Morgunblaðið - 13.08.2008, Blaðsíða 17
|miðvikudagur|13. 8. 2008| mbl.is
daglegtlíf
Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur
gudrunhulda@mbl.is
Þ
egar Ragnheiður Jóns-
dóttir frá Gilsfjarðar-
brekku í Geiradals-
hreppi og Trausti
Guðjónsson frá Skafta-
felli í Vestmannaeyjum komu heim
eftir ársdvöl í Noregi þótti þeim
tímabært að láta gefa sig saman.
„Við giftum okkur hjá sr. Sigurjóni
Árnasyni í Ofanleiti og konan hans
söng. Það var heilög stund og fal-
leg,“ segir Ragnheiður. Nú, sléttum
70 árum síðar, deila Ragnheiður og
Trausti enn sömu sæng og fagna í
dag platínubrúðkaupi.
Þakka trúnni
farsælt hjónaband
Ragnheiður segir að brúðkaups-
dagurinn hafi verið látlaus en yndis-
legur. „Ég var í blússu sem mér
hafði verið gefin og ljósu pilsi sem
ég átti,“ segir hún og bætir við að
þá hafi ekki verið haldin veisla. „Við
fengum þó pönnukökur og síðdegis-
kaffi hjá móður minn eftir athöfn-
ina,“ segir Trausti.
Hjónin segjast þakka lifandi trú
farsælt hjónaband. Þau kynntust í
Hvítasunnusöfnuðinum Fíladelfíu
og eiga því sterka trú sameiginlega.
„Við fólum frelsaranum ferðir
okkar og athafnir,“ segir Trausti en
Ragnheiður bætir við að þótt þau
hafi verið heppin með ævi sína og
fjölskyldu hafi lífið ekki alltaf
reynst þeim auðvelt.
Árið 1957 féll Trausti af vinnu-
palli og var ekki hugað líf. Afleið-
ingin var sú að hann var veikur í
mörg ár á eftir og þurfti Ragnheið-
ur því að sjá fyrir fjölskyldunni á
þeim tíma og stóð hún sem klettur
við hlið mannsins síns.
Í fyrra hélt fjölskylda hans upp á
að 50 ár væru liðin síðan Trausti
hefði átt að deyja – það má greini-
lega alltaf finna ástæðu til að fagna.
Heldur frekar í prjónana
Á hálfrar aldar hjúskaparafmæli
þeirra Trausta og Ragnheiðar héldu
þau ásamt börnum sínum, barna-
börnum og tengdabörnum upp á
daginn á Löngumýri í Skagafirði.
Trausti keypti þá fyrsta brúðar-
vöndinn handa Ragnheiði sinni og
synir þeirra spiluðu brúðarmarsinn
á gítar og harmonikku þegar hjónin
gengu inn salargólf. Segja þau að
þá hafið verið mikið klappað og
fagnað.
Hjónin segja að ástin sé að sjálf-
sögðu sterk eftir 70 ár og nefnir
Trausti að þau haldist ennþá stund-
um í hendur. „Það er þó frekar að
hún haldi í prjóna,“ segir hann
sposkur.
„Við erum hamingjusamari nú en
þegar við vorum trúlofuð. Við höf-
um kynnst hvort öðru vel og staðið
af okkur erfiðleika. Að lokum get-
um við alltaf talað saman eins og
vinir. Það er svo margt stórkostlegt
við hjónabandið,“ segir Ragnheiður.
Í dag ætla Trausti og Ragnheiður
að fagna deginum með fjölskyld-
unni en þau eiga sjö börn, 23 barna-
börn og 49 barnabarnabörn.
Ingveldur, yngsta dóttir þeirra,
mun bjóða þeim upp á kaffi og
pönnukökur, rétt eins og móðir
Trausta gerði fyrir 70 árum.
Hjónabandið er stórkostlegt
Bestu vinir í 70 ár „Við erum hamingjusamari núna en þegar við vorum trúlofuð. Við höfum kynnst hvort öðru vel og staðið af okkur erfiðleika. Að lokum
getum við alltaf talað saman eins og vinir,“ segir Ragnheiður um samband sitt við Trausta, eiginmann sinn til sjötíu ára.
Þau giftu sig 13. ágúst
1938 á 23 ára afmæl-
isdegi brúðgumans,
Trausta Guðjónssonar,
en brúðurin, Ragnheiður
Jónsdóttir, var þá tvítug.
Í dag fagna þau því 70
ára hjúskaparafmæli.
13. ágúst 1938 Trausti og Ragnheiður á brúðkaupsdaginn.
Trausti keypti þá fyrsta
brúðarvöndinn handa
Ragnheiði sinni og synir
þeirra spiluðu brúðarmars-
inn á gítar og harmonikku.
Morgunblaðið/Kristinn
ÞÆR eru svo sannarlega raunveru-
legar ásýndar dúkkurnar sem hin
breska Deborah King býr til undir
heitinu Reborn Baby, þó sumir kalli
þær raunar einnig „gervibörn“.
Umtalsverð vinna liggur að baki
gerð hverrar dúkku. Þannig eru
þær mótaðar í vínil og síðan málaðar
lag fyrir lag til að ná fram áferð sem
líkastri hörundi ungabarna. Hár og
augnhár dúkknanna eru svo unnin
úr angóraull og því komið fyrir hár
fyrir hár til að allt virki nú sem
raunverulegast. Loks er kroppur og
útlimir hverrar dúkku fyllt með
mjúku fóðri til að ná ungbarna-
þyngdinni og vekja upp samskonar
verndartilfinningu við litlu krílin.
Dúkkur King, sem býr í Fountain-
hall í nágrenni Edinborgar, njóta
vinsælda meðal safnara víðs vegar
um heim, en auk þess er einnig
nokkuð um að afar og ömmur sem
ekki fá nægan tíma með nýjasta fjöl-
skyldumeðlinum og jafnvel fólk sem
misst hefur barn fjárfesti í slíkri
dúkku.
Gervibörnin vinsæl hjá söfnurum
Reuters
Eins og ungabörn Það er ekki hægt að segja annað en að gervibörnin
tvö sem hér sjást nái vel að blekkja augað.
Dúkkuhlutar Það er mikið lagt í
smáatriðin við gerð hverrar dúkku
og hárið er t.d. úr angóraull.
Fimir fingur Deborah King málar
hér neglur einnar barnabrúðunnar.
www.reborn-baby.com
VÍSNAHORNIÐ
pebl@mbl.is
Af ESB og
handbolta
Stefán Vilhjálmsson fylgdist meðleik Íslendinga og Þjóðverja á
Ólympíuleikunum í gær og í stöð-
unni 20:20 var honum öllum lokið:
Staðan spennu stöðugt jók,
nú stendur jafnt.
Taugar búnar, tók mér smók
en titra samt!
Rúnar Kristjánsson las fyrir
nokkru grein þar sem „einn
þekktasti Evrópusambandssinni
okkar lands“ virtist játa að sumt
væri nú ekki alveg nógu gott í
sælukerfinu. Hann orti þá:
Um alla menn er nú einhver von
og yndislegt það að tjá.
Fyrst Eiríkur Bergmann Einarsson
er eitthvað farinn að sjá !
Og hann yrkir af öðru tilefni:
Ekkert kemur mynd á mynd
sem mannleg á að vera,
þegar hlaðin synd á synd
sést í flötinn skera.