Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 9 FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is AGNES Stefánsdóttir, fornleifa- fræðingur og deildarstjóri hjá Fornleifavernd ríkisins, sendi í gær lögfræðingi Hafnarfjarðarbæjar bréf þar sem hún fer fram á að frek- ari jarðvegsframkvæmdir við leik- skólann Hvamm verði stöðvaðar. Ljóst er að hluti af tröðum Jófríð- arstaða voru grafnar í sundur þegar færanlegar stofur voru settar niður við leikskólann. Agnesi var bent á skemmdirnar í fyrradag og hófst hún þegar handa við að safna gögn- um um málið. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóra, segir að framkvæmdum sé nú þegar lokið. Unnið með íbúum Íbúar við Staðarhvamm hafa lýst yfir óánægju með framkvæmdirnar, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Gísli Ó. Valdimarsson, formað- ur skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar, segir að málið hafi verið afgreitt 3. júní sem stöðuleyfi til eins árs. Ráðgjafastofa sé að vinna mikla úttekt á svæðinu og samkvæmt drögum, sem verði tekin fyrir á fundi ráðsins á þriðjudag, sé velt upp mögulegum breytingum á Staðarhvammi. Tækifæri sé til að hliðra honum til um einn til tvo metra að lóðarmörkum við kirkju- lóðina og með því sé hægt að færa umferðina örlítið frá raðhúsunum. Einnig sé hægt að auka aðgengið að leikskólanum fyrir þjónustubíla. Ennfremur sé verið að vinna í því að fá leyfi hjá kaþólsku kirkjunni til að nota bílastæði í brekkunni fyrir starfsfólkið. Í mótmælabréfi íbúanna til bæjarins kemur fram að vegna stækkunar leikskólans verði að minnsta kosti 170 bílar á ferð í Stað- arhvammi kvölds og morgna og þar séu aðeins 38 bílastæði til almenn- ingsnota. Árni segir að stæðin séu fleiri og ráðgjafarnir geri ekki ráð fyrir eins mikilli umferð og íbú- arnir. Íbúarnir kvarta undan afskipta- leysi. Árni segir að fundað hafi verið með þeim. Þeir viti að verið sé að gera úttekt á umferðarmálunum og vilji sé til þess að bæta aðkomuna. „Við erum vissulega að vinna með íbúunum en þeim finnst ekki nóg gert,“ segir hann. „Við erum að reyna að gera hlutina þannig að það náist sátt.“ Eyðilegging á minjum á svæðinu kemur á óvart, að sögn Árna. Þetta sé þekkt búsetusvæði og á sam- þykktu deiliskipulagi frá 2004 séu sérstök svæði hverfisvernduð, sem þýði að þar séu minjar sem ekki eigi að hrófla við. Hús leikskólans séu fyrir utan þessi svæði, á grænu svæði samkvæmt skipulaginu, sem sé til sérstakra nota. Þar sé reitað út leiksvæði og þar hafi stofurnar verið settar niður. Forstöðumaður Byggðasafns Hafnarfjarðar hafi í fyrradag fengið það verkefni að fara dýpra í málið og niðurstaðan verði tekin fyrir á fundinum eftir helgi. Ólýðræðisleg vinnubrögð Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um tvö mál sé að ræða. Annars veg- ar að kynna framkvæmdirnar fyrir íbúum og gera þær í sátt og sam- lyndi við þá og hins vegar hugs- anlegar skemmdir á fornminjum. „Þetta er enn eitt dæmið um hroðvirknisleg og ólýðræðisleg vinnubrögð þessa meirihluta,“ segir Rósa. „Enn reynir meirihlutinn að komast hjá því eins og hægt er að hafa íbúana með í ráðum og íbúa- lýðræði meirihluta Samfylking- arinnar er í orði en ekki á borði.“ Fornleifavernd ríkisins bregst við stækkun leikskóla Hús leikskólans utan við vernduð svæði Ljósmynd/Halldór Halldórsson Eyðilegging Tröðin að Jófríðarstöðum við leikskólann grafin í sundur. KNATTSPYRNUMÓT norrænna laganema, Culpa Cup eða Sakar- bikarinn, fór fram á Gróttuvell- inum í Reykjavík á dögunum. Öttu þar kappi laganemar frá Dan- mörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Íslandi. Lið lagadeildar Háskóla Íslands, Club Orator, fór með sigur af hólmi. 