Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 19 fastir í ótta sínum og fyrirfram gefnum hug- myndum. Menn segja að ég hafi selt lögin mín sem er þvæla. Persóna mín, andlit mitt, nafnið mitt hefur verið notað í auglýsingar en ekki lag eftir mig ennþá. Lag eftir Megas er notað í auglýsingu. Það er fínt. Af hverju má Megas ekki hafa eitthvað upp úr því sem hann hefur gert? Músík er bara músík, bæk- ur eru bara bækur, málverk eru bara mál- verk. Það er ekkert heilagt eða ósnertanlegt við þessar listgreinar. Sumir segja að ég hafi svikið málstaðinn. Ég spyr: Hvaða málstað hef ég svikið? Ef ég væri með fimm millljónir á mánuði hjá Björg- ólfunum mætti kannski segja að ég hefði landað góðum samningi. Ég held að þetta tal byggist á öfund og öfund er ótti. Hvernig á maður að leiðrétta svona vitleysu að maður hafi selt lögin sín? Maður gerir það ekki. Það er ekki hægt. Ég hef þroskast með árunum og hef ekki sömu skoðanir á hlutunum og ég hafði tvítugur. Ef menn vilja telja það svik þá þeir um það.“ Á nýju plötunni þinni Fjórir naglar eru lög um Guð. Þú trúir á Guð? „Ég er trúaður. Það þarf ekki að ræða það nánar. Trúin breytti lífi mínu til hins betra þótt heiðingjarnir séu kannski á öðru máli.“ Skiptir engu að vera númer eitt Hversu miklu máli skiptir þig að sem lista- mann að vera númer eitt? „Einu sinni skipti mig miklu máli að vera númer eitt, ég væri að ljúga ef ég segði eitt- hvað annað. Þetta var ótti. Ansi margt sem fólk gerir byggist á ótta. Fólk sem temur sér hranalega framkomu og hranaleg tilsvör er fólk sem er hrætt. Það sama á við um tilfinn- inguna um að vilja vera númer eitt. Sá sem það vill hugsar: Öllum verður að líka við mig. Í dag skiptir mig engu máli að vera númer eitt. Mér er nákvæmlega sama. Ég er mjög sjálfsöruggur og að stærstum hluta til er ég sáttur við það sem ég geri. Og það sem ég geri vil ég gera eins og almennileg mann- eskja og ég vil að það sé merking í textunum mínum, þeir mega ekki vera merkingarleysa. En það sem skiptir mig mestu máli er að ég viti nokkurn veginn hver ég er áður en ég dey. Sumir lifa lífinu án þess að komast nokkru sinni að því hverjir þeir eru. Það skiptir mig líka máli hver verða eftirmæli vina minna og barna. Ég missi hins vegar ekki svefn yfir því að músíkin mín falli í gleymsku þegar ég er farinn.“ Finnst þér nokkrar líkur á að tónlistin þín gleymist? „Ég get ekki svarað því. Einu sinni, þegar ég komst að því að það hafði verið skrifuð um mig BA-ritgerð, fór ég að spekúlera í þessu. Stundum hef ég á tilfinningunni að ég hafi haft áhrif, stundum finnst mér ég hafa haft gífurleg áhrif og stundum finnst mér að ég hafi ekki haft nein áhrif. Stundum finnst mér ég vera óhemjuvinsæll og stundum ekki. Þegar ég fæ bréf frá fólki sem segir að lög og textar mínir hafi breytt líðan þeirra eða jafnvel lífi fyllist ég miklu þakklæti. Ég upp- lifi feril minn sem ævintýri.“ inn hefði sagt honum að hann hefði upplifað sig sem minnipokamann fyrr en ég gerði það. Í ævintýrum, gömlum Riddarasögum, Víki- vökum og þulum fá menn oft þrjú tækifæri. Þeim mistekst í fyrsta skiptið, og jafnvel í annað sinn, en í þriðja sinn eignast þeir kon- ungsdótturina og konungsríkið. Þannig sé ég líf mitt.“ Tapaði á hlutabréfum Þú býrð í fallegu umhverfi. Á dögunum voru haldnir náttúrutónleikar í Reykjavík. Ert þú eins og svo margir listamenn and- stæðingur stóriðjuframkvæmda? „Sá sem býr á Íslandi í íslenskum raun- veruleika á að gera sér grein fyrir því að það eru alvarlegri hlutir að gerast en álvers- framkvæmdir. Við erum að glíma við fátækt, gjaldþrot heimilanna, fjöldagjaldþrot eru sennilega í uppsiglingu og rasismi er vanda- mál. Hvar liggja áherslurnar? Hvort er meiri þörf á því að mótmæla byggingu álvera eða kjörum almennings? Ég hefði viljað sjá Björk og Sigur Rós halda tónleika til að vekja at- hygli á fátækt á Íslandi. Ég er ekki álverssinni, ég gapi yfir þessum lausnum landsfeðranna en ég gapi líka yfir því að enginn af ungu kynslóðinni í tónlist- arbransanum skuli ganga fram fyrir skjöldu og benda á að það verði að vinna bug á fá- tæktinni.