Morgunblaðið - 19.07.2008, Side 4

Morgunblaðið - 19.07.2008, Side 4
4 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FJÓRTÁN lögreglumenn á bílum voru á vakt til að sinna útköllum sl. laugardagskvöld, eins og fram hef- ur komið á síðum Morgunblaðsins. Voru 24 lögreglumenn á vakt í heildina þetta kvöld, ef með eru taldir 6 lögreglumenn í umferð- ardeild, sem sinna umferðareft- irliti, 3 í almennri deild, sem ekki eru á bílum, og 1 á svæðisstöð. Í tilkynningu frá dómsmálaráðu- neytinu kemur fram að alls hafi 44 lögreglumenn verið á vakt aðfara- nótt sunnudags á höfuðborgar- svæðinu, þegar mest var. Í þeirri tölu eru lögreglumenn í almennri deild sem sinna útköllum auk þeirra sem starfa á skrifstofu, 2 lögreglumenn frá umferðardeild, 6 sérsveitarmenn sem sinna verk- efnum á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum auk 5 lögreglumanna hjá fjarskiptamiðstöð ríkislög- reglustjóra, en þeir sinna landinu öllu, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „ÞAÐ ER forgangsmál hjá núver- andi borgarstjórnarmeirihluta að auka öryggi borgarbúa. Ég lagði á það áherslu á fundinum að löggæsl- an í borginni yrði efld og gerð sýni- legri, en ráðherra kvartar undan því, sem við vitum vel, að lögregluna vantar fjármagn,“ segir Ólafur F. Magnússon borgarstjóri, en hann fundaði með dómsmálaráðherra um löggæslu í borginni í gærdag. Dómsmálaráðherra fagnar því framtaki Reykjavíkurborgar að ráða sérstaka menn, miðborgarþjóna, til að auka öryggisgæslu í miðborginni. Var það niðurstaða fundar borgar- stjóra og dómsmálaráðherra að sam- starf af þessu tagi ætti að þróa áfram í samvinnu lögreglu og sveit- arfélaga. Að sögn Ólafs var ekki rætt sér- staklega um hreyfanlega stöð lög- reglu á Lækjargötu, en Ólafur kveðst afar hlynntur því að slík stöð verði tekin í notkun. Nærþjónusta ætti að vera á hendi sveitarfélaganna Minni sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu hafa kvartað undan skertri nærþjónustu eftir samein- ingu lögregluembættanna. Kópa- vogsbær ætlar að bjóða út hverfa- gæslu til að bregðast við vandanum en bæjarstjóri Hafnarfjarðar segist andvígur slíkum hugmyndum því lögreglan sé lögum samkvæmt á hendi ríkisins og ríkið verði að upp- fylla sínar skyldur. „Ég er almennt þeirrar skoðunar að nærþjónusta eigi eftir því sem tök eru á að vera á hendi sveitarfélaganna,“ segir Ólaf- ur, aðspurður hvaða skoðun hann hafi á því að lögregla verði færð til sveitarfélaga. Hverfagæsla kemur aldrei í stað öflugrar löggæslu Ráðherra og borgarstjóri eru sammála um mikilvægi öflugrar lög- gæslu. Ávinningur sé að skipulegu samstarfi lögreglu og borgaryfir- valda. Ráðherra og borgarstjóri ræddu um hverfagæslu til eftirlits með tilteknum svæðum, grun- samlegum eða óeðlilegum manna- ferðum og hópasöfnun unglinga og miðlun upplýsinga um slíkt til lög- reglu. Var ákveðið, að hugað skyldi að gerð samkomulags lögreglu og Reykjavíkur um skipulegt samstarf um hverfagæslu. Voru ráðherra og borgarstjóri samt sammála um að hverfagæsla kæmi aldrei í stað öfl- ugrar löggæslu í borginni. Hverfagæsla ekki í stað löggæslu  Ráðherra fagnar miðborgarþjónum  Borgarstjóri vill stöð á Lækjargötu Morgunblaðið/Árni Sæberg Löggæsla Gengið til fundar við ráðherra. Borgarstjóri leggur áherslu á að efla löggæslu og vill hreyfanlega lögreglustöð í Lækjargötu. „ÞESSI tillaga liggur fyrir sem sameiginlegt Evrópuþing verður að taka afstöðu til. Einstök lönd hafa rétt til að banna þetta hjá sér,“ seg- ir Árni Snæbjörnsson, hlunninda- og jarðræktarráðunautur hjá Bændasamtökunum, um tillögu Evrópuþingsins um bann við sölu selafurða innan aðildarríkja Evr- ópusambandsins. „Það eru nokkuð mörg lönd sem eru búin eða ætluðu að banna inn- flutning í sínum löndum. Þannig að maður er logandi hræddur um að þetta fari í gegn. Þá eyðileggjast þessir markaðir alveg. Grænlend- ingarnir munu fara rosalega illa út úr því. Þeir hafa miklar tekjur af selveiðum, m.a. á mörkuðum í Evr- ópu. Það eru nokkur lönd búin að banna þetta og svo var þetta lagt fyrir Evrópuþingið núna fyrir skömmu. Þannig að það eru vissar þjóðir sem hafa verið að vinna af kappi við að undirbúa þetta.