Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 34

Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 34
34 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ragnar Kjartansson mótaði umhverfi sitt og samfélag með hug- myndaauðgi, framtíðarsýn og skipu- lögðum vinnubrögðum. Líkt og Njáll á Bergþórshvoli var hann heilráður og góðgjarn, hógvær og drenglyndur og leysti vandræði hvers manns er á fund hans kom. Ótrúlegir atburðir í framhaldi af gjaldþroti Hafskips og síðar alvarlegur heilsubrestur hrifu Ragnar snögglega úr hringiðu at- hafnalífsins á besta aldri. Þá reyndi á fjölskylduna – einkum Helgu – sem var honum stoð og stytta og stóð vaktina á degi sem nóttu í erfiðu og löngu stríði, sem nú er lokið. Við sem áttum því láni að fagna að starfa með Ragnari í Sjálfstæðis- flokknum og síðar á öðrum vettvangi höfum á vegferð okkar notið þeirra kynna á margvíslegan hátt og fyrir það erum við ævarandi þakklát. Við félagarnir munum ávallt minnast fyr- irliðans í hópnum, þar sem hann situr við borðsendann glaður og reifur. Og hver veit nema við hittumst á ný í baráttu og leik eins og í Valhöll forð- um. Við Sigríður Dúna sendum Helgu og fjölskyldunni allri samúðar- kveðjur. Friðrik Sophusson. Okkur, nokkrar Hafskipsvinkonur, langar að minnast góðs félaga og yf- irmanns. Það er okkur sérstaklega minnis- stætt hversu framsýnn hann var þeg- ar hann studdi okkur í jafnréttisbar- áttu okkar innan Hafskips. Vönduð vinnubrögð hans og nákvæmni ásamt hæfni hans við að ná því besta út úr hverjum og einum stendur okkur enn ljóslifandi fyrir sjónum. Hann var sannarlega mannauðsstjóri af bestu gerð og erum við allar ríkari af kynn- um okkar við hann. Nú er komið að kveðjustund en Ragnar lifir áfram í hugum okkar ekki bara sem sanngjarn og góður yf- irmaður heldur einnig sem góður og ✝ Ragnar Kjart-ansson, fyrrver- andi stjórn- arformaður Hafskips hf., fædd- ist í Reykjavík 4. mars árið 1942. Hann lést hinn 12. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaða- kirkju 18. júlí. skemmtilegur félagi á gleðistund. Blessuð sé minning hans. Anna Sigríður, Birna, Erla, Fríða, Heiða og Sólrún. Við sem unnum á kajanum eða vorum að sigla Hafskipum rædd- um oft um forystu- mennina. Við þekktum þá ekki persónulega en bárum samt virðingu fyrir þeim, vissum að þeir stigu oft krappan dans. Við litum upp til Ragn- ars Kjartanssonar, stóðum með hon- um. Svo sit ég löngu síðar á mínum kontór þegar inn snarast þessi virðu- legi maður og fer að spyrja mig nær- göngulla spurninga um mína hagi og skoðanir. Hann var orðinn stjórnar- formaður SVR þessa 200 daga sem það merka félag var hlutafélag og ég stjórnarmaður. Eftir þessa yfir- heyrslu bar aldrei skugga á okkar samstarf. Ómetanlegt var að fá að fylgjast með stjórnstíl hans, til dæm- is þegar hann þurfti að taka á erfiðum málum. Hófsemi hans, réttsýni og hlýleg framkoma eru mér minnis- stæð. Votta ég fjölskyldu hans og venslamönnum samúð mína. Guðmundur Ólafsson hagfr. Við lát Ragnars Kjartanssonar kemur Hafskipsmál óneitanlega upp í hugann. Fimm árum starfsævi sinn- ar varði hann alfarið sér og félögum sínum til varnar. Það er skoðun þess sem þetta skrifar, að hann hafi með samvisku- semi og elju, en umfram allt ná- kvæmni