Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 40

Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 40
Steed Lord-sándið er alltaf á sínum stað … 44 » reykjavíkreykjavík ALLT lítur út fyrir að kvenkynið muni ráða ríkjum á tónlistarhátíð- inni Bræðslunni sem hefst á Borg- arfirði eystri um næstu helgi. Áður hefur verið sagt frá því að Eivör og Dísa hyggjast troða þar upp ásamt Magna og Damien Rice en nú hefur þriðja tónlistarkonan bæst í hópinn. Amy Kuney kallast hún og er frá borginni Tulsa í Oklahoma-ríki Bandaríkjanna. Amy hóf feril sinn í Hondúras þar sem hún spilaði í salsa-hljómsveit en það var ekki fyrr en hún hóf háskólanám í Kaliforníu að hún ákvað að gera tónlistina að sínu aðalstarfi. Fyrsta og eina plata Amy kom út fyrir tveimur árum og þrátt fyrir að hafa ekki vakið neina gríðarlega athygli náði hún til eyrna smekkvísra manna á borð við Da- mien Rice sem óskaði sérstaklega eftir því að Amy myndi hita upp fyr- ir hann á tónleikum hans á NASA næsta fimmtudag. Þar sem Amy hugðist koma hingað á annað borð fannst Kára Sturlusyni skipuleggj- anda Bræðslunnar ekki annað hægt en að Amy kæmi með austur og svo varð úr. Fyrst og fremst lifandi Miðar á Bræðsluna og NASA eru uppseldir eins og stendur en sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins er möguleiki á að hægt verði að kaupa sig inn við inn- ganginn fyrir austan. Engin ábyrgð er þó tekin á því ef menn koma svo að lokuðum dyrum og hundfúlum dyraverði. Þess má svo einnig geta að á föstudeginum verða tónleikar í félagsheimilinu Fjarðarborg þar sem Vilhelm Anton (Villi Naglbítur) kemur fram og ekki er ólíklegt að eitthvað bætist við þá dagskrá líka. Eftir að tónleikunum í Fjarð- arborg lýkur á föstudeginum mun Ólafur Páll Gunnarsson þeyta skíf- um inn í nóttina en Ólafur Páll hefur getið sér gott orð sem útvarpsmað- urinn Óli Palli á Rás 2. Og talandi um Rás 2 þá mun út- varpsstöðin útvarpa beint frá Bræðslunni á laugardagskvöldið því Rás 2 er að sjálfsögðu fyrst og fremst í lifandi tónlist. hoskuldur@mbl.is Amy Kuney á Bræðslunni Enn bætist við dagskrána á Borgarfirði eystri Klippi, klipp Amy Kuney með þáttarstjórnandanum fræga og fyndna, Jay Leno. Damien Rice bað sérstaklega um Amy fyrir tónleika sína á NASA.  Óhætt er að segja að Herbert Guðmundsson hafi komið með bombu ársins í popp-fréttalegum skilningi þegar hann leysti loks frá skjóðunni eftir 24 ár um að snerilslög Charlie Watts, trommuleikara The Rolling Stones sé að finna í nokkrum lögum plötunnar Dawn of the Human Re- volution. Herbert hefur alltaf verið slyngur við að koma sér í fjölmiðla og um leið og fréttin birtist fóru menn að velta því fyrir sér hvort uppljóstrunin væri liður í kynning- arstarfsemi Herberts fyrir næstu plötu kappans Spegill sálarinnar sem væntanleg er í plötubúðir með haustinu. Hvað sem öllum slíkum vangaveltum líður er ljóst að platan verður athyglinnar virði því sem endranær verður Herbert studdur af fremstu hljóðfæraleikurum landsins á plötunni. Má þar nefna menn eins og Axel trommara úr Naglbítunum, Ingó Sigurðsson, Jón Elvar úr Stjórninni, Svan Herberts- son, Magnús og Jóhann í bakrödd- um og síðast en ekki síst Þorstein Magnússon gítarleikara úr Eikinni. Stórskotalið með Hebba á nýju plötunni  Ágúst Guðmundsson leikstjóri var aðalræðumaður á ráðstefnu Fé- lags háskólakennara í norrænum fræðum í Kanada á dögunum og flutti fyrirlestur um Ingmar Berg- man. Samkvæmt logs.is var kvik- mynd Ágústs, Mávahlátur, sýnd fyrir fullu húsi og svaraði leikstjór- inn spurningum bíógesta að sýning- unni lokinni. Annan fyrirlestur hélt Ágúst síðan við Viktoríu-háskóla og fjallaði þá um íslenska kvikmynda- gerð, fór þar fljótt yfir sögu fyrstu tvo áratugina, en lagði áherslu á öldina sem nú líður. Aðalræðumaður Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „EF ÉG dett út þá er síminn raf- magnslaus, en skjóttu.