Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 17 VERÖNDIN býður Norðlendingum til sannkallaðrar verandarstemmn- ingar að hætti blúsmanna í Miss- issippi forðum, þegar blúsinn var í árdaga. Tónleikar Verandarinnar á Listasumri á Akureyri, verða í Ket- ilhúsinu annað kvöld kl. 20. Þjóðsaga í Mississippi segir að ef blúsmenn bíði við krossgötur í myrkri, þá komi gamli skrattinn Legba og stilli gítar þeirra. Þetta hafi þau áhrif að blúsmenn geti öðl- ast snilligáfu og dáleitt áheyrendur. Sumir segja að Verandarvanir þremenningarnir, gítarleikararnir Björgvin Gíslason og Halldór Braga- son og dr. Róbert Þórhallsson bassa- leikari, hafi einmitt hitt Legba á krossgötum nýverið og ætli að kveða hann í kútinn í Ketilhúsinu annað kvöld, og víst er að þeir kunna að spila blús án hjálpar skrattakollsins. Veröndin böðuð sól Blúsmennirnir Halldór Bragason, Björgvin Gíslason og dr. Róbert Þórhallsson leika á kölska í Ketilhúsinu annað kvöld. Gamli skrattinn Legba kveðinn í kútinn Veröndin spilar Mississippi blús í Ketilhúsinu annað kvöld kl. 20 JÓNA Hlíf Halldórsdóttir er ung listakona sem hefur verið virk í myndlistarlífinu á Akureyri und- anfarin ár og hefur nú innrás sína til höfuðborgarinnar með einkasýningu í 101 galleríi sem hún nefnir Aðlög- un, auk þess að fyrir liggur sýning í D-sal Listasafns Reykjavíkur á næstunni. Meginþema sýningarinnar er leik- ur með form. Þetta er hornlagaður partíhattur sem listakonan lagar að rýminu í ýmsum útfærslum. Málað með gulu á gólf virðist formið sem fjarvíddarteikning, líkt og guli veg- urinn sem liggur til Oz og við enda hans glitrandi glimmertjald sem hyl- ur endavegginn að undanskilinni sjálfsmynd listakonunnar sem, líkt og galdrakarlinn í ævintýrinu fræga, felur sig á bak við grímu. Á ferðalagi eftir gula veginum kynnist maður tveimur ungmennum. Annað þeirra birtist í myndbandi með umrætt form lagað að andliti sínu svo hann líkist einna helst kráku (eins og þær birtast í teiknimyndum) en hinn, ein- hverskonar trúður, hefur verið fest- ur á ljósmynd með formið á milli fót- anna eins og nýstárlegt hjálpartæki ástarlífsins. Í þrívíðri yfirstærð ligg- ur formið á gólfinu sem gjallarhorn viðskiptalífsins sem úr ómar „Mök“. Máski töfraorðið sem þarf til að allt verði eins og á að vera, þ.e. ef ekki dugar að skella saman hælum í þrí- gang og hugsa heim. Jóna leikur skemmtilega með rýmið en að sama skapi er eins og hún hafi ekki alveg ákveðið sig hvort betra væri að vanda sig eða sleppa af sér beislinu. Formheimurinn sjálfur er hins veg- ar vel heppnaður með fagurfræði og fantasíu í fyrirrúmi. Eftir gula veginum Morgunblaðið/Valdís Thor Mök „Máski töfraorðið sem þarf til að allt verði eins og á að vera.“ MYNDLIST 101 gallerí Opið fimmtudag til laugardags kl. 14– 17. Sýningu lýkur 15. ágúst. Aðgangur ókeypis. Jóna Hlíf Halldórsdóttir bbbmn Jón B. K. Ransu Á þessu ári eru öld liðin frá fæðingu Stórvals – Stefáns Jónssonar frá Möðrudal – og af því tilefni hefur Gallerí Turpentine opnað yfirlits- sýningu á verkum hans. Eftir Stór- val, sem einkum er kunnur fyrir bernsk málverk af Herðubreið og hestum, liggur talsverður fjöldi verka sem rúmast auðvitað ekki á einni sýningu en aðstandendur gall- erísins hafið tekið þann pól í hæðina að sýna verk frá upphafi málarafer- ilsins (elstu verkin er frá 1948) þegar Stórval er að leita að sínum tóni, og svo breiddina á ferlinum til ársins 1992, fremur en að sýna eingöngu vinsælustu verkin (Herðubreið og hrossin). Því kann sýningin að koma mörg- um á óvart því þar birtist hinn sjálf- menntaði Stórval sem leitandi lista- maður – næmur fyrir áhrifum úr umhverfinu og þá ekki síst hrær- ingum í myndlist – og nokkuð til- raunakenndur í efnistökum og við- fangsefnum. Nefna má að á sýningunni getur að líta eitt verk sem minnir á geómetríska afstrak- sjón og önnur sem leiða hugann að „nýja málverkinu“, eða einkennast af expressjónískum dráttum. Sum verkanna, einkum þau sem eru á mörkum hins óhlutbundna (líkt og mörg Herðubreiðarverkanna vissu- lega eru), minna á verk þekktra at- vinnumanna, gott ef ein Herðubreið- in hverfur ekki inn í mystískt litaflæmi, dálítið í anda verka sumra bandarískra málara á 6. áratug síð- ustu aldar. Eitt verkanna, sem er fí- gúratíft, er unnið með úðabrúsa í anda graffitís. Stórval málaði gjarn- an á það sem hendi var næst og er efnisáferð verkanna því býsna fjöl- breytt. Viðfangsefnin eru einnig af ýms- um toga og frá ólíkum stöðum á landinu. Aðeins einn veggur er til- einkaður hestamyndum og annar Herðubreiðarverkum. Önnur verk skírskota til mismunandi nátt- úruforma en öll bera þau vitni sér- stæðri form- og litaskynjun. Bestu verk Stórvals miðla innileika, fersk- leika og skapandi hvatvísi sem fáum er gefið. Þótt hann hafi orðið fyrir áhrifum frá Kjarval og fleiri mál- urum, þá er sýn Stórvals samt sem áður frumleg og hefur sjálfsagt hrif- ið ýmsa listamenn. Upphenging verkanna er skemmtilega „gamaldags“ og í anda Stórvals. Á einum vegg er sýning á ljósmyndum eftir Einar Fal Ingólfs- son af listamanninum glöðum í bragði á vinnustofunni, að „signera“ málverk sem bandaríski ljósmynd- arinn og safnari bernskrar mynd- listar, Mary Ellen Mark, hafði ný- verið fest kaup á. Persónuleiki Stórvals kemur þar glöggt fram við aðstæður þar sem hann var í essinu sínu – athafnasamur og umlukinn myndum. Úrval Stórvals Morgunblaðið/Valdís Thor Leitandi „Þar birtist hinn sjálfmenntaði Stórval sem leitandi listamaður – næmur fyrir áhrifum úr umhverfinu og þá ekki síst hræringum í myndlist – og nokkuð tilraunakenndur í efnistökum og viðfangsefnum.“ Anna Jóa MYNDLIST Gallery Turpentine Opið þri.-fö. kl. 12-8, lau. kl. 12-17. Ókeypis aðgangur. Stórval – Yfirlitssýning ein stærstu myndlistarver©laun í heimi kynna 26 norræna myndlistarmenn í listasafni kópavogs – ger©arsafni hamraborg 4 | kópavogi | 19. júní – 10. ágúst opi© alla daga nema mánudaga kl 11 – 17 lei©sögn mi©vikud. kl. 12 og sunnud. kl. 15 www.gerdarsafn.is | www.carnegieartaward.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.