Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Einar Fal Ingólfsson
og Önund Pál Ragnarsson
VEIÐIMENN á nessvæðinu í Laxá
í Aðaldal hafa veitt afar vel síðustu
daga og allt boltalaxa. Bubbi Morth-
ens var einn veiðimannanna í vik-
unni og segist hann hafa verið í
veislu. „Ég fékk laxa sem voru 20,
16, 15 og 9 pund,“ segir Bubbi.
„Þann stærsta fékk ég á Kirkju-
hólmabroti. Hann var veginn 22
pund í háfnum, sem vó tvö pund.
Hann var 96 cm langur og lúsugur.
Ég fékk alla laxana á litla
black&blue túbu.“ Bubbi, sem er
mikill unnandi Nessvæðisins, sagði
fisk alls staðar á svæðinu og reyndir
Laxármenn sem hafi verið við veiðar
staðhæfi að ástandið hafi ekki verið
svona gott í mörg herrans ár.
Stórlaxaveiðin heldur áfram í
Laxá. Í gær komu 18 og 19 punda
laxar úr ánni og alls hafa nú fimm
laxar yfir 20 pund veiðst.
Einnig hefur frést af löxum yfir
tuttugu pund í Sandá í Þistilfirði og
Hofsá í Vopnafirði.
Mokað upp á Vesturlandi
Af Vesturlandi berast tómar góð-
ar fréttir úr laxveiðinni. Í fyrradag
höfðu 470 laxar veiðst í Elliðaánum
en á sama tíma í fyrra höfðu þar að-
eins veiðst 230. Þessi aukning hefur
orðið þrátt fyrir að kvótinn hafi ver-
ið minnkaður niður í tvo laxa á vakt.
Rúmlega 1.400 laxar hafa farið í
gegnum teljarann í ánni, svo mikið
magn af fiski er nú þar fyrir ofan.
Engu að síður gengu aðeins fimm og
sjö laxar gegnum teljarann und-
anfarna tvo daga, en selur var í ósn-
um. Selurinn var veiddur í fyrra-
kvöld og strax í gærmorgun sáust að
sögn sjónarvotts raðir af laxi á Neðri
Breiðu sem biðu þess að ganga í ána.
Grímsá loðin af laxi
Síðasta holl í Langá veiddi hvorki
meira né minna en 120 laxa. Veiði-
maður sagði mokveiði í Kjósinni en
þar veiddust þrjátíu stykki á morg-
unvaktinni í fyrradag. Sami heimild-
armaður sagði Grímsá „loðna af
laxi“ og þriggja daga holl í Hítará
fékk 76 laxa nú fyrir skemmstu.
Þá hefur veiði í Straumunum í
Hvítá í Borgarfirði og hjá veiði-
félögum á Hvítárvöllum verið afar
lífleg.
Í Leirvogsá, þar sem veitt er á
tvær stangir hefur svo verið sann-
kallað mok að undanförnu. Síðustu
þrír dagar fyrir gærdaginn gáfu þar
23, 16 og 47 laxa á stangirnar tvær,
sem verður að teljast ansi gott.
Ástandið í Laxá ekki verið
jafngott í mörg herrans ár
Ljósmynd/Haraldur Eiríksson
Alsæll Bubbi náði þessum stóra hæng og fleiri stórlöxum í Laxá í Aðaldal.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„ÞAÐ sem mér finnst ótrúlegast er
að fólk sem kemst í þessa stöðu og
er svona einbeitt að misnota valdið
skuli geta það svona auðveldlega,“
segir Gunnar Árnason, lóðareigandi
á Álftanesi, sem sakar bæjarstjórn-
ina um valdníðslu og yfirgang.
Lóðareigendur, sem ásamt Gunn-
ari eru Hlédís Sveinsdóttir og Hen-
rik Thorarensen, keyptu sér lóðina í
Miðskógum 8 á Álftanesi árið 2005.
