Morgunblaðið - 19.08.2008, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AÐGANGUR að hreinu vatni fyrir almenning í Malaví
verður væntanlega greiðari vegna samstarfs SPRON
og Hjálparstarfs kirkjunnar um vatnsöflun í landinu.
Ætlunin er að bora fyrir 75 vatnsbrunnum með tilstyrk
SPRON og Hjálparstarfs kirkjunnar til að tryggja að-
gang fólks að hreinu vatni. Þá er að hefjast söfnun á
vegum Starfsmannafélags SPRON til kaupa á fimm
þúsund skópörum handa berfættum börnum í Malaví.
Skóleysi barnanna veldur hættu á sýkingum í gegnum
óvarða fætur þeirra.
Malavíski biskupinn í Bvumbwe, hans herradómur
dr. Joseph Paul, heimsótti útibú SPRON í Ármúla í
Reykjavík í gær ásamt Judidth Jere, framkvæmdastjóra
Evangelical Lutheran Development Service, sem stjórn-
ar styrktarverkefni SPRON í Malaví, og Jónasi Þóri
Þórissyni, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar.
Biskupinn kom í þessa heimsókn til að þakka SPRON og
starfsmannafélagi SPRON fyrir veitta aðstoð.
Starfsmannafélag SPRON gaf skólabörnum í Malaví
skólagögn og leikföng að andvirði rúmlega tvær millj-
ónir króna í fyrra. Nú kynnti starfsmannafélagið nýtt
söfnunarátak og á að safna fé til kaupa á fimm þúsund
pörum af skóm handa börnum í Malaví. Flest þeirra
ganga nú um berfætt.
Morgunblaðið/Ómar
Gjafir Dr. Joseph Paul biskup gaf Guðmundi Haukssyni sparisjóðsstjóra
SPRON úrvalskaffi frá Malaví og fékk bækur um Ísland frá Guðmundi.
Berfætt börn fá skó
Malavískur biskup heimsótti SPRON til að þakka veittan
stuðning við vatnsöflun og styrk til malavískra barna
ÖKUMAÐUR á jeppa var stöðvaður
á 150 km hraða á Suðurlandsvegi
við Dalssel í Rangárvallasýslu í
gær. Sektin fyrir brotið er 130 þús-
und krónur.
Töluvert bar og á hraðakstri í
umdæmi lögreglunnar á Selfossi.
Síðdegis höfðu 16 ökumenn verið
stöðvaðir, þar af einn á rúmlega
130 km hraða. Innanbæjar voru
ökumenn einnig stöðvaðir á allt að
80 km hraða.
Þá voru sex ökumenn stöðvaðir
fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut
af lögreglunni á Suðurnesjum.
Menn voru mældir á 118-136 km
hraða og þar af var einn grunaður
um ölvun við akstur.
Tekinn á
150 km hraða
Morgunblaðið/Júlíus
FORSETA Ís-
lands Ólafi Ragn-
ari Grímssyni
hafa borist
heillaóskir frá
ýmsum þjóðhöfð-
ingjum í tilefni af
nýju kjörtímabili
forseta og emb-
ættistöku 1.
ágúst.
Heillaóskirnar
eru m.a. frá þjóðhöfðingjum Norð-
urlanda, George W. Bush forseta
Bandaríkjanna, Medvedev forseta
Rússlands, Hu Jintao forseta Kína,
Akihito keisara Japans og Horst
Köhler forseta Þýskalands.
Í kveðju sinni þakkar George W.
Bush forseta Íslands sérstaklega
fyrir framlag hans við að kynna í
Bandaríkjunum og víðar í veröld-
inni reynslu og þekkingu Íslend-
inga í nýtingu jarðhita og fyrir að
hvetja af framsýni til hagnýtingar
þeirrar tækni í þágu annarra þjóða.
Forseti fékk
heillaóskir
Ólafur Ragnar
Grímsson
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
STARFSENDURHÆFING hefst í
Hafnarfirði í byrjun september. Þar
verður fólk þjónustað sem vegna
slysa, veikinda eða félagslegra erf-
iðleika hefur þurft að hætta vinnu
og stefnir að endurkomu á vinnu-
markaðinn.
Einkum er um að ræða fólk sem
þiggur örorku- eða endurhæfingar-
lífeyri frá Tryggingastofnun eða
bætur frá lífeyrissjóðum, svæðis-
vinnumiðlun eða sveitarfélagi.
Starfsemin verður staðsett í
Menntasetrinu við Lækinn, sem
jafnan er betur þekkt undir heitinu
Gamli-Lækjarskóli.
Samvinna við SN
Umsjón starfsendurhæfingar í
Hafnarfirði verður í höndum sam-
vinnufélags og að því koma meðal
annars fulltrúar frá Hafnafjarðar-
bæ, Starfsmannafélagi Hafnarfjarð-
ar og Verkalýðsfélaginu Hlíf.