og skipulagi í vinnubrögðum átt stóran þátt í að ekki varð úr rétt- arfarslegt stórslys. Fyrir það stendur íslenskt þjóðfélag í þakkarskuld við Ragnar Kjartansson um ókomna tíð. Megi hann hvíla í friði. Guðmundur B. Sigurgeirsson. Fyrir mér var Ragnar Kjartansson einn mesti heiðursmaður sem Ísland hefur alið. Fádæma skipulagður, ag- aður og vinnusamur. Hann var afar háttvís og mjög vandur að virðingu sinni. Ragnar var annarsvegar íhaldssamur og varkár, hinsvegar framsýnn og djarfur, allt í senn. Hann var heimsmaður í fasi og háttum. Skoðanir sínar setti hann fram í fáum orðum enda rökfastur með afbrigðum. Misgáfulegar at- hugasemdir afgreiddi Ragnar oft með snilldarlegri spurningu – lét menn svara sér sjálfum. Ragnar Kjartansson var leiðtogi. Hann hafði ótrúlegt vald hvar sem hann kom. Þetta vald fylgdi nærveru hans, fasi og málfari. Orð hans voru sem lög. Ragnar gegndi frá unga aldri trún- aðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, var framkvæmdastjóri Kaup- stefnunnar í Reykjavík og aðstoð- arforstjóri Skeljungs í fimm ár. Síðar varð hann framkvæmdastjóri Haf- skips og loks stjórnarformaður fé- lagsins. Það hrikti í stoðum íslensks sam- félags þegar Hafskipsmálið var sett á svið. Málið var ein mesta niðurlæging íslensks réttarfars og stjórnmála á síðustu öld. Það risu öldur og það geisuðu stormar. En það braut á kletti sem gnæfði upp úr þessum ólgusjó, Ragnari Kjartanssyni. Ragnar lagði nótt við dag, árum sam- an. Hann fór yfir allan málatilbúnað, lið fyrir lið, og bar saman við bækur sínar. Hér naut hann frábærrar ná- kvæmni í störfum, þar sem allt var skráð. Ragnar Kjartansson vann Haf- skipsmálið. Hann vann það fyrir vörnina, hann vann það fyrir félaga sína og hann vann það fyrir okkur sem trúðum á þá. En fyrir Ragnar Kjartansson var dómurinn enginn sigur. Rangindin geta skilið eftir þau sár sem réttlætið nær aldrei að græða. Það höfðu verið bornar brigð- ur á heiðarleika hans. Samstarfs- menn hans og fjölskylda höfðu verið niðurlægð. Hann hafði verið sviptur stórum hluta starfsævi sinnar. Hann var þrotinn að kröftum og heilsu þegar málsvörninni lauk. Og það var sárt að sjá. Í öllu hans mótlæti stóð Helga Thomsen, eiginkona Ragnars, eins og klettur með manni sínum. Fyrst í Hafskipsmálinu. Síðan í erfiðum veikindum hans. Helga er ótrúleg kona. Þetta er bú- ið að vera meira en tuttugu ára bar- átta. Við vinir þeirra hjóna þökkum Helgu fyrir allt sem hún er búin að af- reka. Helga, þú ert algjör hetja. Helgu, börnum þeirra og ástvinum sendum við Dagný innilegustu sam- úðarkveðjur. Ragnar Tómasson. „Fáir njóta eldanna, sem fyrstir kveikja þá,“ orti Davíð Stefánsson um þá, sem hljóta það hlutverk að búa í haginn fyrir aðra. Ragnar frændi minn Kjartansson var einn þeirra. Hann var ekki aðeins mikill og starfsamur hugsjónamaður, bæði í stjórnmálum og félagsstarfi, heldur líka maður athafna og framkvæmda. Starfsævi hans varð því miður skemmri en flestra. Það var mikill missir; ekki aðeins fyrir hann og fjöl- skyldu hans, heldur – og ekki síst – fyrir íslenskt samfélag. Að loknum farsælum nær áratugs- ferli sem aðstoðarforstjóri Skeljungs átti Ragnar gott og skapandi sam- starf við Björgólf Guðmundsson og fleiri við uppbyggingu Hafskips á ár- unum