“ Þú ert alls ekki á móti öllum stór- iðjuframkvæmdum? „Við verðum að vera raunsæ. Þegar skipið er sokkið og maður svamlar um í sjónum seg- ir maður ekki: Þessi björgunarbátur er ekki nógu góður, ég ætla að bíða eftir þeim næsta. Það er grafalvarlegt ástand á landsbyggð- inni og fjölskyldur flytja þaðan í stórum stíl vegna þess að þar er ekkert atvinnulíf. Ef ég væri venjulegur maður úti á landsbyggðinni sem ætti hús, væri með fjölskyldu og þyrfti að borga reikninga og stæði frammi fyrir því að ekkert nema álver gæti bjargað afkomu minni þá þyrfti ekki að ræða málið. Viljum við atvinnulíf á landsbyggðinni eða viljum við að landsbyggðin verði sumarbústaðanýlenda auðkýfinga?“ Hefur þú tapað peningum á kreppunni? „Já, ég tapaði óhemjupeningum á hluta- bréfum, eins og margir aðrir. Ég tapaði það miklu að ég fór á bólakaf. Auðvitað var það áfall. En ég er ekki á vonarvöl og enn fær um að vinna fyrir mér. Ég finn fyrir kreppunni. Þeir einu sem finna ekki fyrir henni eru þeir sem hafa efni á að tapa. Þeir eru ekki margir. Maður verður fyrir alls konar áföllum í líf- inu en maður gerir þau ekki að þungamiðju lífsins. Peningar eru bara peningar. Ég bý á fallegum stað, á yndislega konu og heilbrigð börn og ég er edrú. Það er þetta sem skiptir mig máli.“ Öfund og ótti Stundum ertu skammaður fyrir að vera ekki lengur í uppreisn, sagt er að þú hafir fjarlægst upprunann? „Þeir sem segja það eru þeir sem eru enn stundir í lífi mínu þar sem mér fannst ég vera á eyðimerkurgöngu en seinna sá ég að sú ganga var leið inn á akrana. Sumir sjá aldrei annað en eyðimörk blasa við sér, trúa því að eyðimerkurgangan sé þeim ætluð og eru þess vegna sífellt á sömu göngunni.“ Skiptir þig máli að vera í hjónabandi? „Ég er mjög gamaldags maður. Mér finnst skipta máli að vera í hjónabandi. Hjónaband er ákveðinn rammi, ákveðin höfn. Ég veit að margir eru mér ósammála, sérstaklega þeir sem eiga hjónaband eða hjónabönd að baki og finnst eins og þeir hafi beðið ósigur. Þegar ég varð ástfanginn af Hrafnhildi og gerði mér grein fyrir því að við ættum líklega eftir að búa saman hafði ég á tilfinningunni að ég væri minnipokamaður. Ég hafði beðið skipbrot í einkalífi og spurði mig hvort þetta samband myndi ekki mistakast líka. Ég spurði mig hvað eftir annað hvað væri að hjá mér, af hverju mér hefði mistekist svona illa? Ég varð að horfast í augu við ótta minn við að mistakast. Presturinn hafði orð á því að hann hefði gift þúsundir manna og þar með karlmenn sem ættu nokkur hjónabönd að baki, en eng- verkum að menn eru endalaust að skrifa og syngja og yrkja um ástina. Að vera ástfanginn er ástand sem varir í einhvern tíma, kannski eitt til tvö ár. Að elska er ákvörðun og að hætta að elska ein- hvern er ákvörðun. Þegar maður tekur þá ákvörðun að elska einhvern þá þarf að vinna í því. Þú spyrð hvað sé öðruvísi. Allt er öðruvísi. Í dag finnst mér ég vera heppnasti maður í heimi. Í lífi mínu finnst mér ég endalaust hafa rambað inn á bleika akra í stað þess að vera einn á eyðimerkurgöngu. Auðvitað voru í heimi Morgunblaðið/Ómar » Þegar ég varð ástfanginn af Hrafnhildi oggerði mér grein fyrir því að við ættum lík-lega eftir að búa saman hafði ég á tilfinning- unni að ég væri minnipokamaður. Ég hafði beðið skipbrot í einkalífi og spurði mig hvort þetta sam- band myndi ekki mistakast líka. Ég spurði mig hvað eftir annað hvað væri að hjá mér, af hverju mér hefði mistekist svona illa? Ég varð að horfast í augu við ótta minn við að mistakast. »Ég tapaði óhemjupen- ingum á hlutabréfum, eins og margir aðrir. Ég tapaði það miklu að ég fór á bólakaf. Auðvitað var það áfall. En ég er ekki á vonarvöl og enn fær um að vinna fyrir mér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.