Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 18

Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 18
18 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ B ubbi Morthens nýtur lífs- ins í Kjósinni þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni Hrafnhildi Hafsteins- dóttur. Þarna hefur hann búið síðan í maí en faðir hans bjó þar áður. Bubbi segir stórkostlegt að búa í sveitinni þar sem hann nýtir dagana til að semja lög og texta, auk þess sem hann er að leggja drög að veiðibók og smásögum sem byggðar eru á sögu fjölskyldu hans. Hann sinnir einnig garðrækt af miklum áhuga, en garðurinn við hús hans er stór og mikill. „Það er auður í náttúrunni,“ segir Bubbi þegar hann er spurður af hverju hann hafi valið að búa uppi í sveit. „Það er auður í því næsta sem gerist er að maður er aftur kom- inn niður. Sjólagið er misjafnt hjá fólki. Sum- ir virðast sigla átakalítið í gegnum lífið. Öf- unda ég þá? Ég held ekki.“ Mjög gamaldags maður Er þessi ást öðruvísi en hinar? „Ást, kærleikur og það að vera ástfanginn – allt eru þetta mismunandi rósir með mis- munandi ilm og mismunandi litabrigði. Ég trúi því að Guð gefi manninum hæfleikann til að velja og hafna. Sem betur fer er mann- skepnan þannig að hún glatar ekki hæfileik- anum til að elska og hún glatar heldur ekki hæfileikanum til að hrífast. Stundum er maður á þeim tímapunkti að maður heldur að allt sé óumbreytanlegt. Al- veg eins og maður trúir því að fjallið sem er fyrir augum manns sé óhagganlegt. Maður tekur ekki eftir því að það tekur breytingum hvern einasta dag. Steinar molna úr því, það fýkur úr því og þar spretta ný blóm. Fjallið er lifandi og síbreytilegt þótt maður upplifi það sem óhagganlegt. Það sama má segja um ástina. Hún er síbreytileg. Það er ekki til ein algild ást. Ástin er miklu margslungnari en það, sem gerir að sinni áður í lífi mínu. Hvað eftir annað hafa orðið kaflaskil í lífi mínu. Hvað segir það? Ég held að þetta sé dæmi um aðlögunarhæfni manneskjunnar. Milli tvítugs og fertugs trúa margir því að eitthvað eitt sé algilt. Svo kom- ast flestir að því að enginn alsannleikur er til. Lífið er öldudalur. Stundum er maður hátt uppi og finnst að lífið hafi aldrei verið stór- kostlegra. Í næstu andrá trúir maður því að maður sé að fara að sökkva. Svo er maður kominn aftur á toppinn og hugsar: Hvernig datt mér í hug að hugsa á þennan hátt? Það að vakna við fuglasöng. Það er auður að hafa vatn fyrir framan sig og fjall á bak við sig og vera girtur af með gróðri. Og auðvitað er auður að búa með fallegri, ungri konu og börnum á svona stað.“ Þú talar eins og rómantíker. „Ég er forfallinn rómantíker. Rómantík er stemning í hjartanu. Hæfileikinn til að hríf- ast. Það er rómantík að bíða spenntur eftir því að fyrstu rósirnar í garðinum blómstri svo maður geti farið út snemma morguns og lagt eina þeirra á koddann hjá konunni sinni.“ Gerirðu það? „Að sjálfsögðu þegar fyrstu rósirnar springa út. Það er líka rómantík að hafa ekki reglu á því hvenær maður sendir henni blóm þannig að hún geti ekki kortlagt það. Það er líka rómantík að planta blómum. Allar rós- irnar mínar set ég niður með það í huga að gleðja konuna mína og hjartað í sjálfum mér.“ Það er ekki langt síðan þú giftir þig. Ein- hvern tímann sagðirðu mér að líf þitt væri mjög kaflaskipt. Eru þetta enn ein kafla- skilin? „Þetta er sterkari samlíking en nokkru Heppnasti maður Gamaldags maður „Mér finnst skipta máli að vera í hjónabandi.“ Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is »Hvar liggja áherslurnar?Hvort er meiri þörf á því að mótmæla byggingu álvera eða kjörum almennings? Ég hefði viljað sjá Björk og Sigur Rós halda tónleika til að vekja athygli á fátækt á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.