Morgunblaðið - 19.08.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 29
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Þri 19/8 kl. 17:30 U
Lau 23/8 kl. 15:00 Ö
Lau 23/8 kl. 20:00
Sun 24/8 kl. 16:00 U
Fös 29/8 kl. 20:00 Ö
Lau 30/8 kl. 15:00
Lau 30/8 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 15:00
Lau 6/9 kl. 20:00 U
Sun 7/9 kl. 16:00
Fös 3/10 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 15:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Frú Norma
4711166 | norma@frunorma.is
Fjársjóðsleit (Útisýning)
Lau 23/8 kl. 16:30
Soffía mús á tímaflakki (Farandleiksýning)
Þri 19/8 kl. 15:00
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 4/9 kl. 20:00 Fim 11/9 kl. 20:00 Fim 18/9 kl. 20:00
Sumartónleikar LSÓ
í kvöld, þriðjudag, kl. 20:30
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Laugarnestanga 70, 105 Rvk.
www.LSO.is - LSO@LSO.is
Guðný Guðmundsdóttir fiðla
og Gunnar Kvaran selló
Verk e. Karólínu Eiríksdóttur,
Bach og Honegger
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÉG VEIT eiginlega ekkert í hvaða
box er hægt að setja þessa tónlist
okkar,“ segir Heiða og hlær pínu
vandræðalega. Hún hittir samt eig-
inlega naglann á höfuðið: um leið og
tónlistin er hægstreym og áferð-
arfalleg – og giska aðgengileg þann-
ig er erfiðara að negla niður geirann.
Djass? Jú. En líka smá-þjóðlaga-
tónlist, nútímaklassík og heilnæmur
slatti af óræðum spuna og tilrauna-
starfsemi.
Eitthvað af þessu er hægt að út-
skýra með því að horfa til liðsskip-
anar hljómsveitarinnar: söngkonan
Heiða er klassískt menntuð söng-
kona, en klarinettuleikarinn Joachim
Badenhorst kemur úr djassinum.
Fiðluleikarinn, Ananata Rossen, er
þá tangómenntuð og Hilmar Jensson
er úr djassi auk þess að vera mikið í
nýsköpun og tilraunastarfsemi.
Upptökumaðurinn, Áki Ásgeirsson,
hefur svo verið mikilvirkur á jaðri ís-
lensks tónlistarlífs, m.a. með tónlist-
arhópnum Aton.
Þjóðlög
Heiða segir að sveitin hafi komið
saman þegar meðlimir voru saman í
námi í Haag í Hollandi.
„Við byrjuðum á því að leika okkur
með íslensk þjóðlög og toguðum þau
og teygðum á ýmsa lund. Svo fórum
við að leika okkur með ýmsa aðra
stíla. Við spunnum mikið með þetta
og þar kom að við ákváðum að negla
þessu inn á plötu. Lögin eru frum-
samin og ég samdi texta. Svo notaði
ég slatta úr íslensku Vísnabókinni
sem er mér mjög kær. Og ég samdi
ný lög við þær vísur sem ég þekkti
ekki tónlistina við. Ættjarðarástin
var farin að gera rækilega vart við
sig þarna úti eins og þú heyrir og það
skýrir m.a. nafn sveitarinnar.“
Platan var tekin upp í Sólheima-
kirkju síðasta haust á einum og hálf-
um degi.
„Í dag búum við víðs vegar um
heiminn og nótur gengu því á milli
heimsálfa. Svo þegar við komum
saman hér á landi fæddist platan. Í
návíginu gerðist mikið og við gátum
lagst almennilega yfir lögin, breytt
þeim og bætt þau eftir þörfum.“
Það er belgíska útgáfan Radical
Duke sem gefur út og hið öfluga
dreifingarfyrirtæki PIAS sér um að
dreifa.
„Joachim er vel tengdur inn í hol-
lensku og belgísku djasssenuna og
hann landaði þessum samningi.
Hann lét innanbúðarmenn í Radical
Duke hafa demó af plötunni okkar og
þeim leist vel á. Þeir sem reka merk-
ið eru í hljómsveitinni DAAU sem er
eins og við í því að sulla saman ólík-
um stílum. DAAU voru á mála hjá
Sony en meðlimir urðu fyrir miklum
vonbrigðum þar og ákváðu að stofna
útgáfu sem hefði algert listrænt
frelsi í hávegum. Enda fengum við
að ráða öllu í sambandi við þessa
plötu.“
Útrás
Heiða segist hafa lokið námi árið
2004 en fluttist ekki „almennilega“
heim fyrr en síðasta haust.
„Ég er að kenna við listaskóla
Mosfellsbæjar en er svona að hasla
mér meiri völl í spilamennsku og
lagasmíðum. Tilkoma þessarar sveit-
ar var eiginlega vegna þess að mig
langaði til að komast úr klassíska
ferhyrningnum (hlær). Mér finnst
t.d. mjög fyndið að ég sé að fara að
syngja á djasshátíð, ég sá það ekki
fyrir mér fyrir einhverjum árum síð-
an.“
Heiða kann litlar skýringar á
þessari tilraunagleði sinni.
„Það er bara svo gaman að skapa
eitthvað alveg nýtt og fá útrás fyrir
sköpunargáfuna sem maður býr yfir.
Það er engu að síður ágætt að vera
inni í nefndum ferhyrningi – þar er
grunnurinn og það er svona eins og
að koma heim að hverfa til hans. En
að sama skapi er gríðarlega frelsandi
að gægjast út fyrir hann. Ég hef t.d.
mesta unun af því að syngja barrokk
en það hagar sér dálítið eins og
djassinn, rými til túlkunar þar er
mjög mikið.“
Heiða segir að Mógil muni halda
ótrauð áfram næstu misseri, slíkt sé
gamanið og stemningin í hópnum.
Leikur að formum
Mógil Hljómsveitin sem spilar óflokkanlegu tónlistina er skipuð þeim Heiðu Árnadóttur, Hilmari Jenssyni, Anöntu Roosens og Joachim Badenhorst.
Mógil heldur útgáfutónleika vegna
Ró þann 29. ágúst á Djasshátíð
Reykjavíkur. Sveitin heldur svo
tónleika í Hollandi og Belgíu í end-
aðan september. Í þessari viku
mun Heiða svo troða upp með
kvartettinum HeiðAndréScot-
Toggi en á efnisskránni eru lög
eftir franska tónskáldið Michel
Legrand. Kvartettinn kemur fram
á Seyðisfirði á miðvikudaginn, á
Akureyri á fimmtudaginn og svo í
Fríkirkjunni í Reykjavík á föstu-
daginn. Sjá nánar á www.my-
space.com/heidaarna
Út er komin fyrsta
plata hljómsveitarinnar
Mógil, Ró. Söngkonan
Heiða Árnadóttir stofn-
setti sveitina á náms-
árum sínum í Hollandi
en tónlistin er mel-
ódískur, seiðandi spuni
þar sem íslenskar þjóð-
vísur eru oftlega til
grundvallar.
Sími 551 3010
Hárgreiðslustofan
AMERICA Ferrera, leikkonan gull-
fallega sem leikur titilhlutverkið í þáttaröðinni
Ljótu Betty, var valin skemmtikraftur ársins þegar
ALMA verðlaunin voru veitt í gær. Þar eru leik-
arar og tónlistarfólk af suður-amerískum uppruna
verðlaunuð fyrir frammistöðu í starfi. Þá fengu
leikararnir sem fara með hlutverk Suarez fjöl-
skyldunnar í þáttunum einnig verðlaun fyrir
framúrskarandi samleik og leikstjóri þátt-
anna, Linda Menoza, var valin sjónvarps-
leikstjóri ársins.
Kynnir kvöldsins var leikkonan Eva
Longoria sem best er þekkt fyrir hlut-
verk sitt í þáttunum Aðþrengdar eig-
inkonur. Í hvert skipti sem hún steig á svið á
hátíðinni var hún komin í nýjan kjól og urðu
þeir alls tíu um kvöldið og hver öðrum
glæsilegri eins og sjá má af nokkr-
um dæmum hér.
Ljóta Betty sigur-
vegari kvöldsins
Reuters
„Ljóta“ Betty Leikkonan
America Ferrera kom,
sá og sigraði.