Morgunblaðið - 13.08.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
LR-kúrinn - frábær árangur og
aukin orka. Missti 12 kíló á tveimur
mánuðum. LR-kúrinn er auðveldur
og árangursríkur. Uppl. hjá Báru,
820 8201, missb@internetid.is,
www.naeringogheilsa.is.
Léttist um 22 kg á aðeins 6
mánuðum. LR- kúrinn er ótrúlega
einfaldur og öflugur. Uppl. hjá Dóru
869-2024 www.dietkur.is
Húsnæði í boði
Til leigu þriggja herbergja íbúð
101 m² í Tröllakór Kópavogi, á efstu
hæð með sérinngangi, lyfta í sam-
eign, upplýsingar í síma 823 3993.
Til leigu í Reykjavík
Glæsileg 3ja herbergja íbúð til af-
hendingar strax. Sérinngangur,
bílageymsla og lyfta í húsinu.
Langtímaleigusamningur, sjá
www.leigulidar.is eða 517-3440.
Glæsileg 3ja herb. íbúð í 101.
Óska eftir meðleigjanda. Búin
húsgögnum. Rafmagn og hiti inni-
falið. Upplýsingar í síma 662 4285.
Húsnæði óskast
Par að norðan óskar eftir 2-3 herb.
íbúð á höfuðb.sv. á sanngjörnu verði
til langtímaleigu frá 1.okt. Erum reyk-
laus og reglusöm. Skilvísum
greiðslum heitið. Uppl. s: 866 8145.
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuherbergi til leigu
Til leigu 2 skrifstofuherbergi í Hátúni
í Reykjavík. Aðgangur að eldhúsi,
fundarherbergi og skjalageymslu, auk
ritaraþjónustu. Herbergin leigjast
saman eða í sitt hvoru lagi. Tilvalið
fyrir endurskoðendur eða lögmenn.
Leiguverð kr. 100 þús. án vsk. pr. her-
bergi. Uppl. í síma 863-0088 (Bragi).
Atvinnuhúsnæði til sölu
(yfirtöku)/leigu 130 + 50-60 fm millil.
m. stækkunarheimild, nálægt Hafn-
arfj.höfn. Þrifalegt, ný 3ja fasa
raflögn, 6-8 m lofthæð, háar inn-
keyrsludyr. Laust. Milligj. 1-1,5 m.kr.,
100% góð erlend fjármögnun, um
200 þ./mán.+fgj. LEIGA möguleg, 190
þ./mán. S. 698 7353.
Sumarhús
Sumarhús til leigu í Borgarfirði
Nýr 8-10 manna sumarbústaður til
leigu í Borgarfirði, nálægt Húsafelli.
Heitur pottur og gönguleiðir í fallegu
umhverfi. Útsýni frábært. Uppl. í
síma 435-1394 og 864-1394.
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Microsoft kerfisstjóranám
MCSA kerfisstjóranámið hefst 1. sep-
tember. Nýr Windows Vista-áfangi.
Einstakir áfangar í boði. Bættu
Microsoft í ferilskrána. Rafiðnaðar-
skólinn, www.raf.is, 863 2186.
Til sölu
Mjúkir og þægilegir herrasanda-
lar úr leðri. Mikið úrval.
Verð 6.970.-, 8.985.- og 9.950.
Misty skór,
Laugavegi 178, sími: 551 2070
opið mán-fös 10-18
Ath. lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf
Skattframtöl
Framtöl - bókhald - uppgjör -
stofnun ehf. o.fl. Fékkstu áætlun?
Gleymdist að telja fram? Framtals-
þjónusta - skjót og örugg þjónusta.
Uppl. í síma 517 3977.
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Byggingavörur
Velux gluggar til sölu Er með fjóra
ónotaða Velux glugga til sölu. Stærð
58 x 98 cm. Nývirði er um 66 þús. stk.
Skoða öll tilboð. Upplýsingar í síma
698-7353.
Ýmislegt
Viðburðarík upplifun fyrir hópa í
siglingu á hraðgangandi bátum.
SeaSafari.is sími 861 3840.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Mótorhjól
Til sölu Bakus 400cc buggy
götuskráning. Frábært leik-tæki.
