Morgunblaðið - 13.08.2008, Blaðsíða 40
MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 226. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Breytingar á samstarfi
Sjálfstæðismenn vilja að ákveðnar
breytingar verði gerðar á meiri-
hlutasamstarfi borgarstjórnar.
Möguleiki er á að styrkja meirihlut-
ann með samstarfi við Framsókn-
arflokkinn. Þá vilja sjálfstæðismenn
fá borgarstjórastólinn fyrr en um
hefur verið samið. » Forsíða
Hjúkrunarrýmum fjölgað
Ríkisstjórnin hefur tilkynnt að
byggingu 400 nýrra hjúkrunarrýma
verði hraðað. Þá verður 380 núver-
andi rýmum breytt úr fjölbýli í ein-
býli. Áætlaður stofnkostnaður er 17
milljarðar króna. » 4
Rætt um breytingu vegar
Sökum fjölda alvarlegra slysa á
Suðurlandsvegi, milli Hveragerðis
og Selfoss, hefur lengi verið rætt um
tvöföldun vegarins á þeim kafla. Ein
tillagan felur í sér að taka út hættu-
lega beygju við Kotströnd. » 12
Húsvíkingar vilja svör
Um 350 manns sóttu opinn fund
sem Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra hélt á Húsavík í
gærkvöld til að ræða úrskurð henn-
ar um að áhrif fyrirhugaðs álvers á
Bakka á umhverfið skuli metin
heildstætt. Íbúar á svæðinu gagn-
rýna ákvörðunina harðlega og krefj-
ast svara. Fólk hefur áhyggjur af
óvissunni sem skapast hefur í kjölfar
ákvörðunar umhverfisráðherra. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Eintómir öfgamenn?
Forystugreinar: Hin vonda einka-
væðing | Baráttan fyrir bættum
lífsstíl
Ljósvaki: Að missa af endinum
UMRÆÐAN»
Er stóra stjórnin stóru mistökin?
Ekki láta plata þig
Æskan er framsækin
Samráð um Kársnes
""3"
3 "3 3 "3
3
4 *5 $ .# ) #*
6#!## ! ""3 3 "3 3 "3 3
"3
,71 $
3
"3 3 "3
3
3
89::;<=
$>?<:=@6$AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@$7 7<D@;
@9<$7 7<D@;
$E@$7 7<D@;
$2=$$@ F<;@7=
G;A;@$7> G?@
$8<
?2<;
6?@6=$2)$=>;:;
Heitast 16°C | Kaldast 8°C
Hæg vestlæg átt eða
hafgola. Bjart að
mestu, en líkur á síð-
degisskúrum suðvest-
an- og vestanlands. » 10
Clapton hefur verið
að í 45 ár og rætur
hans liggja í blúsn-
um. Lagaval hans
átti því ekki að koma
á óvart. » 33
AF LISTUM»
Engin
endurkoma
TÓNLIST»
Söngstjörnur minnast
Villa Vill. » 32
Jarðíkorninn Thel-
onious býr í heimi án
manna í sögunum
um Þokuhæð. Dýrin
hegða sér þó oft eins
og menn. » 36
BÆKUR»
Heimur án
manna
TÓNLIST»
Ómar Guðjónsson gefur
út plötuna Fram Af. » 34
FÓLK»
Miller var ofsótt á bens-
ínstöð í LA. » 39
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ísland fór hamförum gegn …
2. Fær bíl sinn ekki bættan
3. Finnsk stúlka finnst eftir 11 ár
4. Kvaðst vera klámeftirlitsmaður
Íslenska krónan veiktist um 0,1%
TRAUSTI Guðjónsson og Ragnheiður Jónsdóttir fagna
í dag platínubrúðkaupi, en þau gengu í hjónaband á 23
ára afmælisdegi brúðgumans árið 1938. Þau segja að
ástin sé að sjálfsögðu sterk eftir 70 ár og nefnir Trausti
að þau haldist enn þá stundum í hendur. „Það er þó
frekar að hún haldi í prjóna,“ segir hann sposkur. | 17
Ástin að sjálfsögðu sterk
Trausti og Ragnheiður fagna 70 ára brúðkaupsafmæli
Morgunblaðið/Kristinn
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SVEINN Hrafnsson, starfsmaður
hjá Air Atlanta í London, hefur vakið
athygli í enskum fjölmiðlum fyrir
vetnistilraun sem hann gerði á sínu
eigin Harley Davidson-mótorhjóli í
þágu orkusparnaðar hjá fyrirtæk-
inu. Hann byggði á hugmynd frá
seinna stríði en þekkt er að Spitfire-
og Mustang-herflugvélar voru búnar
vetnis-/bensínmótor til að spara
bensínið og fækka áfyllingum. Hjá
Air Atlanta hefur farið fram umræða
um hvernig megi spara eldsneytið á
flutningabíla fyrirtækisins sem dag-
lega aka um 300 km.