Ætlun þeirra var að byggja íbúða-
hús á lóðinni en nú, þremur árum
síðar, hefur enn ekki fengist bygg-
ingaleyfi. Hinn 17. júlí var svo sam-
þykkt á bæjarstjórnarfundi nýtt
deiliskipulag, sem bannar að byggt
sé á lóðinni. Í bréfi frá lögfræðingi
lóðaeiganda, Gesti Jónssyni, til bæj-
arstjórnar segir að fyrirhugað deili-
skipulag feli í sér hreina og klára
eignaupptöku og í raun þjófnað, þar
sem ekki hafi verið haft samráð við
lóðareigendur á neinu stigi málsins.
Einkahagsmunir hátt settra
Að sögn lóðareigenda var umsókn
þeirra því sem næst í höfn þegar
bæjarstjórnarskipti urðu á Álftanesi
í maí 2006, en eftir það hafi nýr
meirihluti beitt öllum tiltækum ráð-
um til að hafna byggingaleyfinu.
Ekki fáist betur séð en að það sé
gert til að þóknast tilteknum áhrifa-
manni í bæjarstjórninni, sem býr á
aðliggjandi lóð og mótmælti kröft-
uglega byggingaráformunum þegar
þau voru fyrst lögð fram. „Ég furða
mig á því hvernig samstaðan getur
haldist í bæjarstjórn, gegn fólki sem
hefur ekki framið annan glæp en
þann að kaupa sér byggingarlóð
með löglegum hætti og vilja byggja
sér heimili í bænum,“ segir Gunnar.
Lóðareigendur hafa leitað til
fjölda aðila eftir staðfestingu á því
að Miðskógar 8 hafi talist til íbúða-
byggðar þegar lóðin var keypt. Nú
síðast féll dómur í Hæstarétti hinn
17. apríl þar sem segir að ekki hafi
verið færðar sannanir fyrir öðru en
því að um byggingalóð sé að ræða
samkvæmt gildandi deiliskipulagi
síðustu 25 ára. Sigurður Magnús-
son, bæjarstjóri Álftaness, segir
hinsvegar óútkljáð hvort lóðin sé
innan eða utan deiliskipulags.
„Það liggur ekki fyrir um það
dómur og sveitafélagið á þess kost
að sanna hið gagnstæða í málaferl-
um ef þau verða. Hinsvegar er alveg
ljóst, burtséð frá því hvernig dómur
félli, að sveitafélagið vill ekki að
þarna sé byggt ofan í fjöru svo það
væri skynsamlegast að setjast niður
og athuga hvort ekki næðist sam-
komulag. Ég hefði helst kosið að ná
sáttum í þessu máli.“ Sigurður segir
það hafa verið stefnu meirihlutans
frá upphafi að vernda strandsvæðin
við Álftanes. „Við viljum fylgja eftir
okkar stefnu og það væri ekki í stíl
við hana að leyfa að byggja þarna
niðri í fjöru.“
Landeigendur segjast hafa lýst
yfir vilja til að selja bænum lóðina,
enda langþreyttir á málþófinu, en
þeirri tillögu hafi ekki verið svarað.
„Það er eins og þau séu að bíða eftir
að við verðum fjárhagslega ráðþrota
og hreinlega gefumst upp.“
Lóðareigendur
segjast í gísl-
ingu á Álftanesi
Telja að einkahagsmunir ráði förinni
Morgunblaðið/RAX
Nesið Er gott að búa á Álftanesi?
Í HNOTSKURN
»Miðskógar 8 eru 1.490 m²sjávarlóð í grónu íbúða-
hverfi, en deilt er um hvort
hún sé innan deiliskipulags
»Byggingaleyfi var fyrsthafnað 2006 vegna þess að
húsið væri 20 cm of hátt.
»Lóðareigendur segja aðþeim hafi ekki boðiðst að
lækka húsið og senda inn aðra
umsókn, því þeim hafi í fram-
haldi verið tilkynnt að lagt
yrði bann við byggð á lóðinni.
OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu verðið á
bensíni og dísilolíu í gær, í kjölfar
þess að bensínstöðvar N1 buðu í gær
og í fyrradag upp á fimm króna af-
slátt af eldsneyti á þjónustustöðvum
sínum um land allt. Bættist tilboðið
við 1,20 króna lækkun N1 á bensíni
og dísilolíu á miðvikudag.
Með afslættinum var verðið 170,60
krónur fyrir lítra af bensíni en 188,60
fyrir lítra af dísilolíu.
Sama verð var á afgreiðslustöðv-
um Olíuverzlunar Íslands, Olís, og þá
miðað við verð í sjálfsafgreiðslu.
Svipað verð var hjá Skeljungi, þar
kostaði bensínið 170,7 krónur lítrinn,
en lítri af dísil 188,6 krónur.
Verðið var einnig svipað hjá félög-
unum sem leggja áherslu á sjálfsaf-
greiðslu á stöðvum sínum.
Hjá Atlantsolíu kostaði bensín-
lítrinn 168,90 krónur en lítri af dísil
186,50 krónur. Hjá Orkunni, dóttur-
félagi Skeljungs, var lægsta verðið
161 króna á bensín en 179,4 krónur á
dísil í afgreiðslustöðinni við Hreða-
vatnsskála; algengasta verðið hjá fé-
laginu var hins vegar 168,8 krónur
bensínið og 186,4 krónur dísilolían.
Hjá ÓB bensíni, dótturfélagi Olís,
kostaði bensínið 168,90 krónur og
dísill 186,50 krónur. Hjá EGÓ, dótt-
urfélagi N1, kostaði bensínið 168,90
kr., dísill 186,50 kr. baldura@mbl.is
Eldsneytisverðið lækkar
hjá öllum olíufélögunum
Fylgdu í kjölfar N1 sem lækkaði lítraverðið um fimm krónur
Morgunblaðið/Kristinn
Samkeppni Olíufélögin hafa lækkað verðið í takt frá því N1 reið á vaðið.
Í HNOTSKURN
»Eldsneytið var ódýrast ásjálfsafgreiðslustöð Ork-
unnar við Hreðavatnsskála í
gær, þar kostaði bensínið 161
krónu lítrinn en lítrinn af dísil
179,4 krónur.
ÞESSIR fjörugu krakkar gerðu það eina rétta í stöðunni í blíðviðrinu sem
var í Reykjavík í gær: Hoppa út í Elliðaárnar. Litlu fossarnir eru neðarlega
í dalnum, rétt hjá Sprengisandi. Þeir eru vinsælir meðal krakka til að busla
í, auk þess sem drengir sjást þar oft reyna að hjóla yfir ána.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Að leik í fossum Elliðaáa
LÖGREGLAN á Höfn í Hornafirði
kom að þremur mönnum um tvítugt
aðfaranótt föstudags þar sem þeir
höfðu gert sér að leik að skjóta
fugla sér til skemmtunar. Höfðu
þeir skotið tólf fugla hið minnsta
þegar lögreglu bar að, mestmegnis
fýla.
Lögreglumenn lögðu hald á tvær
haglabyssur sem mennirnir notuðu,
en þær voru ekki skráðar á menn-
ina. Samkvæmt lögreglunni á Höfn
er málið rannsakað sem brot á
vopnalögum og brot á lögum um
vernd, friðun og veiðar á villtum
fuglum og spendýrum.
andresth@mbl.is
Skutu fugla
sér til gamans
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur
dæmt mann á fimmtugsaldri til 30
daga skilorðsbundins fangelsis fyr-
ir að afla sér og hafa í vörslum sín-
um 26 hreyfimyndir sem sýndu
börn á kynferðislegan hátt. Þá var
harður diskur gerður upptækur.
Taldi dómurinn til refsiþyng-
ingar að sumt af myndefninu var
mjög gróft en á móti þótti horfa til
málsbóta að ákærða hafði ekki áður
verið gerð refsing auk þess sem
hann játaði brot sín fyrir dómi.
Kristinn Halldórsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. andresth@mbl.is
30 dagar fyrir
barnaklám