“ Það er Egill Sæbjörnsson sem á raf- magnslitla símann, en hann er staddur í New York, um það bil að fara að æfa fyrir tónleika sem haldnir verða í kvöld í P.S.1, sem er hluti af MoMA (Museum of Modern Art). Þar mun Egill spila ásamt hljómsveitinni Flís, en hana skipa þau Valdimar Kol- beinn Sigurjónsson, Helgi Svavar Helgason, Elsa Kristín Sigurð- ardóttir og Irene Greenwood Povlsen. En þátttaka þeirra á tónleikunum á upptök sín hjá fornfrægri evrópskri konungs- fjölskyldu. „Þetta gigg varð til á mjög skemmtilegan hátt. Þeir Helgi Svavar og Valdi Kolli voru í af- mæli Francescu von Habsburg, sem væri væntanlega drottning í dag ef veldi Habsborgara [sem réðu ríkjum í austurrísk- ungverska keisaradæminu] væri enn við lýði. Þar hittu þau hana Alönnu Heiss, stofnanda P.S.1, og hún bauð þeim að koma og spila hérna,“ segir Egill, en afmælið var haldið í Fez í Marokkó, en Fransesca þessi mun vera ágætis vinkona íslensku forsetahjónanna. En hvað verður svo á dagskrá í kvöld? „Við erum að fara að spila lög sem við ætlum síðan að taka upp í ágúst og koma út á plötu í lok ársins. Svo skellum við líka inn einhverjum lögum af síðustu plötunni minni, Tonk of the Lawn,“ segir Egill. En verður frekara samstarf við Flís þegar tökum lýkur? „Vonandi, þeir hafa verið ötulir að spila með mér og ætli það verði ekki einhver frek- ari sambræðingur í framtíðinni.“ Egill er þó ekki einhamur og hefur flakkað mikið á milli mynd- listar og tónlistar í gegnum árin og mun gera áfram. Hann býr í Berlín og verður með sýningar þar, í Mannheim og Frankfurt í Þýskalandi og í Gent í Belgíu. „Svo kem ég heim á Sequences- hátíðina – og verð kannski á Airwaves líka.“ Fimm myndlist- arsýningar og kannski einir tón- leikar, það súmmerar í raun skiptinguna á milli listgreinanna hjá Agli. „Tónlistin hefur alltaf verið meira hobbí,“ segir hann mér þegar ég spyr um list- greinaflakkið. Áhugamálið verður þó í for- grunni í kvöld, en tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Warm Up, sem heldur nú upp á tíu ára afmæli sitt. Með þeim verða þrjú frönsk atriði, enda kvöldið sér- staklega tileinkað Agnés B., frönskum tískumógúl og tísku- frömuði sem styrkir tónleikaröð- ina. Nokkrar þekktar sveitir hafa spilað á tónleikaröðinni, svo sem Sciccor Sisters, Afrika Bambaa- taa og Kid Koala, en að sögn Eg- ils er áherslan þó sérstaklega á bönd sem eru ekkert endilega fræg og helst dálítið neðanjarðar. „Tónleikaröðin hófst á tíunda áratugnum, á þeim tíma sem myndlistarheimurinn fór að hafa meiri áhuga á tónlist, sem margir hafa sagt að hafi verið einkenni þessa áratugar,“ segir Egill en leggur áherslu á að hefð fyrir slíkri skörun sé raunar enn eldri í New York – hins vegar snúist tónleikarnir sjálfir aðeins um tón- list. Áhrif Habsborgaranna  Egill Sæbjörnsson og hljómsveitin Flís spila á tónleikum í New York  Taka þátt í tónleikaröð í MoMA með áherslu á neðanjarðartónlist Banastuð Egill Sæbjörnsson og hljómsveitin Flís fyrir utan P.S.1. Hægt er að hlusta á tónleikana á netsíðunni wps1.org. Úr dómi Arnars Eggerts Thoroddsen um Tonk of the Lawn á sínum tíma stóð m.a. þetta: „Hversu kaldhæðnisleg sem þessi „tunga upp við tönn“ plata Egils á að vera neyðist hann til að horfast í augu við þá staðreynd að hér er að finna hreint frábærar lagasmíðar. Og það er ekkert grín. [...] Egill nær að búa til eitthvað nýtt og ferskt úr hafsjó tilvísana í sögu og inn- tak popptónlistarinnar þannig að upp úr stendur frumleg poppplata, geislandi af öryggi og ekki hvað síst hugrekki til að gera eitthvað skapandi með dægurtónlistarforminu. [...] Rödd Egils er líka eftirtektarverð, flott popp/rokkrödd sem spann- ar breitt svið og hann beitir henni á áhrifa- og hugmyndaríkan hátt.“ Gagnrýnin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.