Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 35

Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 35 Magnþóra Jakob- ína Þórarinsdóttir, móðursystir mín, var kvenskörung- ur og bar nafn sitt með rentu. Hún var ekki aðeins dugleg og kröftug heldur líka fróð, ræðin og skemmtileg. Með barnsaugum sá ég Diddu, eins og hún var oftast kölluð, fyrst og fremst sem systur móður minn- ar og sívinnandi móður frænd- systkina minna. Henni fannst gott að vinna á nóttunni þegar börnin hennar níu, og stundum líka systrabörn úr Njarðvíkum, voru öll sofnuð eða áttu að vera það. Þá þreif hún, þvoði þvotta og bakaði. Ef maður gat ekki sofið þá var gott að geta gengið að henni inni í eldhúsi, horft á hana vinna og átt við hana nokk- ur orð áður en maður stakk sér aft- ur upp í rúm. Í minningunni voru rúmfötin hálfköld enda alltaf ný- komin af snúrunni. Þegar ég varð eldri sá ég hana í víðara samhengi. Hún var sterk kona með ákveðnar skoðanir. Hún var einnig full af lífsorku og áhuga og mjög minnug. Ef maður vildi forvitnast um eitthvað sem sneri að ættfræði, þá kom maður ekki að tómum kofanum hjá Diddu. Inn í frásagnir hennar fléttuðust manna- og bæjarnöfn því almenn þekking Magnþóra Þórarinsdóttir ✝ Magnþóra Jak-obína Þórarins- dóttir fæddist á Húsatóftum í Gerðahreppi í Gull- bringusýslu 16. mars 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja 11. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Útskála- kirkju 17. júlí. hennar og ekki síst landafræðiþekking var umtalsverð. Hið sama var uppi á ten- ingnum þegar hún byrjaði að ferðast er- lendis. Þá var hún fljót að kynna sér staðhætti og leggja heiti helstu kennileita á minnið. Eftir að eiginmaður hennar, ferðafélagi og besti vinur, Guðberg- ur Ingólfsson dó, hægðist ekkert á Diddu. Hún hélt áfram að ferðast og vera virk í eigin lífi og lífi ann- arra. Fyrir utan fjölmargar minn- ingar um Diddu og Begga frá barnsárum mínum eru mér nokkur nýliðin atvik sérstaklega minnis- stæð. Fyrir rúmlega áratug á leið- inni niður hlíðar Snæfellsjökuls í snjótroðara fræddi Didda mig um æskuár föður míns á Snæfellsnesi. Hún vissi á hvaða bæ hann hefði verið í fóstri, hve lengi hann hafði dvalið þar, hvað fósturforeldrar hans hétu og þar fram eftir götum. Þetta voru kærkomnar upplýsing- ar því fátt af þessu vissi ég. Nokkrum árum síðar á siglingu um Hvalfjörðinn í afmæli systur minnar sagði Didda okkur á ljóslif- andi hátt frá því þegar hún, ásamt föður sínum og bróður, vann á litlum báti við að flytja vörur og menn úr herskipum sem lágu við festar í Hvalfirðinum í herstöðina í Hvalfirði. Hún hló mikið þegar hún rifjaði upp að þegar þau fluttu her- menn þá sendi afi hana alltaf niður í lúkar til að koma í veg fyrir að hún umgengist þá. Frásagnargáfa Diddu var aðeins einn af mörgum góðum eiginleikum hennar. Ég var svo lánsöm að heimsækja Diddu nýlega. Þá eins og alltaf geislaði af henni lífskraftur og brennandi áhugi á öllu og öllum. Fráfall hennar kom mér því í opna skjöldu því ég hélt hún ætti enn innistæðu hjá þeim sem öllu ræð- ur. Ég votta fjölskyldunni samúð. Hulda Karen Daníelsdóttir. Amma var hávaxin glæsileg kona og vel klædd. Hún var lífs- glöð, átti auðvelt með að blanda geði við aðra og oft stutt í dillandi hláturinn. Hún var yndisleg, og sýndi fólkinu sínu umhyggju og al- úð. Afkomendur hennar eru orðnir margir en þrátt fyrir það lagði hún sig alla tíð fram um að muna eftir afmælisdögum sem og merkisdög- um í lífi hvers og eins. Hún hafði unun af að ferðast, innanlands sem utan og það var gaman og fróðlegt að ræða við hana um hina ýmsu staði, því hún sagði vel frá og þekkti fjarlæg lönd eins og lófann á sér. Það var oft gestkvæmt hjá ömmu og afa, en hann lést