“ Veiddir við Breiðafjörð Aðspurður hvers konar verslun myndi leggjast af yrði bannið að veruleika segir Árni að selskinnin séu seld, meðal annars skinn héðan. Hér á landi sé einkum um að ræða selveiði við Breiðafjörð og Húnaflóa og að lauslega megi áætla að tekjur af skinnasölu til útlanda séu um hálf milljón króna á ári. „Hverfandi“ lítið af landsel sé veitt á Íslandi. Á Grænlandi vegi selurinn hins vegar þyngra í þjóð- arbúskapnum en þorskurinn geri hér á landi. Grænlendingar gjör- nýti selinn, skinnið sé selt, kjötið fari til manneldis og úr selnum séu framleiddar ýmsar heilsuvörur sem fást meðal annars í búðum hér, svo sem sellýsi, sem sé feiknalega hollt. „Þetta er spurning um líf eða dauða fyrir þá.“ Þeir fóru hroðalega út úr því þegar markaðir fyrir skinn í Evrópu eyðilögðust fyrir 30 árum. “ baldura@mbl.is Morgunblaðið/RAX Selir Evrópusambandið vill banna viðskipti með selaafurðir. „Logandi hræddur við þetta“ TVEIR svindlarar hafa verið á ferð um Suðurland og hafa þeir gabbað afgreiðslufólk verslana. Ekki er bú- ið að leggja fram kæru vegna máls- ins. Tilkynnt var í gær að tveir karlmenn hefðu komið í verslun Bónuss á Selfossi og haft fé af af- greiðslufólki. Grunur leikur á að mennirnir hafi leikið sama leikinn annars staðar. Svindlið fer þannig fram að mennirnir taka upp stór seðlabúnt og segjast vilja skipta fénu yfir í tvö þúsund og fimm þúsund króna seðla. Hætta þeir svo við skiptin en tekst á einhvern hátt að halda eftir peningum verslunarinnar án þess að afgreiðslufólk verði þess vart. Tókst mönnunum þannig að svíkja út á fimmta tug þúsunda í Bónus. Gabba af- greiðslufólk ÞRÍR bandarískir fyrrverandi sérsveitarmenn eru staddir á landinu þessa dagana með það að markmiði að koma 55 manna hópi Íslendinga í enn betra form. Um er að ræða svokallaða „Hell Weekend“ námskeið á vegum fyrirtækisins Boot Camp og munu þátttakendur m.a. fara í sjóinn og klífa fjöll, allt án svefns í 36 tíma. Kory Knowles, einn sérsveitarmannanna, segist ánægður með styrk Íslendinganna. Bandarískir sérsveitarmenn þjálfa hóp Íslendinga Morgunblaðið/Brynjar Gauti Án svefns í 36 stundir í æfingaskyni Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is MÉR SÝNIST sem þetta sé svona viku, hálfum mánuði á undan venju- legu ári. Ég held að þetta sé með betri árum sem við höfum upplifað frá því við hófum kornrækt árið 1991, segir Sigurður Ágústsson, kornbóndi í Birtingaholti í Hruna- mannahreppi, um sprettuna í sumar. Sigurður, sem sáði helmingi meira korni í ár en í fyrra, segir að of snemmt sé að áætla hversu mikil uppskeran verði. Nú standi yfir það viðkvæma tímabil þegar ein frost- nótt getur eyðilagt fyllinguna í korn- inu sem er að myndast í axinu og þar með alla uppskeru. Þessu tímabili muni ljúka á næstu tveimur til þrem- ur vikum. Yrkin misgóð en akrarnir góðir Ólafur Eggertsson, kornbóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, tók undir að sprettan í ár væri mjög góð. Kornverðið hefði hækkað umfram framleiðslukostnað, eða um helming frá því í fyrra. Yrkin væru misgóð en akrarnir almennt gróskumiklir. Útlit fyrir afbragðs kornuppskeru í ár Sprettan viku til hálfum mánuði á undan venjulegu ári Í HNOTSKURN »Sigurður Ágústsson korn-bóndi í Hrunamanna- hreppi vonast til að uppskeran verði frá 3,5 til 4,5 tonn á hektara af þurru korni, of snemmt sé þó að áætla það. »Sigurður segir umfangkornræktarinnar fara vax- andi í uppsveitum Árnessýslu, ræktun sé hagstæðari en fyrr. Margir stóðu vaktina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.