Sjálfstæð fjöðrun, diskabr., 4ja
punkta belti 5 gíra + bakk. Verð
698.000 kr. Visa/Euro allt að 12 mán.
hjakrissa@simnet.is. s-8935777
Einkamál
Stefnumót.is
Kynntu þér vandaðan stefnumóta- og
samskiptavef fyrir fólk sem gerir
kröfur.
MINNINGAR
✝ Pálína Frey-gerður Þor-
steinsdóttir fæddist
í Hellugerði á Ár-
skógsströnd 12.
apríl 1927. Hún lést
á Sjúkrahúsinu á
Selfossi 1. ágúst
síðastliðinn. Hún
var dóttir hjónanna
Þorsteins Þorvalds-
sonar frá Krossum
á Árskógsströnd,
síðar bónda í Hellu-
gerði og Önnu Vig-
fúsínu Þorvalds-
dóttur frá Hellu í sömu sveit.
Pálína fluttist með foreldrum sín-
um og systkinum að fossi í
störf, en fluttist fljótlega aftur í
sveitina og var þá hjá bróður sín-
um Garðari á Mosfelli, en gerðist
síðan ráðskona á Seli í sömu
sveit.
Árið 1952, 1. júní, giftist Pálína
Óskari Ögmundssyni bónda í
Kaldárhöfða í Grímsnesi, f. 2.6.
1923, d. 6.4. 1997, og bjuggu þau
þar. Pálína átti sjö börn og eitt
fósturbarn. Þau eru Guðlaug
Birgisdóttir f. 1945, Lilja Kristín
Kristinsdóttir f. 1950, Anna
Soffía Óskardóttir f. 1953, Elísa-
bet Óskarsdóttir f. 1955, Ragn-
heiður Óskardóttir f. 1957, Þor-
valdur Óskarsson f. 1958, d.
2006, Snjólaug Halldóra Óskars-
dóttir f. 1962 og fósturbarn
Gunnlaugur Jónsson f. 1975.
Útför Pálínu fer fram frá
Hveragerðiskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan14.
Grímsnesi árið 1927,
síðar fluttu þau að
Gíslastöðum í Gríms-
nesi og er Pálína
þar til heimilis uns
foreldrar hennar
bregða búi 1944 og
flytja til Reykjavík-
ur. Pálína var yngst
átta systkina, en þau
eru öll látin. Elst var
Snjólaug Björg, síð-
an Soffía Þóra, þá
Vilhjálmur, Sigur-
þór, Garðar, Gunn-
laugur og Þór-
gunnur.
Þegar Pálína flutti til Reykja-
víkur vann hún við fiskvinnslu-
Mamma mín, þar kom að leiðar-
lokum, lífsbókin upplesin og ævin-
týrið mikla úti. Ég fletti í huganum
og fram streyma minningarnar, at-
burðir smáir og stórir.
Þú varst sérstæð kona, sterk með
afbrigðum og leitaðir frekar lausna á
vandamálum en að dvelja við vand-
ann sjálfan. Þú varst á margan hátt á
undan þinni samtíð, stolt og lést eng-
an beygja þig, hreinlynd og heil.
Vinnusöm varstu og veitti ekki af,
því í mörg horn var að líta á stóru
sveitaheimili. Þú varst jafnvíg að
hreinsa úr murtunetum á ísköldum
haustdegi og að hjálpa ám við burð,
taka til hendinni í girðingarvinnu
eða sauma föt á okkur krakkana.
Víst voru dagarnir langir og anna-
samir, en samt fannst þú tíma til að
skemmta smáfólki með þululestri og
munnhörpuspili og ekkert var mik-
ilvægara en að sinna gestum og
gangandi.
Svo sem tíðkaðist naust þú ekki
langrar skólagöngu og hefðir viljað
hafa hana lengri. Fróðleiksfýsn þín
fékk útrás við bóklestur og áttuð þið
pabbi gott bókasafn. Þú áttir létt
með skrif og varst hagmælt, eftir
liggja ljóð og stökur sem bera lista-
mannshuga fagurt vitni. Þú réðir
krossgátur á dönsku og á sextugs-
aldri lærðir þú ensku, „bara til að
halda heilanum starfandi“.
