Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 23
krónur. Áður höfðu þau fundið nýja
miðstöð hér heima sem kostaði
jafnmikið og þau borguðu fyrir hýs-
ilinn. „Þetta verður allt svo innilega
manns eigið þegar maður gerir
þetta sjálfur og það er saga á bak
við hvern einasta hlut hérna. Það er
líka svo skemmtilegt að setja mark
sitt á umhverfið,“ segir Sigríður og
býður upp á fljótlegt og ofurgott
nasl. Kóríander sækir hún í mat-
jurtag arðinn.
Hamingjunasl
Rjómaostur
Sæt rauðpiparssósa (Sweet Chilli
Dipping Sauce)
Ferskur kóríander
Tortillaflögur
Rjómaosti skóflað á miðjan disk
og rauðpiparsósunni hellt yfir. Kórí-
ander rifinn og dreift smekklega yf-
ir. Borið fram með tortillaflögum.
Vinnustöðin Hér er að finna allt frá skrúfum til glansmynda. „Nú, svo er
þetta snyrtiaðstaðan mín,“ segir hýsilsfrúin og dregur fram varasalva.
Hugmyndaauðgi Appelsínugula flauelsefnið er gömul gardína sem Sigríður keypti fyrir 20 árum í Fríðu frænku. „Í hýslinum hef ég fundið hlutverk fyrir
gamla hluti sem hafa fylgt mér og eiga svo innilega heima þarna.“ Gamalt koddaver sem móðir hennar saumaði upphafsstafi hennar í verður brátt sett upp
í einn gluggann. Hún lét sauma utan um allar dýnur, en efnið er rúmteppi sem hún keypti í Rúmfatalagernum.
Allt skreytt Sigríður Þóra er að safna töppum til að skreyta hýsilinn að ut-
anverðu. „Það má endilega senda mér tappa svo þetta gangi hraðar.“
Þetta verður allt svo
innilega manns eigið
þegar maður gerir þetta
sjálfur og það er saga á
bak við hvern einasta
hlut hérna. Það er líka
svo skemmtilegt að
setja mark sitt á um-
hverfið
Natni Sigríður málaði hvern einasta
flöt sem hægt var að mála til að
húða og hylja það sem áður var.
Sniðugt! Hér hefur Sigríður Þóra
nýtt gamla tösku frá Birtu dóttur
þeirra. „Ég skrúfaði þetta bara
fast,“ segir hún.
nef með sólarpúðrinu að lokum.“
Hún segir punktinn yfir i-ið síð-
an að nota líka smá bleikan kinna-
lit – brosa þá beint framan í speg-
ilinn svo kinnbeinin sjáist, setja
litinn beint þar á og draga burst-
ann síðan aðeins upp. „Þetta gefur
frísklegt yfirbragð og gerir förð-
unina jafnvel aðeins náttúrulegri,“
segir Helga. „Sjálfri finnst mér
svo flott að dusta létt yfir andlitið
að lokum með fínlegu glitpúðri
eins og Shimmer Brick Compact
sem við notum hjá Bobbi Brown.
Það á alls ekki að vera áberandi,
en gefur andlitinu fallegan ljóma –
svona eins og maður sé nýkominn
inn úr sólinni.“
Andlitið rammað inn Mest áhersla
er lögð á kinnbeinin og andlitið síð-
an rammað inn með léttari áferð af
sólarpúðrinu.
Fyrir andlit og líkama
Sólarpúður í Golden
frá Mac og Sun Che-
rub fyrir andlit og lík-
ama frá Lancôme.
Frískleg sumarförðun
Sólarpúður í Light og
Shimmer Brick Compact
í Bronze frá
Bobbi
Brown.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 23
ÚTI í hinum stóra heimi færist í vöxt
að veitingastaðir bjóði upp á sér-
stakan matseðil fyrir hunda og önn-
ur gæludýr. Á vefmiðli Daily Tele-
graph kemur fram að Bretar séu að
sigla hraðbyri inn í hundamat-
armenninguna, og breskir veitinga-
staðir reyni að lokka viðskiptavini til
sín með því að höfða til hundanna.
Alison Ferhi, eigandi veitinga-
staðarins „The Tempest“, segist
hafa ákveðið að taka opnum örmum
öllum fjölskyldumeðlimum sem vilja
koma að borða á veitingastaðnum.
„Ég áttaði mig á því að hundar eru
hluti af fjölskyldunni. Við erum nú
þegar með barnamatseðil, því ekki
að hafa hundamatseðil líka?“
Af hundamatseðli Ferhi getur
Snati gamli valið sér gómsætan
kjúklingarétt með hrísgrjónum,
grænmeti, sósu og hundakexi, á
meðan siðferðilega þenkjandi nú-
tímahundur heimilisins getur valið
sér grænmetisrétt.
Eiginmaður Alison, Lak Ferhi, á
sjálfur hund og veit því hvað seppi er
sólginn í. „Ég nota olíu í spreybrúsa
svo hundamaturinn verði ekki of
feitur, skelli matnum í ofninn, nota
safann til að gera sósu og bæti svo
grænmetinu og hundakexinu út í
réttinn. Algjört sælgæti.“
Nautasteik og
hundamat, takk
AP
Svangur? Þó að maður sé hundur
er um að gera að klæða sig upp áður
en farið er á veitingastað.
gæludýr