Brá Sveinn á það ráð að prófa
vetnishugmyndina og notaði Har-
leyinn sem tilraunadýr. „Ég var
mjög ánægður með útkomuna, hjólið
brennir bensíninu mun betur fyrir
vikið og auk þess er það kraftmeira,“
segir hann. „Ég prófaði líka að setja
vetnis-„sellu“ í dísilbíl sem ég á og
þar hefur eyðslan farið úr 10 lítrum á
hundraðið niður í fimm. Þetta er ein-
föld tækni sem byggist á því að leiða
straum í gegnum vatn og framleiða
gas, vetnissúrefni, sem fer beint inn
á loftsíu. Það brennur við hærra
hitastig en bensínið og allt óbrunnið
bensín brennur 100% með þessu og
þar liggur orkusparnaður með betri
nýtingu á bensíninu.“
Flutningabílar Air Atlanta eru
þrír og eru 7,5 tonn hver og nú þegar
er tilbúinn vetnismótor á einn þeirra.
Vetnisvæddi mótorhjólið
Sveinn Hrafnsson hjá Air Atlanta vekur athygli fyrir vetnistilraun í þágu orku-
sparnaðar fyrir flutningabíla flugfélagsins og notaði Harleyinn sem tilraunadýr
Vetnisfákur Sveinn Hrafnsson á kraftmeiri og sparneytnari Harley Dav-
idson-mótorhjólinu. Einföld tækni, en lofar mjög góðu að hans mati.
Í HNOTSKURN
»Vetnisvæðing Sveins ersvokölluð græn tækni og
því umhverfisvæn. Eini auka-
úrgangurinn er vatn.
»Sveinn sem er bifvélavirkiað mennt segir að í Banda-
ríkjunum og Bretlandi, nefni
menn, sem hafa prófað sig
áfram á vetnisbrautinni líkt og
hann sjálfur, að útblástur bif-
reiða verði mun hreinni og
eldsneytissparnaður allt að
50%.
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari Ís-
lands kvaðst afar
stoltur af liðinu. Ís-
land væri ekki með
stærsta liðið á
þessum Ólympíuleikum en
ynni það upp með hraðanum
og ákefðinni. Það væri hins
vegar enn langur vegur frá
því að Íslendingar gætu far-
ið að fagna einhverjum ár-
angri.
Íslenska
karlalandsliðið
í handknatt-
leik er efst í
sínum riðli á
Ólympíu-
leikunum í
Peking eftir
að hafa sigrað heimsmeist-
aralið Þýskalands á sannfær-
andi hátt í gær. Ísland vann
33:29 og hafði áður lagt
Rússa að velli. Þrír leikir
eru eftir í riðlakeppninni.
Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði sjö mörk
gegn Þjóðverjum og
lék frábærlega
þrátt fyrir meiðsli á
ökkla. „Það þarf
ekkert að tala um ökklann á
mér. Hann er þarna enn og
verður eflaust í nokkra leiki til
viðbótar. Það eru til verri
meiðsli en þetta og ég ætla
bara að vera glaður og njóta
þess að vera hérna,“ sagði
Guðjón Valur.