Í Kaldárhöfða voru efni oft lítil en
þar var mikið líf, stórt og gestrisið
heimili. Þú varst hestamaður og áttir
margar góðar stundir með honum
Sokka þínum sem þú fékkst í morg-
ungjöf frá pabba, og síðar með
Nökkva og Fána. Þú varst mikið
náttúrubarn og naust útiveru og
náttúrufegurðar. Þegar þið pabbi
lögðuð niður búskap fékkst þú tíma
fyrir draum þinn um trjárækt i Kald-
árhöfðalandi. Trjáræktinni sinntuð
þið saman, þú og pabbi, og voruð að
réttu stolt af árangrinum. Annað
áhugamál var ferðalög, bæði innan-
lands og utan. Við systkinin vorum
þá oft með í för og þetta eru okkur
minnistæðar stundir. Samt fannst
ykkur alltaf best heima i Kaldár-
höfða þar sem pabbi átti sitt æsku-
heimili og þú festir rætur sem ekkert
fékk slitið upp.
Við andlát pabba sástu þig neydda
til að flytja til Reykjavíkur yfir vetr-
artímann. Það voru sjálfsagt þung
spor, „heima“ var alltaf í Kaldár-
höfða. Síðar fluttir þú á Dvalarheim-
ilið Ás í Hveragerði. Þar leið þér vel,
blessaðir starfsfólkið fyrir nærgætni
og sagðir okkur sögur af því hvað þú
skemmtir þér vel. Þetta voru góð
elliár sem þú áttir svo sannarlega
skilið.
Á Ási eignaðist þú góðan vin og fé-
laga, Þórhall Friðbjörnsson, og
ákváðuð þið að létta ykkur ellina
saman. Þórhallur reyndist þér með
afbrigðum vel þegar heilsan fór að
bila. Guð launi Þórhalli þínum fyrir
alla hans umhyggju sem við syst-
kinin fáum seint fullþakkað.
Þótt ferðum í Kaldárhöfða fækk-
aði þegar heilsan tók að bila og stigar
urðu vandamál, áttir þú nokkrar góð-
ar stundir þar í sumar. Síðast sast þú
á stéttinni við húsið skömmu fyrir
andlátið ásamt Þórhalli. Þú gerðir að
gamni þínu, horfðir yfir blómagarð-
inn og skóginn og borðaðir silung.
Vertu sæl, mamma mín. Ég legg
frá mér lífsbókina þína, hér hefur
verið stiklað á stóru og margt er
ósagt. Hvíl í friði.
Fyrir hönd systkinanna,
Elísabet Óskarsdóttir.
Þegar skörð eru höggvin í hjörtu
manna, virðist ógjörningur að fylla
upp í þau á nýjan leik. Þegar hún
amma mín lést um daginn var stórt
skarð höggvið í mitt eigið hjarta.
Þetta skarð verður hins vegar fyllt af
minningum. Minningum sem munu
lifa og halda áfram að vera órjúfan-
legur hluti af mér.
Ég og hún amma mín á Kaldár-
höfða áttum margar yndislegar
stundir saman. Alla tíð, frá því ég var
lítill gutti, sóttist ég eftir því að vera í
sveitinni hvenær sem mögulegt var.
Kaldárhöfðinn var ævintýraheimur
þar sem afi var kóngur og amma var
drottningin. Sjálfum leið mér alltaf
eins og algjörum prinsi, enda var far-
ið með mig þar sem slíkan.
Ég fékk einhvernveginn alltaf
áhuga á því sem bæði afi og amma
voru að dunda við í sveitinni. Þegar
ég var búinn að horfa á ömmu skera
út hin og þessi meistaraverk í tré,
fékk ég hana til að kenna mér örlítið
í útskurði. Þegar ég var búinn að
dunda með henni í garðinum og læra
sem flest plöntunöfnin, fékk ég minn
eigin pínulitla garð til að rækta.
Svona gæti ég þulið upp flest sem
amma tók sér fyrir hendur, alltaf
vildi ég vera að gera það sama og
hún. Þegar ég hugsa til baka sé ég
auðvitað að ég hafði ekki svona mik-
inn áhuga á útskurði og blómarækt.
Það var einfaldlega svo notalegt að
dunda sér með henni ömmu, sem og
skemmtilegt!.