Endurhæfingin verður unnin í sam-
vinnu við Starfsendurhæfingu
Norðurlands (SN) og byggir á sömu
hugmyndafræði, sem felst í því að
þátttakandinn tekur virkan þátt í
eigin endurhæfingu og ber ábyrgð á
henni. Til að yfirfæra hugmynda-
fræði SN og aðlaga að hafnfirskum
aðstæðum fékkst styrkur úr Leon-
ardo-sjóði Evrópusambandsins.
Þátttakendur munu vinna saman í
hóp og reynslan hefur sýnt að slíkt
eflir trú þátttakenda á eigin getu.
Áður en endurhæfingin hefst fer
fram ýtarlegt mat á stöðu og þörf-
um þátttakandans.
Starfsendurhæfingin miðar svo
að því að efla fólk til sjálfshjálpar.
Það er meðal annars gert með fjár-
málaráðgjöf, sálfræðistuðningi og
líkamsþjálfun. Þeir sem beina fólki í
starfsendurhæfingu eru til að
mynda læknar, fagfólk í félags-
þjónustu, vinnumiðlanir og aðrir
aðilar sem fólk leitar til í erfið-
leikum.
Vinnur gegn örorku
Algengasta ástæða þess að fólk
hverfur af vinnumarkaði áður en
það nær eftirlaunaaldri er atvinnu-
leysi og örorka. Frá árinu 1995 til
ársins 2006 fjölgaði öryrkjum á Ís-
landi úr 7.800 í 13.200. Það gerir um
6% á ári.
Talið er að skortur á möguleikum
á endurhæfingu sé einn þeirra þátta
sem hefur haft áhrif á þessa þróun.
Starfsendurhæfing hefur reynst
auka líkur á að fólk sem hefur þurft
að hætta vinnu vegna veikinda eða
slysa komist aftur til vinnu og leiða
til þess að færri verða öryrkjar. Þá
eru meiri líkur á að árangur náist ef
endurhæfing hefst fljótlega eftir að
fólk þarf að hætta vinnu.
Starfsendurhæfing hefur ekki
verið algeng hér á landi en hefur þó
verið að færast í aukana.
Í fyrsta hópnum sem þjónustaður
verður í nýju endurhæfingunni í
Hafnarfirði verða um 15-20 manns.
Þjónustan verður að mestu leyti
fjármögnuð af ríkinu og verður
þátttakendum að kostnaðarlausu.
Starfsendur-
hæfing hefst
í Hafnarfirði
„TRYGGINGASTOFNUN greiðir
stærsta hluta kostnaðarins við
þetta og þjónustan verður þátttak-
endum að kostn-
aðarlausu,“ segir
Anna Guðný
Eiríksdóttir, for-
stöðumaður hjá
nýju endurhæf-
ingarmiðstöð-
inni.
Hún segir
starfsendurhæf-
ingu vera mik-
ilvægt málefni
enda hafi öryrkj-
um fjölgað umtalsvert á síðustu ár-
um. „Skortur á endurhæfingarúr-
ræðum er talinn vera einn þáttur-
inn í þessari þróun.“
Mikill skortur
á úrræðum
Hvað er starfsendurhæfing?
Endurhæfing miðar að því að auka
færni fólks og möguleika til þess að
það geti verið virkt í samfélaginu.
Hún hefur reynst auka líkur á að fólk,
sem hætta hefur þurft vinnu vegna
veikinda eða slysa, geti snúið aftur
til vinnu.
Er slík þjónusta algeng hér á
landi?
Starfsendurhæfing hefur ekki verið
mjög áberandi hér á landi en slík
þjónusta hefur færst nokkuð í
aukana. Nýja endurhæfingin verður í
Hafnarfirði og starfar í samvinnu við
Starfsendurhæfingu Norðurlands.
S&S
KONA nokkur æfði listir sínar með sprotum á horni Skólavörðustígs og
Bankastrætis. Spurning er hvort hún er að æfa sig fyrir Menningarnótt,
sem nú nálgast óðfluga, en hún verður haldin hátíðleg um næstu helgi. Þá
gefst gestum og gangandi færi á að gleðja andann, sýna sig og sjá aðra.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Sprotar á götuhorni
Í PISTLI sunnudagsblaðs um
Strætó var ofsagt að aldraðir og
börn ásamt námsmönnum fengju
frítt í strætó. Aldraðir eiga kost á
kortum með verulegum afslætti,
líkt og börn og unglingar á skóla-
aldri. Börn undir skólaaldri þurfa
ekki að greiða fargjald. Einstök
sveitarfélög veita hins vegar fram-
haldsskólanemum og í sumum til-
fellum háskólanemum fríkort í
strætó.
Ekki frítt
í strætó
Anna Guðný
Eiríksdóttir