess sem fólki veiti frekar af skemmtun á haustin þegar farið er að rökkva. Fólki veitir eflaust frekar af upplyftingu þá gangi efnahagsspár eftir en þar veit Sindri hvað hann syngur. Eins og margir vita sér hann um viðskiptahluta sjónvarps- frétta Stöðvar 2, Markaðinn, en Sindri er menntaður fjölmiðlafræð- ingur með mikinn áhuga á viðskiptum. Gráðuna fékk hann frá bandarískum háskóla í Búlgaríu og þegar heim var komið hóf hann störf hjá Viðskiptablaðinu. Síðan hefur hann verið hjá Stöð 2 með viðkomu hjá Baugi. Spurður hvort mikið stress fylgi því ekki að vera í beinni útsendingu segir Sindri það venjast furðufljótt þó vissulega komi tímar þar sem hann er undir miklu álagi. Viðskipti og fjölmiðlar eru þó ekki einu áhugamál Sindra en hann hefur gaman af ferðalögum. Þá spilar hann á píanó en aðaláhuga- málið er þó að njóta einfaldlega lífsins. ylfa@mbl.is Sindri Sindrason þrítugur Heldur veisluna í vetur ;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.