22 erlendir laganemar komu til landsins til að taka þátt. Flestir komu frá Finnlandi en Ketill Ein- arsson, alþjóðaritari Orators, fé- lags laganema við Háskóla Íslands, vill meina að íslenskir laganemar og finnskir eigi góða samleið. „Við sjáum hlutina með sömu augum,“ segir hann sposkur en ber þó öllum gestunum söguna vel. Skandinavarnir fóru í fylgd gest- gjafanna í Alþingishúsið, á Þing- velli, að Gullfossi og Geysi og fengu leiðsögn um næturlíf Reykjavíkur. Það væsti ekki um gestina og kveld- ið fyrir mótið var boðið upp á grill- að hvalkjöt með öllu tilheyrandi. „Þetta rann ljúflega niður með kartöflusalati frá mömmu og pipar- sósu,“ segir Ketill en hik var á mat- argestum til að byrja með, enda hvalkjöt víða forboðinn munaður. Mótið var haldið í fyrsta sinn árið 1936 í Sigtuna í Svíþjóð og er nú haldið á tveggja ára fresti. Móti ársins 2010 verður valinn staður í október á fundi alþjóðaritara allra lagadeildanna í Uppsölum. skulias@mbl.is Að leik loknum Kampakátir laganemar brugðu á leik eftir keppnina. Norrænir laganemar öttu kappi í fótbolta Um hvað snýst deilan? Málið er tvíþætt. Annars vegar um eyðileggingu minja vegna bráða- birgðastækkunar leikskólans Hvamms í Hafnarfirði. Hins vegar hafa íbúar við Staðarhvamm mót- mælt stækkuninni á þeim forsendum að þeir hafi ekki verið hafðir með í ráðum og botnlangagatan beri ekki aukna umferð. Hvað er stöðuleyfi? Stöðuleyfi er þegar sveitarstjórn gef- ur tímabundið leyfi fyrir færanleg mannvirki sem eiga ekki að vera til framtíðar. Undir þetta falla t.d. fær- anlegar skólastofur og vinnuskúrar. Byggingarleyfi þarf hins vegar að byggjast á skipulagi eins og t.d. sam- þykktu deiliskipulagi eða grenndar- kynningu. S&S BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkju- málaráðherra hefur skipað Halldór Björnsson, settan héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Aust- urlands frá og með 1. september. Þá hefur ráðherra sett í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá 1. september þær Önnu Mjöll Karlsdóttur lögfræðing til og með 15. apríl 2010 og Ragnheiði Harðardóttur vararíkissaksóknara til og með 31. ágúst 2010, meðan á leyfi skipaðra dómara stendur. Dómsmálaráðherra fór ekki eftir áliti matsnefndar þegar dómari var skipaður við Héraðsdóm Austur- lands, en nefndin taldi að Anna Mjöll væri „best til þess fallin að hljóta skipun að þessu sinni,“ eins og sagði í áliti nefndarinnar. Ráðherra skipaði nýja dómara SJÓMANNAFÉLAG Íslands hefur nýverið gengið frá kjarasamn- ingum fyrir félagsmenn á skipum Hafrannsóknastofnunar Íslands og Landhelgisgæslu Íslands. Samning- arnir voru samþykktir með öllum greiddum atkvæðum, en 33 greiddu atkvæði. Einnig hefur félagið skrifað und- ir nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna félagsmanna okkar á kaupskipum og var hann samþykktur. Sjómenn samþykktu Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 ÚTSALA Enn meiri verðlækkun Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mánud.-föstud. 10-18 Opið laugard. í Bæjarlind 10-15 Gallabuxur Ný sending GANGA.IS Ungmennafélag Íslands ÚTFÖR Ragnars Kjartanssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Hafskips hf., fór fram frá Bú- staðakirkju í gær, en hann lést 12. júlí sl. á 67. aldursári. Lík- menn voru Pétur Sveinbjarn- arson, Ólafur B. Thors, Björg- ólfur Guðmundsson, Eggert Hauksson, Eiríkur Pálsson, Örn Sigurðsson, Styrmir Gunnarsson og Páll Bragi Kristjónsson. Séra Pálmi Matthíasson jarðsöng. Morgunblaðið/Frikki Útför Ragnars Kjartanssonar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.