Morgunblaðið - 19.08.2008, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
225 . tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
KAREN AXELSDÓTTIR
ÞOLIR EKKI AÐ TAPA
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Fetar í fótspor
Buffalo Bills
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Ómissandi
í veisluna!
Ástin er diskó, lífið er pönk >> 29
Komdu í leikhús
Leikúsin í landinu
Isinbajeva bætti ólympíu- og heimsmetið með því að stökkva 5,05 metra. Í
þriðju tilraun fór hún örugglega yfir slána og bætti heimsmetið í 16. sinn.
Stokkið til sigurs
Reuters
„ÞAÐ var stöðug fækkun þar til það kom uppsveifla í júlí,“ segir Geir Jón
Þórisson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um þró-
un innbrota og þjófnaðar í umdæmi lögreglunnar.
Brotist var inn í 202 hús á höfuðborgarsvæðinu í júlí sem er um fjórð-
ungsaukning frá sama tímabili í fyrra, þegar tilkynnt var um 161 innbrot.
Hefur ekki verið brotist inn í fleiri hús frá því í janúar 2007, þegar 247 inn-
brot voru tilkynnt. Þá komu 464 þjófnaðarmál til kasta lögreglu í júlí í ár
en 351 í sama mánuði í fyrra. „Miðborgin er hæst í öllum tölum,“ segir Geir
aðspurður um hvar fólk verði helst fyrir barðinu á innbrotum.
Æ fleiri kúbein á lofti
Eftir Andrés Þorleifsson
andresth@mbl.is
„ÞAÐ er eins og
einhver hafi verið
að safna í hreiðrið
sitt,“ segir Berg-
þór Hauksson,
sem telur líklegt
að útigangsmenn
hafi verið að verki
þegar brotist var
inn í hús hans að
Vesturvallagötu
7. Hann hefur bú-
ið þar í 12 ár en aldrei lent í innbroti
fyrr en í síðustu viku, þegar brotist
var inn í gestaíbúð á fimmtudags-
kvöld og, til að bæta gráu ofan á
svart, aftur á laugardaginn. „Fjár-
hagslega tjónið er ekkert óskap-
legt,“ segir Bergþór, sem finnst
miklu erfiðara að vita til þess að ein-
hver hafi komið inn til hans í óþökk
hans.
Lögregla telur að þjófarnir hafi
spennt upp glugga við útidyrnar og
náð að smeygja sér í gegnum hann.
Engar skemmdir voru unnar á íbúð-
inni, en í fyrra skiptið tóku þjófarnir
hluti á borð við hljómtæki og sæng.
Á laugardaginn hafa innbrotsþjóf-
arnir komið að kvöldi til milli klukk-
an sex og átta. Hirtu þeir þá ým-
islegt í eigu þýsks vinafólks
fjölskyldunnar, sem dvaldist í hús-
inu. „Við fjölskyldan fórum [um
klukkan sex] í bíó og komum aftur
um klukkan átta. Þetta gerist þarna
akkúrat á milli, eins og einhver hafi
verið að fylgjast með. Það er ónota-
tilfinning sem fylgir því.“
Hátt hlutfall upplýstra brota
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, segir að í þessum mála-
flokki sé lögreglan með mjög stórt
hlutfall upplýstra brota. „Það hefur
oft gerst að þegar næst í ákveðna
menn upplýsast mörg mál,“ segir
Geir, „Það þarf ekki marga til að
hleypa þessu upp.“
Einhver virðist
vera að safna
í hreiðrið sitt
Tvisvar brotist inn í sama húsið á 48
klukkutímum Fylgst með íbúum?
Í HNOTSKURN
»Mun oftar er brotist inn íheimili en fyrirtæki.
»Geir Jón Þórisson yfirlög-regluþjónn segir að oft
haldi menn uppteknum hætti
strax og þeir sleppa út úr
fangelsinu.
»Ekki þarf marga þjófa tilað hafa áhrif á tíðni inn-
brota.Bergþór Hauksson
Íslendingum hefur ekki verið
boðið til viðræðna við aðrar strand-
þjóðir um stjórnun á sameigin-
legum makrílstofni og engar vís-
bendingar eru um að von sé á slíku
boði.
