Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er þriðjudagur
19. ágúst, 232. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun út
fara frá bústað sínum, mun ofan stíga
og ganga eftir hæðum jarðarinnar.
(Mík. 1, 3.)
Víkverji hefur sökum krankleikahorft meira á útsendingar Sjón-
varpsins frá ÓL í Peking en ella hefði
orðið. Hinar ólíklegustu íþróttagrein-
ar hafa orðið til að stytta stundir, t.d.
dýfingar og fimleikar, en lýsingar
sjónvarpsþula á þeim hafa verið lýj-
andi og virkað sem besta svefnlyf.
Mesta fjörið hefur verið í frjálsum
íþróttum. Samúel Örn getur verið
frískur og frumlegur í sínum lýs-
ingum en hann á langt í land með að
ná tilburðum kollega síns, Sig-
urbjörns Árna Arngrímssonar. Fyrir
utan það að vera gangandi alfræðirit
um frjálsar eru lýsingar hans stór-
kostlegar. Það ætti að stoppa þennan
dreng upp að honum gengnum í
Efstaleitinu! Sigurbjörn hefur fengið
hjarta Víkverja til að slá aukaslög í
lokaspretti í greinum á borð við 3.000
metra hindrunarhlaup kvenna. Sjón-
varpið ætti að fastráða þennan
dreng, hann er vissulega sérfræð-
ingur í frjálsum íþróttum en hann
getur lýst hverju því sem hreyfist.
Væri t.d. gaman að heyra hann lýsa
golfi.
x x x
Víkverji fær sér heilsubótargönguum hverfið öðru hvoru og þeim
ferðum hefur fjölgað undanfarið sök-
um fyrrnefnds krankleika. Oftar en
ekki liggur leiðin upp Háteigsveginn
og framhjá Vatnshólnum svonefnda
við Stýrimannaskólann. Umhirða á
þeim ágæta hól er viðkomandi eig-
anda til skammar, hvort sem það er
Reykjavíkurborg eða Orkuveita
Reykjavíkur. Hóllinn er kominn í
órækt og orðinn umhverfislýti í
hverfinu. Úr þessu þarf að bæta.
x x x
Skólavörðustígur var opnaður fyrirumferð um helgina eftir gagn-
gerar endurbætur. Víkverji átti þar
leið um á sunnudeginum, ásamt
fjölda fólks, og þótti mörgum undr-
unarefni hve fáar verslanir voru opn-
ar. Þær mátti telja á fingrum ann-
arrar handar. Vonandi hefur
gröfturinn ekki tekið burt við-
skiptavitið frá kaupmönnum þess-
arar góðu götu. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 forspár, 8
gjóla, 9 smáaldan, 10
verkfæri, 11 fleina, 13
meiðir, 15 ráðrík kona,
18 rengla, 21 nem, 22 af-
laga, 23 sáðlands, 24
áköf.
Lóðrétt | 2 styrkti, 3
mæla fyrir, 4 einkennis,
5 afkvæmi, 6 afkimi, 7
vendir, 12 tangi,14 kyn,
15 tegund, 16 hamingja,
17 bikar, 18 sundfugl, 19
duglegur, 20 súg.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gerla, 4 fátæk, 7 gotan, 8 loppa, 9 aum, 11 alin,
13 árna, 14 ærnar, 15 kurr, 17 arða, 20 org, 22 býður, 23
lagin, 24 sorti, 25 pésar.
Lóðrétt: 1 gegna, 2 rætni, 3 Anna, 4 fálm, 5 tapar, 6
klaga, 10 unnur, 12 nær, 13 ára, 15 kubbs, 16 ræður, 18
regns, 19 agnir, 20 orgi, 21 gláp.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O–O b5 6. Bb3 Be7 7. c3 d6 8. He1
O–O 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12.
b3 cxd4 13. cxd4 exd4 14. Rxd4 Rc6 15.
Rxc6 Dxc6 16. Dd3 Bb7 17. f3 Hac8 18.
He2 Rd7 19. Bb2 Re5 20. Dd2 Bf6 21.
Rc3 Staðan kom upp á helgarmóti Tafl-
félagsins Hellis og Taflfélags Reykja-
víkur sem lauk fyrir skömmu. Örn
Stefánsson (1310) hafði svart gegn
Tinnu Finnbogadóttur (1655). 21…
Rxf3+! 22. gxf3 Bxc3 23. Bxc3 Dxc3
24. Hd1 Dxf3 svartur hefur nú gjör-
unnið tafl. Framhaldið varð: 25. Hf1
Dh5 26. Hg2 Dc5+ 27. Kh1 g6 28. Bb1
d5 29. Hg4 dxe4 30. Bxe4 Bxe4+ 31.
Hxe4 Dc6 32. Dg2 f5 33. He7 Dxg2+
34. Kxg2 Hf7 35. He6 Hc2+ 36. Hf2
Hxf2+ 37. Kxf2 Ha7 38. Ke3 Kg7 39.
Kd4 Kh6 40. Kc5 f4 41. Kd4 Hf7 42.
Hxa6 f3 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Innblástur.
Norður
♠G85
♥ÁD1086
♦Á7
♣G73
Vestur Austur
♠Á104 ♠K7632
♥G74 ♥53
♦G953 ♦D62
♣865 ♣1042
Suður
♠D9
♥K92
♦K1084
♣ÁKD9
Suður spilar 6G.
„Innblásin spilamennska,“ segir Vic-
tor Mollo um úrvinnslu sagnhafa, en er
þögull sem gröfin um sagnir. Skilj-
anlega, því það er lítill virðuleiki yfir
því að melda slemmu þar sem tvo efstu
vantar í sama lit. Og ýmislegt fleira
vantar líka, því þrátt fyrir útspil í tígli
virðast ellefu slagir hámarkið. En
sjáum til.
Hinn ónefndi sagnhafi Mollos lét lít-
inn tígul úr borði og dúkkaði drottn-
ingu austurs! Aftur kom tígull (enda
austur ekki ófreskur) og sagnhafi tók
slagina sína í laufi og hjarta. Undir lok-
in fór að hitna undir vestri, sem vildi
ólmur halda í ♠Á og henti því tígli frá
♦G95. Sagnhafi fékk þannig úr-
slitaslaginn á ♦10. Eins og málpípa
Mollos, Gölturinn grimmi, hefur stund-
um sagt, þá hafa slæmar sagnir gjarn-
an jákvæð áhrif á spilamennskuna.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur enn ekki fundið hinn full-
komna áheyranda sem er uppnuminn af
hverju orði sem hrynur af vörum þér.
Ekki örvænta, hann birtist í næstu viku.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú færð óvænt nokkur ný ábyrgð-
arhlutverk, en þau eru lítil miðað við það
sem þú hefur fengist við undanfarið. Þú
ert að ganga inn í gott tímabil.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sjálfsmatið endurspeglast í öllu
sem þú tekur þér fyrir hendur. Það hvet-
ur þig til að biðja fólk frekar um greiða –
og það kann að meta það. Því skaltu ekki
hika.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hvers vegna finnst þér eins og
sannleikurinn sé ekki heiðarlegur?
Kannski það felist meira í honum en hægt
er að útskýra? Fáðu álit annarra.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert svo heppinn. Allt sem þú
þarfnast er beint fyrir framan þig. Fagn-
aðu því áður en þú ferð að velta fyrir þér á
hverju fleiru þú þurfir að halda.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert tilbúinn fyrir lífið – þú þarft
ekkert meira að gera. Vertu bara þar sem
þú átt að vera. Komdu þér vel fyrir og
láttu þér líða eins og heima hjá þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er eins og stjörnurnar hafi útbúið
fyrir þig sérstakt krem til að verja þig
fyrir pirringi. Sambandið er á hreinu –
hinn aðilinn breytist til batnaðar. Gaman!
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú skiptir máli – það miklu
máli að þess verður minnst eftir dauða
þinn. Þú gefur frá þér svo mikla ást að
hún nær út fyrir endimörk alheimsins.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Lífið virðist áskorun þegar þú
kemur heim úr einu af þínum stóru æv-
intýrum. Vanagangur lífsins, sem hentaði
þér svo vel, passar nú engan veginn.
Vertu þolinmóður.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það skiptir ekki máli hvað það
er, þú reddar því, þarft bara réttu verk-
færin. Vinnuhanska fyrir sterkar tilfinn-
ingar og silkihanska fyrir þær viðkvæmu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Æfðu þig í samskiptatækni.
Reyndu að gefa frá þér eins nákvæm
skilaboð og þér er unnt. Þú skilgreinir
eigin persónuleika með víxlverkan.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Um leið og þú hefur skilið hvað
þarf til að láta hlutina virka breytist þú úr
nöldrara í framkvæmdamanneskju. Ár-
angurinn veitir öðrum innblástur.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
19. ágúst 1950
Skriða féll á tvílyft steinhús á
Seyðisfirði og varð fimm
manns að bana, móður og fjór-
um börnum. Nokkur önnur
hús skemmdust í bænum og
einnig urðu skemmdir á Eski-
firði og Reyðarfirði.
19. ágúst 1959
Á forsíðu Morgunblaðsins
birtust myndir frá landsleik
Dana og Íslendinga í Kaup-
mannahöfn daginn áður, en
leiknum lauk með jafntefli.
Þetta voru fyrstu símsendu
fréttamyndirnar sem birtust í
íslensku blaði.
19. ágúst 1993
Íslenskir togarar hófu veiðar
utan 200 mílna landhelgi í svo-
nefndri Smugu í Barentshafi.
Þar með hófst Smugudeilan
við Norðmenn.
19. ágúst 2000
Tugir þúsunda manna fylgd-
ust með stærstu flugeldasýn-
ingu hér á landi en hún var
haldin í tilefni aldamótaársins
og í tengslum við menning-
arnótt í Reykjavík.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá …
Lovísa Ýr Héðinsdóttir, Anna
Lilja Valdimarsdóttir, Þormóður
Geir Héðinsson og Sigurjón Ár-
mann Björnsson héldu tombólu til
styrktar Rauða krossinum við
verslunarmiðstöðina Glerártorg á
Akureyri og söfnuðu 6.111 kr. Á
myndina vantar Sigurjón Ármann.
Hlutavelta
OTTÓ Eyfjörð, listmálari, er áttræður í dag. Hann
er giftur Fjólu Guðlaugsdóttur og þau eiga fimm
börn. Barnabörnin eru orðin 18 talsins og barna-
barnabörnin 6.
„Við hjónin ætlum að skreppa austur í Skafta-
fellssýslu og hafa það gott. Gista eina nótt á hóteli
og hafa það náðugt. En það verður ekkert meira
vesen en þetta,“ segir Ottó, aðspurður hvernig
hann muni fagna deginum.
Ottó setti upp vel sótta málverkasýningu í vor
og í fyrra setti hann upp ljósmyndasýningu. „Ég
hef verið að braska í þessum myndum í mörg ár –
bæði að mála og að taka ljósmyndir.“ Hann segir jafnframt að þessa
dagana reyni hann að rækta garðinn sinn vel. „Við erum með hérna
veglegan garð hjá okkur, sem ég dunda mér í, og svo hef ég líka verið
að taka passamyndir. Ég er með góða tölvu hérna heima þar sem ég
get lagað myndir og þvíumlíkt. Maður hefur gott af því.“
Í sumar hefur Ottó staðið í lagfæringum á húsinu sínu og ferðast
smávegis. „Við létum skipta um þak á húsinu. Svo höfum við reynt að
ferðast aðeins en maður er víst orðinn það gamall að maður verður að
fara aðeins hægar yfir en áður,“ segir hann hlæjandi.
Þá segist Ottó taka við og við í hljóðfæri sitt – harmonikuna. „Ég
spilaði mikið á böllum í gamla daga og reyni að spila á hana við og við.
Ég hef svo gaman af því.“ haa@mbl.is
Ottó Eyfjörð, listmálari, er áttræður í dag
Fer örlítið hægar yfir
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is