Morgunblaðið - 19.08.2008, Page 28
Undirritaður er t.d. bú-
inn að búa sér til hina
miklu bardagahetju Ásgeir-
san … 28
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
VEGLEGUR geisladiskur er vænt-
anlegur í nóvember þar sem hægt
verður að sjá sýninguna Laddi 6-
tugur sem flutt hefur verið við mikl-
ar vinsældir síðan í febrúar 2006.
„Annars vegar er það sýningin og
allt sem henni tengist, og svo mað-
urinn sjálfur, Laddi, og hans ferill,“
segir Ísleifur Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Bravó, sem gefur
diskinn út í samstarfi við Senu.
Bak við tjöldin
„Sýningin hefur verið tekin upp
nokkrum sinnum, m.a. þær sýningar
þar sem hafa verið sérstakar uppá-
komur t.d. þegar Laddi varð 61 árs
og fékk til sín leynigesti úr Heilsu-
bælinu, og á 100. sýningunni þegar
Bryndís Schram, Björgvin Halldórs
og Sigga Beinteins komu,“ segir Ís-
leifur. „Svo hafa myndatökumenn
fylgst með baksviðs og séð hvernig
Laddi hleypur úr einu gervi í annað.
Rætt hefur verið við aðstandendur
sýningarinnar og gesti.“
Hugsanlega tvöfaldur pakki
Ísleifur leggur á það áherslu að
diskurinn muni verða drekkhlaðinn
af efni. „Laddi mætir örugglega í
hljóðver og segir frá uppruna atrið-
anna og persónanna og verður hægt
að hlusta á um leið og horft er á sýn-
inguna. Við viðum að okkur alls kyns
aukaefni, jafnvel eldra efni með
Halla og Ladda, og þátturinn sem
Logi Bergmann gerði í vetur um
Ladda verður á diskinum í heilu
lagi,“ segir Ísleifur og bætir við að ef
efnið rúmist ekki á einum diski verði
væntanlega um tvöfalda útgáfu að
ræða. „Diskurinn á að vera Laddi
eins og hann leggur sig, og þetta á
einfaldlega að vera flottasti diskur
sem gerður hefur verið á Íslandi.“
Nokkrar aukasýningar
Sýningum á grínleik Ladda átti að
vera lokið, enda höfðu verið haldnar
130 sýningar fyrir fullu húsi. Vegna
fjölda áskorana hefur verið ákveðið
að halda nokkrar aukasýningar í
október og nóvember. Ísleifur reikn-
ar með að miðasala hefjist strax á
föstudag þegar miðasala Borgarleik-
hússins verður opnuð.
Laddi á DVD og nokkrar viðbótarsýningar
Morgunblaðið/ÞÖK
Óborganlegur Á diskinum verður nánast tæmandi umfjöllun um Ladda.
www.bravo.is
Sjónvarpið hef-
ur lengi verið
gagnrýnt fyrir að
sinna illa listmiðli
sem er sem snið-
inn fyrir sjón-
varp, myndlist-
inni. Í síðustu viku bárust þær
gleðifréttir að menningarsjón-
varpsmaðurinn Þorsteinn J. myndi
bæta úr þessu með nýjum menning-
arþætti næsta vetur í Sjónvarpinu,
Kátu maskínunni, þar sem sinna á
öllum listgreinum.
Þátturinn verður í anda South
Bank Show, einn listamaður tekinn
rækilega fyrir í hverjum þætti,
portrett dregið upp af honum svo
að segja. Einu þættirnir um mynd-
list í Sjónvarpinu undanfarið hafa
verið erlendir örþættir um lista-
menn Carnegie Art Awards sýning-
arinnar, sem enn er verið að sýna
(þó sýningunni hafi lokið í Gerð-
arsafni fyrir níu dögum). Vonandi
að myndlistin fái nú fastan sess.
Loksins, loksins, loks-
ins, loksins myndlist
Og aftur að Sjónvarpinu. Í fyrra-
kvöld voru gerð allt að því súrreal-
ísk mistök í dagskrá stöðvarinnar
þegar bandaríska kvikmyndin The
Sisters (Systurnar) var sýnd í stað
auglýstrar, argentískrar myndar,
Hermanas (Systur). Sú argentíska,
frá árinu 2005, var auglýst á dag-
skrá í öllum fjölmiðlum og m.a.s.
kynnt af sjónvarpsþulu áður en sýn-
ing hófst á þeirri bandarísku, sem
einnig er frá árinu 2005.
