Morgunblaðið - 19.08.2008, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Kær vinur er nú
kvaddur eftir nær
hálfrar aldar kynni og vináttu.
Fundum okkar bar saman í upp-
hafi sjötta áratugar síðustu aldar.
Þá hófumst við handa um svipað
leyti við að byggja okkur framtíðar-
hús við götuna Stekkjarflöt í Garða-
bæ. Hann og Eyja, kona hans, á lóð
nr. 5 en við Stella á nr. 14.
Þar urðu svo heimili okkar næstu
áratugina og samgangur mikill milli
fjölskyldnanna og vina og kunningja
sem byggðu þar á næstu grösum.
Þetta voru frumbyggjar Flatahverf-
isins í Garðabæ.
Margs er að minnast frá þessum
fyrstu árum og raunar sækja að
minningar allt til hinna síðustu ára
um góða granna, þótt samfundum
hafi fækkað hin seinni árin, svo sem
oft vill verða þegar aldur færist yfir.
Auk þess fluttu þau Árni og Eyja á
aðrar slóðir fyrir um fjórum árum.
Þau eignuðust fjóra syni á þessum
árum og við Stella eina dóttur. Þau
voru öll einstakir leikfélagar, leik-
völlurinn gjarnan lóðirnar umhverfis
hús okkar, og svo hraunið sunnan
byggðarinnar með öll sín ævintýra-
lönd og bakkar Hraunsholtslækjar
þar sem horft var á lontur að leik.
Þarna var gott að vera og alast upp.
En það var ekki aðeins að börnin
knýttu vinaböndin. Við Árni vorum
félagar í Rótarýklúbbnum Görðum.
Þar stofnuðum við söngkvartett með
góðum félögum og skemmtum á
árshátíðum klúbbsins um nokkurra
ára skeið.
Og svo var líka sungið á heimilum
okkar og félaganna. Árni var sá eini
okkar sem hafði jú lært söng. Hann
Árni Jónsson
✝ Árni Jónssonfæddist í Hólmi í
Austur-Land-
eyjahreppi í Rang-
árvallasýslu 12. maí
1926. Hann lést á
Landspítalanum,
Fossvogi, 29. júlí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fossvogskirkju 16.
ágúst.
hafði undurfagra ten-
órrödd sem hann hafði
þjálfað í óperuskólum
á Ítalíu og víðar. Hann
hélt söngskemmtanir
hér heima að loknu
námi og hlaut lof fyrir
söng sinn. Ég held að
honum hafi staðið
ýmsar dyr opnar á
þessum fyrstu árum.
En af ástæðum sem
mér eru ekki nægilega
kunnar kaus hann að
leggja sönginn að
mestu leyti á hilluna.
Löngu síðar tók hann sig þó aftur til
og hélt söngskemmtanir á nokkrum
stöðum. Fylgdi hann þannig eftir út-
gáfu á hljómdiski þar sem er að finna
upptökur af mörgum hans þekktustu
sönglögum.
Við minnumst margra ferða sem
við fórum með Árna, Eyju og drengj-
unum. Þá var slegið upp tjöldum á
fögrum stöðum eða dvalið í sumar-
húsi í grennd við æskuslóðir hans.
Gjarnan var þá rennt fyrir silung og
einstaka sinnum farið í laxveiði.
En lífið er ekki allt aðeins leikur.
Árni átti oft við veikindi að stríða
sem settu auðvitað mark sitt á frama
hans sem söngvara og gerðu honum
að öðru leyti erfitt fyrir. Fyrir um
tólf árum varð hann alvarlega veikur
og varð að gangast undir erfiðan
uppskurð. Átti hann lengi í þeim
veikindum og má raunar segja að
hann hafi ekki náð heilsu eftir þá
raun.
En Árni átti góða konu, hana
Eyju, sem annaðist hann af stakri
kostgæfni og fórnfýsi. Þess naut
hann ekki síst hin seinni ár þegar
veikindi sóttu á af meiri þunga.
Hann átti líka góða drengi sem hafa
verið foreldrum sínum einkar góðir
og umhyggjusamir.