Eftir að afi féll frá breyttist ævin-
týraheimurinn í sveitinni talsvert, en
amma breyttist sem betur fer ekki
neitt. Þær hafa verið ófáar heim-
sóknirnar til hennar síðan hún flutt-
ist af Kaldárhöfðanum. Þannig fór
ég að skilja að það var ekki bara æv-
intýraheimur sveitarinnar sem fékk
mig til að líða svona vel heldur var
það að stórum hluta félagsskapurinn
sem yljaði mér. Ég gat setið tímun-
um saman með henni ömmu og notið
samverunnar, oft ekki einu sinni að
gera neitt sérstakt eða tala um eitt-
hvað merkilegt. Við einfaldlega nut-
um þess að brosa saman og gleðja
hvort annað.
Núna þegar hún amma er ekki
lengur með mér á ég eftir að sakna
þessa félagsskapar. Ég á eftir að
sakna þess að geta ekki lengur kíkt í
heimsókn til hennar, vitandi það að
ég fer hamingjusamur aftur heim.
Ég á eftir að sakna þess að fá steikta
klatta í sveitinni og soðinn silung. Ég
á eftir að sakna kímninnar, stund-
anna sem við þögðum bara og brost-
um og þegar við ferðuðumst saman.
Ég á eftir að sakna ömmu minnar al-
veg ógurlega. En í hvert skipti sem
ég sakna einhvers af þessum fjöl-
mörgu hlutum, þá veit ég að ég á allt-
af minningar til að hugsa um og
varðveita. Ég veit líka að þegar ég
sakna ömmu sjálfrar, þá get ég
hugsað til hennar hvar sem ég er
staddur. Í hjarta mér er núna skarð
sem er fullt af einstaklega dýrmæt-
um minningum sem mér þykir af-
skaplega vænt um. Minningum um
hana ömmu.
Óskar Páll Elfarsson.
Pálína Þorsteinsdóttir Mótaskráin
Beinagrind mótaskrárinnar fyrir
starfsárið 2008-9 er komin á vef
Bridssambandsins.
Segja má að vertíðin hefjist með
úrslitum og undanúrslitum í Bikar-
keppni BSÍ en þau fara fram 13.-
14. september.
Fyrsta mót vetrarins er svo Ís-
landsmót kvenna í tvímenningi
sem fram fer 11. október. Helgina
eftir eða 17.-18. október er Ís-
landsmótið í einmenningi og í
framhaldinu er ársþing BSÍ eða 19.
október.
Íslandsmót eldri spilara í tví-
menningi verður spilað 1. nóvem-
ber og Íslandsmót í parasveita-
keppni 29.-30. nóvember.
Deildakeppnin verður að venju
spiluð í tvennu lagi, fyrri hlutinn
25.-25. október og seinni hlutinn
15.-16. nóvember.
Síðustu liðir mótaskrárinnar á
þessu ári eru Íslandsmót í sagn-
keppni 5. des. og Íslandsmót í
Butler-tvímenningi 6. des.
Sex pör til Kína
Stjórn BSÍ hefur ákveðið að
senda 3 pör á OL í opnum flokki til
Kína 3.-18. október nk.
Þeir sem urðu fyrir valinu eru:
Jón Baldursson, Björn Eysteins-
son (PC), Sverrir Ármannsson,
Aðalsteinn Jörgensen, Sveinn R.
Eiríksson og Hrannar Erlingsson.
Í flokki undir 28 ára verða einnig
send 3 pör. Þau eru: Inda Hrönn
Björnsdóttir, Grímur Kristinsson,
Gunnar B. Helgason, Örvar Ósk-
arsson, Gabríel Gíslason og Jóhann
Sigurðarson.
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánudaginn 11.
ágúst
Spilað var á 10 borðum. Meðal-
skor 216 stig.
Árangur N-S
Bragi Björnsson - Albert Þorsteinss. 263
Oddur Jónsson - Oddur Halldórsson 252
Ægir Ferdinandsson - Óli Gíslason 240
Árangur A-V
Ragnar Björnss. - Guðjón Kristjánss. 279
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 256
Sigrún Andrewsd.- Jórunn Kristinsd. 237
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is