fyrir 13 árum. Á kvöldin var oft gott að skreppa í kaffi til þeirra, þar voru þá oftar en ekki aðrir úr fjölskyld- unni og margt skrafað. Þessi siður lagðist síður en svo af eftir að amma var orðin ein og hún tók vel á móti sínum. Ég fluttist síðar í burtu en á milli þess sem við hitt- umst töluðumst við við í síma. Margoft hringdi amma og kvartaði í spaugsömum tón yfir því að ég væri lítið heima, því hún væri búin að reyna að ná í mig lengi. Þar var ömmu vel lýst því hún gerði sér far um að fylgjast vel með. Hún var ótrúlega ráðagóð og hægt að leita til hennar með allt milli himins og jarðar, enda alið upp 9 börn og því ýmsu kunnug. Amma var mér mikils virði og ég er þakklát fyrir óteljandi samveru- stundirnar. Hún var og verður sterk og góð fyrirmynd afkomenda sinna. Blessuð sé minning þessarar miklu konu sem lét ætíð gott af sér leiða. Ída og fjölskylda. PÓLVERJINN Andrej Misiuga vann Hjörvar Stein Grétarsson í toppuppgjöri annarrar umferðar á Fiskmarkaðsmótinu sem Taflfélagið Hellir stendur fyrir. Hjörvar hafði jafntefli í hendi sér en teygði sig of langt og tapaði. Tíu skákmenn taka þátt í þessu móti sem er sett upp til að gefa möguleika á titiláföngum og verður ekki betur séð en að þeir möguleikar séu fyrir hendi. Magnús Örn Úlfarsson er sem stendur efstur íslensku skákmannanna með 1½ vinning en þeir Björn Þorfinnsson, Hjörvar Steinn og Róbert Lagerm- an eru með 1 vinning. Þessir fjórir eru líklegir til afreka ef þeir halda vel á spöðunum. Þannig hefur Róbert Lagerman bætt sig verulega undanfarið og hefur greini- lega náð styrkleika alþjóðlegs meist- ara þó að lokaáfanganum sé enn ekki náð. Hann lagði finnska stórmeist- arann Heikki Westerinen laglega að velli í 2. umferð: Fiskmarkaðsmótið 2008: Heikki – Westerinen – Robert Lagerman Spænski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. Be3 Be7 10. Rbd2 0-0 Opna afbrigðið er aðalvörn Róberts gegn kóngspeðinu svo halda mætti að Heikki hefði eitthvað fram að færa, 9. Be3 fyrirfinnst í skák Kasparovs gegn Jusupov á gömlu sovésku meistaramóti en en sú upp- skiptahrina sem nú hefst er hvít ekki hagstæð. 11. Rxe4 dxe4 12. Bxe6 fxe6 13. Rd2 Dd5!? Áður hefur verið leikið 13. … Rxe5 en þessi heldur spennu í stöðunni. 14. Dg4 Rxe5 15. Dxe4 Had8 16. Dxd5? Gott dæmi um léleg uppskipti. Nú hrifsar Róbert til sín frumkvæðið. Betri leikur var t.d. 16. b3 og halda þannig valdi á c4 reitnum. 16. … exd5 17. Rb3 Rc4 18. Bc5 Hfe8 19. Hfe1 Bf6! Sjá stöðumynd Eftir þennan einfalda leik verður stöðu hvíts vart bjargað. Róbert tefl- ir skínandi vel allt til loka. 20. Rd4 Rxb2 21. Rc6 Ha8 22. Be7 Bc3 23. He3 d4 24. Hg3 Kf7 25. bb4 Bxb4 26. Rxb4 c5 27. Rd5 He2 28. Hf3+ Kg8 29. Hc1 Hae8 30. g3 c4 31. Rf4 He1+ 32. Hxe1 Hxe1+ 33. Kg2 d3! Ryður c–peðinu braut. 34. cxd3 c3 35. He3 Hxe3 36. fxe3 c2 37. Re2 Rxd3 38. Kf3 b4 – og hvítur gafst upp. Magnús Carlssen byrjar á skákhátíðinni í Biel í dag Ein þekktasta reglulega skákhá- tíðin í Biel hefst í dag og er athyglin svo sem venja er öll á efsta flokknum þar sem skærasta stjarna skák- heimsins, norski stórmeistarinn Magnús Carlsen er meðal þátttak- enda. Hann sigraði glæsilega á dög- unum á Aerosvit-mótinu í Úkraínu og verður fróðlegt að fylgjast með honum nú en keppendur eru allir ungir að árum. Sex skákmenn munu tefla tvöfalda umferð en þeir eru samkvæmt stiga- röð: 1. Magnús Carlsen (Noregi) 2. Lenier Dominguez (Kúbu) 3. Evgenij Alekseev (Rússlandi) 4. Etienne Bacrot (Frakklandi) 5. Alexander Onitsjúk (Bandaríkjunum) 6. Yannick Pelletier (Sviss). Teflt upp á titiláfanga SKÁK Húsakynni Skákskóla Íslands Fiskmarkaðsmót Hellis 17.