fyrir og upp úr 1980 og má segja að þeir félagar og vinir hafi inn- leitt nýja hugsun í íslenskan atvinnu- rekstur. Þeir voru stórhuga, höfðu skýra framtíðarsýn og skynjuðu að engin stórvirki yrðu unnin í íslensku atvinnu- og efnahagslífi nema menn hefðu heimsmarkaðinn að stefnu- miði. Ragnar skrifaði blaðagreinar á þessum árum og flutti fyrirlestra og talaði af eldmóði og hugsjón um þörf- ina á útrás íslensks atvinnulífs. Hann var boðberi hins nýja tíma. Sá tími var þó ekki enn kominn. Árið 1985 voru hvorki ráðandi öfl- um í íslenskum stjórnmálum né at- vinnulífi ljósir þeir möguleikar ís- lensks viðskiptalífs í erlendum umsvifum, sem menn nú þekkja. Þar sem menn sáu dirfsku óttuðust þeir ofjarla; þar sem menn sáu uppbygg- ingu og vöxt óttuðust þeir keppi- nauta – og þar sem menn sáu fram- tíðarsýn óttuðust þeir það, sem þeir þekktu hvorki né skildu. Eitthvert óheilagasta bandalag skilningsleysis, hræðslu, öfundar og vanþekkingar, sem sögur fara af hér á landi á seinni árum, náði að verða að voldugu og sameinuðu niðurrifsafli, sem fékk stöðvað það ævintýri, sem Ragnar og Björgólfur vörðu sínum kraftmestu árum í að byggja upp. En sagan ein mun dæma. Að Ragnari stóðu traustir stólpar athafnafólks en líka samheldnar fjöl- skyldur. Þessa eiginleika erfði hann í ríkum mæli. Fjölskyldan var honum hið helga vé. Þar stóð hann af sér þá storma, sem um hann léku. Blessuð sé minning Ragnars Kjartansson. Hún mun lengi lýsa öðrum veginn. Bjarni Sigtryggsson. Ragnar Kjartansson er einn heil- steyptasti og heiðarlegasti maður sem ég hef kynnst. Ég kynntist strax hvað hann var fylginn sér. Hann undi sér ekki hvíldar fyrr en hann hafði fengið mig til að ganga í Heimdall fé- lag ungra Sjálfstæðismanna, en Ragnar var þá framkvæmdastjóri fé- lagsins. Stjórnmálastarfsemi var með nokkuð öðrum hætti en í dag. Samskiptamöguleikarnir voru tak- markaðri. Það reyndi mikið á skipu- lagshæfileika og dugnað forustu- manna stjórnmálafélaga. Ragnar hafði þá kosti í ríkum mæli og Heim- dallur fékk ofursterka stöðu meðal ungs fólks í Reykjavík. Sem forustu- maður Æskulýðsfélaga í Reykjavík mótaði Ragnar langt á undan sinni samtíð fyrsta átakið í landverndar- og umhverfismálum. Þessir kostir Ragnars urðu til þess að hann var strax mjög ungur maður fenginn til að taka að sér mikilvæg verkefni á sviði viðskipta. Eitt tók við af öðru. Loks kom að því að þeir þá ungu mennirnir Björgólfur Guðmundsson og Ragnar voru fengnir til þess að stýra skipafélaginu Hafskip. Þessir ungu og kappsfullu menn létu strax að sér kveða og brutu upp á nýjung- um. Þeir voru um sumt á undan sinni samtíð en guldu fyrir það að fjár- málamarkaður og bankastarfsemi var langt á eftir samtíðinni. Upp- og niðursveiflur koma í öllum viðskipt- um. Þegar skyndilegt verðfall varð á skipum og nýjungarnar sem að þeir Ragnar og Björgólfur höfðu brotið upp á voru ekki farnar að skila ár- angri þá missti vanþróað fjármálalíf Íslands móðinn og leitað var að blórabögglum. Þeir Ragnar og Björgólfur áttu góðan vin þar sem Albert Guðmundsson fyrrum ráð- herra var og það hafði sín áhrif ásamt öðrum stjórnmálalegum tengslum þeirra til að hrinda þeim út í hringiðu gjaldþrots, sakamálarannsóknar og ákæru. Ragnar Kjartansson er einn heið- arlegasti maður sem ég hef kynnst. Það kom mér því á óvart þegar hann hringdi í mig til að biðja mig um að vera verjanda sinn í því máli sem síð- ar var nefnt Hafskipsmálið. Það var margt sem kom á óvart í því máli en það verður rakið annars staðar. Ragnar undi því ekki að sitja undir grun og ákæru og lokaði sig inni og fór vandlega yfir öll atriði málsins og velti við hverjum steini þangað til hann var sannfærður um að hafa kannað allar hliðar málsins til hlítar. Með þrotlausri vinnu þar sem skipu- laghæfileikar Ragnars komu vel í ljós tókst honum að sýna fram á fárán- leika málatilbúnaðarins sem hafður var uppi gegn þeim Hafskipsmönn- um. Það var ómetanlegt að kynnast vinnubrögðum Ragnars á þessum tíma. Þessi vinna og spennan í kring- um málið tók sinn toll. Ég tel að Ragnar hafi á þessum tíma misboðið heilsu sinni sem síðan leiddi til alvar- legs heilsubrests og andláts langt fyrir aldur fram. Það var mesta gæfa Ragnars í líf- inu að eignast góða fjölskyldu, ein- staka eiginkonu sem stóð við hlið hans og studdi hann alla tíð. Þó miss- ir okkar vina Ragnars sé mikill þá er missir fjölskyldunnar mestur og ég færi ykkur Helga, börn og barna- börn mínar bestu kveðjur og óskir. Jón Magnússon alþingismaður. Ragnar Kjartansson Í dag kveðjum við okkar gamla og góða vin, Jón Hjört Jó- hannesson, sem ævin- lega var kallaður Kæi af vinum sín- um. Mikil gleði ríkti á golfvellinum í vor er Kæi opnaði golfvöllinn á Ísa- firði með því að slá fyrsta upphafs- höggið. Með honum þennan dag voru golffélagar hans þrír, en áður höfðu þeir drukkið kaffi við borðið „sitt“, slegið á létta strengi sem oft- ar og fengið úthlutað sérmerktum kúlum af fyrirliða hópsins. Síðan var hópurinn myndaður í bak og fyrir. Stundin var tregaþrungin enda vitað hvert stefndi. Þessi ein- staki golfhópur hefur sérstakan Jón Hjörtur Jóhannesson ✝ Jón Hjörtur Jó-hannesson fæddist á Ísafirði 27. apríl 1935. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísa- firði 14. júní síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Ísa- fjarðarkirkju 21. júní. sess í hug okkar golf- félaga og kalla þeir sig „Fjórir flottir“ og eru sérstakur klúbb- ur í Golfklúbbi Ísa- fjarðar með eigið mót og verðlaunaafhend- ingu. Nú eiga þeir fé- lagarnir um sárt að binda vegna fráfalls vinar sem og allir aðr- ir félagar í GÍ. Kæi hefur til margra ára verið for- fallinn golfáhugamað- ur og lagt sig í líma við að fá fólk með sér og vekja hjá því áhuga á golfi. Hann fór með vini og vandamenn á „litla völlinn“ og kom þeim á bragðið og hvatti þá síðan til að verða félagar í Golf- klúbbi Ísafjarðar. Að vera byrjandi í golfi og lenda með Kæja í hópi þótti alveg frábært. Hann var alltaf svo gefandi, glaðlegur og styðjandi enda hvers manns hugljúfi. Kynni mín af Kæja hófust þó löngu áður en leiðir okkar lágu saman í Golfklúbbi Ísafjarðar en við hjónin vorum nábúar hans og Gúgúar til margra ára. Börnin okk- ar léku saman og aldrei bar skugga á sambýlið. Viljum við hjónin og börnin okkar þakka fyrir sam- veruna á Urðarveginum. Félagar í Golfklúbbi Ísafjarðar þakka Kæja fyrir góða viðkynningu og skemmtilegar samverustundir til margra ára. Við sendum innileg- ar samúðarkveðjur til Gúgúar, barna þeirra og fjölskyldunnar