Áhorfendur hafa eflaust margir
klórað sér í hausnum og velt fyrir
sér hvernig svona nokkuð gæti
gerst í gamla, góða Sjónvarpinu.
Voru tveir diskar í útsending-
arklefa merktir „Systur“? Verður
argentíska myndin sýnd næst? Eða
verður hún auglýst en mynd Brians
de Palma, Sisters, frá árinu 1973,
sýnd í hennar stað? Spennandi...
Systrum víxlað
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„ÞETTA fjallar um firringu nútímamannsins í
nútímasamfélagi, fer úr míkrókosmos yfir í hið
stóra og úr trúarlegu yfir í veraldlegt,“ segir
Borgar Þór Magnason um vídeóóperuna Indeep-
endance (sérviskuleg stafsetningin vísar í djúp
og dans) sem frumsýnd verður í Arena Civica í
Mílanóborg hinn 11. september næstkomandi. Í
umrætt hringleikahús komast 2.000 áhorfendur
og þar verða fjórir veggir með risaskjám, 9 x 16
metra stórum, og sviði á miðjunni, en þarna hafa
hljómsveitir á borð við Sigur Rós, Radiohead og
REM spilað í ár. Hringleikahúsið fagnaði hins
vegar 201 árs afmæli sínu í gær og í árdaga þess
skemmti meðal annars Buffalo-Bill áhorfendum.
Eins og stórt reif
Um er að ræða vídeólistaverk í 13 köflum og
kemur Borgar að verkinu sem tónskáld, útsetj-
ari, hljómsveitarstjóri og hljóðfæraleikari. „Það
er svolítið mikil kvikmyndatónlistarstemning í
þessu, þetta á líka að vera svolítið stuð í leiðinni,
þetta er í rauninni eins og reif, þetta er svo stórt
og hver sena er á að giska fimm mínútur.“ Þeir
sem standa á bak við vídeóverkin eru Masbetos-
tvíeykið, vídeólistamenn sem Borgar segir ung-
ar listastjörnur á Ítalíu, ítalski rithöfundurinn
Aldo Nove og tónlistarmaðurinn Vittorio Cosma,
en Borgar hefur áður unnið með Masbestos.
Múm í Mílanó
„Svo vann ég eitt trakkið með Howie B og
fékk Stewart Copeland fyrir annað,“ segir Borg-
ar sem lenti einmitt nýlega í forvitnilegu partíi
með Copeland, sem er trommari hinnar góð-
kunnu sveitar The Police. „Já, kvöldið áður voru
Police með síðustu tónleikana í þessum end-
urkomutúr og þar hitti maður öll átrúnaðar-
goðin, stóð með Annie Lennox öðrum megin við
mig og Terry Gilliam hinum megin og var að
spjalla við Jeff Beck og frú, en konan hans Jeffs
Becks var mjög forvitin um Ísland.“
Alls verður verkið sýnt fjórum sinnum, 11. til
14. september, og í hvert skipti er tónlistin tekin
burt úr einhverri af þessum þrettán senum og
einhver hljómsveit fengin til þess að fylla upp í
gatið. Síðasta kvöldið mun hljósmveitin múm
taka það að sér og spila lag með Borgari sem
hann samdi með þeim. Borgar hefur þó ekki ver-
ið sérstaklega áberandi hér heima undanfarin
misseri enda verið búsettur erlendis í rúman
áratug. „Ég fór út í nám og hef svo starfað sem
klassískur hljóðfæraleikari, spilaði með kamm-
erhljómsveit í Amsterdam og var fastráðinn í út-
varpshljómsveit í Brussel í einhver ár. Fór svo
meira út í lausamennsku og meira út í nútíma-
tónlist og það að semja sjálfur. Ég hef gert tón-
list fyrir vídeóverk Gabríelu Friðriksdóttur, við
unnum mikið saman á tímabili,“ segir Borgar en
þau Gabríela fóru saman með verk á Feneyja-
tvíæringinn 2005. „En ég flutti heim fyrir rúmu
ári þótt ég hafi ekki spilað svo mikið hérna, en
næsta vetur fer ég væntanlega loksins að vinna á
Íslandi að einhverju ráði.“
Djúpdans í Mílanó
Borgar Þór Magnason semur tónlist við vídeóóperu sem sýnd verður í ítölsku
hringleikahúsi Spilar með múm síðasta kvöldið Fetar í fótspor Buffalo Bills
Morgunblaðið/G.Rúnar
Í hringleikahúsi Borgar fetar í fótspor Sigur Rósar, Radiohead, R.E.M. og Buffalo Bill þegar hann spilar í Arena Civica í Mílanó.