Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Listamennirnir Kristjana Samp- er og Baltasar Samper opna samsýningu í DaLí Gallery á morgun kl. 17 á Akureyrarvöku. Á sýningunni verða sýnd málverk eftir Baltas- ar sem unnin eru upp úr goðafræði, sérstak- lega Eddukvæðum, og skúlptúrar eftir Krist- jönu sem vísa til fornrar trúar. Kristjana Samper vinnur einkum í þrívídd, í stein, járn, tré, leir og steinseypu. Baltasar vinnur með blandaða tækni í myndverkum sínum. Sýn- ingin stendur til 14. september. Myndlist Kristjana og Baltasar í DaLí Baltasar og Kristjana Samper. NÚ hefur verið opnuð sýning á úrvali muna sem bárust Þjóðminja- safni Íslands árið 2007. Munir sem berast safn- inu á ári hverju eru jafn- fjölbreyttir og þeir eru margir. Meðal muna á sýningunni má sjá ferðaklósett, sem talið er að Friðrik konungur VIII. hafi notað í Ís- landsheimsókn sinni árið 1907, „hippavesti“ frá því um 1970, pappírspoka merktan Lata- bæ, fermingarkort frá 1960, barmmerkjasafn frá 9. áratug 20. aldar, forna öxi sem fannst í Þjórsárdal sumarið 2004 og rúmfjöl frá 1773. Þjóðminjar Sýna ferðaklósett Friðriks VIII Merki Eimskipafjelags Íslands. SÍÐASTI dagur af- mælisveislu Nor- ræna hússins er í dag. Unga kynslóðin í dag sem verður orðin fullorðin árið 2018 hefur Norræna húsið til umráða í kvöld. Ungt fólk sem allt er undir tvítugu hefur undirbúið og skipulagt dagskrána og þátttak- endurnir eru á svipuðum aldri. Ungviðið leikur lausum hala í Norræna húsinu í kvöld. Fram koma Gjörningahópurinn Kúmíkat, leikhópur frá Vinnuskóla Reykjavíkur, hljómsveitin Syk- ur og danska hljómsveitin Skandals. Enginn aðgangseyrir og léttar veitingar frá kl. 18. Listir Framtíðarfólkið í Norræna húsinu Sykur ÆFINGAR eru að hefjast á ný hjá Söngsveitinni Fíl- harmóníu. Spennandi verk- efni eru framundan: tón- leikar með Ragnheiði Gröndal og hljómsveitinni Bardukha með klezmer- tónlist, aðventutónleikum í Langholtskirkju og vortón- leikum með flutningi Messu í g-moll eftir Bach og Sálu- messu Mozarts. Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson. Raddpróf fyr- ir nýja félaga verða þriðjudagskvöld 2. sept- ember kl. 19 og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta. Nánari á www.filharmonia.mi.is. Tónlist Fílharmónía að hefja vetrarstarf Magnús Ragnarsson FYRSTA frumsýning vetrarins er á morgun klukkan þrjú en þá sýna Þjóðleikhúsið og Fígúra, leikhús brúðuleikarans Bernds Ogrogniks, leikritið Klókur ertu, Einar Áskell. Bernd hefur áður verið í samstarfi við Þjóðleikhúsið, t.d. í sýningunum vinsælu Klaufar og kóngsdætur og Pétur og úlfurinn. Gunnilla Bergström höfundur bókanna um Einar Áskel átti frum- kvæðið að því að færa hann á svið og hafði samband við Bernd eftir að hafa séð hann og brúðurnar hans í þættinum Út og suður. Hún ætlaði sjálf að vera viðstödd frumsýn- inguna, en handleggsbrotnaði og varð því að fresta ferð sinni hingað. Sérstök líkamshlutföll Bernd segir að vel hafi gengið að koma Einari Áskeli í brúðuform. „Þetta er búið að vera eitt æv- intýri,“ segir Bernd. „Hann Einar er með mjög sérstök líkamshlutföll og eins og hann er teiknaður þá er hann með ferkantað höfuð og augu efst á því. Það gengur ekki alveg upp í þrívídd. Það þurfti að gera ýmsar málamiðlanir, en þetta var frábær reynsla. Bækurnar eru í allt öðrum stíl en mín verk, en það er skemmtilegt þegar fólk úr ólíkum áttum vinnur saman að einhverju alveg nýju.“ Sýningin er samsett úr tveimur bókum sem íslensk börn þekkja vel, Svei-attan Einar Áskell og Góða nótt Einar Áskell. Þar eru Einar Áskell og pabbi hans í aðal- hlutverkum og á sviðinu birtist líka ímyndaður ævintýraheimur með tilheyrandi furðudýrum úr kolli Einars Áskels. Verið er að skoða möguleikann á sjónvarpsþáttum í framhaldinu, en ekkert er þó ákveðið í þeim efnum. „Mig langar að byrja á því að finna út hvað er hægt að gera fyrir þenn- an karakter með brúðum og svo sjáum við bara til.“ Einar Áskell lifnar við í þrívídd Félagar Einar Áskell og Bernd. Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU í vetur verður lögð áhersla á innlenda leikritun, meðal annars með frumflutn- ingi á nýjum verkum og nýrri uppfærslu á einni af perlum íslenskra leik- bókmennta. Sú nýbreytni verð- ur tekin upp til að hvetja ungt fólk til að sækja leikhús að 25 ára og yngri njóta sérkjara í miðasölunni og greiða 1500 krónur fyrir miðann. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóð- leikhússtjóri segir að í vetur bjóði Þjóðleikhúsið upp á metn- aðarfulla og spennandi dagskrá. „Fyrsta frumsýningin á Stóra sviðinu verður Hart í bak, eftir Jökul Jakobsson, sem hefði orðið 75 ára í haust. Það naut gífurlegra vinsælda á sínum tíma og með því sannaði hann í raun að íslensk samtímaleikritun gæti höfðað til leikhúsgesta. Við mátum þetta verk við samtímann, en sagan af skipstjóranum sem var trúað fyrir þjóð- arskútunni, en brást og sigldi henni í strand, á sér margs konar tilvísanir í íslenskt samfélag í dag. Fyrsta frumsýningin í Kassanum er líka íslenskt verk, en það er Utan gátta eftir Sigurð Pálsson. Að sögn Tinnu er þetta er drepfyndið verk um þær Villu og Millu sem geta ekki með nokkru móti verið saman, en verða að sættast á þá nauðung. „Verkið er borið uppi af afbragðsleikurum, en það eru þau Ólafía Hrönn, Kristbjörg Kjeld, Eggert Þorleifsson og Arnar Jónsson sem fara með hlutverkin,“ bætir Tinna við. Um jólin frumsýnir Þjóðleikhúsið nýja leikgerð Hilmars Jónssonar, Sumarljós eftir verðlaunabók Jóns Kalmans Stefánssonar. „Íslenska þorpið og hin margvíslegu leyndarmál þess eru í brennidepli í þessu verki. Ég held að leikhúsgestir geti gert sér góðar væntingar til þessarar sýningar. Hún á eftir að krauma af lífi,“ segir Tinna. Frida Kahlo í aðalhlutverki í vor Í vor verður nýtt verk eftir Brynhildi Guðjóns- dóttur leikara og leikskáld sett á svið; Frida … viva la vida. Verkið er ferðalag um hugarheim mexí- kósku listakonunnar Fridu Kahlo. „Brynhildur leikur sjálf titilhlutverkið en í sýningunni má búast við miklum leikhúsgaldri,“ segir Tinna. „Það má geta þess að samhliða leiksýningunni verða í fyrsta sinn á Íslandi sýnd verk Fridu, en það er von á magnaðri sýningu á verkum hennar í Listasafni Ís- lands í vor. Mér líst mjög vel á þetta samstarf. Með þessu ætti almenningi að gefast kostur á fjöl- breytttri innsýn í myndlist Fridu Kahlo og hug- arheim hennar.“ Kardimommubærinn fer síðan á fjalirnar í febr- úar, með þeim Erni Árnasyni, Rúnari Frey og Kjartani Guðjónssyni í hlutverkum ræningjanna. „Þetta er vinsælasta barnaleikrit á Íslandi fyrr og síðar og ekki að ástæðulausu. Þetta er hreint út sagt frábært verk sem hver kynslóð barna verður að fá að upplifa.“ Næst á dagskránni á Stóra sviðinu er Þrett- ándakvöld. „Verkið er einn af ástsælustu gleði- leikjum Shakespeares en uppsetningin er sam- vinnuverkefni Þjóðleikhússins og leiklistardeildar Listaháskólans. Í sýningunni teflum við fram nokkrum af okkar reyndustu leikurum ásamt ferskum og spennandi leikhópi nemendaleikhúss- ins, en með sýningunni útskrifast þau sem fullgildir leikarar. Það má búast við miklu fjöri,“ segir Tinna. bandið, og Sædýrasafnið, þar sem meðal annars Barði Jóhannsson tónlistarmaður og Erna Ómars- dóttir dansari koma að sköpunarvinnunni.“ Þó að lagt sé í mikla tilraunastarfsemi í Þjóðleik- húsinu í vetur, ættu allir að finna þar eitthvað við sitt hæfi að sögn Tinnu. „Markmiðið er að bjóða upp á glæsilega dagskrá sem getur höfðað til alls almennings, en jafnframt að gefa þróun leiklist- arinnar og rannsóknarvinnu sérstakt rými. Við vilj- um nýta þá auðlind sem býr í listamönnum hússins, sem er svo sannarlega ekki lítil, og gefa þeim mikið frelsi til sköpunar.“ „Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins verður vett- vangur fyrir fjölbreytta tilraunastarfsemi en öfl- ugur hópur ungs leikhúslistafólks er þessa dagana að kafa ofan í Macbeth eftir Shakespeare,“ segir Tinna. „Þar verður einnig lagt upp í rannsókn- arleiðangur á hinu margbrotna og flókna tilfinn- ingasambandi manna og heimilistækja, en það eru þau Kristján Ingimarsson látbragðsleikari, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ilmur Stefánsdóttir myndlist- arkona og fleiri sem þar verða að rannsókn- arstörfum. Í Kassanum verða tvö ný erlend verk eftir áramót; Heiður, magnað drama um hjóna- Íslensk leikritun í öndvegi Sveitasæla Jörundur Ragnarsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir eru meðal aðalleikara í Sumarljósi eftir skáldsögu Jóns Kalmans Stefánssonar þar sem íslenska þorpið verður grandskoðað frá öllum hliðum.  Þrjú ný íslensk verk frumsýnd í Þjóðleikhúsinu og Hart í bak fer aftur á svið  Yngsta kynslóðin fær að kynnast íbúum Kardemommubæjar Klassík Gunnar Eyjólfsson leikari í hlutverki skip- stjórans í leikriti Jökuls Jakobssonar Hart í bak. Frida og Diego Brynhildur Guðjónsdóttir leik- skáld og leikkona fjallar um Fridu Kahlo. Tinna Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.