Við Stella, Ásta dóttir okkar og
hennar fjölskylda, þökkum sam-
fylgdina og allar góðu stundirnar
sem við áttum saman.
Góður drengur er genginn. Hvíli
hann í friði. Eyju, sonunum og öðr-
um ættingjum biðjum við Guðs
blessunar.
Ólafur G. Einarsson.
Vor sál er himnesk harpa
helgum Guði frá,
vér lifum til að læra
að leika hana á.
Og þá sem ljúfast leika
þau lög, sem Drottinn ann,
við komu dauðans kallar
í kóra sína hann.
(Gunnar Árnason.)
Eftir eitt besta sumar sem við
munum hefur vinur okkar til margra
ára, Árni Jónsson söngvari, kvatt að
sinni og tekur nú væntanlega þátt í
himnakórnum.
Lífsferill Árna var fjölbreyttur allt
frá því að hann var sveitadrengur í
Landeyjunum til þess að stunda
söngnám víða erlendis og halda
söngtónleika víða um lönd en einkum
á Íslandi. Hann fékk í vöggugjöf ein-
staklega sterka og mikla rödd og því
fór ekki milli mála hvar hann var á
ferðinni því fallega tenórröddin hans
þekktist hvar sem var. Á þeim tím-
um var ekki hægt að lifa af sönglist-
inni hér á Íslandi og því varð ævi-
starf hans á öðru sviði en ávallt hafði
hann sönginn með. Árni var þrek-
vaxinn og þéttur í lund, hafði breitt
og gefandi bros sem allir þekktu, var
röskur í spori og léttur á sér og mjög
greiðvikinn. Hann var sérlega kurt-
eis og háttvís í allri framkomu og
mikið snyrtimenni, ávallt vel til hafð-
ur á allan hátt svo eftir var tekið.
Kynni okkar hófust er Árni giftist
vinkonu okkar Eyju 1964 og frá þeim
tíma höfum við fylgt þeim á gleði- og
sorgarstundum og fylgst með börn-
unum okkar vaxa úr grasi. Árni var
ríkur maður því þau Eyja eignuðust
fjóra drengi en fyrir átti Árni son frá
fyrra hjónabandi. Mikil auðæfi felast
í fimm sonum sem allir eru vel
menntaðir og nýtir þjóðfélagsþegnar
en fyrst og fremst hafa þeir verið
foreldrum sínum sérstaklega góðir
og hjálpsamir ekki síst nú í veikind-
um Árna. Ennfremur hafa tengda-
dæturnar og barnabörnin veitt hon-
um mikla gleði. Hann talaði oft um
hve lánsamur og þakklátur hann var
Eyju fyrir alla umhyggjuna og sagði
að hann hefði ekki komist í gegnum
veikindaloturnar án hennar sem er
sannarlega satt því hún hjúkraði
Árna sínum af stakri alúð og elsku öll
veikindaárin.
Við hjónin, börnin okkar Jón
Gunnar og Sigga Þrúður og fjöl-
skyldur þeirra, þökkum af alhug all-
ar ánægjulegu samverustundirnir og
mikla gestristni á heimili þeirra, en
Árni var sannur gestgjafi eins og
sveitamanni og heimsmanni sæmir.
Saumaklúbburinn hennar Eyju átti
góðar stundir með Árna og þakkar
fyrir þær og sendir sínar innilegustu
samúarkveðjur.
Elsku Eyja, Ragnar, Valur, Jónsi,
Tryggvi og Sigurjón, tengdadæturn-
ar og öll barnabörnin, hugur okkar
er hjá ykkur og við biðjum góðan
Guð um að líkna ykkur í sorginni og
um frið ykkur til handa, fjölskyldum
ykkar, systkinum Árna og öðrum
ættingjum.
Minning um góðan dreng lifir.
Hertha og Stefán.