Íslensk skip hafa veitt rúm 90
þúsund tonn af makríl það sem af er
sumri, á móti 36.500 tonnum á síð-
asta ári og hverfandi afla á árunum
þar á undan. Þessar veiðar hafa
valdið titringi í herbúðum hinna
ríkjanna enda nema þær nú þegar
fimmtungi heildarkvótans og verða
væntanlega dregnar frá kvóta sem
ríkin úthluta á næsta ári. » 6
Makrílveisla en ekki
boðið að samningaborði
Um helm-
ingur leik-
skóla í
Reykjavík,
sem eru um
80 talsins, er
fullmann-
aður. Nú
standa ráðn-
ingar yfir og
því óljóst
hversu margt starfsfólk vantar.
„Þetta er allt önnur staða en var í
fyrra,“ segir Ragnhildur Erla
Bjarnadóttir, sviðsstjóri leik-
skólasviðs Reykjavíkurborgar, en
þá glímdu leikskólar við mikla
manneklu. „Ég finn að það er allt
annað hljóð í okkar stjórnendum en
var í fyrra,“ segir Ragnhildur. Ekki
aðeins séu umsækjendur fleiri held-
ur sækir um fólk með meiri reynslu
og menntun.
ylfa@mbl.is
Fleiri leikskólar
fullmannaðir
Fjárhags-
áætlun Reykja-
víkurborgar
verður lögð
fram á hefð-
bundnum tíma í
haust og und-
irbúningsvinna
stendur sem
hæst, að sögn
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
verðandi borgarstjóra. Breyting á
meirihlutasamstarfi veldur ekki
seinkun.
Hanna Birna var spurð hvernig
breyttar aðstæður í efnahags-
málum myndu endurspeglast í
fjárhagsáætluninni. „Ég tel að það
þurfi að bregðast við því ástandi
sem við blasir á vettvangi borg-
arinnar af mikilli festu og öryggi.
Það mun nýr meirihluti gera, en
ég vil ekki tjá mig nú um þær til-
lögur.“
Fjárhagsáætlun kemur
á hefðbundnum tíma
RÚSSNESKA stangarstökkskonan Jelena Isinbajeva
þurfti ekki nema tvö stökk til að tryggja sér ólympíu-
gullið í gær, en hún lét ekki þar við sitja heldur bætti
hún bæði ólympíumetið og heimsmetið. Það síðarnefnda
átti hún reyndar sjálf. Isinbajeva stökk 4,70 metra, síðan
4,85, þá 4,95 og loks 5,05.
„Auðvitað gerir hann það mjög oft,“ segir Vala Flosa-
dóttir, stangarstökkvari, aðspurð hvort hugurinn hverfi
ekki til baka þegar hún fylgist með Ólympíuleikunum að
heiman. Vala stökk sem kunnugt er 4,50 metra á sínum
tíma og hlaut að launum bronsverðlaun í stangarstökki á
Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.
„Hún á þónokkuð inni,“ segir Vala um Isinbajevu, „Hún er að gera hlut-
ina vel en hún getur gert þá aðeins betur samt sem áður. Ég er viss um að
hún á eftir að stökkva aðeins hærra en þetta,“ segir hún. „Það er gaman að
sjá hvað það eru að gerast góðir hlutir og hvað hefur verið mikil þróun í
greininni,“ segir íslenski bronsverðlaunahafinn, „Það er gaman að sjá að
Ísland var með keppanda þarna,“ bætir hún við og segist vonast til að sjá
fleiri Íslendinga keppa í stangarstökki í framtíðinni.
Telur heimsmethafann
geta bætt sig mikið enn
Vala Flosadóttir
Tveir snarpir jarðskjálftakippir,
upp á 3,7 og 3,8 stig, urðu kl. 13.21 í
gær. Upptök fyrri skjálftans voru
21,9 km ASA af Grímsey og hins 13
km ASA af Grímsey, samkvæmt
óyfirförnum frumniðurstöðum sem
birtar eru á heimasíðu Veðurstofu
Íslands.
Nokkur skjálftahrina kom eftir
hádegið í gær eftir fremur tíðinda-
litla nótt. Upptök flestra jarð-
skjálftanna eru í 10–20 km fjarlægð
austur og austsuðaustur af Gríms-
ey.
Jarðskjálftar við Grímsey