Morgunblaðið - 11.08.2008, Page 19

Morgunblaðið - 11.08.2008, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2008 19 Einbeitt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Hjörleifur Sveinbjörnsson, eiginmaður hennar, báru tákn samfélags samkynhneigðra á laugardag. Júlíus Blog.is Ágúst H Bjarnason | 9. ágúst 2008 Líkur minni en 1:600.000 Ekki eru miklar líkur á að fá allar tölurnar í Lottóinu réttar. Líkurnar eru að- eins 1:658.008. Við getum reiknað þetta út á eftirfarandi hátt: Í íslenska lottóinu eru í dag 40 kúlur með númerum frá 1 upp í 40. Það skiptir ekki máli í hvaða röð kúlurnar … Meira: agbjarn.blog.is Kolbrún Baldursdóttir | 9. ágúst 2008 Lík óskast... Að segja ef þú ert á graf- arbakkanum hljómar eins og verið sé að gera hreint og klárt grín. Betra hefði verið að mínu mati að segja t.d: ef þú ert deyj- andi. Einnig orðalag eins og þarf á nokkrum líkum að halda liggur við að dragi upp mynd í huga manns af líkhrúgu. Svo er... Meira: kolbrunb.blog.is Helgi Jóhann Hauksson | 10. ágúst 2008 Fórnarlambið burðast með ótta Að fá að njóta réttmætrar öryggistilfinningar eru svo miklir hagsmunir hverrar manneskju að óskiljanlegt er þegar tveir dómarar hæstaréttar telja það meiri hagsmuni, að ribbaldi sem... Meira: hehau.blog.is Lissabonsáttmáli Evrópusambandsins tryggir fullveldi aðild- arríkja. Í 50. gr. nýs heildartexta aðalsátt- mála ESB er fortaks- laust ákvæði um ein- hliða úrsagnarrétt aðildarríkis. Úrsagn- arferlið tekur tvö ár ef ekki verður sam- komulag. Þetta ákvæði eyðir efasemdum um fullveldismál í tengslum við Evrópusambandið. Ýmis ákvæði Lissabonsáttmálans eru umdeild, en sammæli er um einhliða úrsagnarrétt. Samstarf fullvalda ríkja getur skilað ávinningi til allra. Náið samstarf ríkja er óhjákvæmilegt og felur jafnan í sér samþættingu ákvarð- ana sem áður voru hluti fullveld- isstjórnar hvers rík- is. Innan ESB eru reyndar mörg dæmi um sérstök samn- ingsákvæði til að tryggja sérstöðu, t.d. á Möltu, Azoreyjum, Álandseyjum og víðar. Margföld reynsla er fyrir því að slík samþætting eflir fullveldi þátt- tökuríkja, ekki síst smáríkja sem öðrum kosti hefðu setið í horni. Að nokkru leyti eru EES-ríkin slíkar hornrekur nú, með annars flokks aðild að ESB. Umsvif Evrópusambandsins geta að hámarki orðið 1,24 % af vergri þjóðarframleiðslu aðildarríkja. Þetta er ,,ofurveldi“ ESB. Umsvifin nema nú um 1 % og tæpur helm- ingur sameiginlegra fjárlaga er greiddur beint út til aðildarþjóð- anna. Alls nema umsvif stofnana ESB nú um 235 evrum á mann á ári. Um árabil hefur verið rætt um breytingar á stjórnarskrá Íslands vegna fullveldisframsals í fjölþjóða- samstarfi. Þessar umræður hófust löngu áður en aðild að ESB kom á dagskrá. Ástæður eru meðal ann- ars aðild okkar að Evrópuráðinu, Atlantshafsbandalaginu, Norð- urlandaráði, EFTA, EES og stofn- unum Sameinuðu þjóðanna. Jafnvel þótt áhrif Íslendinga verði mjög lít- il mun full aðild að ESB styrkja stöðu okkar frá því sem nú er. Við erum nú þegar háð stofnunum Evr- ópusambandsins, en án aðildar að málum. Innan ESB mun norrænt samstarf stóreflast og við getum líka myndað bandalög við aðra, t.d. eyþjóðir og þjóðarbrot. Þá losna Ís- lendingar með fullri aðild að ESB úr þeirri úlfakreppu sem orðin er í gjaldmiðils- og peningamálum. Sameiginlegur gjaldmiðill verður ekki leiksoppur spákaupmanna. Varnarsamningur Íslendinga og Bandaríkjamanna og Mannrétt- indadómstóll Evrópuráðsins eru dæmi um framsal fullveldisþátta sem hafa skilað þjóðinni árangri. Fleiri dæmi má nefna sem stað- festa að samstarf þjóða og sam- þætting þátta fullveldis efla sjálf- stæði þjóðar. En hér er um vandasöm mál að fjalla og söguleg dæmi eru líka til varnaðar. Allt bendir til að aðild að Evr- ópusambandinu og upptaka evru treysti fullveldi Íslands. Eftir Jón Sigurðsson » Aðalsáttmáli Evr- ópusambandsins tryggir fullveldi aðild- arríkja. Í 50. gr. er for- takslaust ákvæði um einhliða úrsagnarrétt. Jón Sigurðsson Höf. er fyrrv. formaður Framsóknarflokksins. Fortakslaus einhliða úrsagnarréttur HERNAÐARÁTÖKIN í Kákasus eru hörmuleg eins og stríðsrekstur æv- inlega er. Það eru saklaus- ir borgarar sem líða og falla fyrir sprengjum og skotárásum á báða bóga. Það er því brýnt að stöðva átökin milli Georgíu og Rússlands og koma á vopnahléi til að unnt verði að leita pólitískra lausna á deilunni. Skyggnst í söguna Á Vesturlöndum er sú skoðun al- menn að hér séu Rússar með enn einn yfirganginn gegn litlu ríki, Georgíu, sem vill treysta sjálfstæði sitt í sessi. Það er líka sú mynd sem stjórnvöld hér vestra og fjölmiðlar draga gjarnan upp, það er jú ósköp þægilegt að hafa óvin eins og Rússa til að benda á og gera að blóraböggli. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er hér engin undantekning. En það getur verið hollt að skyggnast bak við tjöld- in, skoða söguna og bera saman við önnur dæmi sem geta haft þýðingu gagnvart þeirri deilu sem uppi er í Kákasus. Vita- skuld er unnt að setja þessa deilu í það samhengi að hún snúist um hugs- anlega aðild Georgíu að NATO og hernaðarlegar afleiðingar þess fyrir Rússa, það er hægt að nefna olíuna sem leidd er í gegnum þetta svæði o.fl. Átökin á Balkanskaga snerust á sinn hátt líka um yfirráð stórvelda, stöðu þeirra í alþjóðastjórnmálum og viðskiptum. Stríðsreksturinn í Írak nú og fyrr sömuleiðis. Og því miður hneigjast menn til að horfa eingöngu á þetta yfirborð. Arfleifð Stalíns Sjálfsstjórnarhéruðin Suður- Ossetía og Abkhasía liggja innan landamæra Georgíu eins og þau eru viðurkennd af alþjóðasamfélaginu. Þess er nú krafist að þau landamæri séu virt. Á hitt er að líta að þarna búa þjóðir sem vilja sjálfstæði, hafa eigin menningu, sögu og tungumál. Og þær hafa verið þvingaðar undir georgísk yfirráð. Barátta þeirra fyr- ir því að ráða sér sjálfar er ekki ný af nálinni. Rússeska keisaradæmið fór með hernaði gegn þeim á 19. öld. Í kjölfar rússnesku byltingarinnar stofnuðu Menshevíkar sjálfstætt ríki Georgíu þar sem Abkhazía var hluti en áttu í miklum erjum við íbúana sem kærðu sig ekkert um þá til- högun. Þegar Georgía samdi um að- ild sína að Sovétríkjunum varð t.d. Abkhazía sjálfstætti lýðveldi í tengslum við Georgíu. Það var hins vegar ákvörðun Jósefs Stalíns að þessi sjálfsstjórnarhéruð yrðu hluti af Sovétlýðveldinu Georgíu. Og í kjölfarið hóf sá illræmdi Lavrentíj Bería, yfirmaður KGB, að skipu- leggja fólksflutninga, m.a. að flytja Georgíumenn til héraðanna. Það er við þessa arfleifð stjórnar Stalíns sem þjóðirnar eru m.a. að berjast í dag. Og það er í raun skömm að því að Vesturlönd skuli ekki sýna þess- um þjóðum stuðning við að brjótast undan stalínismanum ef svo má að orði komast. Sjálfsákvörðunarréttur – sjálfsögð mannréttindi Ossetar og Abkhasar eru ekki Georgíumenn. Eiga raunar lítið sam- eiginlegt með þeim nema hin form- legu landamæri. Suður-Ossetar eru hluti af stærri þjóð, þar sem meiri- hlutinn býr í Norður-Ossetíu sem til- heyrir Rússlandi. Meirihluti þessara þjóða ber rússneskt ríkisfang. Það er hægt að gera lítið úr því og segja að Rússar hafi útbýtt vegabréfum til þeirra sem það vildu hafa. Hin hliðin á þeim peningi er auðvitað spurn- ingin hvers vegna Georgíustjórn hefur ekki veitt þessum þjóðum sjálfsögð borgaraleg réttindi eins og ríkisfang? (Ég hef hér ekkert minnst á þriðja sjálfsstjórnarhéraðið í Georgíu, Adjaríu, þar sem það hefur ekki dregist inn í þessi átök.) Burtséð frá því hvar menn kunna að standa í deilum stórveldanna, með eða móti NATO eða ESB o.s.frv., þá stendur í mínum huga eft- ir spurningin um sjálfsákvörð- unarrétt ossetísku og abkhösku þjóðanna. Er réttur þeirra annar og minni en til dæmis Albana í Kosovo? Eða hver yrði afstaða okkar ef Fær- eyingar lýstu yfir sjálfstæði? Það er fyrst og fremst vanvirða og lítilsvirð- ing við þessar þjóðir að horfa fram hjá áralangri baráttu þeirra fyrir sjálfsákvörðunarrétti en beina sjón- um þess í stað aðallega að átökum stjórveldanna, framferði Rússa, hagsmunum NATO og Bandaríkj- anna. Um það allt má vissulega margt segja og flest heldur miður. En eftir standa hagsmunir þjóða, sem eiga sína djúpu og ríku sögu og menningu, og sem vilja berjast fyrir sjálfstæði sínu. Það myndi sæma betur öllum þeim sem vilja berjast fyrir mannréttindum og lýðræði að taka málstað þessara þjóða og leita pólitískra lausna sem tryggja rétt þeirra til að ráða málum sínum sjálf- ar. Eftir Árna Þór Sigurðsson » Það sæmir betur þeim sem vilja berj- ast fyrir mannrétt- indum að taka málstað þessara þjóða og tryggja rétt þeirra til að ráða málum sínum sjálfar. Árni Þór Sigurðsson Höfundur er þingmaður VG og áhugamaður um málefni Kákasusþjóða. Átökin í Kákasus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.