allr- ar og vonum að sem flest þeirra komi á golfvöllinn og haldi þannig uppi merki Kæja í golfklúbbnum um ókomin ár. Blessuð sé minning góðs félaga. Fyrir hönd Golfklúbbs Ísafjarð- ar, Tryggvi Sigtryggsson, formaður. Elsku afi minn, það er virkilega skrýtið að hugsa til þess að þú sért ekki lengur hérna hjá okkur, þó svo ég viti að þú verður alltaf hér að fylgjast með og passa upp á okkur öll. Ég gat alltaf leitað til þín, sama um hvað það snerist, þá varstu allt- af til staðar, þú og amma. Þar sem ég ólst upp með annan fótinn hjá ykkur, og á tímum báða fæturna, þá vorum við mjög náin. Ég hálfvorkenni ykkur ömmu að hafa þurft að sitja uppi með mig á tímum! Ég var nú ekkert alltaf eitt- hvað lamb að leika sér við, þrátt fyrir það hækkaðirðu aldrei nokk- urn tímann róminn við mig né æstir þig. Aðrir hefðu alveg örugglega gert það, en nei ekki þú. Enda lýsir það þér alveg í gegn. Er handviss um að allir séu sam- mála hve rólegur, góður og alveg hreint yndislegur maður þú varst. Það er svo gaman að hugsa til baka, um alla frábæru tímana sem við átt- um saman. En samt í leiðinni svo sárt, að hugsa til þess að nú eru þetta bara minningar. Ég hugsa um allar ferðirnar með okkur Jónu inn í Álftarfjörð þar sem við tjölduðum stóra tjaldinu ykkar ömmu, reyndum að veiða fisk og síli, leituðum af fjársjóðnum og bættum í hann, enduðum svo á að kúra öll saman til að halda á okkur hita um nóttina. Ég gleymi aldrei golfferðunum sem þú tókst mig með í til að kenna mér íþróttina, endaði reyndar oftast á því að ég fór í fýlu því það heppnaðist ekki í fyrstu tilraun hjá mér. En þú gafst ekki upp á mér og hélst áfram þar til ég fór að ná þessu. Síðastliðið haust greindist þú svo með þennan hræðilega sjúkdóm. Það voru ófá tárin sem ég felldi þegar mér voru sagðar fréttirnar. Við öll áttum marga yndislega mán- uði með þér þangað til þér fór að versna núna nýlega. Þegar ég fatt- aði hve alvarlegt þetta var orðið kom ég í heimsókn á hverjum degi, daginn áður en þú byrjaðir að sofa stanslaust kom ég til þín. Þú varst sofandi og enginn var hjá þér þann- ig ég bað hjúkrunarkonuna um að vekja þig fyrir mig svo ég gæti talað við þig. Við spjölluðum um margt. Meðal annars um golfbílinn sem þú ætlaðir að festa kaup á, það var brosað í gegnum tárin þegar ég sá hvað þú ljómaðir á meðan þú talaðir um hann. En þú sást samt á mér hve hrædd og leið ég var. Og þá sagðirðu svo- lítið sem ég held að hafi hjálpað mörgum að takast á við þetta. Þú sagðir að ég þyrfti ekki að vera sorgmædd því þú værir ekkert hræddur við að deyja. Þú varst greinilega tilbúinn að takast á við það sem skyldi koma næst. Sein- ustu orð mín til þín, voru „ég elska þig afi“. Ég tel mig vera heppna að hafa geta sagt þér það, því það eru ekki allir sem fá færi á að kveðja einhvern sem þau elska með svona hlýjum orðum. Elsku, elsku, elsku afi minn, eins og ég hef svo oft sagt þér, þá elska ég þig af öllu mínu hjarta og meira en það. Þótt ég hefði heldur kosið að þú yrðir lengur með okkur þá læðist samt bros að vörum mér þegar ég hugsa um þig á himninum að rúnta með mömmu þinni og pabba á fína golfbílnum þínum. Ég á eftir að sakna þín og elska, svo lengi sem ég lifi. Ólöf Erna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.