Morgunblaðið - 19.08.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 9
FRÉTTIR
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„VIÐ ræddum meðal annars um að
hraða þurfi tvísköttunarsamningum
milli ríkjanna tveggja,“ sagði Ro-
hitha Bogollagama, utanríkisráð-
herra Sri Lanka, í gær en ráðherr-
ann er hér á landi í opinberri
heimsókn. „Ég átti mjög árangurs-
ríkar viðræður við bæði forsætisráð-
herrann og utanríkisráðherrann, en
tilgangurinn var að styrkja enn bet-
ur náin samskipti Sri Lanka og Ís-
lands.“ Að hans sögn ræddu ráð-
herrarnir einnig mögulegan
loftferðasamning milli ríkjanna.
„Til þess að hafa sterkan flug-
iðnað þurfum við mikil tengsl við
önnur lönd. Ég notaði heimsóknina
til þess að bjóða íslenskri sendinefnd
að heimsækja Sri Lanka til þess að
ganga frá loftferðasamningi milli Ís-
lands og Sri Lanka, en við þurfum að
efla tenginguna við Evrópu. Við höf-
um mikinn áhuga á þeim framförum
sem Íslendingar hafa náð á sviði
flugmála og við lítum til Íslendinga
sem fyrirmyndar í þeim efnum,“
sagði Rohitha.
Ráðherranum varð einnig tíðrætt
um þær framfarir sem hafa átt sér
stað á Sri Lanka. „Lýðræðis-
umbætur hafa fylgt bættum efna-
hag. Í fyrsta skipti hefur okkur tek-
ist að innleiða stofnanir í austurhluta
Sri Lanka sem starfa á lýðræðis-
grundvelli. Á fundinum gat ég upp-
lýst íslensku ráðherrana um að okk-
ur hefur tekist að veita hryðjuverka-
hópum í landinu mikla mótspyrnu.
Það er markmiðið að eyða með öllu
hryðjuverkum, í hvaða birtingar-
mynd sem er, úr landinu.“ Íslenskar
og norskar eftirlitssveitir, sem starf-
að höfðu á Sri Lanka, yfirgáfu landið
í febrúar á þessu ári.
Dást að Íslendingum
Morgunblaðið/Valdís Thor
Utanríkisráðherra Sri Lanka segist hafa áhuga á þeim
framförum sem Íslendingar hafa náð á sviði flugmála
Í HNOTSKURN
»Sri Lanka er eyja 30 kíló-metrum frá suðurströnd
Indlands og eru íbúarnir rúm-
lega tuttugu milljónir. Sam-
anstanda þeir af mörgum
þjóðarbrotum og skiptast í
nokkra trúflokka.
»Mannréttindasamtök einsog Amnesty International
og Human Rights Watch hafa í
gegnum tíðina harðlega gagn-
rýnt bæði stjórnvöld og að-
skilnaðarsinna í landinu fyrir
mannréttindabrot.
Ráðherrann Rohitha Bogollagama, utanríkisráðherra Sri Lanka, kvaðst ánægður með heimsóknina.
Eftir Atla Vigfússon
Þingeyjarsveit | Kuml og mjög forn
plógför fundust nýlega í Þegj-
andadal sem hafa vakið athygli
fornleifafræðinga en að und-
anförnu hafa staðið yfir fornleifa-
rannsóknir í dalnum sem Hið
þingeyska fornleifafélag og Forn-
leifastofnun Íslands standa fyrir.
Farið var í þessar rannsóknir til
að varpa ljósi á aldur, eðli og um-
fang þeirrar byggðar sem
blómstraði á þessu svæði frá land-
námsöld og fram á miðaldir en
síðan þá hefur dalurinn verið í
eyði og litlar sem engar frásagnir
eru til af eyðingu byggðarinnar.
Þeir sem unnið hafa að rann-
sóknunum telja að líklega megi
finna fleiri kuml á staðnum en það
var á eyðibýlinu Ingiríðarstöðum
sem heiðin gröf fannst með manni
og hesti. Í þessu kumli fannst blý-
met og bútur af gangsilfri og um-
hverfis virtist vera lífrænn úr-
gangur sem gæti hafa verið
pyngja við beltisstað. Þá fannst
járnhlunkur sem talið er að hafi
verið hnífur og einnig fannst fleira
úr járni sem eftir er að greina og
timburleifar með. Annað sem
fannst þarna í grenndinni og er
talið mjög merkilegt eru ævagöm-
ul plógför eftir arð sem var V–
laga frumstæður plógur sem dreg-
inn var af stórgrip. Ekki er vitað
að slík ummerki arðs hafi áður
fundist hér á landi og út frá
gjóskulögum eru plógförin tölu-
vert mikið eldri en frá 1300 og að
líkindum frá 10. öld. Þessi fundur
hefur vakið ýmsar spurningar um
landbúnaðarhætti og lífsviðurværi
fólksins sem þarna bjó sem ef til
vill stundaði kornrækt á jörð-
unum.
Til stendur að fram fari frekari
rannsóknir í Þegjandadal á næstu
árum en sérfræðingum þykir sýnt
að garðlög þar hafi verið byggð
ekki seinna en á 10. öld og er mik-
ill áhugi meðal félagsmanna í Hinu
þingeyska fornleifafélagi að vinna
með Fornleifastofnun Íslands að
þessu áhugaverða verkefni.
Kuml og forn plógför
finnast á Þegjandadal
Í HNOTSKURN
»Þegjandadalur er upp af Aðaldal í S-Þing. á milli Þorgerðarfjallsog Múlaheiðar. Þegjandadals er getið í Landnámu en svo ekki fyrr
en á 14. öld og skv. ritheimildum virðist allt í eyði strax á 16. öld.
»Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur og Jón Sigurgeirsson fráHelluvaði grófu á eyðibýlinu Einarsstöðum í Þegjandadal sumarið
1974 og komu niður á gjósku frá 1477 yfir rústunum.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Áhugavert Kumlið hefur vakið athygli fornleifafræðinga. Hið þingeyska
fornleifafélag og Fornleifastofnun Íslands standa fyrir rannsóknunum.
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 36-56
Nýjar
vörur frá
NÝTT - NÝTT
Glæsilegur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mánud.-föstud. 10-18
Opið laugard. í Bæjarlind 10-15
fatnaður frá
ÚTSALA
30-75%
afsláttur
www.xena.is
SÉRVERSLUN
Stærðir 36- 44
GLÆSIBÆ S: 553 7060
Lestrarskóli
Helgu Sigurjónsdóttur
Meðalbraut 14, 200 Kópavogi
„Læs“ á átta vikum
Byrjendanámskeið í lestri.
Næsta lestrarnámskeið hefst 25. ágúst
og lýkur í október. Námið er ætlað fjögurra og fimm ára börnum.
Kennt er hálftíma á dag, fjórum sinnum í viku.
Hópar eru kl. 8.00, 8.30 og 15.00.
Verð kr. 30.000, námsefni er innifalið.
Skóli Helgu Sigurjónsdóttur
Meðalbraut 14 í Kópavogi.
Netfang: helgasd@internet.is
Veffang: www.skolihelgu.is
S. 554 2337og 696 2834.
Fréttir
í tölvupósti