-26. júlí 2006 Nýr heimsmeistari í skák-hnefaleikum Fyrir nokkru lauk sérkennilegum bardaga í Berlín er Rússinn Nikolaj Sazin (t.v. á báðum myndunum) sigraði Þjóðverjann Frank Stoldt í keppni í léttþungavigt í því sem kallað er skák-hnefaleikar. Keppendur skiptust á að tefla og berja hvor á öðrum og hafði Rússinn betur eftir mikla baráttu. Þeir voru báðir með tæp 2.000 Elo-stig sem myndi skipa þeim á bekk með 150 bestu skákmönnum hér á landi. Nokkrir af frægustu hnefaleikamönnum í þungavigt eru ágætir skák- menn. Lennox Lewis hefur löngum verið talinn einn besti skákmaðurinn meðal þeirra frægu en einnig má nefna úkraínsku bræðurna Vladimir og Vitalyi Klitschko en sá síðarnefndi getur státað af 92% hlutfalli rot- högga á ferli sínum sem er það hæsta meðal hnefaleikakappa í þunga- vigt. Helgi Ólafsson | helol@simnet.is Unna frænka verð- ur jarðsungin í dag, 14 júlí, eftir langa og erf- iða sjúkravist. Þegar ég, bróðursonur Unnu, lít til baka til þess tíma sem við áttum saman, var það því miður stuttur tími frá því ég fer að muna eftir mér og fram til þess að ég fer al- farinn af heiman og fer erlendis. Mínar fyrstu bernskuminningar eru jólaboðin sem Unna hélt fyrir fjöl- skyldu okkar. Fyrst í Drápuhlíðinni og svo í Stóragerðinu, þar sem hún hélt heimili fyrir afa og ömmu, Magnús Bergsson og Pálínu Guð- mundsdóttir. En þau höfðu brugðið búi og flutt til Reykjavíkur. Það að Unna hélt heimili fyrir foreldra sína segir mikla sögu um Unnu. Að ein af fyrstu bernskuminningunum mínum voru jólaboðin hjá Unnu er ekki óeðlilegt. Unna var frábær kokkur og rausnarleg, já, það voru alltaf mjög myndarleg jólaboðinn í Stóra- gerðinu og ég, alyngsti strákurinn í fjölskyldunni lét ekki eftir mitt liggja þegar ég fékk smá stríðnisskot um „hvort ég væri nú örugglega saddur?“ Unna var líka mjög „flink í höndunum“ sem ég naut góðs af í uppvextinum. Það var gott að eiga að frænku sem vann á saumastofu og kunni vel til verka. Ég fór svo til Noregs til náms upp úr tvítugu og ætlaði að vera þar í tvö ár. Reyndar eru þau orðin 33 og af eðlilegum ástæðum náðum við ekki Björg Unnur Magnúsdóttir ✝ Björg UnnurMagnúsdóttir fæddist í Selparti í Flóahreppi 24. júní 1921. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 3. júlí síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Garðakirkju 14. júlí. að þróa sambandið annað en að halda því við í stuttum heim- sóknum okkar til Ís- lands. Þó svo það væru stutt innlitin, þá var alltaf sérlega gott að koma til Unnu. Hún vissi vel um alla okkar hagi. Hún hafði alltaf eitthvað gott upp á að bjóða og svo kom spurningin eins og alltaf með smá kímni, – „hvort við værum nú örugglega södd?“ Síð- ustu ellefu árin hefur Unna háð bar- áttu við Alzheimer-sjúkdóminn. Við systkinin, bróðurbörn Unnu, erum hennar nánustu ættingjar. Það hefur því mætt á systkinum mínum hér heima, Bernharði, Margréti og Kristjáni, að hlúa að Unnu í sjúk- dómsbaráttu hennar og er ég þeim mjög þakklátur. Það hefur svo fallið í hlut Kristjáns bróður og konu hans, Margrétar Hjaltadóttur, að bera þungann af umönnun Unnu frænku. Fyrstu árin að hlúa að henni á heim- ili hennar í það að veita henni þjón- ustu og standa að fullu við bakið á henni á þessum erfiðu árum. Ég vil þakka þeim fyrir þeirra óeigingjarna þátt, fyrir allt sem þau hafa gert til að létta undir með Unnu og þá hvatningu sem þau gáfu henni með því að fylgja henni fast eftir á erf- iðum tíma. Unna hefur á ferli sínum sem Alz- heimer-sjúklingur notið einstakrar umönnunar, fyrst í Hlíðabæ, svo í Foldabæ og svo síðasta og lengsta tímabilið í Skógabæ. Ég vil færa, frá fjölskyldu minni, einlæga þökk fyrir frábæra þjónustu og hlýhug henni til handa. Hvíl í friði, kæra frænka Þórhallur Guðmundsson og fjölskyldan í Noregi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.