„Seg mig god natt i denna stilla
stund …“ Inni í lítilli baðstofu að
Kirkjubóli í Valþjófsdal stendur Árni
Jónsson söngvari síðdegis í júlí fyrir
45 árum og er að æfa sig með Skúla
Ég var svo heppin
að fá að kynnast
Stínu, eða ömmu
Stínu eins og ég kallaði hana nán-
ast alltaf, hefði svo sannarlega vilj-
að að árin hefðu verið fleiri með
henni en þau urðu bara fjögur.
Þegar við hittumst fyrst hugsaði
ég með mér að ég vildi verða
svona hress og kraftmikil þegar ég
yrði eldri.
Ömmu Stínu var margt til lista
lagt, það var nú líklega fátt sem
ekki lék í þessum fimu höndum.
Kristín Magnúsdóttir
✝ Kristín Hólm-fríður Halla
Magnúsdóttir fædd-
ist á Siglufirði 1.
maí 1924. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 1. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Bústaðakirkju
18. ágúst.
Heimilið hennar bar
þess svo sannarlega
merki, svo fallegt,
fullt af flottum mun-
um sem hún hafði
búið til. Amma Stína
útbjó skírnarkerti
þegar Sæþór var
skírður, ég hef oft
skoðað kertið vand-
lega og það eru bara
listamannshendur
sem geta útbúið
svona muni. Það var
svo sannarlega falleg
sjón þegar Sæþór
fékk að sofa í fanginu á langömmu
sinni nokkrum dögum fyrir andlát-
ið, amma Stína var alltaf svo hrifin
af hárinu hans og klappaði honum
svo blítt. Ég á svo sannarlega eftir
að segja honum frá langömmu
sinni.
Góðar minningar um yndislega
konu lifa með okkur um ókomna
tíð.
Ragnhildur Gunnlaugsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR ÞORVALDSDÓTTIR,
Reykjavikurvegur 50,
Hafnarfirði
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
17. ágúst.
Áslaug Gísladóttir, Kristján Kristjánsson,
Guðrún Kristjánsdóttir, Þórður Harðarsson,
Hjörtur Kristjánsson,
Jón Ragnar Kristjánsson, Guðrún Ósk Stefánsdóttir,
og ömmubörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR SIGURÐSSON,
Kirkjulundi 8,
Garðabæ,
áður Heiðargerði 90,
Reykjavík,
sem lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
laugardaginn 16. ágúst, verður jarðsunginn frá
Vídalínkirkju miðvikudaginn 27. ágúst kl. 15.00.
Erla Fríður Sigurðardóttir, Ingvar Friðriksson,
Fríður Sigurðardóttir, Ari Guðmundsson,
Guðmundur Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og systir,
HRAFNHILDUR HANNESDÓTTIR,
Huldulandi 22,
Reykjavík,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi við Hringbraut
sunnudaginn 17. ágúst.
Þórir Halldórsson,
Rannveig Þórisdóttir, Eiður Jóhannsson,
Hannes Þórisson, Áslaug S. Jónsdóttir,
Hrafnhildur, Jóhann og Þórir,
Ingibjörg Hannesdóttir
✝
Eiginmaður min, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi
PÁLL BECK,
lést á Droplaugastöðum laugardaginn 16. ágúst,
Guðný Sigurðardóttir,
Brynja Beck, Sölvi Stefán Arnarson,
Axel Þór Beck,
Sigurður Pálsson Hrefna Egilsdóttir,
Kristín Þóra Pálsdóttir Beck, Rögnvaldur Stefán Cook,
Rikarður Pálsson, Elísabet Rafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HAFDÍS K. ÓLAFSSON,
Lindargata 9,
Siglufirði,
sem lést sunnudaginn 17. ágúst verður jarðsungin
frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 23. ágúst
kl.14.00.
Hinrik Karl Aðalsteinsson,
Jón Aðalsteinn Hinriksson, Anna Viðarsdóttir,
Auður Helena Hinriksdóttir, Bergsteinn Gíslason,
Hinrik Karl Hinriksson, Bylgja Rúna Aradóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
✝
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
ANTON V. ÁRMANNSSON
frá Urðum í Svarfaðardal,
lést laugardaginn 9. ágúst.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Zophonías Antonsson og fjölskylda.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar