Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Ný sending frá Tunguhálsi 10, 110 Reyjavík Á ANNAÐ þúsund manns á öllum aldri flykktist í Laugardalshöllina í gær til þess að hitta ólympíuhetjur íslenska handboltalandsliðsins. Leikmennirnir árituðu myndir af landsliðinu auk þess sem margir gestanna komu með eigin búninga, félagsfána, bolta og ýmislegt fleira til áritunar. Logi Geirsson var meðal liðs- mannanna í Höllinni. Hann tók vel á móti ungum upprennandi hand- boltahetjum og leyfði þeim meðal annars að handleika silfurpening- inn góða. Landsliðið tók sér góðan tíma fyrir aðdáendur sína og liðu rúmar tvær klukkustundir þar til allir höfðu hitt kempurnar. Handboltahetjurnar hittu aðdáendur sína í Laugardalshöll í gær Fékk að handleika silfrið Morgunblaðið/Ómar TVÖ íslensk kvikmyndafyrirtæki, Kaldaljós ehf. og Ferð ehf., áður Little trip ehf., hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta. Kvikmyndafélagið Kaldaljós ehf., Bjarkargötu 6 í Reykjavík, var stofn- að til að framleiða kvikmynd Frið- riks Þórs Friðrikssonar, Kaldaljós. Leikstjóri myndarinnar var Hilmar Oddsson og Ingvar Sigurðsson var í aðalhlutverkinu. Fram kemur í Lögbirtingablaðinu að fyrirtækið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta 20. febrúar 2008 og lauk skiptum 19. ágúst sl. Lýstar kröfur í þrotabúið námu alls rúmum 86,6 milljónum króna. Upp í kröfurn- ar greiddust rúmar 9 milljónir. Skiptastjóri var Ásdís J. Rafnar hrl. Ferð ehf., Skálholtsstíg 7, Reykja- vík, var stofnað til að framleiða mynd Baltasars Kormáks, A little trip to heaven. Myndin skartaði m.a. útlendum stórstjörnum, þeim Forest Whitaker og Júlíu Stiles. Fyrirtækið var tekið til gjald- þrotaskipta 10. júlí s.l. og verður skiptafundur haldinn 28. október n.k. Að sögn skiptastjórans, Helga Jóhannessonar hrl., var fyrirtækið úrskurðað gjaldþrota að kröfu Kaup- þings . sisi@mbl.is Kvikmynda- fyrirtæki í þrot Kaldaljós ehf. og Ferð ehf. gjaldþrota EGG húsgagnaverslun flytur á næstunni í Skútuvog 16 og verður starfrækt í samstarfi við Blóma- val. Steinn Logi Björnsson, for- stjóri Húsasmiðjunnar og Blóma- vals, segir að verslunin fái um 300 fermetra pláss í Blómavali sem er töluvert minna en núverandi versl- un Eggs á Smáratorgi. Af þessum sökum verði vissir vöruflokka gefnir upp á bátinn en verslunin muni halda útliti sínu og nafni. Einhverjar uppsagnir Fyrirkomulagið segir Steinn Logi vera mjög hagkvæmt fyrir bæði Egg og Blómaval og styrki starfsemina. Einhverjar uppsagnir hjá Egg munu fylgja breyting- unum en ekki liggur fyrir hve margar þær verða. „En nýja Egg- ið þarf náttúrlega starfsfólk og hluti af fólkinu fer þangað,“ segir Steinn Logi. Nú eru þrettán starfsmenn fastráðnir hjá Eggi. skulias@mbl.is Egg fer inn í Blómaval Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is GRÍÐARMIKLAR framkvæmdir á Miðbakka í Reykjavík, hvort heldur sem eru hafnar eða fyrirhugaðar, hafa eflaust ekki farið framhjá mörgum. Bygging tónlistar- og ráð- stefnuhússins stendur yfir af fullum krafti en auk þess er ráðgert að reisa á svæðinu hótel, viðskipta- miðstöð og höfuðstöðvar Lands- bankans. Nú hefur hinsvegar komið í ljós að byggingu viðskiptamiðstöðvarinnar World Trade Center Reykjavík verður frestað um óákveðinn tíma eða þar til hægt verður að ná eðlileg- um kjörum á fjármögnun verkefn- isins, eins og haft var eftir Höskuldi Ásgeirssyni, forstjóra Nýsis, í Morg- unblaðinu á þriðjudag. Jarðvegsvinna við hótelið er langt komin. Þá hefur Landsbankinn ný- lokið hönnunarsamkeppni um höf- uðstöðvar sínar en úrslitin verða til- kynnt í haust. Bæði verkefnin eru þó í ákveðinni biðstöðu meðan ekki liggur endanlega fyrir hvort Geirs- gatan verður lögð í stokk eða ekki. Hönnunarvinna stöðvuð Að sögn Helga S. Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Portus, hefur hótelið á Miðbakka verið forhannað. Portus hefur verið í viðræðum við tvo aðila um aðkomu að verkefninu sem Helgi vonast til að verði und- irbúið frekar á næstu mánuðum. „Eina ástæðan fyrir að við höfum beðið er sú vinna sem hefur verið í gangi í samstarfið við Reykjavík- urborg um að setja Geirsgötu í stokk,“ segir Helgi. „Jarðhæðin á hótelinu og kjall- arinn breytast mjög mikið ef Geirs- gatan fer í stokk. Því höfum við stoppað frekari þróun og hönnun meðan þau mál fást á hreint. Hug- myndir liggja fyrir um útlit og hönn- un hússins en næsta skref er að end- urskoða þá hönnun í samræmi við stokkalausn og halda þá verkefninu áfram þegar ákvörðun liggur fyrir.“ Upphaflega var gert ráð fyrir að hótelið yrði opnað vorið 2010 en nú er vonast til að það verði vígt þá um haustið eða vorið 2011. Haukur Þór Haraldsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Lands- bankans, segir teikningar af fyr- irhuguðum höfuðstöðvum bankans verða kynntar innan skamms, en ekki sé búið að ákveða hvenær fram- kvæmdir á þeim hefjist eða þeim ljúki. Það helgist af því að byggingin tengist heildarframkvæmdum á svæðinu. Ekki sé hægt að klára út- færslu og byggingu á neðanjarð- arbílastæðahúsi sem er forsenda þess að hægt sé að hefja byggingu höfuðstöðvanna, fyrr en ákveðið hef- ur verið hvar og hvernig fyrr- nefndur stokkur eigi að vera. Óljóst með framkvæmd Þegar sú ákvörðun hefur verið tekin er hægt að hefja byggingu bílastæðahússins en það er gríð- arlega stórt og nær undir heild- arsvæðið, líkt og sést á korti hér að ofan. Verður það á tveimur hæðum og er ráðgert að þar rúmist um 1.600 bílar. Þegar þeirri byggingu er lokið hefur skapast grunnur undir höf- uðstöðvar Landsbankans. Jóhannes S. Kjarval, arkitekt og verkefnastjóri hjá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar, segir tillöguna að stokknum ekki vera afgreidda en framundan sé hefðbundið ferli þurfi að breyta deiliskipulagi. „Mér skilst að ekki sé ákveðið hvort það eigi að fara í þetta yfirhöfuð. Það þarf að undirbúa þetta í samningum við ríkið og Port- us sem gegnir þarna höfuðhlut- verki,“ segir Jóhannes. Spurður hvað gera eigi við svæðið, sem viðskiptamiðstöðin átti að standa á, svarar Jóhannes því til að það sé úrlausnarefni sem borgin standi frammi fyrir. Um sé að ræða stórt, steypt plan sem mögulegt sé að móta á ýmsa vegu. „Þetta er svo óljóst enn sem komið er að ég hef ekkert annað að segja en að þarna er tækifæri til að gera eitthvað sem er okkur allavega ekki til vansa á með- an það er svona.“ Framkvæmdir í bið vegna óvissu um stokk                                                             Byggingar í bið- stöðu meðan beðið er ákvörðunar um stokk í Geirsgötu Að sögn Helga S. Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Portus, ganga framkvæmdir við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið vel en verkið er nokkrum vikum á eftir áætlun. Á byggingarsvæðinu vinna nú um 250 starfsmenn en í heild koma um 450 manns að verkinu. Flestir starfa á Íslandi en aðrir starfsmenn eru í sex löndum. Glerhjúpurinn, sem hannaður er af Ólafi Elíassyni listamanni, er framleiddur í Kína, loftræsti- samstæður í Svíþjóð, sviðsbún- aður útbúinn í Austurríki auk þess sem hönnuðir og ráðgjafar eru í Danmörku, Þýskalandi og Banda- ríkjunum. Helgi segir steypuvinnu vænt- anlega verða lokið í enda ársins. Nú þegar er hafin vinna við að loka ákveðnum sölum, t.d. er ver- ið að setja þak yfir ráðstefnusal- inn og æfingasalinn. Þá er hafin vinna við innri frágang, líkt og við innveggi, loftræstikerfi og lagnir auk þess sem byrjað er að mála kjallarann. Áætlað er að Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði tilbúið í desember 2009. Unnið hörðum höndum í sjö löndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.